Morgunblaðið - 21.01.1988, Blaðsíða 42
42_________________MORGUNBLABIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1988
Maimshugurinn
Erlendar baekur
_ , Siglaugur Brynleifsson
The Oxford Companion to the
Mind. Edited by Richard L.
Gregory with the assistance of
O.L. Zangwill. Oxford Univers-
ity Press 1987.
Þetta er fyrsta bók sinnar teg-
undar sem út hefur komið, upp-
flettibók um hugtakið „hugur" og
það sem tengist því hugtaki. Upp-
flettiorðin eru samtals 1001 og
höfundar greina og ritgerða, sem
■►ritstjórinn hefur fengið til liðs við
sig á þriðja hundrað. Þeir eru
fræðimenn í þeim efnum sem
snerta „the mind“ á einn eða ann-
an hátt. Ritstjórinn starfaði að
verkinu í tíu ár ásamt aðstoðar-
mönnum.
Samantekt og úrvinnsla heim-
ilda um mannshugann og kerfun
þeirra virðist vera svo yfirgrips-
mikil og í mörgum efnum svo á
reiki og skoðanir og kenningar um
marga þætti ósamhljóða, að val
útgefandans er meira en lítið
vandaverk.
Ritstjórinn segir í formála, að í
fyrstu hafí hann ætlað sér að setja
saman uppflettibók um hugtök og
skilgreiningar hugtaka í öllum
vísindagreinum. Slík uppflettibók
hefði einnig orðið að fjalla um
heimspekihugtök og fagurfræði og
bókmenntir. Þegar tekið var að
undirbúa skipulag þessa verks kom
brátt í ljós, að það var meira en
litlum vandkvæðum bundið og var
talið lítt framkvæmanlegt. „En á
einhvem hátt varð þessi tillaga til
þess að það tóku gerjast hugmynd-
ir um bók svipaðs toga um
mannshugann..."
Hugtakið mannshugurinn er
samkvæmt skilgreiningu ritstjór-
ans haft í víðtækari merkingu en
almennt er gert. Hugsun og með-
vitund kemur fyrst í hug, en eins
og ristj. skrifar í formála: „V.ér
takmörkum ekki hugtakið (mind)
við meðvitundina eina, að því ljóst
var löngu áður en Freud birti kenn-
ingar sínar, að hugarheimar verða
seint kortlagðir samkvæmt þvi,
sem kallast sjálfsmeðvitund ...“
Ritstj. er blessunarlega fjarri
þeirri þröngu meðvitund, sem hef-
ur löngum einkennt þá sem þefað
hafa af vísindum, sálfræði og
heimspeki og Goethe dregur svo
skemmtilega saman í persónu
Wagners í Faust: „Zwar weiss ich
viel, doch möcht ich alles wissen."
Þeir sem hafa til að bera ein-
hveija þekkingu geta sagt eins og
kunnur íslenskur læknir sagði í
viðtali, að það sem menn vissu um
mannshugann og heilastarfsemina
væri eins og arða í samanburði við
Rey kj avíkurborg.
Birtar eru hér greinar og rit-
gerðir um taugafræði og starfsemi
heilans, efnaskipti og breytingar,
sem tekist hefur að staðfesta og
unnar hafa verið undir ríkjandi
paradigmum raunvísindanna.
Greinar um fræðslu, nám, greind
manna og dýra, áhrif deyfi- og
fíknilyfja á heilastarfsemina.
Chomsky ritar um kenningar sínar,
A.J. Ayer um kenningar heimspek-
innar um tengsl hugar og líkama,
Skinner reifar kenningar atferlis-
fræðinnar og ritstjórinn, Gregory,
um skynjun og skynvillur. Hér er
aðeins nefnt brot af þeim fjölda
fræðimanna og sérfræðinga sem
eiga greinar í bókinni.
Farið er hér inn á svið, sem
vísindin viðurkenna ekki sem rann-
sóknarverð eða erfitt er að beita
við vísindalegum rannsóknarað-
ferðum, svo sem rannsóknir yfir-
skilvitlegra efna,- hugsanaflutning
(sem margir telja að sé verðugt
verkefni vísindalegra rannsókna)
andatrú, þá tegund sem hófst á
19. öld og einnig hinna hefðbundnu
yfirskilvitlegu fyrirbrigða, sem eru
á svipuðum aldri og mannkynið.
Hugur, andi, sál, öll þessi hug-
tök eru oft á tíðum lítt skilgreind
og vissar stefnur í sálfræði hafna
þeim sem nothæfum vinnuhugtök-
um í hagnýtri sálarfræði. Hvort
sú skoðun gildir eða ekki skal ósagt
látið, en hvaðan kemur sköpunar-
gáfan? Er hugurinn e.t.v. öxulga-
tið, sbr. „Þijátíu hjólrimar mætast
í nöfinni, en nytsemi hjólsins er
komin undir öxulgatinu ...“ (Lao-
Tse: Bókin um veginn. Rv. 1921.)
Ritstjórinn skrifar í formála að
vandamál hafi komið upp varðandi
æviþætti þeirra manna, sem feng-
ist hafí við umfjölluð fræði, óger-
legt var að taka æviþætti þó ekki
væri nema þeirra helstu. Sú leið
var valin að vinsa úr, enda er fjarri
lagi að bókin geti verið bíógrafísk-
ur lexíkon ásamt uppflettibók um
mannshugann.
Verkefnið er óþijótandi og þótt
uppflettiorð séu 1001 og bókin
rúmi 850 blaðsíður, tveggja dálka,
þá er útgefendum vel ljóst að slík
samantekt um efnið er ákaflega
fjarri því að geta verið tæmandi.
Bókin er vel unnin sem uppfletti-
bók og registrið eykur mjög
notagildi hennar. Þeir sem koma
til með að nota hana munu fljót-
lega komast að raun um, að erfitt
er að vera án hennar og það er
einkenni gagnlegra rita.
raðauglýsingar
raðauglýsingar
raðauglýsingar
kennsla
Frönskunámskeið
Alliance Francaise
13 vikna vornámskeið hefst mánudaginn 25.
janúar. Kennt verður á öllum stigum ásamt
bókmenntaklúbbi, samtalshópi og í einka-
tímum.
Innritun fer fram í bókasafni Alliance Franca-
ise, Vesturgötu 2 (gengið inn bakdyrameg-
in), alla virka daga frá kl. 14.00 til 19.00 og
hefst fimmtudaginn 14. janúar.
Allar nánari upplýsingar fást í síma 23870 á
sama tíma. Veittur er 10% staðgreiðsluaf-
sláttur og 15% staðgreiðsluafsláttur fyrir
námsmenn. Greiðslukortaþjónusta.
Stefnir - ræðunámskeið
Stefnir, fólag ungra sjálfstæðismanna, i Hafnarfirði heldur ræðunám-
skeið fyrir byrjendur laugardaginn 23. janúar nk. kl. 13.30 í Sjálfstæð-
ishúsinu í Hafnarfirði. Leiðbeinandi veröur Guömundur Á.
Tryggvason. Allir ungir Hafnfirðingar velkomnir.
Aðalfundur - Kópavogi
Aðalfundur Baldurs, félags sjálfstæðismanna í launþegastótt, verður
haldinn fimmtudaginn 28. janúar í húsakynnum Sjálfstæðisflokksins
i Hamraborg 1, 3. hæð og hefst kl. 20.30.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
m
Ný sókn - Eyverjar
Eyverjar, Fólag
ungra sjálfstæðis-
manna í Vest-
mannaeyjum, halda
opinn fund í Hótel
Þórshamri, matsal,
kl. 20.30, föstudag-
inn 22. janúar.
Framsögumenn eru
Árni Johnsen, vara-
þingmaöur, sem
ræöir stöðu þjóð-
mála og flokksmál
og Árni Sigfússon, formaður SUS, sem ræðir málefnastarf ungs sjálf-
stæðisfólks framundan, bæjarmál og landsmál.
Sjálfstæðisfólk fjölmennið!
Eyverjar.
Siglufjörður - Siglfirðingar
Matthías Á. Mathiesen, samgönguráöherra, og Pálmi Jónsson, al-
þingismaöur, mæta á almennum fundi á Hótel Höfn fimmtudags-
kvöldiö 21. jan. kl. 20.30. Rætt verður um landsmál og hagsmunamál
Siglufjarðar. Fundurinn er öllum opinn.
Sjálfstæðisfélögin i Siglufirði.
Dalasýsla
Aöalfundir sjálfstæðisfélaganna i Dalasýslu
og fulltrúaráðsins verða haldnir i Dalabúð,
Búöardal, þriðjudaginn 26. janúar kl. 21.00.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Friðjón Þóröarson alþingismaður kemur á
fundina.
Stjórninrnar.
Sjálfstæðisfólk
íVestur-Húna-
vatnssýslu
Félagsfundur verður sunnudaginn 24. janú-
ar i Vertshúsinu, Hvammstanga, kl. 15.00.
Pálmi Jónsson mætir á fundinn.
Stjórnin.
Hugmynda-
bankinn
er opinn
Hugmyndabanki unga sjálfstæðismanna er opinn öllum þeim, sem
vilja leggja inn hugmyndir um nýjungar í starfsemi SUS. Innlegg á
reikning í hugmyndabankanum getur skilað sér með margföldum
vöxtum í styrkari stefnu og öflugri Sjálfstæðisflokki.
Takið þátt í starfi verkefnisstjórnarinnar um hugmyndabanka og
hringið í sima 82900 eða 686216 fyrir 21. janúar.
Sjórn SUS.
Akranes - bæjarmálefni
Fundur um bæjar-
málefni verður
haldinn í Sjálfstæð-
ishúsinu við Heiðar-
gerði sunnudaginn
24. janúar kl. 10.30.
BæjarfUlltrúar Sjálf-
stæöisflokksins
mæta á fundinn.
Kaffiveitingar.
Sjálfstæðisfélögin Akranesi.
Fundur um
efnahags- og kjaramál
Verkalýðsráð Sjálfstæðisflokksins og mál-
fundafélagið Óðinn halda sameiginlegan
fund með forsætisráðherra og formanni
Sjálfstæðisflokksins, Þorsteini Pálssyni, um
efnahags- og kjaramál. Fundurinn verður
haldinn í Valhöll, Háaleitisbraut 1, mánu-
daginn 25. janúar og hefst kl. 20.30.
Allir velkomnir.
Munið mánudaginn 25. janúar.
Koníaksdeild Týs
heldur aðalfund sinn á þorrablóti Sjálfstæðisflokksins þann 23. jan. nk.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Félagar mætið!
Lengdur
skilafrestur
Vegna fjölda áskoranna frá félögum höfum við ákveðið að lengja
skilafrestinn á svarbrófum til verkefnastjórnanna til 21. janúar.
Munið að svarbréfið má fara ófrímerkt í póst og einnig er hægt að
hringja á skrifstofuna i síma 82900 eða 686216.
Stjórn SUS.
Spilakvöld
Félög sjálfstæðismanna í Laugarnesi, Háaleitishverfi, Austurbæ og
Norðurmýri halda spilakvöld fimmtudaginn 21. janúar kl. 20.30 í
Valhöll, Háaleitisbraut 1. Stjórnandi er Þórður Einarsson.
Kaffiveitingar. Fjölmennið.
Stjórnirnar.
Bjóðum sjálfstæðisfólki í Austurbæ og Norðurmýri akstur á spila-
kvöldiö. Hafið samband við skrifstofuna fyrir kl. 17.00 í síma 82900.
Notið símann
- síðustu forvöð
lok þessarar viku munu verkefnisstjórnir SUS senda fyrstu bréfin
til þátttakenda i málefnastarfi sambandsins. Þeir, sem hyggjast vera
með, ættu þvi að gripa símann hið fyrsta og hringja í 82900 eða
686216 og tilkynna þátttöku. Við minnum á málaflokkana sem nú
eru til umfjöllunar: Umhverfismál, utanríkismál, verkaskipting rikis
og sveitafélaga, dagvistunarmál, áhrif kristinnar trúar á sjálfstæðis-
stefnuna, sjávarútvegsmál, islenskur fjármálamarkaður, neitenda-
mál, landbúnaðarmál, samgöngumál, húsnæðismál, námslánakerfi,
hugmyndabanki SUS, almenningstengsl SUS og fjármál SUS.
Stjórn SUS.
Vesturland
Sjálfstæðisfélagið Freyr heldur aðalfund i
Vegamótum á Snæfellsnesi mánudaginn
25. janúar kl. 21.00.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Friðjón Þórðarson, alþingismaður kemur á
fundinn.
Stjórnin
Umgengst þú
fisk?
Ef svo er, ættir þú að athuga möguleikana á að taka þátt i málefna-
starfi SUS um sjávarútvegsmál. Þar verður m.a. fjallað um:
• Fiskveiðistjórnun og stefnu.
• Fiskútflutning.
• Gengisskráningu.
• Ákvörðun fiskverðs.
Griptu tækifærið til að hafa áhrif á málefnastarfið. Þátttaka tilkynnist
i síma 82900 og 686216 fyrir fimmtudaginn 21. janúar.
Stjórn SUS.