Morgunblaðið - 21.01.1988, Page 15

Morgunblaðið - 21.01.1988, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1988 15 okkur í spor þess sem er fatlaður. Auðvitað er ekki gerlegt fyrir ófatl- aða að skilja til fullnustu, hvernig það er að vera bundinn slíkum fjötr- um að hvorki líkami eða sál láti að stjóm. Aftur á móti er mögulegt fyrir okkur að skilja að það er ekki eðl- is- heldur eingöngu stigsmunur á okkur ófötluðum og þeim sem fatl- aðir eru. Að við verðum að koma fram við fatlaða eins og við viljum láta koma fram við okkur, af virð- ingu fyrir okkur sem manneskjum. Hollt er að minnast þess að við eigum öll á hættu að fatlast, líkam- lega og/eða andlega og ef okkur endist aldur, eigum við flest eftir að þurfa að verða öðrum háð að meira eða minna leyti. Hver er þá munur á fötluðum og ófötluðum? Við höfum öll sömu grundvallar- þarfír, til fæðu, klæða og húsa- skjóls, þörfina fyrir mannleg samskipti, fyrir ást og umhyggju bæði sem veitendur og þiggjendur. Fatlað fólk er jafn margbreytilegt að gerð eins og við sem teljumst ófötluð og því hentar þeim mismun- andi lífsform í sama mæli og okkur. Aftur á móti þurfa fatlaðir aðstoð okkar hinna, þjóðfélagsins, til þess að geta lifað lífínu að sínu skapi, þrátt fyrir fötlunina. Það er einmitt þetta sem mark- miðsgrein laga um málefni fatlaðra miðar að, þegar talað er um „að tryggja fötluðum jafnrétti og sam- bærileg lífskjör við aðra þjóðfélags- þegna". Við verðum því að fara að hugsa dæmið upp á nýtt og byija að laga þjóðfélagið að þörfum allra þegna, ekki bara þeirra sem eru „ungir, hraustir og fallegir". Ég þykist þess fullviss að meiri vilji væri fyrir hendi til slíkra breytinga ef okkur tekst að minnast þess í hvert sinn sem fatlaðir eiga í hlut að „ég gæti verið þú“ eða að „bam- ið þitt gæti verið bamið mitt“. Hvemig viljum við hafa þjóð- félagið og viðhorfin þá? Höfundur er félagsriðgjafi. UEDUR ÚTSALA vK jTV Skólavörðustíg 17a, sími 25115 Akranes: Fundað um atvinnumál Atvinnuástand á Akranesi stendur ekki traustum fótum þessa dagana og óvíst er hver þróunin verður á næstu dögum. Tvö af frystihúsunum hafa verið lokuð í um mánaðartíma og svo bættist við lokun saumastofu Hen- nes hf. rétt fyrir áramótin, nú síðast lokaði Veitingahúsið Still- holt og við það misstu nokkrir starfsmenn atvinnu. Bæjarstjóm Akraness er mjög uggandi um stöðu þessara mála og nú um síðustu helgi var haldinn fundur með þingmönnum kjördæm- isins svo og forráðamönnum at- vinnufyrirtækjanna. í bréfí bæjarstjómar til þing- mannanna vegna fundarins kemur fram að frá því á haustdögum hafi fiskvinnsla víða um land átt í veru- legum rekstrarserfiðleikum. Þijú af stærstu fyrirtælqun í fískvinnslunni á Akranesi stöðvuðust eitt af öðru, það fyrsta um 11. desember, sem er óvenju snemmt en á undanförnum árum hafa þessi sömu fyrirtæki lok- að í lok desember og byijun janúar vegna frídaga sjómanna. Til viðbótar bætist nú saumastofa Hennes hf. en þar hafa unnið um 30 konur. Nú er útlit fyrir að tvö af frystihúsunum muni ekki verða opnuð að nýju að svo stöddu og þarf ekki að fara mörgum orðum um hve alvarleg áhrif það hefur á efnahag bæjarins og bæjarbúa svo og allt mannlíf á Akranesi. Vissulega er útlitið dökkt í at- vinnumálunum, sagði Guðjón Guðmundsson bæjarfulltrúi á Akra- nesi þegar Morgunblaðið ræddi við hann um fundinn með þingmönnun- um. Forráðamenn atvinnufyrirtækj- anna kynntu þeim atvinnuástandið og stöðu sinna fyrirtækja og málin voru rædd vítt og breitt. Þingmenn- imir voru að sjálfsögðu ekki með neinar lausnir á vandanum, en sýndu þessu vandamáli mikinn áhuga. Þeir lofuðu að kynna málið fyrir ráða- mönnum og fyrr en það hefur verið gert getum við varla vænst niður- stöðu. Við getum ekkert annað gert en vonað það besta, sagði Guðjón að lokum. - JG TÖLVUPRENTARAR HÆKKUN IÐGJALDA Tll IÍFEYRISSJÓÐA Breyttar reglur um iðgjaldagreiðslur til lífeyrissjóða SAL. Samkvæmt kjarasamningi ASÍ og VSÍ frá 26. febrúar 1986 aukast iðgjöld til lífeyrissjóða í áföngum, þar til 1. janúar 1990 að starfsmenn greiða 4% af öllum launum til lífeyrissjóða og atvinnurekendur með sama hætti 6%. Til iðgjalda- skyldra launa telst m.a. yfirvinna, ákvæðisvinna og bónus. Sérstakar reglur gilda þó um iðgjaldagreiðslur sjómanna. Umsamið hlutfall iðgjalda af öllum launum er sem hér segir: Árin 1987-1989: a) Starfsmenn: 4% iðgjald skal greiða af öllum tekjum starfsmanna á mánuði hverjum, hverju nafni sem nefnast, þó skal ekki greiða 4% iðgjald af hærri fjárhæð, en sem svarar til iðgjalds fyrir 1731/3 klst. miðað við tíma- kaup hlutaðeigandi starfsmanns í dagvinnu, að við- bættu orlofi. Atvinnurekendur: 6% iðgjald af sömu fjárhæð. b) Ef launatekjur eru hærri, en sem nemur tekjum fyrir 173 1/3 klst. að viðbættu orlofi, sbr. a-lið, skal greiða til viðbótar sem hér segir: 1987 1988 1989 Hluti starfsmanna: 1,0% 2,0% 3,0% Hluti atvinnurekenda: 1,5% 3,0% 4,5% Frá 1. janúar 1990 greiða starfsmenn 4% af öllum launum og atvinnurekendur með sama hætti 6%. SAMBAND ALMENNRA LÍFEYRISSJÓÐA Samræmd lífeyrisheild Lsj Lsj Lsj Lsj Lsj Lsj Lsj Lsj byggingamanna Dagsbrúnar og Framsóknar Félags garðyrkjumanna framreiðslumanna málm- og skipasmiða matreiðslumanna rafiðnaðarmanna Sóknar Lsj. verksmiðjufólks • Lsj. Vesturlands • Lsj. Bolungarvíkur • Lsj. Vestfirðinga • Lsj. verkamanna, Hvammstanga • Lsj. stéttarfélaga í Skagafirði • Lsj. Iðju á Akureyri • Lsj. Sameining, Akureyri • Lsj. trésmiða á Akureyri . ' Lsj. Björg, Húsavík Lsj. Austurlands Lsj. Vestmanneyinga Lsj. Rangæinga Lsj. verkalýðsfélaga á Suðurlandi Lsj. verkalýðsfélaga á Suðurnesjum Lsj. verkafólks í Grindavík Lsj. Mlífar og Framtíðarinnar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.