Morgunblaðið - 21.01.1988, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1988
37
^HT spurt og svarad
I Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINSI
Staðgreiðslu-
kerfiskatta
HÉR á eftir fara spurningar sem lesendur Morgunblaðsins
hafa beint til þáttarins Spurt og svarað um staðgreiðslu-
kerfi skatta og svör við þeim. Þjónusta þessi er i því fólgin
að lesendur geta hringt í síma 691100, milli klukkan 10 til
12 virka daga og borið upp spurningar um skattamál. Morg-
unblaðið leitar svara hjá starfsmönnum embættis ríkisskatt-
stjóra og birtast þau síðan í þessum þætti.
Námsmannakort eða
aukaskattkort?
Sigrún Vilhjálmsdóttir spyr:
Hvort á námsmaður sem ekki er
ákveðinn að halda áfram námi í
haust að fá sér námsmannakort eða
aukaskattkort?
Svar: Þessi námsmaður hefur
væntanlega nú í höndum almennt
skattkort eins og aðrir launamenn.
Noti hann einungis lítinn hluta per-
sónuafsláttar á fyrri hluta árs getur
hann fengið námsmannakort með
uppsöfnuðum ónýttum persónuaf-
slætti fyrir janúar—maí. Það
námsmannakort gildir yfír sumarið,
þ.e. í júní, júlí og ágúst. Ekki er
um að ræða heimild til að bæta
persónuafslætti vegna mánaðanna
september — desember á náms-
mannakortið. í öllu falli er rétt að
námsmaðurinn nýti sér náms-
mannakortið á móti útreiknuðum
skatti nú í sumar.
Húsnæðisreikningur
Steinn Bjarnason spyr: Varð-
andi húsnæðisreikninga. Gefa þeir
einhvem afslátt á þessu ári? Hefur
bindiskyldu þeirra eitthvað verið
breytt eða er allt sem þá varðar
runnið út í sandinn?
Svar: Húsnæðissparnaðarreikn-
ingar eru enn við lýði. Reglur um
bindiskyldu o.þ.h. eru óbreyttar frá
því sem var áður. Þeir auka per-
sónuafslátt til tekjuskatts sem
verður lagður á tekjur ársins 1987
nú í sumar. Innlegg á húsnæðis-
spamaðarreikning hefur ekki áhrif
á staðgreiðslu þess er sparar.
Iðgjöld lífeyrissjóða
Jón Björnsson spyr: Er leyfílegt
að leggja skatt á iðgjöld úr lífeyris-
sjóði?
Svar: Fyrirspyrjandi á væntan-
lega við iðgjöld launamanna til
lífeyrissjóða.
Ráðstöfun á hluta af launum
launamanna til ákveðinna aðila, t.d.
lífeyrissjóða, stéttarfélaga eða
starfsmannafélaga, hefur ekki áhrif
á skyldu manna til að standa skil
á sköttum af þeim hluta launanna.
Frádráttur vegna iðgjalds launa-
manns til lífeyrissjóðs var afnuminn
við upptöku staðgreiðslukerfis. Sá
frádráttur nýttist sem slíkur ein-
ungis litlum hluta launamanna.
Stafaði það af hinum almenna 10%
launamannafrádrætti er flestir
nýttu sér og heimilaður var í fyrra
skattkerfi.
Frádráttarheimildin var felld nið-
ur með breytingum á skattalögum.
Sjálfstæður at
vinnurekstur
Steindór Steindórsson spyr:
Hvemig eiga leigubílstjórar að gefa
tekjur sínar upp og til að nýta best
sinn persónuafslátt? Ég fæ ellilíf-
eyri en ek líka leigubíl — þarf ég
að sækja um aukaskattkort?
Svar: Leigubílstjórar gera skil
mánaðarlega eins og aðrir atvinnu-
rekendur í samræmi við reglur um
reiknað endurgjald. Nýting per-
sónuafsláttar ræðst af reiknuðu
endurgjaldi hvers og eins og er
spumingunni um hámarksnýtingu
vandsvarað. Ef fyrirspyijandi heim-
ilaði ríkisskattstjóra að afhenda
Tryggingastofnun ríkisins skatt-
kortið og nýta hluta persónuafslátt-
ar á móti lífeyri þarf hann ekki að
sækja um aukaskattkort af þessum
sökum, heldur fær hann það sent
heim.
Sj ómannafrádráttur
Sigurður Jónsson spyr: Ég er
sjómaður. Ef ég fer í launalaust frí
má ég þá nota persónuafsláttinn til
frádráttar að því loknu? Einnig
langar mig að vita hvort ég eigi
að fá greiddan sjómannafrádrátt
þá daga sem ég er i fríi?
Svar:
1. Já; Skilyrði er þó að skattkortið
sé óslitið í vörslu sama launa-
greiðanda fyrir og eftir þetta
launalausa frí og meðan á því
stendur.
2. Nei; Sjómannafrádráttur miðast
almennt við lögskráningardaga
og þá daga sem menn stunda
sjómannsstörf.
Leigutekjur — viðhalds-
kostnaður
Lilja Kristjánsdóttir spyr: Ég
á gamalt hús og ég bý sjálf í hluta
þess, hitt leigi ég út. Hvemig em
húsaleigutekjumar skattlagðar?
Verður tekjuskattur af þeim reikn-
aður eftir skattframtali eins og
áður og kemur þá til greiðslu síðari
hluta árs. Ef svo er fæ ég þá skatt-
seðil eða ekktf Gamalt hús þarf
mikið viðhald. Árlega hef ég þurft
að fá iðnaðarmenn til að lagfæra
eitt og annað, bæði í útleigðum
húshluta og þeim sem ég bý sjálf
í. Stundum tekur meistari í iðn-
greininni að sér verkið og hefur
menn í vinnu, aðrir vinna verkið
sjálfír. Hvemig ber mér að haga
mér varðandi staðgreiðslu skatta
af launatekjum þeirra? Þar er oft
bæði um efni og vinnu að ræða.
Svar:
1. Húsaleigutekjur koma ekki inn
f staðgreiðsluna. Þær verða
skattlagðar eftir lok stað-
greiðsluárs.
2. í ár var ekki tekin fyrirfram-
greiðsla sem svaraði til skatts
af húsaleigutekjum, þannig að
skattur verður allur innheimtur
á tímabilinu júlí — desember.
3. Skattseðlar verða væntanlega
sendir út eins og verið hefur.
4. Aðalreglan í þessum viðskiptum
hlýtur að vera sú að líta beri á
iðnaðarmenn sem sjálfstætt
starfandi. Staðgreiðslu á því
ekki að halda eftir af slíkum
mönnum. Þeim ber að gera skil
á henni sjálfri. Ef um hreina
launþega er að ræða f þjónustu
húseiganda ber honum að skila
staðgreiðslu af launagreiðslum.
til þeirra og geta þá launþegam-
ir óskað eftir að tekið verði tillit
til persónuafsláttar eftir atvik-
um. Skylda húseigenda til að
gefa upp slíkar greiðslur til
skatts á launamiðum er sú sama
hvort sem um greiðslur til verk-
taka eða launþega er að ræða
og er skilaskyldan miðuð við 20.
janúar eftir lok greiðsluársins.
Munur á sjálfstætt starfandi iðn-
aðarmanni og launþega hjá verk-
kaupa ætti að vera næsta augljós.
SÖIUAÐILAR:
GÚMMIVINNUSTOFAN Réttarhálsi 2
og umboðsmenn um allt land Skipholti 35
Mynstur 5.
Hvítir hringir...
Mynstur 6.
Upphleyptir stafir...
ÚRVALS HJÓLBARÐAR!
- Einstök mýkt í akstri!
■ Hljöölátir!
• Ótrúleg ending!
• Frábært grip við allar aöstæður!
Mynstur 1.
Mynstur 2.
Mynstur 3.
Mynstur 4.
12.5R 15 X X X
11.5R15 X X X
10.5 R 15 X X X
9.5 R 15 X X
235/75 R 15 X X X X X
225/75 R 15 X X
215/75 R 15 X X
205/75 R 15 X X
205/65 R 15 X X
195/65 R 15 X X
185/65 R 15 X X
195/60 R 14 X X
185/60 R 14 X X
215 R 14 8 laga X X
205/75 R 14 X X
195/75 R 14 X X
185/75 R 13 X X
205/70 R 14 X X
195/70 R 14 X X
185/70 R 14 X X
185/70 R 13 X X
175/70 R 13 X X
165/70 R 13 X X