Morgunblaðið - 21.01.1988, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 21.01.1988, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1988 47 að hann afí manns var heims- frægur maður í Hafnarfirði, virtur á sínu sviði og kunni sitt fag. Maður var stoltur af honum. Svo stoltur, að enn þann dag í dag segist ég vera dótturdóttir hans Ingimundar á Bæjarstöðinni, þegar ég þarf að gera grein fyrir mér á þeim slóðum. Það hefur dugað mér vel hingað til. Tíminn líður og Tröðin er ekki lengur miðpunktur lífsins, enda afi kominn aftur út á Álftanes. Þar byggði Finnur annað hús og minna fyrir nokkrum árum, enda fólkinu farið að fækka og ekki lengur móðins að búa,í ættarkommúnum. En það breytir ekki svo ýkja miklu, því að verkstjórinn aldni situr á sínu lofti með allt á hreinu og held- ur áfram að stýra okkur hinum á sinn elskulega en ákveðna hátt, Þótt við kveddum ömmu Rönku tókst okkur aftur að safna fjórum ættliðum undir sama þak, og eng- inn skortur var heldur á ættingjum og vinum úr sveitinni sem dvöldu hjá okkur um lengri eða skemmri tíma. Og þótt ekki væri hávaðinn í manninum fór ekkert á milli mála hver var verkstjóri í þessu húsi. Húsbóndi er ekki rétta orðið, því að þeir voru iðulega Ijórir og jafnvel fleiri, en sem verkstjóri hjá Bæjarútgerð Hafnarfjarðar var Ingimundur vanur að stjóma og gerði mest lítinn greinarmun á því hvort hann var að stýra sínum heittelskuðu saltfísk- og skreið- ardömum í þurrkhúsinu uppi á Hrauni eða uppeldinu á afkomend- um sínum — enda aðferðimar þær sömu og fyrr eða síðar lenti maður hvort eð var í sumarvinnu hjá hon- um á „Hrauninu" og eins gott að standa klár að hlutunum. Já, og það fór heldur ekkert á milli Afmæliskveðja: Ingimiindiir Hjör- leifsson níræður Hver er sinnar gæfu smiður, segir máltækið, og ekki dettur mér í hug að rengja það, en aleinn er vitaskuld enginn við það verk. Og því sting ég nú niður penna að mig langar að senda afmælis- kveðju og þakkir til verkstjórans yfír minni smíð. Ingimundur Hjörleifsson fædd- ist 21. janúar 1898 og er því níræður í dag. Fyrstu árin ólst hann upp á bökkum Kúðafljóts í Meðallandinu, þar sem faðir hans var fátækur bóndi og feijumaður. Þaðan lá leiðin suður á Álftanes, þar sem feijumaðurinn frækni týndi lífínu í Gálgahrauni og fjöl- skyldan tvístraðist. Ingimundur lenti hjá honum séra Jens í Görðum og margar sögumar hefur maður heyrt frá þeirri tíð, og reyndar allri hans tíð, því að allt man hann og segir þannig frá að það flögrar stundum að manni að García Márq- ues og fleiri slíkir sagnaþulir hljóti að vera ættaðir úr Meðallandinu. Ég man fyrst eftir mér á Hverf- isgötu 46 í Hafnarfírði. Það fallega hús áttu öðlingamir Palli Hjöll og Sigga Palla, sem um þær mundir létu sig ekki muna um að hýsa Ingimund, bróður Páls, og hans fjölskyldu meira og minna alla, auk ættmóðurina úr Meðallandinu, ömmu Rönku, sem oftast sat í körfustólnum sínum á efsta loft- inu, stjómaði öllum í húsinu og var nærri hundrað ára. Þá var afí Mundi búinn að vera giftur sinnar gæfu aðstoðaiyfír- smið, henni Mörtu Eiríksdóttur úr Amarfírðinum, í rúmlega tuttugu ár, og saman áttu þau hana Sísí sína, sem allt þeirra líf snerist um. Þetta voru dýrðartímar. Svo fluttum við í Tröðina upp úr miðjum sjötta áratugnum. Þá var Finnur faðir minn, tengdason- ur Ingimundar og Mörtu, orðinn smiður og búinn að byggja yfír fjölskylduna. Lengi bjuggu Marta og Mundi á neðstu hæðinni, Sísí og Finnur með þijú böm á miðhæðinni og Haukur sonur Mörtu ásamt Rós- marí og íjórum bömum í risinu. Svo skruppu Sísí og Finnur til Noregs í nokkur ár og gömlu hjón- in fluttu sig upp á miðhæðina til okkar krakkanna til þess að geta haft betri yfírsýn yfír fjölskylduna — og Fjörðinn. Þetta voru líka dýrðartímar. Lífíð í þessu húsi var oft með ólíkindum. Þama var sko engin lognmolla; alltaf margt um mann- inn, alltaf eitthvað að gerast. Við yngra fólkið kölluðum þetta ættar- hús, sem stendur við Ásbúðartröð, ýmist Ásbúðartröðina eða Mar- tröðina, eftir því hvemig stóð í bólið okkar, og það lýsir því lífí sem þama var lifað eflaust betur en mörg orð. að hann er óútreiknanlegur og engum líkur lét hann sig ekki muna um að rífa sig upp úr kvefí og jólaflensu og fljúga vestur á fírði „bara til að þurfa ekki að halda einhveija voðalega veislu“ í tilefni af níræðisafmælinu. í Súðavík og á ísafírði býr nefnilega um þesar mundir dágóður hiuti af „uppskerunni" hans, tveir dóttur- synir og fjölskyldur þeirra. Þangað sendi ég og mínir menn innilegar afmæliskveðjur með þökk fyrir allt sem harin hefur kennt okkur og gefíð gegnum árin. Hildur gegnum síma; svo lygilega líkur henni mömmu 'sinni úr Meðal- landinu, bæði í sjón og raun. Fyrir rúmum þremur árum kvaddi hans heittelskaða Marta, orðin lasburða og hvíldinni fegin. Þá var Haukur sonur hennar látinn 0f Innri búnaöui sami og í GOLF GT 0 5 gira handskipting 0' Snúningshraöamœlir Ef Hœöarstilling á ökumannssœti 0" Hliöarspeglar meö innistillingu 0Í Litaöar rúöur fyrir nokkrum árum, langt um ald- ur fram, og einnig hans sonur. Og í fyrra missti Ingimundur auga- steininn sinn, hana Sísí einkadóttur sína sem alltaf hafði búið með honum og hafði lofað sjálfri sér því að annast hann alla hans daga. Já, sorginni hefur hann kynnst, en gleðin býr líka í hjarta hans og hann á sína trú sem gerir hann sterkan, góðan og gjöfulan, sann- kallaðan gæfusmið. Ingimundur Hjörleifsson hefur alla tíð þóst vera á móti veislu- stússi, þótt enginn sé kátari en hann í góðra vina hópi. Og af því 0TT02verð- urfrumsýnd föstudaginn 22. jan. Nýja myndin um hinn frábæra OTTO Regnboginn. NYTTFRA PYSKUR KOSTAGRIPUR BETUR B ÚINN ENN NOKKRU SINNIFYRR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.