Morgunblaðið - 21.01.1988, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1988
13
Deilt um aðgang að læknaskýrslum:
*
Urskurði um innsetningarbeiðni
ríkisendurskoðanda frestað
ÚRSKURÐI varðandi innsetningarbeiðni ríkisendurskoðanda um
aðgang að læknaskýsrslum heilsugæslustöðvarinnar i Árbæ hefur
verið frestað þar til i næstu viku að beiðni lögmanns heilsugæslu-
stöðvarinnar. Yfirlæknir heilsugæslustöðvarinnar hefur neitað bæði
tryggingalæknum og fulltrúum rikisendurskoðanda um aðgang að
skýrslunum og í framhaldi af þvi fór ríkisendurskoðandi fram á
fógetaaðstoð til að sjá skýrslumar. Málið er þvi í biðstöðu, en Ijóst
er að talsverð harka hefur nú færst í þessa deilu, sem snýst um
rétt Tryggingarstofnunar ríkisins til að fá aðgang að læknaskýrslum
annars vegar og siðareglur lækna og læknalaga um þagnarskyldu
hins vegar.
Upphaf þessa máls má rekja til
þess að Tryggingastofnun ríkisins
óskaði eftir aðgangi að lækna-
skýrslum í heilsugæslustöðinni í
Árbæ, en samkvæmt samningi við
hagsmunasamtök lækna er stofn-
uninni heimilt að fá aðgang að
slíkum skýrslum. Yfirlæknir heilsu-
gæslustöðvarinnar í Árbæ neitaði
hins vegar læknum Tryggingar-
stofnunar um aðgang að þessum
gögnum og vísaði þar til ákvæða í
siðareglum lækna og læknalögum
um þagnarskyldu. I framhaldi af
því vísaði Tryggingarstofnun mál-
inu til embættis ríkisendurskoð-
anda, sem einnig var neitað um
aðgang að læknaskýrslunum. Lög-
maður ríkisendurskoðanda fór þá
fram á fógetaúrskurð um aðgang
að gögnum læknanna, en málinu
var frestað að beiðni lögmanns læk-
namiðstöðvarinnar vegna anna.
„Við ákváðum að láta reyna á
hvort lög um ríkisendurskoðun
væru það sterk að fógeti myndi
úrskurða okkur innsetningu í gögn-
in, en því var frestað þar til í næstu
viku að beiðni lögmanns heilsu-
gæslustöðvarinnar," sagði Halldór
V. Sigurðsson ríkisendurskoðandi í
samtali við Morgunblaðið. Hann
sagði að Tryggingarstofnun hefði
síðan í haust verið að bera saman
greiðslur til lækna og læknaskýrsl-
ur og í þeim samanburði hefði
ýmislegt komið fram sem gæfi
ástæðu til að kanna þessi mál bet-
ur. Hins vegar hefði það verið
tilviljun, en ekki vegna ákveðina
grunsemda um misferli, að þessi
læknastöð hefði orðið fyrir valinu
nú.
Aðspurður sagði Halldór að dæmi
væru um að greiðslur Tryggingar-
stofnunar til lækna færu yfir 800
þúsund krónur á mánuði. „Með því
að nefna þessa tölu er ég ekkert
að fullyrða að eitthvað sé athuga-
vert við viðkomandi reikninga, en
við viljum bara fá að sjá á hveiju
þessir útreikningar eru byggðir,"
sagði ríkisendurskoðandi.
I yfirlýsingu frá Félagi íslenskra
heimilislækna vegna umræðu í fjöl-
miðlum um þessi mál segir meðal
annars að hér sé um að ræða tvö
óskyld mál, annars vegar meint
Laganemar svara spurning-
um um staðgreiðslu skatta
Lögfræðiaðstoð Orators, fé-
lags laganema, verður með
sérstakt kvöld helgað lögfræði-
legri ráðgjöf um staðgreiðslu-
kerfi skatta í kvöld, 21. janúar,
kl. 19.30-22.00.
Fulltrúi frá staðgreiðsludeild
ríkisskattstjóra verður laganem-
um til aðstoðar. Fólk er hvatt til
að hringja í síma 11012 og not-
færa sér þessa þjónustu og jafn-
framt minnt á að hún er ókeypis
eins og raunar öll önnur lögfræði-
leg ráðgjöf sem laganemar veita
í gegnum Lögfræðiaðstoð Orat-
ors.
Siglufjörður:
Ekki hægt að lenda á
vellinum vegna sandleysis
ÓFÆRT hefur verið flugleiðis
til Siglufjarðar að undanförnu
og er hálku meðal annars um að
kenna. En ekki er hægt að lenda
ef einhver vindur er auk hálku.
Undanfarin ár hefur verið gripið
til þess ráðs að bera sand úr fjö-
runni á völlinn en flugmálayfir-
völd hafa nú lýst hann of
leirkenndan og smákornóttan til
að hann veiti nægilegt viðnám.
Sand af réttri kornastærð er
ekki að fá á Siglufirði og er
flutningskostnaður talinn of hár
til að hann fáist fluttur til bæjar-
ins.
Engin aðstaða er til sandburðar
á flugvellinum á SigluQrði að mati
Rúnars Sigmundssonar umdæmis-
stjóra Flugumsjónar á Norðurlandi.
Hann sagði að sá sandur sem hefði
verið tekinn úr sjónum væri fínn
leirblandinn sandur sem þeir teldu
ólöglegan. „Þegar hann var notaður
barst kvörtun frá einum flug-
rekstraraðilanum um að þetta væri
málamyndasandburður, hann veitti
ekkert viðnám."
Rúnar sagði þetta meðal annars
spumingu um kostnað uppá tugi
þúsunda. Einnig hefði vindur á flug-
brautina verið óhagstæður. En fyrst
og fremst þyrfti öryggi að vera
tryggt, á meðan hægt væri að fljúga
misferli lækna við reikningsgerð o
hins vegar gildi ákvæða siðaregln
lækna og læknalaga um þagnai
skyldu. Enginn ágreiningur sé ur
nauðsyn þess að hafa ákvæði ur
eftirlit með reikningsgerð lækní
Ágreiningurinn snúist um aðfer
við eftirlitið, það er hvort heimil
sé að afhenda lækni, sem ekki hef
ur með meðferð sjúklings að gera
gögn er sjúklinginn varða, þega
hvorki liggur fyrir dómsúrskurðui
eða lagaákvæði þar um. Læknar
smaninganefnd heilsugæslulækns
hafi hreyft öðrum hugmyndum um
eftirlit en ekki hlotið neinar undir-
tektir hjá Tryggingastofnun. Því sé
nauðsynlegt að fá úrskurð hæsta-
réttar í þessu máli, segir í yfirlýs-
ingu heimilislækna.
27-50% VERÐ-
LÆKKUN Á MÚDELUM!
Vegna hagstæðra innkaupa getum við boðið REVELL-módel á stórlækkuðu
verði. Takmarkað magn. Póstsendum. , , .....
________________________________Verð aður kr.___Verð nu kr.
Chevrolet Scottsdale m/mótorhjóll.
Wlllys Jeep (Golden Eagle)
Cutty Sark
s1önvöW
pLOöWöW
öfi PioiveeR
HUÓMTÆKI
til Sauðárskróks og fært væri á
milli staða teldi Flugumsjón það
nægilegt. Ef ófært yrði landleiðina
yrði líklega reynt að rífa svellið upp
með hefli.
Ingvar Hreinsson umsjónarmað-
ur flugvallarins á Siglufirði sagði
að ekki mætti mikið út af bera til
að ófært yrði flugleiðina. Líkur
væru á að það tækist að rífa upp
svellið á vellinum en lítið þyrfti til
að hann yrði ófær á nýjan leik, að
völdum vinda eða hálku. Ingvar
taldi kostnaðinn við að fara um
langan veg til að ná í sand orðinn
fullmikinn, því sandurinn dygði ef
til vill aðeins í eina lendingu.
Arnarflug heldur uppí áætlunar-
flugi til Siglufjarðar og sagði Ámi
Ingvarsson framkvæmdastjóri Am-
arflugs Innanlands hf. að þetta
ástand hefði stórskaðað áætlunar-
flug félagsins. Félagið ætti Twin
Otter vél sem gæti lent við léleg
skilyrði en yfirleitt væri óhagkvæmt
að þurfa að senda hana. „Algert
ófremdarástand ríkir á Siglufirði
hvað varðar lendingar," sagði Ámi.
„Hvorki er fyrir hendi viðunandi
tækjabúnaður eða sandur og það
er ekkert einskorðað við Siglufjörð.
Sandur er ekki til á Siglufirði en
það er vissulega hægt að flytja
hann þangað."
ÞEGAR ÞIG
VANTAR
FATASKÁP SE
EKKIMÁ K0STA MIKIÐ
þá eigum við mikið úrval af fataskápum sem eru
ódýrir, fallegir og auðveldir í uppsetningu.
■
Tegund: COMBIII
Breidd:100cm
Hæð: 171 cm.
VERÐ 8.570.-
Tegund: EASY
Breidd: 150 cm
Hæð: 197 cm.
VERÐ 19.260.
□ BILDSHOFÐA 20-112 REYKJAVIK - 91 -681199 og 681410