Morgunblaðið - 21.01.1988, Síða 31

Morgunblaðið - 21.01.1988, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1988 31 Noregur: Viðskiptaráðuneytic hverfur úr sögunni Norinform UM áramótin var viðskiptaráðuneytið í Noregi lagt niður, jafi framt voru gerðar aðrar minni breytingar á verkaskipting ráðuneyta. Að sögn Gro Harlem Brundtland, forsætisráðhem miða breytingarnar að því að auðvelda fólki að „rata“ um stjóri kerfið. Jafnframt er ætlunin að gera stjómkerfið virkara. Utanríkisráðuneytið tekur við flestum verkefnum viðskiptaráðu- neytisins, viðskiptaráðherrann starfar áfram en nó í utanríkis- ráðuneytinu með nýjan titil. Verkaskipting milli ráðherranna tveggja innan veggja utanríkis- ráðuneytisins verður þaniiig að fyrrum viðskiptaráðherrann sinnir alþjóðlegum efnahagsmálum. Hins vegar tekur utanríkisráð- Abdul Ghaffar Khan herrann þau störf að sér, sen ekki eru sérstaklega faiin hinum. Um áramótin voru iðnaðarráðu neytinu falin fleiri verkefni ei áður. Undir það falla nó ýmis mál, sem áður voru á verksvið viðskiptaráðuneytisins, sveitar- stjómaráðuneytisins, samgöngu ráðuneytisins og fjármálaráðu- neytisins. í umræðum á þingi fyrir skömmu sagði Gro Harlem Brund- tland, forsætisráðherra, að skipu- lag utanríkisráðuneytisins yrði tekið til gagngerrar endurskoðun- ar á næstunni eftir að viðskipta- ráðuneytið sameinaðist því. Pakistan: Fyrsta heimsókn Ghandis Peshawar f Pakistan. Reuter. RAJIV Ghandi forsætisráð- herra Indlands kemur nú í fyrsta skipti til Pakistans. Til- efnið er lát pakistönsku frelsis- hetjunnar, Abduls Ghaffars Khan sem lést í gær 97 ára að aldri. Ghaffar Khan eyddi mestum hluta ævi sinnar í að beijast fyrir sjálfstæði þjóðar sinnar, Pastóna, fyrst frá Bretum og síðar frá Pak- istan. Pastónar hafa átt heimkynni á landamærum Afganistans og Pakistans. Ghaffar Khan sat í fangelsi í 35 ár vegna skoðana sinna. Hann naut virðingar allra sem honum kynntust og þégar fréttist um andlát hans fór Rajiv Ghandi forsætisráðherra Indlands þegar til Pakistan til að votta hin- um látna virðungu sína. Lík Abdul Ghaffar Khan verður flutt yfir Khyber-skarð til Afgan- istan þar sem hann verður jarð- settur í Jalalabad. Sex farast ílestarslysi Sex manns létust og 33 slösuðust er farþegalest ók á sovéskan skriðdreka í gær nærri Potsdam í Austur- Þýskalandi. Að sögn ADN, hinnar opinberu fréttastofu Austur-Þýskalands, var skriðdrekinn á leið yfir jám- brautarteina skammt frá Frost Zionna-brautarstöðinni er óhappið varð. Talsmaður hins ríkisrekna jámbrautarfé- lags Austur-Þýskalands sagði nýliða hafa ekið skriðdrekanum og sakaði hann ekki í árekstrinum. Lestarstjórinn og aðstoðarmaður hans biðu hins vegar bana sem og Qorir farþeganna þegar nokkrir vagnanna fóru ót af sporinu. 33 farþegar slösuðust, þar af átta alvarlega. Sovéskir hermenn aðstoðuðu við björgunarstarfíð og hjálp- uðu farþegum ót ór flakinu. Lestin var á leið frá Leipzig til Stralsund við Eystrasalt með viðkomu í Austur-Berlín. AcoMStimass tawturaft Bose Acoustimass hátalamir eru tækninýjung í hljómflutningi sem kveður að. Stærðin er 18.5 x 9 x 10 cm parið. Styrkurinn er 100 wött og það sem Bose hefur fram yfir aðra hefðbundna hátalara er að þeir bjóða upp á sterio hvar sem er í herberginu. Hljómburðurinn er sambærilegur við þaö besta sem þú hefur heyrt til þessa - ef ekki betri - Þetta er svo ótrúlegt að til þess að trúa verður að heyra. Annars trúir þú okkur ekki. Þið eruð alltaf velkomin í verslanir okkar. öSteKasiaM. dlOtílB

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.