Morgunblaðið - 21.01.1988, Page 49

Morgunblaðið - 21.01.1988, Page 49
49 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1988 Árni Bjarnarson „Ýmsir voru uggandi þegar annað íslenskt blað hóf göngu sína í Winnipeg og óttuðust, að blöðin ætu hvort annað út á gaddinn og afleiðingin yrði sú, að landar ættu svo ekkert blað eftir á sinni tungu. Sem betur fór reyndust þær spár ekki réttar.“ Eftir fyrstu sjö árin tók ævintýra- maðurinn kunni, Jón Ólafsson, skáld, við ritstjóm, en starf hans við blaðið stóð aðeins stuttan tíma, og þá tók Einar Hjörleifsson rit- stjómina að sér á ný og var við blaðið uns Sigtryggur Jónasson settist í sæti hans allar götur til 1901. Sigtryggur var þá þjóðkunnur maður fyrir störf sín meðal íslenskra vesturfara og var einn þeirra sendimanna Kanadastjómar, sem völdu landnámsstaðinn á Nýja-íslandi. Næst kom Magnús Pálsson frá Hallfríðarstöðum í Hörgárdal, í nóv- ember 1901, og ritstýrði blaðinu í íjögur ár, en 19. nóvember 1905 tók við Stefán Bjömsson cand. the- ol. frá Kolfreyjustað í Suður-Múla- sýslu og var við ritstjómina þar til í apríl 1914. Þá hvarf hann heim til Islands og var vígður prestur til fríkirkjusafnaðar á Fáskrúðsfirði. í ritstjómartíð Stefáns var reist prentsmiðjuhús á hominu á Will- iam- og Sherbrooke-götum. Það var stór bygging, þrílyft 98x54’/2 fet á stærð. Auk prentsmiðjunnar og skrifstofu blaðsins voru í bygging- unni skrifstofur tveggja íslénskra lækna, þeirra Ólafs Bjömssonar og Brands J. Brandssonar, _ og lífsábyrgðarsala Kristjáns Ólafs- sonar, en íbúðir á annarri og þriðju hæð. Við heimför Stefáns kom ennþá nýr ritstjóri í stólinn, enginn annar en Sigurður Júlíus Jóhannesson frá Læk í Ölfusi, einn hinn allra rit- færasti og athafnasamasti maður meðal Vestur-íslendinga. Hann hafði áður fengist nokkuð við blaða- mennsku heima á íslandi og meðal annars verið upphafsmaður að út- gáfu bamablaðsins Æskunnar 1897, eldheitur áhugamaður um bindindis- og önnur velferðarmál, nafnkunnur hugsjónamaður, skáld og hið mesta göfugmenni. Hann var hinn fjölhæfasti maður. Minnast hans allir sem þekktu með virðingu og hlýhug. Um tíma störfuðu með Sigurði tveir meðritstjórar, Stefán Thors- son, ættaður úr Biskupstungum í Amessýslu, og Friðrik Sveinsson, listmálari í Winnipeg. Áhugi Sigurðar Júlíusar á blaða- mennsku var alla tíð mikill, og þegar ritstjómarstarf við Lögberg bauðst ákvað hann að taka því. Ekki var hann samt lengi við blað- ið að þessu sinni, tók við því í apríl 1914 og hætti í desember sama ár. Ástæðan var afstaða hans til her- kvaðningar Kanadastjómar og þátttaka Vestur-íslendinga í heims- styijöldinni 1914—1918, enda var hann alla tíð einlægur friðarsinni. Þá tók við starfi Sigurðar, Krist- ján Sigurðsson cand. phil. frá Kröggólfsstöðum í Ölfusi, sem áður hafði verið aðstoðarritstjóri. En Kristján sat ekki lengi í ritstjóra- stól. Sigurður tók aftur við sínu fyrra starfí 7. október 1915 og hélt því, uns hann hóf blaðaútgáfu sjálfur með Voröld sinni. Við ritstjóm Lögbergs tók þá Jón Bíldfell Jónsson frá Bíldsfelli í Grafningi, sém einnig hafði áður verið aðstoðarritstjóri. Jón Bfldfell Jónsson var um þriggja ára skeið við gullgröft í Klondyke, hinum heimskunna gullnámabæ, og hagn- aðist vel. Merkur maður og traustur á alla lund. Hans starf við blaðið varð alllangt eða um 10 ára skeið. En þá settist sá maður í ritstjóra- stólinn, sem var þar lengur en nokkur annar, sem starfaði við Lög- berg. Hann hét Einar Páll Jónsson, frá Háreksstöðum í Jökuldalsheiði, einn hinna nafnkunnu sona Jóns Benjamínssonar bónda þar. Var Einar Páll ritstjóri allt til þess er hann andaðist 27. maf 1959, og hafði þá setið lengur en nokkur annar sem ritstjóri að íslensku blaði í Vesturheimi. Um tíma 1934 annaðist Heimir Thorgrímsson ritstjóm í fjarveru Einars Páls. Heimir var sonur séra Adams Þorgrímssonar. Þá var um tíma fiðstoðarritstjóri við Lögberg Finnur Jónsson, bóksali, frá Melum í Hrútafírði. Kona Einars Páls, Ingibjörg Vil- hjálmsdóttir Sigurgeirssonar, prests á Grund í Eyjafírði, annaðist um árabil kvennadálk í Lögbergi, en gerðist síðan ritstjóri að manni sínum látnum. Þá var búið að sam- eina bæði blöðin í eitt, sem hefur síðan til dagsins í dag komið út undir nafninu Lögberg-Heims- kringla. Þegar blöðin gengu í eina sæng var eigendum þeirra beggja nokkur vandi á höndum. Réðu stjómmálin þar miklu um. Annað blaðið fylgdi fijálslyndum flokki að málum, en hitt íhaldssömum. Eftir langt samn- ingaþóf leystust þau mál þó farsællega. Bæði blöðin áttu þá sem oftar við fjárhagsvanda að etja og for- ystumenn blaðanna þreyttir á sífelldum fjárstuðningi við þau. Kaupendum fór fækkandi og ensku blöðin vestra fyrir löngu orðin les- mál yngri kynslóðarinnar. Hinn mikli eldlegi áhugi og fómfysi, sem fylgt hafði störfum frumheijanna og blöðum þeirra var kulnaður. Það var því sýnilegt hvert stefndi. Vest- ur-íslendingar vildu þó ekki láta merkið alveg falla og þvf var tekið það ráð að sameina bæði blöðin í eitt. Að þessum málum vann Ingi- björg Jónsson, síðasti ritstjóri Lögbergs, af mikilli festu og dugn- aði. Var hún ritstjóri til dauðadags. Að henni látinni tók við ritstjóm Carolina Gunnarsson, þá Haraldur Bessason prófessor og kona hans, Margrét Björgvinsdóttir, sem rit- stýrðu blaðinu með miklum ágæt- um. Síðan komu þrír mætir ritstjórar að heiman, hver eftir ann- an: Fríða Bjömsdóttir (Guðfinns- sonar), Jón Ásgeirsson, fyrmrn fréttamaður, og Jónas Þór, kennari frá Blómvangi í Mosfellssveit. En 1987 settist svo Vestur- íslendingurinn Einar Ámason í ritstjórastólinn og hefír hann ann- ast bæði ritstjóm og framkvæmdir við blaðið til þessa dags. Hér hefur nú í stuttu spjalli ver- ið gerð nokkur grein fyrir vestur-ís- lenska vikublaðinu Lögbergi, þegar lokið er hundrað ára vegferð þess. Er þetta að sjálfsögðu aðeins laus- legt ágrip, svo margt sem á daga þess hefir drifíð og þeirra mörgu merkismanna, sem hafa ritstýrt því á liðinni tíð. Þá sögu þyrfti sem fyrst að skrá ásamt sögu annarra vestur-íslenskra blaða og tímarita, sem öll héldu hátt á lofti fána íslenskrar menningar í Vestur- heimi. Þessari lauslegu greinargerð um sögu blaðsins vil ég ljúka með ein- lægum þökkum til Lögbergs fyrir baráttu þess fyrir traustu og góðu samstarfi og samvinnu milli Islend- inga austan hafs sem vestan og stuðningi við öll framfara- og hug- sjónamál heima á íslandi. Tollalækkanir og hagstæð magninnkaup: 15 til 40% verðlækkun á 26 vörutegundum. ESSELTE TÍMARITABOX 40% VERÐLÆKKUN 40% verölækkun áður 277 pr. stk. nú 167,- pr. stk. CHHH>= Hallarmúla 2. E 83211 Félagsfundur í Hlíf: Heimilar boðun verk- falls ef þörf krefur Lágmarkslaun fyrir dagvinnu verði ekki undir 42 þúsund krónum. ALMENNUR félagsfundur í verkamannafélaginu Hlíf í Hafn- arfirði, sem haldinn var nýlega, heimilaði stjórn og trúnaðar- mannaráði að boða til verkfalls, ef þörf krefði til að knýja fram nýja kjarasamninga. I ályktun sem fundurinn sam- þykkti segir að síðan desember- samningarnir voru gerðir hafi átt sér stað miklar hækkanir launa hjá flestum launþegahópum öðrum en verkafólki og nú sé svo komið að ekki verði lengur vikist undan því að hækka laun þess all verulega. Tímakaup verkafólks sé í dag frá kr. 159,10 og komist hæst í 191,81 hjá sérhæfðu fískvinnslufólki eftir 15 ára starf. Þessi laun séu fyrir neðan allt velsæmi og fundurinn telji að lágmarkslaun megi ekki vera undir 42 þúsund krónum á mánuði eða kr. 242,31 fyrir hveija klukkustund auk eðlilegra starfs- aldurshækkana. Þá segir: „Launin skulu miðast við 1. janúar s.l. og kaupmáttur þeirra tryggður með verðbótum á 3ja mánaða fresti út samnings- tímabilið sem yrði til 31. desember næstkomandi. Allt tal um að þjóðfélagið þoli ekki þessa hækkun lágmarkslauna er hræsni þeirra manna sem á árinu 1987 stóðu að miklum hækkunum á launum betur settra launþega. Þá fyrst er þjóðfélaginu verulega hætt þegar fijálshyggjustefna at- vinnurekenda og stjómvalda ætlar því fólki undirmálslaun sem fram- leiðslustörfín vinnur." Vatnslðsar Mjög hagstœtt verö! Innsogssett úr sjálfvirku í handvirkt HABERG ” SKEIFUNNI5A. SÍMI 91-8 47 88 • • ALGJOR RYMING # 50-80% AFSLATTUR UTSALA aldarinnar Við spyrnum fótum við háu verðlagi og bjóðum þreyttum og köldum fótum að klæðast skófatnaði frá okkur. Við seljium út allan leðurfatnað Leðurfatnað dömu og herra Leðurhanska dömu og herra Leðurtöskur og belti 50% afsl. Kuldaskór í úrvall, - verð frá 800,- kr. Spariskór í úrvali - verð f rá 500,- kr. Dömuskór í úrvali - verð f rá 900,- kr. SO - 80% afsl. Það er þess virði að koma á Vitastíginn. SKOGUUGGINN v/Laugaveg Skautar á 1.500,- kr. Stærðir 26-35. Svartir og hvftir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.