Morgunblaðið - 21.01.1988, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1988
58
Kristján Valdimarsson
Framkvæmda-
stjóri Alþýðu-
bandalagsins
KRISTJÁN Valdimarsson hefur
verið ráðinn framkvæmdastjóri
Al{)ýðubandalagsins.
Á fundi framkvæmdastjórnar Al-
þýðubandalagsins 18. janúar sl. var
Kristján Valdimarsson ráðinn fram-
kvæmdastjóri Alþýðubandalagsins.
Kristján hefur starfað sem skrif-
stofustjóri Alþýðubandalagsins frá
1984, en þar áður var hann fram-
kvæmdastjóri Alþýðubandalagsins í
Reykjavík frá 1979.
Utanríkisráð-
herrar Norðurlanda:
Virða verður
vilja Mið-
Aineríkuríkja
til að leysa
vanda sinn
án íhlutunar
Utanríkisráðherrar Norður-
landanna hafa gefið út eftirfar-
andi sameiginlega fréttatilkynn-
ingu:
„I tilefni fundar forseta Mið-
Ameríkuríkjanna í San Jose,
höfuðborg Costa Rica, 15. janúar
nk. lýsa utanríkisráðherrar Norður-
landanna í sameiginlegri yfirlýsingu
einlægum stuðningi sínum við frið-
aráætlun Mið-Ameríkuríkjanna.
Utanríkisráðherramir láta í ljós
þá von sína að fundur forsetanna
hafi jákvæð áhrif á frekari friðar-
umleitanir og að friðaráætluninni
verði hrundið í framkvæmd. Ráð-
herramir fagna áframhaldandi
viðleitni í samræmi við friðaráætl-
unina til eflingar lýðræðis, sátta og
gagnkvæms trausts.
Mikilvægt er, að öll ríki sem
hafa tengsl við eða hagsmuna að
gæta á svæðinu virði hin þjóðréttar-
legu grundvallaratriði sem friðar-
áætlunin hvílir á. Vilja Mið-
Ameríkuríkjanna til að leysa vanda-
mál sín án utanaðkomandi íhlutun-
ar verður að virða."
Siglufjörður:
Góður afli
netabátanna
Sijflufirði.
GÓÐ netaveiði hefur verið
hjá bátum á svæðinu við Kol-
beinsey. Hefur aflinn farið upp
í 20 tonn í róðri.
Enn sem komið er eru það aðl-
lega bátar frá Dalvík og Grenivík,
sem hafa verið að veiðum á svæð-
inu. Bátar héðan frá Siglufirði eru
að búast til veiðanna í kjölfar
frétta um góðan afla.
Fréttaritari
SVAR
MITT
eftir Billy Graham
Mig skortir sjálfstraust
Hvernig get eg öðlast meira sjálfstraust? Eg á
fremur fáa vini, mér gengur ekki sérlega vei að
komast áfram og eg verð oft leiður á sjálfum mér.
Mestu varðar að þú gerir þér grein fyrir hvaða augum
Guð lítur á þig, ekki hvað þér eða öðrum finnst um þig.
Hver er hugur Guðs til þín? Eg vil leggja alla áherslu á
það að Guð elskar þig af brennandi kærleika og lætur sér
umhugað um þig. Já, hefðir þú verið eini maðurinn á jörð-
inni sem þyrfti að frelsast frá syndum sínum hefði Guð eftir
sem áður verið fús til að senda einkason sinn lil að deyja á
krossinum fyrir syndir þínar.
Svo mikil er elska hans til þín, svo kær ertu honum, að
hann þráir að þú verðir barnið hans og dveljir hjá honum
um alla eilífð. „Sjáið hvílíkan kærleika faðirinn hefur auð-
sýnt oss að vér skulum kallast Guðs börn. Og það erum
vér.“ (1. Jóh. 3,1.)
Eg bið þess að þú veitir viðtöku þessum kærleika Guðs
til þín. Vera má að þér finnist þú vera óverðugur elsku hans
og á vissan hátt ertu það því að allir höfum við syndgað
og eigum ekki skilið að Guð elski okkur. Samt erum við
hjartfólgnir Guði, þó að við séum eins og raun ber vitni.
Láttu það því ekki aftra þér frá því að koma til Krists
þótt þér finnist þú óverðugur. Jesús segir: „Sjá, eg stend
við dyrnar og kný á. Ef einhver heyrir raust mína og lýkur
upp dyrunum, þá mun eg fara inn til hans og neyta kvöld-
verðar með honum og hann með mér.“ (Opinb. 3,20.) Já,
Kristur drepur á dyr hjarta þíns. Hann þráir að fá að koma
inn. Hann vill eiga samfélag við þig. Þú þarft ekki að gera
annað en opna dyr hjartans og bjóða Kristi að vera drottinn
þinn og frelsari.
Þá mun Guð veita þér hjálp á hverjum degi. Þú lærir að
reiða þig á hann og felur honum allan vanda og sérhvert
svið lífsins. Mændu á Krist. Hann gefur þér nýja sjón er
þú ferð að sjá sjálfan þig — og aðra — með hans augum.
t
Eiginkona mín og móðir,
HALLDÓRA GUÐRÚN TRYGGVADÓTTIR,
Nesbala 32,
Seltjarnarnesi,
verður jarðsungin frá Neskirkju föstudaginn 22. janúar kl. 13.30.
Blóm vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vildu minnast hennar
er toent á Krabbameinsfélag íslands.
Helgi Ingvarsson,
Ásta Sigríður Ólafsdóttir,
Ingvar Júlíus Helgason.
t
Eiginmaöur minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
HRAFN JÓNSSON
forstjóri,
Vaðlaseli 2, Reykjavík,
verðurjarðsunginnfrá Dómkirkjunni föstudaginn 22.janúarkl. 13.30.
Þeim sem vildu minnast hins látna er bent á Krabbameinsfélagiö.
Erla Höskuldsdóttir.
Valdimar Hrafnsson, Ásdís Þórðardóttir,
Ólöf Hrefna Hrafnsdóttir,
Hrafnhildur Hrafnsdóttir, Trausti Tómasson,
Guðbjörg Hrafnsdóttir, Bragi Biumenstein,
Sveinn Þór Hrafnsson, Bryndfs Jóhannsdóttir,
Daniel C. Gribb, Jóhanna Jónasdóttir
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vin-
áttu við andlát og útför,
EYÞÓRS EINARSSONAR,
Kambahrauni 8,
Hveragerði, ■
Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild 11-A á Landspitalanum og
starfsfólks sjúkrahúss Suðurlands.
Guðborg Aðalsteinsdóttir,
Emma Eyþórsdóttir,
Einar Eyþórsson,
Arnheiður Eyþórsdóttir,
Aðalsteinn Eyþórsson,
Lilja Guðrún Eyþórsdóttir,
Sigurður Eyþórsson,
Ásgerður Eyþórsdóttir.
Brynjólfur G. Brynjólfsson,
Gunn Randi Kristensen,
Gylfi Guðmarsson,
Erla Einarsdóttir,
Haraldur Benediktsson,
t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúð og vináttu við andlát og útför föður okkar, tengdaföður og afa, GUÐMUNDAR SKÚLA GUÐLAUGSSONAR f.v. forstjóra, ' Hvassaleiti 8, Reykjavfk. Guöbjörg Guðmundsdóttir, Björn Johnsen, Margrét Guðmundsdóttir, Guðmundur Skúli Johnsen, Sturla Björn Johnsen, Guðriður Edda Johnsen.
t Þökkum innilega öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, MÖRTU HÓLMKELS, Hringbraut 57, Keflavík. Þakkir faerum við læknum og hjúkrunarfólki deild 11-A Landspítal- ans fyrir góða hjúkrun og umönnun hinnar látnu. Börn, tengdabörn og barnabörn.
t Þökkum innilega öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar og móður okkar, EYJÓLFU BJARGAR GUÐMUNDSDÓTTUR, Sundstræti 41, isafirði. Sveinn Ó. Jónsson, synir og aðrir aðstandendur. f
t
Þökkum auösýnda vinsemd og hlýhug við andlát og útför,
MARÍU EINARSDÓTTUR VESTMANN,
Akranesi.
Börn Einars Vestmanns,
tengdabörn og barnabörn.
Lokað
Vegna jarðarfarar GUNNARS EGGERTSSONAR verður
skrifstofu okkar lokað í dag fimmtudaginn 21. janúar
milli kl. 13 og 15.
Eggert Kristjánsson hf.,
Sundagörðum 4.
Lokað
Vegna jarðarfarar GUNNARS EGGERTSSONAR, for-
stjóra, verða skrifstofur okkar lokaðar fimmtudaginn
21. janúar milli kl. 13.00 og 15.00.
Mata,
Sundagörðum 10.
Lokað
Skrifstofur Glerverksmiðjunnar Esju hf. verða lokaðar
í dag milli kl. 13.00-15.00 vegna jarðarfarar GUNNARS
EGGERTSSONAR, stórkaupmanns.
Glerverksmiðjan Esja hf.
Lokað
eftir hádegi í dag vegna útfarar GUNNARS EGGERTS-
SONAR, stjómarformanns.
Bananarhf.
Lokað
eftir hádegi í dag vegna útfarar GUNNARS EGGERTS-
SONAR, stjórnarformanns.
Bananasalan hf.
Lokað
verður í dag, fimmtudaginn 21. janúar, vegna jarðarfarar
GUNNARS ÞÓRÐAR EGGERTSSONAR stórkaupmanns.
Gunnar Eggertsson hf.