Morgunblaðið - 20.01.1988, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1988
27
Verkfall skrif-
stofustar f sf ólks
Stokkhólmi. Reuter.
VERKFALL 50.000 skrifstofu-
starfsmanna í einkageiranum
hófst í Svíþjóð í fyrradag. Þeir
krefjast 5-7% launahækkunar en
verðbólga er nú 5% í Svíþjóð.
Starfsemi margra iðnfyrirtækja
lamaðist þegar og ríkisstjórnin
hefur beðið aðilja vinnumarkaðs-
ins að „stilla kröfum sínum í
hóf“.
Talsmenn SID, verkalýðsfélags
skrifstofufólks í einkafyrirtækjum,
sögðu að þátttaka í verkfallinu
væri almenn. Stjórnendur Volvo-
fyrirtækisins sögðu aðspurðir um
afleiðingar verkfallsins að fram-
leiðslan legðist þegar niður og engin
tilraun yrði gerð til að halda uppi
starfsemi.
í fjárlögum ársins sem birt voru
fyrir viku er varað við því að halli
á ríkissjóði eigi eftir að margfaldast
ef almennar launahækkanir um-
fram verðbólgu gangi í gegn.
Talsmenn stjómarinnar segja að ef
laun myndu hækka um 7% í landinu
þá yrði fjárlagahallinn 21 milljarður
sænskra króna á næstu tveimur
árum. Ríkisstjómin hefur án beinna
afskipta af vinnudeilum mælst til
þess að launahækkunum verði hald-
ið innan 4% á þessu ári.
Vinnuveitendur hafa tekið harða
afstöðu gegn kröfum verkfalls-
manna og buðu skrifstofufólki 0,9%
launahækkun nú fyrir helgina.
UTSALA t*gg»
KAPÍISALAN
BORGARTÚNI22
SÍMI 23509
Næg bflastæði
AKGREYRI PARDCIS
HAFNARSTRÆTl 88
SÍMI96-25250
VfSA
Skákmótið í Wijk aan Zee:
Friðsamir meistarar
í GÆR var tefld 9. umferð skák-
mótsins í Wijk aan Zee. Meistar-
arnir voru óveiyu friðsamir og
lauk öllum skákunum utan einni
með jafntefli. Andersson heldur
enn forystu sinni, er með 6V2
vinning af 9 mögulegum.
Úrslit í gær urðu þau að Piket
og Hansen, Tal og Agdestein, Van
der Wiel og Nikolic, Sosonko og
Karpov, Ljubojevic og Andersson,
Hiibner og Farago gerðu jafntefli.
Georgiev lagði hins vegar Van der
Sterren. Einnig sömdu Agdestein
og Georgiev um jafntefli í biðskák
sinni úr 8. umferð.
Andersson er efstur eins og áður
segir. Karpov er í 2. sæti með 6
vinninga og Georgiev í því þriðja
með 5V2 vinning.
Að lokum er hér snaggaraleg
vinningsskák Karpovs gegn Van
der Wiel úr 8. umferð.
Hvítt: Karpov
Svart: Van der Wiel
1. c4 — e6, 2. Rc3 — Bb4, 3. g3
- Re7, 4. Bg2 - O-O, 5. Db3 -
c5, 6. a3 — Ba5, 7. e3 — Rbc6,
8. Rge2 - Bb6, 9. 0-0 - Ra5,
10. Da2 - d5, 11. d3 - dxc4, 12.
dxc4 - Bd7, 13. b4 - Rac6, 14.
Hbl - Dc7, 15. Db3 - Re5, 16.
b5 - Had8, 17. f4 - R5g6, 18.
e4 - f5, 19. e5 — Be8, 20. Be3
- Rh8, 21. Ra4 - Bh5, 22. Rcl
- Hd7, 23. Rd3 - Be2, 24. Rdc5
- Hd3, 25. Rxd3 — Bxe3+, 26.
Khl - Hd8, 27. Rb4 - Bxfl, 28.
Hxfl - Bc5, 29. Rd3 - b6, 30.
Raxc5 — bxc5, 31. a4 — Hd4, 32.
a5 - Dxa5, 33. Rxc5 - Kf7, 34,
Rb7 — Dd2, 35. b6 og svartur
gaf þar eð hann ræður ekki við
frípeð hvíts.
Samningimmi er engin ógn-
un við Atlantshafsbandalagið
- segir Atli Dam lögmaður um fiskveiðisamninginn við Sovétmenn
Svíþjóð:
UTSALA
20-40%
afsláttur
Vönduð efni
klassísk sníð.
EINS og fram kom í Morgun-
blaðinu í gær hefur nýlegur
fiskveiðisamningur Færeyinga
og Sovétmanna vakið nokkrar
áhyggjur innan Atlantshafs-
bandalagsins. Var frá því skýrt
í breska tímaritinu The Econom-
ist og í danska blaðinu Berl-
ingske Tidende sagði, að algengt
væri, að 3-400 Sovétmenn væru
í landi í einu í Færeyjum, tvisvar
til þrisvar sinnum fleiri en starfs-
menn danska hersins þar. Atli
Dam, lögmaður Færeyja, gerir
hins vegar 'lítið úr þessum
áhyggjum.
í fiskveiðisamningnum er kveðið
á um, að Sovétmenn fái að veiða
140.000 tonn af kolmunna á miðun-
um við Færeyjar en Færeyingar fá
á móti að veiða 21.000 tonn af
þorski í Barentshafí. Sá afli verður
hins vegar að mestu leyti tekinn á
gráa svæðinu svokallaða, sem
Norðmenn og Sovétmenn deila um,
og því finnst þeim fyrmefndu, að
þama hafi Sovétmenn gerst dálítið
örlátir á það, sem þeir eiga ekki.
Auk fiskveiðisamningsins sömdu
Sovétmenn um, að sovésk skip yrðu
tekin til viðgerðar í tveimur af
þremur skipasmíðastöðvum í Fær-
eyjum og snúast áhyggjur Nato-
manna um það, að sovéski
fískiskipaflotinn og þeir, sem em í
landi hveiju sinni, séu hluti af her-
sveit, sem á neyðartímum gæti lagt
undir sig eyjamar án þess að Nato
fengi rönd við reist.
Síðastliðið laugardagskvöld hafði
færeyska útvarpið viðtal við Atla
Dam lögmann vegna greinarinnar
í The Economist og sagði hann þá,
að samningurinn við Sovétmenn
væri engin ógnun við Færeyinga
eða Atlantshafsbandalagið. Kemur
þetta fram í frétt frá Snorra Hall-
dórssyni, fréttaritara Morgunblaðs-
ins í Þórshöfn.
Atli sagði, að fiskveiðisamning-
urinn væri sá besti, sem Færeyingar
hefðu gert, ef undan væm skildir
samningar við íslendinga, og bætti
því við, að vestrænum ríkjum ætti
að vera í lófa lagið að sýna Færey-
ingum meiri samningsvilja fyrst
eyjamar teldust svona mikilvægar.
Kvaðst hann ekki hafa neinar
áhyggjur af því, að sovésku sjó-
mennimir væm í áhlaupsdeild, sem
gæti lagt undir sig Færeyjar áður
en nokkum varði. Það væri enda
óþarfí þvf að sovésk herskip gætu
sem hægast siglt upp að landhelgis-
mörkunum og tekið síðan eyjamar
í einu skyndiáhlaupi.
Atli Dam lögmaður lagði mikla
áherslu á, að ekkert samband væri
á milli fískveiðisamningsins við Sov-
étmenn og samninga við þá um
viðgerð á sovéskum skipum og kaup
á rækjum fyrir rækjuverksmiðjuna
á Eyri. Atli sagði, að vissulega
hefðu sumir orðið til að finna að
samningnum við Sovétmenn en slík
Færeyjar:
Bandaríkín:
Slys í áætlunarflugi
kostuðu 232 menn lífið
STÉLIÐ brotnaði á DC-9 þotu
Eastem Airlines i lendingu í
Pensacola í Flórída lun áramótin.
Dró hún það á eftir sér tvo kíló-
metra eftir brautinni unz hún
staðnæmdist.
Enginn beið bana og þykir mildi
að ekki fór verr því þotan er ónýt.
Með atvikinu lauk ári mikilla flug-
slysa í áætlunarflugi í Bandaríkjun-
um. Biðu 232 menn bana, farþegar,
flugliðar og fólk á jörðu niðri. Arið
1986 beið hins vegar aðeins einn
maður bana í áætlunarflugi.
AJls urðu 29 áætlunarflugvélar
fyrir skakkaföllum í fyrra, miðað við
23 í hitteðfyrra. Þijú stórslys urðu.
í desember gekk fyrrum starfsmaður
Pacifíc Southwestem Airlines ber-
serksgang um borð í þotu félagsins.
Hóf hann skothríð f háloftunum með
þeim afleiðingum að þotan fórst og
biðu 43 menn bana.
Skömmu áður fórst DC-9 þota frá
Continental er henni hvolfdi í flug-
taki í Denver í Colorado. Ungur
óreyndur aðstoðarflugmaður var við
stjómvölinn. Orsakir slyssins voru
reknar til ísingar á vængjum. Ástæð-
an: yfírsjón flugmanna. Biðu 28
manns bana.
í ágústmánuði fórst þota frá
Northwest-flugfélaginu skammt frá
flugvellinum í Detroit og með henni
156 menn. Var það annað mann-
skæðasta flugslys í sögu Banda-
ríkjanna. Menn, sem unnu að
rannsókn slyssins, telja orsökina þá
að flugmennimir hafí gleymt að stilla
vængbörð fyrir flugtak.
En er flugið óömggt? Þrátt fyrir
óhöppin er manntjónið minna en einn
maður miðað við 100.000 flugtök,
en aðeins fímm sinnum hefur hlut-
fallið verið lægra í 50 ár. Fleiri
ferðuðust þó með flugi en nokkm
sinni áður, eða rúmlega 450 milljón-
ir manna, miðað við 418 milljónir
árið 1986.
Eins og áður segir biðu 232 bana
vegna óhappa í áætlunarflugi í Band-
aíkjunum í fyrra og aðeins einn árið
1986. Árið 1985 vom þeir 197, árið
1984 fjórir, 1983 vom þeir 15, 233
árið 1982, fjórir árið 1981 og enginn
árið 1980. Arið 1979 biðu hins vegar
351 maður bana í áætlunarflugi þar
í landi.
(Úr U.S. News & World Report)
gagnrýni hefði aldrei komið frá
Atlantshafsbandalaginu. Ákveðnir
stjómmálamenn í Færeyjum hefðu
agnúast út í hann og ekki ólíklegt,
að skoðanir þeirra hefðu rekið á
fjörur The Economist.
Frá Þórshöfn