Morgunblaðið - 21.01.1988, Page 54

Morgunblaðið - 21.01.1988, Page 54
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1988 félk i Félagur úr Tangóklúbbi Kramhússins; á myndinni má þekkja þau Sigrúni Benediktsdóttur og Lars Björk, fyrir aftan þau eru Wincy Jóhannsson og Þórður Þórisson, en lengst til hægri dansa Sigrún Stefánsdóttir og Sigvaldi Pétursson. Tangó. David Höner og Birgitta Heide í einu af þremur atriðum sem þau sýndu. TANGÓ DANS KARLMANNSINS Veitingahúsið Lækj- artungl bauð Tangóklúbbi Kram- hússins að dansa tangó í salarkynnum sínum sl. fostudfagskvöld, en þá var nýafstaðið nám- skeið í tangódansi í Kramhúsinu. Kennari á þessu námskeiði var David Höner, og hélt hann sýningu fyrir áhorfendur þar sem hann dansaði ásamt Birgittu Heide. Var þetta fimmta sýningin sem þau dansa á, en þau komu m.a. fram við opnun Lækjartungls. Til þessarar skemmtun- ar var boðið öllum félögum í Tangóklúbbs- ins, en þeir eru um 40 talsins. Að sögn Guðnýjar Helgadóttur í Kram- húsinu er argentískur tangó dans karlmanns- ins, dans tilfínninganna . Kramhúsið hefur nú gengist fyrir fimm námskeiðum í þessum tlþrifamikla dansi og hefur áhugi fyrir þeim verið mjög mikill, en um eitt hundrað manns hafa tekið þátt. Að sögn hennar skemmtu áhorf- endur sér hið besta á þessari sýningu og mun verða framhald á að fólk á vegum Kram- hússins sýni dans í Lækjartungli. David og Birgitte í djúpri hliðarsveiflu. Áhorfendurnir sem fylgjast með þeim eru allt fólk sem verið hefur á námskeiðum Kramhússins. fr Sifi LIFNAÐARHÆTTIR Jóhannes Páll II hvatti ungt fólk til að taka upp aðra og betri lifn- aðarhætti í ræðu sem hann hélt sl. þriðjudag. Ræða Páfa var liður í undirbúningi fyrir alþjóðadag kristilegrar æsku, sem haldinn verður hátíðlegur í mars. Boðskap- ur Páfa til ungs fólks var ( stórum dráttum sá að eiturlyf, kynlíf og áfengi gætu aldrei orðið nokkrum manni til góðs, heldur leiddu til dapurleika, tóms hjarta, og örvænt- ingar. „Hinn eini sanni vegur hamingjunnar er vegur Krists," sagði Páfí, og bætti því við að ung- ar stúlkur ættu að hafa fordæmi Maríu meyjar að leiðarljósi. „Það er ekki auðvelt að fylgja Kristi nú á tímum gegndarlausrar neyslu- menningar, og það þarf hugrekki til að standast strauma tísku og yfirborðsmennsku.“ Páfí mun syngja messu í tilefni al- þjóðadags kristilegrar æsku í Péturskirkjunni í Róm á Pálma- sunnudag. Páfi hvetur ungt fólk til hreinlífis

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.