Morgunblaðið - 21.01.1988, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1988
35
Fjórhjól hrella
hesta og hestamenn
FJÓRHJÓL voru á ferðinni eftir reiðstíg \ið Rauðavatn á mánudag
og ollu hestamönnum nokkru hugarangri, því hestar geta auðveld-
lega fælst við slíka umferð. ÖU umferð fjórhjóla í landi Reykjavíkur
er bönnuð, samkvæmt nýrri lögreglusamþykkt, sem gefin var út
þann 22. desember.
Hestamaður, sem hafði samband
við Morgunblaðið, sagði að Iitlu
hefði mátt muna að hestur hans
hefði fælst og hlaupið upp á Suður-
landsveg, með ófyrirsjáanlegum
afleiðingum, þegar tvö fjórhjól
komu eftir reiðstígnum. Að sögn
Ómars Smára Armannssonar, varð-
stjóra hjá lögreglunni í Reykjavík,
er akstur fjórhjóla bannaður á þessu
svæði, sem og annars staðar í landi
Reykjavíkur. „Það er einnig ástæða
til að benda fjórhjólamönnum, og
öðrum sem aka torfærutækjum, á
að Rauðhólasvæðið og Heiðmörk
eru friðuð landsvæði, en þegar hafa
ökumenn slíkra tækja unnið þar
nokkur spjöll," sagði Ómar Smári.
Hann sagði að verulega hefði dreg-
ið úr umferð fjórhjóla og sér virtist
sem margir hefðu misst áhugann á
þessum leiktækjum. „Lögreglan
þarf þó alltaf að hafa einhver af-
skipti af fjórhjólum og vélhjólum,
sem ekið er um gangstíga, til dæm-
is í Breiðholti, en slíkur akstur er
að sjálfsögðu bannaður," sagði
hann.
Úr umferðinni í Reykjavík Í9. janúar 1988
Árekstrar: 22.
Radarmæling á Sætúni og Kleppsvegi leiddi til þriggja kæra fyrir
hraðan akstur.
Hraðast var ekið með 91 km/klst. hraða.
Ekið mót rauðu ljósi á götuvita. 4 ökumenn kærðir.
Stöðvunarskylda við gatnamót. 1 ökumaður kærður.
Klippt voru númer af 4 bifreiðum vegna vanrækslu á að færa þær
til skoðunar.
Vegna rangstöðu voru 4 bifreiðir fjarlægðar með krana.
í þriðjudagsumferðinni fannst einn réttindalaus ökumaður.
Samtals: 30 kærur fyrir umferðarlagabrot.
Frétt frá lögreglunni í Reykjavík.
Morgunblaðið/Sverrir
Listamennirnir sem standa að Gallerí Gijóti, ásamt hundinum Trítlu.
F.v.: Kristín Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Gallerísins, Páll
Guðmundsson, Þorbjörg Höskuldsdóttir, Ragnheiður Jónsdóttir,
Magnús Tómasson og Orn Þorsteinsson. Fyrir framan sitja hinir
nýju meðlimir Gallerisins; Gestur og Rúna.
Gestur o g Rúna
í Gallerí grjót
ÞEIR listamenn sem standa að Gallerf grjóti á Skólavörðustfg, hafa
boðið listamönnunum Gesti og Rúnu að bætast f hópinn. Verða þau
kynnt á sýningu sem er að hefjast f Gallerfinu en þar er sýnd fslensk
nútimalist.
Hjónin Gestur Þorgrímsson og
Sigrún Guðjónsdóttir hafa lengi
unnið saman að leirmunagerð. Ser
Gestur um form og glerunga en
Rúna um skreytingu. Þau hafa í
sameiningu unnið að skreytingu
ýmissa opinberra bygginga, má þar
nefna áhorfendastúku íþróttavallar-
ins í Laugardal og nýbyggingar við
Hásselbý-höll í Svíþjóð. Þau vinna
nú að skreytingu Fiskmarkaðsins í
Hafnarfirði. Bæði hafa þau haldið
einkasýningar og tekið þátt í fyölda
samsýninga, innanlands sem utan.
Enn gjöfult á
ioðnumiðiimim
MIKIL loðnuveiði var enn á
miðunum síðasta sólarhring-
inn en þá tilkynntu 27 skip
um afla, samtals 20.100 toiih.
í gærdag, fram til klukkan
15.00, bættust svo við átta
skip með samtals 5.420 tonn.
Prá því í fyrrakvöld og þar til
um miðjan dag í gær tilkynntu
eftirfarandi skip um afla: Magnús
NK 530 til Reyðarfjarðar, Svanur
RE 710 til Grindavíkur, Keflvík-
ingur IÍE 530 til Seyðisfjarðar,
Gísli Ámi RE G50 til Hornafjarð-
ar, Gígja VE 750 til Vestmanna-
eyja, Sigurður RE 1.400 til
Vestmannaeyja, Guðrún Þorkelsj-
dóttir SU_ 700 til Eskifjarðar,
Húnaröst ÁR 620 óákveðið, Guð-
mundur Ólafur ÓF 600 til Eski-
fjarðar, Helga 2 RE 530 til
Eskifjarðar, Víkingur AK 1.200
til Akraness, Fífíll GK 640 til
Seyðisfjarðar, Bjami Ólafsson AK
750 til Seyðisfjaðrar, Dagfari ÞH
400 til Seyðisfjarðar, Júpíter RE
800 til Eskifjarðar, Guðmundur
VE 900 til Vestmannaeyja og
Þórður Jónasson EA 200 til Seyð-
isfjarðar.
Leiðrétting
FYRIRSÖGN greinar sr. Árelíusar
Níelssonar í þættinum „Við
gluggann“ í blaðinu sl. þriðjudag
misritaðist því miður. Hún átti að
vera: „Vaknið — vakið“. — Biðst
blaðið velvirðingar á þessum mis-
tökum.
INNLEN'T
„Gula línan“ I Turninum
Fram kom í Morgunblaðinu í gær
að Tuminn á Lækjartorgi verði
fluttur í Mæðragarðinn. í fréttinni
sagði að Ferðaskrifastofa ríkisins
hefði rekið upplýsingaþjónustu í
Tuminum undanfarin ár. Því er við
að bæta, að 13. nóvember sfðastlið-
inn tók Gula línan til starfa í
Tuminum, en það fyrirtæki veitir
upplýsingar um vörur og þjónustu.
Útvarp Rót byrjar á sunnudagimn?
Klukkustundin kostar 500 krónur
Borgaraflokkurinn meðal stjórnmálasamtaka sem verða með þætti á stöðinni
ÚTVARP Rót hefur göngu sína sunnudaginn 24. janúar næstkom-
andi klukkan eitt eftir hádegi. Meðal þeirra sem verða með fasta
þætti f Útvarpi Rót eru nokkrir stjórnmálaflokkar og samtök,
t.d. Borgaraflokkurinn, Alþýðubandalagið, Kvennalistinn, Flokk-
ur mannsins, Samband ungra jafnaðarmanna og Æskulýðsfylking
Alþýðubandalagsins, auk ýmissa félagasamtaka og einstaklinga.
Þeir sem verða með þætti á stöðinni greiða 500 krónur fyrir
hveija klukkustund. Útvarp Rót sendir út á FM 106,8.
Hér á eftir fer listi yfír þá sem
verða með fasta þætti í Utvarpi
Rót:
Dagskrá Esperantosambands-
ins. Vikulega á mán. ld. 18.00—
18.25. Blandaður þáttur, m.a.
fréttir úr hreyfingunni hérlendis
og um heim allan og þýddar frétt-
ir úr erl. blöðum sem gefin eru út
á esperanto. Vikulega á fim. kl.
20.30—21.20. Esperantokennsla
(kennslubækur eru til) og síðan
blandað efni á esperanto og
fslensku.
Drekar og smáfuglar. í umsjá
íslénsku friðamefndarinnar.
Vikulega á mán. kl. 18.30—18.55.
Blandað innlent og þýtt erlent
efni frá friðarsamtökum og þjóð-
frelsishreyfingum og fréttir.
Rauðhetta. í umsjá Æskulýðs-
fylkingar Alþýðubandalagsins.
Hálfsmánaðarlega á þri. kl.
18.00—18.50: Býijar f 1. viku.
í Miðnesheiðinni. í umsjá Sam-
taka herstöðvaandstæðinga.
Hálfsmánaðarlega á þri. kl. 18.
00—18.50. Byijar í 2. viku. 1.
þáttur verður um sögu baráttunn-
ar og baráttuna nú.
Elds er þörf. í umsjá Vinstris-
ós- íalista. Vikulega á mið. kl.
18.00—18.50. Um allt milli himins
og jarðar og það sem er efst á
baugi.
Kvennaútvarpið. í umsjá Sam-
taka um kvennaathvarf. Kvenna-
ráðgjafarinnar, íslensk/lesbíska,
Kvennalistans, Veru, Kvenrétt-
indafélagsins og Menningar og
friðarsamtaka íslenskra kvenna.
Vikulega á fim. kl 18.00—18.50.
Hvað er á seyði? Vikulega á
fös. kl. 18.00—18.50. Kynnt dag-
skrá Útvarps Rótar næstu viku
og „fundir og mannfagnaðir" þ.e.
fundir, sýningar, skemmtanir o.
þ.h. Léttur blandaður þáttur.
Poppmessa f G-dúr. Tónlistar-
þáttur í umsjá Jens Kr. Guð-
mundssonar. Vikulega á lau. kl.
13.00—13.50. Ýmis popptónlist
leikin og um hana fjallað.
Af vettvangi baráttunnar.
Vikulega á lau. kl. 14.00—15.50.
Rifjað upp eitthvert gamalt bar-
áttumál eða -aðgerð. Fjallað um
einhveija yfirstandandi baráttu
og það sem fyrir dyrum stendur.
Opið til umsóknar að koma efni
á framfæri.
Um Rómönsku Ameríku í um-
sjá Mið-Ameríkunefndarinnar.
Vikulega á lau. kl. 16.00—16.25.
Frásagnir, umræður, fréttir og
S-Amerísk tónlist.
Útvarp námsmanna. í umsjá
Stúdentaráðs, SÍNE og BÍSN.
Vikulega á lau. kl. 16.30—17.50.
Margvíslegt efni.
Leiklist. í _ umsjá bókmennta-
og listahóps Útvarps Rótar. Mán-
aðarlega á lau. kl. 18.00—18.50.
Fyrsti þáttur í 1. viku.
Breytt viðhorf. í umsjá Sjálfs-
bjargar landssambands fatlaðra.
Mánaðarlega á lau: kl. 18.00—
18.50. Fyrsti þáttur í 2. viku.
Búseti. í umsjá samnefndra
samtaka. Mánaðarlega á lau. kl.
18.00—18.50. Fyrsti þáttur í 3.
viku.
Þáttur í umsjá Vinstrisósialista.
Mánaðarlega á lau. kl. 18.00—
18.50. Fyrsti þáttur í 4. viku.
Samtök kvenna á vinnumark-
aði. í umsjá samnefndra samtaka.
Vikulega á sun. kl. 13.00—13.25.
Fjallað um ýmis mál sem varða
konur á vinnumarkaði.
Fréttapottur. í umsjá frétta-
hóps Útvarps Rótar. Vikulega á
sun. kl. 13.30—15.20. Blandaður
fréttaþáttur með fréttalestri,
fréttaskýringum og umræðum.
Mergur málsins. I umsjá ýmissa
aðila. Opið til umsóknar. Vikulega
á sun. kl. 15.30—16.50. Eitthvert
mál tekið fyrir og því gerð góð
skil. Fyrsti þáttur um Utvarp á
íslandi í 62 ár.
Á mannlegu nótunum. í umsjá
Flokks mannsins. Vikulega á sun.
kl. 17.00—17.50. Fjölbreytileg
dagskrá.
Þáttur í umsjá Bókmennta- og
listahóps Útvarps Rótar. Vikulega
á sun. kl. 17.00-17.50. Margví-
slegt efni. Fyrsti þáttur með
Birgittu Jónsdóttur.
Tónafljót. f umsjá tónlistarhóps
Útvarps Rótar. Alla daga kl. 19.
00—19.25. Alls konar tónlist.
Bamatímar. í umsjá dagskrár-
hóps um-bamaefni á Útvarpi Rót.
Alla daga kl. 19.30—19.55. Ekki
er víst að bamatímar hefjist strax.
Opið til umsóknar að annast ein-
staka þætti. Á sunnudögum sjá
Þór og Gunnlaugur um sunnudag
til sælu.
Unglingaþættir. I umsjón dag-
skrárhóps um unglingaþætti á
Útvarpi Rót. Alla daga kl. 20.
00—20.25. 1. viku annast riokkrir
nemendur úr Austurbæjarskóla.
Fellaskóla og Grundaskóla á
Akranesi þáttinn. Mjög fjölbreyti-
legt efni. Opið til umsóknar að
annast einstaka þætti.
Opið. Á mán. kl. 20.30—20.55.
Opið til umsóknar að fá stöku
þætti.
Þáttur í umsjá Önnu Kristjáns-
dóttur. Aðra hveija viku á mán.
lcl. 21.00—21.50. Fyrsti þáttur
fiallar um uppboð.
Framhaldssaga eftir Eyvind
Eiríksson. Á mán., þri., mið. og
fim. kl. 22.00-22.25.
Úr ritgerðasafni. Á mán., þri.
ogmið. kl. 22.30—22.55.1. viku.
Alþýðubandalagið. Á mán., þri.
ogmið. kl. 22.30—22.55. 2. viku.
Hrinur. Tónlistarþáttur í umsjá
Halldórs Carlssonar. Vikulega á
þri. kl. 20.30-21.50.
Samband ungra jafnaðar-
manna. . í umsjá samnefndra
samtaka. Vikulega á mið. kl. 20.
30-20.55.
Náttúrufræði. í umsjá Einars
Þorleifssonar og Erps Snæs Hans-
en. Aðra hveija viku á mið. kl.
21.00—21.50. Um náttúrufræði
íslands. Fyrsti þáttur í 1. viku.
Borgaraflokkurinn. í umsjá
samnefnds flokks. Aðra hveija
viku á mið. kl. 21.00—21.50.
Fyrsti þáttur í 2. viku.
Þáttur í umsjá Samtakanna v
’78. Vikulega á fím. kl. 21.30-
21.55.
Við og umhverfið. í umsjá dag-
skrárhóps um umhverfismál á
útvarpi Rót. Vikulega á fim. kl.
22.30-22.55.
Tóniistarþáttur í umsjá Guð-
mundar R. Guðmundssonar.
Vikulega á fös. kl. 20.30—20.55.
Ræðuhomið. í umsjá ýmissra
manna. Vikulega á föst. kl.
21.00—ca. 22. Opið að skrá sig á
mælendaskrá og tala um hvað
sem er í ca. 10 mín. hver.
Kvöldvaktin. í umsjá ýmissa
manna. Vikulega á föst. um kl.
22 og fram eftir kvöldi. Umræð-
ur, spjall og síminn opinn.
Síbyljan. Vikulega á lau. kl.
20.30 og frameftir kvöldi. Ertu
nokkuð leið/ur á síbylju? Blandað-
ur þáttur.
Frá vímu til veruleika. Til skipt-
is í umsjá Vímulausrar æsku og
Krýsuvíkursamtakanna. Vikulega
á sun. kl. 20.30—20.55. Fyrsti
þáttur frá Vímulausri æsku.
Aus. í umsjá Alþjóðlegra ung-
mennaskipta. Vikulega á sun. kl.
21.00-21.25.
Hugrækt og jógaiðkun. Á sun.
kl. 21.30-r-22.20.
Lífsvemd. í umsjá Huldu Jens-
dóttur. Vikulega á sun. kl.
22.30-22.55.
Sofðu rótt. í umsjá bókmennta-
og listahóps Útvarps Rótar. Alla
daga í dagskrárlok, eða kl. 23.00.
Draugasögur o.þ.h. fyrir háttinn.
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------’---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------