Morgunblaðið - 21.01.1988, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 21.01.1988, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1988 Getum jafnvel lækkað út- söluverð ýsu í næstu viku - segir Georg Ólafsson verðlagsstjóri VERÐLAGSSTOFNUN hefur beðið fiskmarkaðina í Njarðvík, Hafn- arfirði og Reykjavík um tölvuútskriftir á ýsukaupum fisksölufyrir- tækjanna Sæbjargar og Toppfisks á mörkuðunum i nóvember og desember. Stofnunin heimilaði 15% hækkun á útsöluverði ýsu í jan- úarbyrjun vegna upplýsinga frá fisksölum um miklar hækkanir á ýsuverði á mörkuðunum í nóvember og desember en samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins hefur ýsuverðið ekki hækkað á mörk- uðunum þessa mánuði. Georg Ólafsson, verðlagsstjóri, sagði að útsöluverð ýsu yrði jafnvel lækkað í næstu viku. Georg Ólafsson, verðlagsstjóri, uðunum í janúar var ekki tekin inn sagði að Verðlagsstofnun hefði fyrst í gær beðið fiskmarkaðina að gefa sér upp það verð sem fisksalar hefðu verið að kaupa ýsuna á í nóvember og desember. „Við mun- um eiga viðræður við þá fisksala sem létu okkur hafa innkaupsnótur frá fískmörkuðunum í nóvember og desember en við báðum fískmarkað- ina um tölvuútskrift af ýsukaupum þeirra þessa tvo mánuð,“ sagði Georg. „Hækkun ýsuverðs á mörk- VEÐUR í útreikninga Verðlagsstofnunar. Hún heimilaði hækkun á ýsuverðinu 3. eða 4. janúar en Verðlagsráð staðfesti hækkunina 11. janúar. Það má deila um það hvort það hafi verið eðlilegt að við fengum upplýsingar um fiskverðið á mörk- uðunum frá fisksölunum sjálfum. Við munum hugsanlega kalla sam- an Verðlagsráð til að fjalla um málið og ég reikna með því að við getum jafnvel lækkað útsöluverð ýsu í næstu viku,“ sagði Georg. Guðmundur Óskarsson, fisksali í Sæbjörgu, sagði að Sæbjörg keypti 85 til 90% á fiskmörkuðunum af þeirri ýsu sem hún seldi í fisk- búðunum. „í nóvember og desember keyptum við ýsuna aðailega á físk- markaðinum í Hafnarfírði og Faxamarkaði en minna á Fiskmark- aði Suðumesja. Það er alltaf bátafiskur á fiskmörkuðunum og við kaupum helst ekki togarafisk. Þess vegna erum við fyrir ofan meðalverðið á mörkuðunum. Ég gæti trúað að við höfum keypt 60 til 90 tonn af físki á mánuði á fisk- mörkuðunum frá því í haust en um 80% af þeim fiski sem við seljum' í fískbúðunum er ýsa,“ sagði Guð- mundur Óskarsson. Á Faxamarkaði í nóvember og desember voru seld 95,3 tonn af ýsu á 52,18 króna meðalverði og fisksalar keyptu 45,3% af henni, / DAG kl 12.00: Héimild: Veðurstofa íalands (Byggt á veðurspá kl. 16.15 I gær) VEÐURHORFUR í DAG, 21.01.88 YFIRLIT kl. 10.16 f 8»r: Búist er við stormi á Vestfjaröamlðum, Austfjarðamiðum, Norðurdjúpi og Austurdjúpí. Um 600 km austur af Langanesi er 968 mb lægð sem þokast norður en hægfara 982 mb lægð um 300 km vestur af Snæfellsnesi er farin að grynnast. Frost veröur áfram um mestallt land. SPÁ: Norðan- og noröaustanétt, víða stinningskaldl eða allhvasst og snjókoma eöa ól norðanlands, en kaldi og yfirleitt úrkomulaust um landið sunnanvert. I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA HORFUR Á FÖSTUDAG OG LAUGARDAG: Norðlæg átt og frost um-land allt. Dálitil ól víð noröurströndina, en annars úrkomulaust og víða léttskýjaö. TÁKN: y, Norðan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind- 10 Hitastig: 10 gráður á Celsius Heiðskírt stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. • V * Skúrir 'A V El "i yBw Léttskýjað / / / / / / / Rigning = Þoka Hálfskýjað / / / * / * 5 Þokumóða Súld ®kÝíað / * / * Slydda / * / oo Mistur -4- Skafrenningur álll Alsk^að * * * * Snjókoma # * * K Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma Akureyrí Reykjevfk hhl vsftur +8 tnjóél +4 tfcýjað Bergen Heltlnki itn Mayen Kaupmannah. Narasarttuaq Nuuk Otló Stokkhðlmur Þórthöfn 7 altkýjað 1 túld +16 tkafrennlngur 2 þokumóAa +18 létttkýjaó +16 tkýjaó 3 rlgnlng og túld 2 þokumóóa 4 rlgnlng Atganre Amaterdam Aþena Barcelona Bertfn Chleago Feneyjar Frenkfurt Qlatgow Htmborg Lat Palmaa London LoaAngefet Lúxemborg Madrfd Malaga Mallorca Montreal NewYork Parit Róm Vln Waahington Winnlpeg Valencla 14 lótttkýjaó 6 rignlng 11 rignlng 13 þokumóóa 2 þokumóóa 2 tkýjað 10 þokumóða þokumóða tkúr þokumóðt 18 tkýjað 7 tkúr < helðtkfrt 2 þoka 0 tkýjað 13 háHtkýjað 18 lótttkýjað 3 altkýjað vantar 7 akýjað 13 þokumóða 1 þokumóða 3 rlgning yantar 16 lóttikýja 43,2 tonn á 54,66 króna meðal- verði. Á sama tímabili voru seld á fískmarkaðinum í Hafnarfirði 296,0 tonn af ýsu á 54,52 króna meðal- verði og keyptu fisksalar 19,9% af henni, 59 tonn á 60,60 króna meðal- verði. í nóvember og desember voru seld 295,8 tonn af ýsu á Fiskmark- aði Suðurnesja á 54,65 króna meðalverði og keyptu fisksalar 5,4% af henni, 16,0 tonn á 56,04 króna meðalverði. Alls voru því seld 687,1 tonn af ýsu á fískmörkuðunum í nóvember og desember og var með- alverð hennar 53,78 krónur. Fisk- salar keyptu 17,2% af ýsunni, 118,2 tonn á 57,10 króna meðalverði en með því að notast m.a. við upplýs- ingar fisksalanna reiknaði Verð- lagsstofnun út að meðalverðið á fiskmörkuðunum í nóvember og desember væri um 70 krónur. Þeg- ar stofnunin reiknaði út hækkun á útsöluverði ýsu í janúarbyrjun reiknaði hún hins vegar með 67,81 krónu innkaupsverði hennar til þess að hækkunin yrði ekki eins mikil á útsöluverðinu, að sögn Guðmundar Sigurðssonar deildarstjóra hjá Verðlagsstofnun. Guðmundur sagði að Verðlags- stofnun hefði eingöngu fengið nótur hjá fisksölunum frá fiskmörkuðun- um í Hafnarfirði og Njarðvík þegar hún reiknaði út verðhækkunina á mörkuðunum í nóvember og desem- ber. Fisksalar keyptu hins vegar á Faxamarkaði 57,6%, eða 43,2 tonn, af þeim 118,2 tonnum af ýsu sem þeir keyptu á fiskmörkuðunum í nóvember og desember. Meðalverð ýsu á Faxamarkaði í nóvember og desember var hins vegar 54,66 krónur en 60,60 krónur á fiskmark- aðinum í Hafnarfírði og 56,04 krónur á fiskmarkaðinum í Njarðvík, eins og áður sagði. Bjami Thors, framkvæmdastjóri Faxamarkaðar, sagði að Verðlags- stofnun hefði í gær beðið markaðinn um útskrift á ýsukaupum fisksölu- fyrirtækjanna Sæbjargar og Toppfisks í nóvember og desember. „Menn frá Toppfiski og Sæbjörgu hafa mætt á hvert einasta uppboð hjá okkur og trúlega keypt meiri- hlutann af þeirri ýsu sem við seljum til fisksala," sagði Bjami. Ólaf í Garðastovu Rætt um leigu á færeyskum togara FÆREYSKA Dagblaðið skýrði frá því i þessari viku, að íslenzka úthafsveiðifélagið væri að ganga frá samningum um leigu á fær- eyska frystitogaranum Ólafi í Garðastovu. Ætlunin væri að nota hann við að taka afla af bandariskum skipum í þarlendri fiskveiðilög- sögu og vinna hann um borð. Jón Kristinsson, talsmaður félagsins, sagði í samtali við Morgunblaðið, að málið væri ekki enn komið í þann farveg að hann vildi tjá sig um það. Færeyska Dagblaðið segir að sem áætlaður er um tvö ár. Ætlun- miklar líkur séu á því að samningar um leigu Ólafs í Garðastovu náist. Skipið hefur að undanfömu legið við bryggju og nauðungaruppboð á næstu grösum. Náist samningar munu íslendingar greiða vexti og afborganir af skipinu leigutímann, in er að helmingur áhafnar verði færeyskur og hinn helmingurinn íslenzkur. Ekki er ljóst hvenær skip- ið verður afhent Islendingum, en sagt að það verði í síðasta lagi fyr- ir 1. júlí á þessu ári. hagstæðara ríkinu en það sem nú- verandi samningar við Samvinnu- tryggingar um sömu viðskipti eru byggðir á. „Það munar sennilega brotí úr prósenti," sagði Ásgeir. Almenn bifreiðatryggingaiðgjöld fyrir ánð 1988 liggja enn ekki fyr- ir en útreikningar tilboðanna byggjast á óbreyttum stöðlum frá yfirstandandi tryggingaári. Sam- kvæmt þeirri áætlun nemur heildar- Bjóða lægst í tryggingar ríkisbifreiða: Bjóða 70% afslátt af grunniðgjaldi Innkaupastofnun rikisins bárust tilboð frá fjórum tryggingafélög- um ( ábyrgðartryggingar um það bil 1000 ökutækja í eigu ríkisins. Tilboð voru opnuð í gær. „Það er ekki búið að fara nákvæmlega ofan i þetta en Sanivinnutryggingar virðast vera með lægstu töluna,“ sagði Ásgeir Jóhannesson forstjóri Innkaupastofnunar. „Samvinnu- tryggingar bjóða um það bil 70% afslátt af grunniðgjaldi þannig að það þýðir liklega heildarafslátt sem nemur um það bil 25 miiyónum króna frá áætluðum grunniðgjöldum.“ Þetta tilboð er talið vera örlítið - bil 30 milljónum. Hækkunina má að verulegu leyti relqa til fjölgunar í bílaflota ríkisins að sögn Ásgeirs Jóhannessonar. Auk S amvinnutrygginga gerðu Almennar tryggingar, Sjóvá og Brunabótafélagið tilboð. Ásgeir sagði að ekki væri enn búið að fara svo nákvæmlega í tilboðin að hann gæti gert nákvæman samanburð á tilboðum þeirra og samvinnutiygg- inga, þó væri ljóst að tilboð upphæðin 35-40 milljón- Samvinnutrygginga væri, hagstæð- i en nam í fyrra um bað ast.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.