Morgunblaðið - 21.01.1988, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 21.01.1988, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1988 21 Opið bréf til 63 alþingismanna og 133 lækna: Um kostí og galla auk- innar áfengisneyslu eftir Ingvar Asmundsson Kostir áfengis eru flestum kunn- ir. Afengið losar um hömlur og slær á feimni. Drukkið í hófi getur það: 1. breytt fundi í fagnað, 2. aukið kynni, 3. eytt tortryggni, 4. stuðlað að sáttum, 5. eflt viðskipti og fleira mætti telja. Ókostimir segja strax til sín ef drukkið er meira en þarf til að losa um hömlumar. Þá breytir áfengið skapi manna til hins verra, gerir þá niðurdregna. Drúkkið í óhófi veldur það margvíslegum óskunda: 1. sljóvgar tilfinningar, 2. eykur kæruleysi, 3. minnkar umhyggju og virðingu manna fyrir sjálfum sér og öðr- um, 4. veldur hugarróti, 5. magnar kvíða, 6. minnkar lífsgleði, 7. spillir störfum, 8. fjölgar slysum, og áfram mætti telja. Afengi er vanabindandi eins og önnur deyfílyf og leiðir vemlegan hluta neytenda sinna fyrr eða síðar til sjúkdómsins alkóhólisma. Auk þess er talið að margir aðrir sjúk- dómar stafí að miklu leyti af neyslu þess. Langvarandi áfengisneysla í stórum skömmtum veldur m.a.: 1. alkóhólisma, 2. mörgum öðrum sjúkdómum, 3. aukinni lausung, 4. fjölda sjálfsvíga, 5. mörgum annars konar dauðs- föilum og örkumlum. Vegna þess hve áfengisdrykkja er orðin mikil og almenn með þjóð- inni má telja víst að aukin neysla hefði einkum neikvæðar afleiðing- ar, m.a. þær sem hér hafa verið taldar. Miðað við tölfræðilegar rann- sóknir á áfengisneyslu annarra þjóða fyrir og eftir bjórbann, eru yfirgnæfandi líkur á því að bjór- neysla íslendinga myndi auka verulega þá áfengisdiykkju sem fyrir er með þjóðinni. Til þess að hamla gegn drykkju- skap er tæplega hægt að gera annað en að miðla upplýsingum um eðli og skaðsemi áfengis. Beita Ingvar Ásmundsson „Miðað við tölfræðileg- ar rannsóknir á áfeng- isneyslu annarra þjóða fyrir og eftir bjórbann, eru yfirgnæfandi líkur á því að bjórneysla Is- lendinga myndi auka verulega þá áfengis- drykkju sem fyrir er með þjóðinni.“ verður áróðri sem dregur fram úr skúmaskotunum skuggahliðar Bakkusar og víkur til hliðar fals- hugmyndum um glasaglaum og glitrandi veigar, löngu eftir að veislu er lokið. í glímunni við Bakk- us á 'hálum ísnum er staðan svo slæm að tæplega er hægt að von- ast til þess að þjóðin fóti sig í bráð. Von um viðspymu við þessum vá- gesti held ég að helst gæti fengist með almennri þekkingu á eðli til- fínningalífs og áhrifum áfengis á það. Þessa von byggi ég einkum á þeirri staðreynd að munurinn á virkum alkóhólista og óvirkum er einkum sá að hinn síðamefndi býr yfír þekkingu sem í flestum tilvik- um er ekki í fórum þess fyrmefnda. Þessi þekking er þess eðlis að hún á erindi til allra. Umfang hennar er ekki meira en það að henni mætti greiðlega koma til skila í skólum Iandsins. Tillaga: Hliðstæðri þekkingu og nú er miðlað til alkóhólista verði miðlað til allrar þjóðarinnar, m.a. í skólum landsins og fjöl- miðlum ríkisins. Ákvörðun um að heimila sölu á áfengum bjór verði frestað þar til árangur af þessu fræðsluátaki kæmi í ljós. Náist sú viðspyrna gegn Bakk- usi sem að er stefnt með tiilög- unni er minni ábyrgðarhluti að leyfa sölu áfengs öls í landinu. Höfundur er skólastjóri Iðnskól- ans í Reykjavík. Málfreyj- ur funda ÞRIÐJA ráð málfreyja á íslandi heldur 14. fund sinn laugardag- inn 23. janúar nk. í Kristalsal Hótel Loftleiða. ITC-deildin Melkorka sér um fundinn. Meðal efnis á fundinum er fræðsla um staðgreiðslukerfi skatta og líkamsbeitingu. Fundur- inn sem verður settur kl. 11.00 er opinn gestum. Skráning hefst kl. 9.30. ITC-hreyfingin þjálfar fólk í al- raennum tjáskiptum, fundarsköp- um, ræðuflutningi og að vinna skipulega, sem gerir það hæfara til að takast á við nútíma þjóðfélag, segir í fréttatilkynningu. Nyrmetsölubíll ára ábymð. tveggja er byggt íyrir erfiðar að- * hönnun), því það er staðreynd að stæður. Auk þess er hann á heilsárshj ólbörð staðalbúnaður Hyundai er í mörgum tilvikum um. Excel er gerður til að endast, viðhaldið er í lágmarki og þú getur verið áhyggju laus í 5 ár. Excel er búinn kraftmikilli 1,5 lítra vél með yfirliggjandi knastás, 4 og 5 gíra bein- skiptingu, eða þriggja stiga sjálfskiptingu. Eldsneytiseyðslan er því með minnsta móti, dag og sunnudag. en krafturinn nægur. Glæsileiki Hyundai Excel felst ekki ein- göngu í útlitinu (sem reyndar er ítölsk aukabúnaður hjá öðrum. Settu þig strax í samband við söluaðila Hyundai Excel á íslandi Svein Egilsson hf., í Framtíð við Skeifuna. Síminn er (91) 685100. ATH. Það verður opið í Framtíð laugar- HYunnni Bíll fyrir skynsamt fólk.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.