Morgunblaðið - 21.01.1988, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1988
Þorsteinn Pálsson, forsætisráðherra:
Hækkun á skattleysis-
mörkum kemur til greina
- ef kjarasamningar fela í sér að hægt sé að ná tökum á verðbólgunni
ÞORSTEINN Pálsson, forsætis-
ráðherra, segist vera orðinn
óþreyjufullur að bíða eftir að
verkalýðshreyfing og vinnuveit-
endur komi sér að samninga-
borðinu, þar eigi þessir aðilar að
Keflavíkurflugvöllur:
Mengxmarmál-
in verða könn-
uð til hlítar
Keflavík.
ÍTARLEGAR rannsóknir eru
fyrirhugaðar á Keflavíkurflug-
velli og nágrenni hans þar sem
kanna á niður i kjölinn alla hugs-
anlega þætti sem tengjast
mengun. Fengnir hafa verið sér-
fræðingar frá bandariska fyrir-
tækinu R.E. Wright Associates.
Viðræður hafa staðið yfir um
nokkra hríð um íslenska aðild að
þessu verki og eru þær að komast
á lokastig. Kostnaður við verkið
verður greiddur af Bandaríkja-
mönnum og er vonast til að það
heijist í vor. Verkefni þetta er
umfangsmikið og kostnaður talinn
geta skipt tugum milljóna.
Magnús Guðjónsson fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits
Suðumesja sagði í gær að upphaf
þessa máls hefði verið að merki um
efnið triklóretylen hefði fundist í
einu vantsbóli vamarliðsins á
Keflavíkurflugvelli. Þótti rétt að
loka því. Sérfræðingar frá Banda-
ríkjunum voru kallaðir til að kanna
öll vatnsból á svæði vamarliðsins
en efnið greindist einungis í þessu
eina vatnsbóli.
„Þegar Heilbrigðiseftirlit Suður-
nesja frétti um þessa mengun á
svaeði vamarliðsins voru tekin sýni
til efnagreiningar úr vatnsbólum
Njarðvikinga og Keflvíkinga. í þeim
fannst engin mengun, en nýlega
hefur fundist vottur af fyrrgreindu
efni í aðalvatnsbóli Njarðvíkinga,
en í litlu magni og langt undir
hættumörkum. Við efnagreiningar
í tengslum við olíulekann fannst
þetta efni í öðru vatnsbóli á svæði
vamarliðsins og hefur því nú einnig
verið lokað." Magnús sagði enn-
fremur að þessi mengunarvottur
sýndi hversu brýnt væri að vatns-
bólin yrðu flutt á ömggari stað.
BB
Moi^unblaðið/Bjöm Blöndal
Unnið við mengunarrannsóknir
á svæði vamarliðsins.
vera núna og það sé ekki veij-
andi að gerð kjarasamninga
dragist mikið lengur, en á síðasta
ríkisstjórnarfundi var staðan í
efnahags- og kjaramálum rædd
ítarlega. Hann sagði og að það
kæmi vel til greina að bæta stöðu
hinna lægst launuðu með skatta-
tilhliðrunum og jafnvel hækkun
skattleysismarka, gangi samn-
ingar nægilega í þá átt að ná
tökum á verðbólgunni.
„Ríkisstjómin hefur sagt að hún
útiloki það ekki að koma með ein-
hveq'um hætti inn í lokastöðu
samningaviðræðna, “ sagði Þor-
steinn aðspurður um afstöðu ríkis-
stjómarinnar til skattfríðinda til
handa fískvinnslufólki, en Pétur
Sigurðsson, forseti Alþýðusam-
bands Vestfjarða, segir í Morgun-
blaðinu að það sé vænleg leið til
þess að bæta kjör fiskvinnslufólks.
„Það byggist hins vegar alveg á
niðurstöðu samninga hvað hægt er
að gera í þessu efni og fer eftir því
á hve lágum nótum menn em tala.
Markmið þessarar ríkisstjórnar er
að ná niður verðbólgu og hún fer
ekki að spila upp samninga með
skattbreytingum, sem ganga ekki
nægjanlega langt í átt til þess að
lækka verðbólgu. Ef við sjáum hins
vegar verulega raunhæf skref í þá
átt, getum við alveg hugsað okkur
að bæta stöðu þeirra sem lægst
hafa launin með skattatilhliðrunum
og hugsanlega með hækkun á
skattleysismörkum, en það fer mjög
eftir eftii þeirra samninga sem em
á.döfinni og slíkt er ekki hægt að
gera nema menn séu að ná veralega
miklum árangri í að ná niður verð-
bólgu,“ sagði Þorsteinn ennfremur.
Hann sagði ekki ljóst hvort þær
hugmyndir sem menn hafa um gerð
kjarasamninga á Vestfjörðum opni
möguleika á skattatilhliðmnum,
það væri ekki hægt að meta á þessu
' stigi. Aðspurður um afstöðu ríkis-
stjómarinnar til samninga til
skamms tíma, sagði Þorsteinn að
hún færi algerlega eftir því hvað
slíkir samningar fælu í sér.
9,6 milljón-
ir boðnar
í Arvakur
TILBOÐ í vitaskipið Árvakur
voru opnuð hjá Innkaupa-
stofnun ríkisins í gær. Tvö
tilboð bárust og nam hið
hærra 9,6 milljónum króna.
Hærra tilboðið er frá Dýpkun-
arfélaginu hf. á Siglufirði en
einnig barst tilboð frá nokkmm
einstaklingum í Reykjavík og
Kópavogi að upphæð 4,6 millj-
ónir. Ákvörðun um sölu skipsins
liggur ekki fyrir og á eftir að
meta hvort tilboðin þykja viðun-
andi.
9 sækja um hæstarétt
NÍU umsækjendur eru um embætti hæstaréttardómara, en umsóknar-
frestur rann út þann 16. janúar. Magnús Þ. Torfason lét af embætti
dómara við réttinn um áramótin.
Umsækjendumir níu era: Bene-
dikt Blöndal, hæstaréttarlögmaður,
Gísli G. ísleifsson, deildarstjóri,
Hjörtur Torfason, hrl., Jóhann H.
Níelsson, hrl., Jóhannes L.L. Helga-
son, hrl., Jón Oddsson, hrl., Sigurð-
ur Helgason, sýslumaður, Skúli J.
Pálmason, hrl., og Sveinn Snorra-
son, hrl.
Forseti íslands veitir embætti
hæstaréttardómara að fenginni
umsögn dómsmálaráðherra.
Sama verð fyrir salt-
fisk og á síðasta ári
Samið um sölu til Portúgal og Vestur-Þýzkalands
Sölusamband íslenzkra fisk-
framleiðenda hefur nú gengið
frá samningum um sölu á salt-
fiski til Portúgal fyrir þetta ár
og sölu á söltuðum ufsaflökum
til Vestur-Þýzkalands. Samið var
um sama verð og í fyrra. Samn-
ingar að þessu sinni voru erfiðir
og segir Björgvin Jónsson, einn
samninganefndarmanna og
framkvæmdastjóri Glettings í
Þorlákshöfn, að samningar um
þetta hefðu aldrei náðst, hefðu
islenzkir framleiðendur ekki
komið fram sem ein heild. Staða
saltfiskverkunar væri erfið
vegna aukins framboðs frá öðr-
um þjóðum og slæmrar rekstrar-
stöðu.
Gerður var rammasamningur við
Portúgali um sölu saltfísks á þessu
ári og er hann með svipuðu sniði
og samningur síðasta árs, en þá
vora seldar 37.000 lestir af ýmsum
saltfiskafurðum til Portúgal. Nú var
gengið endanlega frá verði og öðr-
um skilmálum á afhendingu á um
Sókn hefur gert kjara-
samnmga við ríkí ogborg
Starfsmannafélagið Sókn hefur gert kjarasamninga við ríkisvald-
ið og Reylcjavíkurborg, sem gilda til næstu áramóta, og verður
samningurinn borínn upp á almennum félagsfundi í Sóknarhúsinu
i kvöld. Samningar Sóknar voru lausir um áramót og er félagið
fyrst verkalýðsfélaga til þess að gera kjarasamninga. Sókn hefur
um þrjú þúsund félaga innan sinna vébanda og hafa um tvö þúsund
þeirra atkvæðisrétt á fundinum.
Þórann Sveinbjömsdóttir, form-
aður Sóknar, vildi í samtali við
Morgunblaðið ekki upplýsa um inni-
hald samninganna fyrr en að
Ioknum félagsfundinum, en sagði
að þeir fælu í sér samræmingu kjara
Sóknarfélaga við kjör félaga í
Bandalagi starfsmanna ríkis og
bæja, sem er með gildandi kjara-
samninga til áramóta 1988/89 og
sams konar endurskoðunarákvæði
væru í samningnum og í samningi
BSRB.
„Ég held að við sem stöndum
fremst í víglínunni séum aldrei full-
komlega ánægð rneð kjarasamn-
inga, en við erum ánægð með þann
árangur sem hefur náðst fyrir það
fólk sem hefur dregist aftur úr.
Fólk í okkar félagi hefur unnið við
hliðina á BSRB félögum, sem hafa
verið að hækka stöðugt í launum
að undanfornu, og það var mjög
biýnt að leiðrétta það,“ sagði Þór-
unn.
Hún sagðist ekki óttast það að
ríða á vaðið hvað gerð kjarasamn-
inga snerti, enda tækju kjör
Sóknarfélaga fyrst og fremst mið
af kjöram BSRB félaga. „Það verð-
ur líka einhvem tíma að taka
áhættu. Ég veit ekki hvort félagar
okkar græða meira á því að bíða
eftir hugsanlegu verkfalli, sem
verður ef tl vill einhvem tíma í
mars eða apríl," sagði Þórann. Hún
sagði að kaupmátturinn hefði verið
að rýma óðfluga og fólk ætti ekk-
ert í handraðanum til þess að mæta
þeim hækkunum sem á því dyndu.
Að sögn Jóns G. Kristjánssonar,
starfsmannastjóra Reykjavíkur-
borgar, felur samningur Sóknar í
sér 5% hækkun frá gildistöku og
2% áfangahækkun 1. júlí, auk
launaflokkshækkunar eins starfs-
heitis og endurskoðunarákvæðis
hækki laun BSRB félaga. Um væri
að ræða samræmingu á kjöram
félaga Sóknar við kjör félaga innan
BSRB.
15.000 lestum. Með þessum samn-
ingi og samningum, sem áður hafa
verið gerðir á Spáni og í Grikk-
landi, er búið að ganga frá endan-
legum samningum um sölu á um
20.000 lestum af saltfiski af fram-
leiðslu þessa árs.
Ennfremur hefur SÍF gengið frá
samningi á söltuðum ufsaflökum til
Vestur-Þýzkalands. Gerður var
rammasamningur um sölu á 3.000
lestum af framleiðslu þessa árs, en
til samanburðar má geta þess að á
síðasta ári keyptu Þjóðveijar 2.600
lestir af söltuðum ufsaflökum héð-
an. Formlega var gengið frá
afhendingarskilmálum og verði á
1.800 lestum af vertíðarframleiðsl-
unni og er verð óbreytt frá síðasta
samningi.
Björgvin Jónsson sagði í samtali
við Morgunblaðið, að í Portúgal
væra nú tveir litlir saltfiskfarmar
frá Noregi óseldir, töluverðar birgð-
ir af saltfíski væru í Portúgal, en
svo hefði ekki verið áður á þessum
tíma, framleiðsluaukning og vax-
andi brigðir væra I Kanada og
nokkrar birgðir í Danmörku. „Við
náum samningum vegna þess að
framleiðendur koma fram í samein-
ingu og standa við gerða samninga.
Aðrar þjóðir standa ekki saman og
ná ekki sama árangri. Þýzkaland
er gott dæmi um þetta. Fyrir 6
áram hættu þeir að kaupa ufsaflök-
in af okkur að mestu. Nú biðja
þeir okkur um samninga vegna
áreiðanleika okkar í viðskiptunum,"
sagði Björgvin.