Morgunblaðið - 21.01.1988, Síða 24

Morgunblaðið - 21.01.1988, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1988 UPPÞVOTTAVÉLA SENDING Á STÓRLÆKKUÐU VERÐI Við fengum takmarkað magn af þessum glæsilegu uppþvottavél- um í hvítu á lækkuðu verði. Rétt verð eftir tollahækkun kr. 53.200,- Verð nú kr. 41.900,- kr. 39.800 stgr. Útborgun kr. 6.000,- Blomberq Vestur-þýskt gæðamerki. Einar Farestveit&Co.hf. BORGARTUN 28, SÍMAR: (91) 16995 OG 622900 - NÆG BÍLASTÆÐI TÖLFRÆÐI LANDLÆKNIS eftirFrey Þórarinsson Fyrir nokkrum dögnm barst mér inn um bréfalúguna bæklingur frá landlæknisembættinu kallaður „Heilbrigði allra árið 2000“. Þetta mun vera hið fyrsta af fyrirhuguð- um fréttabréfum embættisins, prentað í 85 þúsund eintökum og dreift inn á hvert heimili í landinu. Ritið er fullt af litmyndum og línu- ritum og hvergi til sparað enda um hálf tylft auglýsinga- og prentstofa viðriðnar verkið. Ekki dreg ég í efa að það gæti verið þarft framtak af hálfu land- læknis að hafa samband við okkur sjúklinga sína með útgáfu frétta- bréfs en ljóst er að málflutningur á þeim vettvangi verður að vera þannig að landsmenn læri að treysta þessum lækni sínum. Mér þykja hins vegar vinnubrögð við gerð þessa fyrsta fréttabréfs afar gagnrýniverð og ekki til þess fallin að menn taki mikið mark á boð- skapnum. Skal það rökstutt með nokkrum dæmum úr fréttabréfinu. Ifyrsta dæmið tek ég af blaðsíð- um 6 og 7, þar sem fjallað er um breytingar á reykingasiðum lands- manna. Þar segir meðal annars: „Athyglisvert er í þessu sam- bandi að skoða þá fylgni sem sýnir sig á milli almenns kaupmáttar launþega í landinu og sölu á tó- baki. Það hefur sýnt sig að um leið og kaupmáttur ráðstöfunartekna eykst verður hliðstæð aukning í sölu á vindlum og vindlingum." Og enn segir: „í ljósi þessa má ef til vill ætla að gífurleg verðhækkun á tóbaksvörum gæti reynst vænleg- asta leiðin til þess að markmið heilbrigðisráðherra náist í þessum efnum," þ.e. að draga úr neyslu tóbaks. Þessum orðum fylgir línurit af „kaupmætti taxta“ og „sígarettu- sölu á fullorðna" á árunum 1963 til 1987. Þetta línurit er þannig dregið að kaupmáttur og sígarettu- sala falla alveg saman 1964—1969, og virðist því við fyrstu sýn vera um allmikla fylgni að ræða. Við nánari skoðun sést hins veg- ar ekki mikil fylgni milli þessara ferla. Til að sannprófa það las ég öll gildin af línuritinu og reiknaði fylgnistuðul milli ferlanna. Sam- kvæmt þeim reikningum er ákvörð- unarstuðullinn 0,125, sem táknar að einungis 12—13 prósent af breytileika í tóbaksneyslu megi ef til vill rekja til breytinga á kaup- mætti rauntekna. Það er með öðrum orðum nánast engin fylgni þar á milli. Ef maður samt hugsaði sér að umtalsverð fylgni hefði reynst milli þessara þátta væri ályktun um áhrif verðhækkunar á tóbak engu að síður ólejrfileg frá tölfræðilegu sjón- armiði. Það eina sem slík fylgni sýndi væri að rýmun kaupmáttar fýlgdi minni tóbakssala. Alyktanir um áhrif verðhækkana hvíla óhjá- kvæmilega á hagfræðilegu líkani um neysluvenjur sem landlæknir hefur trúlega ekki handbært. Ef það líkan er hins vegar á vísum stað mætti spyija sem svo: Hvaða áhrif hefði það á tóbaksneyslu ef kaupmáttur tvöfaldaðist og tóbaks- verð þrefaldaðist? Næsta dæmi er á blaðsíðu 6, þar Lúxusbíll á hálfvirði? Þannig flytjum við sjálf inn lítið notaðan bíi Kynntu þér verdskrána vel áður en þú slærð til Það borgar sig Nýkomið áalla helstu blaðsölustaði Frjálstframtak Norræn menn- ingarsamvinna: Námsstyrkja- kerfi og kennaraskipti Menntamálaráðherrar Norð- urlanda samþykktu drög að framkvæmdaáætlun um norrænt menningarsamstarf á fundi sínum í Osló 7. þessa mánaðar. Þar segir m.a. að koma eigi á styrkjakerfi til að auka mögu- leika norrænna námsmanna á að stunda nám annars staðar á Norðurlöndunum en í heimalandi sínu, og að örva eigi samvinnu milli menntastofnana með kenn- araskiptum. í frétt frá menntamálaráðuneyt- inu segir að áætlunin skiptist í þijú svið; fræðslumál, vísindamálefni, og almenn menningarmál. Á sviði fræðslumála ræddu ráðherramir um aukna útgáfu fræðsluefnis og þróun kennslutækja víð kennslu á norrænum tungumálum. Á sviði vísindamála á að fjölga námskeið- um fyrir unga vísindamenn, og stofna gistiprófessorastöður í til- raunaskyni. Tillögur eru í framkvæmdaáætl- uninni um að efla „Norrænu húsin" og aðrar stofnanir með svipuð markmið, og var m.a. samþykkt á ráðherrafundinum að hækka fjár- framlag til Norræna hússins í Reykjavík á þessu ári, einkum til að gera því kleift að kynna íslenska menningu á hinum Norðurlöndun- um. Ráðherranefndin ætlar að beita sér fyrir þvl að framlög til menning- armála hafí árið 1991 hækkað um sem svarar 35 milljónum danskra króna frá fjárlögum 1987, en þá námu þau um 155 milljónum dan- ,sf<ra króijá. . < jl' 'i ■ ÍÉl

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.