Morgunblaðið - 21.01.1988, Side 60

Morgunblaðið - 21.01.1988, Side 60
60 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1988 ÓLYMPÍULEIKARNIR í CALGARY Vetrarólympíuleikamir verða settir í Calgary 13. febrúar Fyrsta skipti sem vetrarólympíuleikarnir eru haldnir í Kanada Niels Kristjánsson skrifarfrá Calgary Hvar og hvemig er nú þessi Calgary? Nafnið er komið úr skosku og þýðir tært vatn, borgin stendur þar sem tvær ár, Bow og Elbow, renna saman í suðvesturhluta Al- berta-fylkis, en Alberta-fylki er eitt af vesturfylkjum Kanada og nær að Klettafjöllunum í vestri. Fyrsta byggð var virkið Fort Calgary sem var byggt 1875, og 1883 kom sfðan fyrsta jám- '■'sbrautin og síðan hefur borgin verið í stöðugum vexti og búa hér nú um 650 þús. manns. Vlðfyrstu kyrinl er ekkert f borglnni sem mlnnlr á skfðaíþróttina Borgin er þekktust fyrir mikla kú- rekahátíð sem kölluð er Stanpede og er haldin árlega, en á seinni ámm er borgin þekktust fyrir olíu- iðnað. Við fyrstu kynni er ekkert í borginni sem minnir á skíðaíþrótt- ina, en þegar nánar er að gáð má sjá til vesturs í útjaðri borgarinnar gnæfa eins og risa fomaldareðlur skíðastökkpallana sem byggðir voru fyrir Ólympíuleikana. Það er að óreyndu erfitt að gera sér í hugarlund hversu mikið fyrir- tæki Óljmipíuléikar eru. Undirbún- ingur er ótrúlega mikill og hefur staðið yfír síðan borginni var falið að sjá um leikana, alls staðar má sjá ólympíumerki og alls kyns skreytingar og nú stendur yfír blómatíð hjá minjagripasölum. Ein- hver líkti þessu við snjóbolta sem búið er að rúlla af stað niður brekku og stöðugt stækkar og eykur hrað- ann með vaxandi þunga. Jólaljósln ekki tekln nlftur fyrr en eftlr Ólympíuleika Til þess að auka stemmninguna hefur borgarstjórinn beint þeim til- í mlftborg Calgary mun ólympíueldurinn loga á 190 metra háum tumi alla leikdaganna. Tumin og ólympíukyndillinn hæsti kyndill í víðri veröld. mælum til borgarbúa að taka ekki niður jólaljósin fyrr en eftir leikana, eins munu fyrirtæki sem em til húsa í háhýsum miðborgarinnar hafa öll ljós kveikt á kvöldin og nóttunni. Fyrir utan þá sem starfa á fullum launum við Ólympíuleik- ana hafa um 10 þúsund sjálfboða- liðar verið fengnir til starfa við ýmis störf er tengjast leikunum. ÖIl uppsetnjng og prófun á tækjum viðvíkjandi leikunum er nú lokið að undanskilinni skautahöllinni sem hýsa mun ísknattleikinn, en sá stað- ur er í fullri notkun þar til 1. febrúar. Það hefur valdið töluverðum áhyggjum hve lítið hefur snjóað hér undanfama tvo vetur, síðasti vetur var sá hlýjasti í hálfa öld og þó þessi sem nú stendur yfir hafi ekki verið eins hlýr hefur hann verið álíka laus við snjó. Til þess að ekki þurfí eins að reiða sig á veðurguð- ina hafa tæki til þess að búa til snjó verið notuð með fullum afköst- um alla daga vikunnar síðan hiti fór niður fyrir frostmark og telja menn að ekki þurfí að hafa áhyggj- ur af því að aflýsa þurfí neinu nema ef vera skyldi að veðrið bregðist við á hinn veginn og verði slæmt. 30 sm snjólag getur horflft á elnum sólarhrlng Hér um slóðir er staðbundið fyrir- brigði sem kallað er „shinook" sem á íslensku er kallað hnjúkaþeyr. Þetta eru hlýir vindar sem blása ofan af Klettafjöllunum vegna ríkjandi vestanáttar, þessir vindar geta valdið því að hiti getur farið úr +20°C í +10—15°C hluta úr degi og getur 30 sm snjólag horfíð á einum sólarhring. Til að reyna að sjá þessar veðrabreytingar fyrir og gera langtíma spár hefur heill herskari af veðurfræðingum verið fenginn á staðinn ásamt 20 milljóna króna (ísl.) tölvubúnaði. „V*5f ■ ' - *'Æ-' Skautahöllln er staðsett á svæði háskólans í Calgary. Hún er sú fyrsta sinnar tegundar með 400 metra keppnis- brautum. Ólympíuþorpið er einnig staðsett á lóð háskólans. * Stœrstl kyndlll (vfftri varöld í hjarta borgarinnar er tum sem er 190 metrar á hæð og hefur á toppnum verið komið fyrir miklum gasbrennara og mun þar loga eldur alla daga leikanna, en tuminn og ólympíukyndillinn em svipaðir í lag- inu og mun þetta vera stærsti kyndill í víðri veröld. 88 dögum fýrir leikana var ólympíueldurinn tendraður með viðhöfn í Grikklandi og til þess notuð sólarorka. Þegar eldurinn kom til Kanada hófst 18 þúsund kílómetra langt boðhlaup um öll fylki landsins. Fjöldi manns á öllum aldri, kynjum og kynþáttum taka þátt í hlaupinu og þykir mikið til um að fá að komast í svo náin kynni við anda Ólympíuleikanna. Til marks um áhugann fyrir boð- hlaupinu má nefna að á miðviku- dag, þann 13. janúar sl., hlupu 53 með kyndilinn 291 km frá Shabaqua Comes Ontario til Dryden Ontario en 12.899 manns höfðu sótt um að hlaupa með kyndilinn þessa leið. Boðhlaupið endar síðan á opnunar- athöfninni þann 13. febrúar næstkomandi. Opnunarhátfðin verður á McMahon-leikvanginum Töluverð leynd hefur verið yfír því hvað boðið verður uppá á opnunar- hátíðinni sem fer fram á McMahon- leikvanginum. Leikvangurinn tekur nú um 80 þús. manns í sæti eftir að töluverðar breytingar höfðu ver- ið gerðar á honum. Ekki langt frá fyrmefndum tumi í miðbænum hef- ur verið útbúið mjög smekklegt torg, Olympic Placa, en þar fara fram allar verðlaunaafhendingar á kvöldin eftir keppni. Þar fara líka fram alls kyns listasýningar og verður borgin reyndar öll undirlögð af listaviðburðum og alls kyns sýn- ingum. Rétt við háskólann var byggð geysi- stór skautahöll, Olympic Oval, sem Ljósmynd/Níels Kristjánsson eru svipaðir í laginu og mun þetta vera notuð verður fyrir skautahlaupið. Skautahöllin skartar 400 m langri hlaupabraut, tekur 4.000 manns í sæti og þykir verkfræðilegt afrek í alla staði. Þetta er í fyrsta skipti í sögu vetrarólympíuleikanna sem hægt er að halda skautahlaupið innan dyra, þetta gerir íþróttina óháða veðri og vindum og er spenn- andi að sjá hver útkoman verður. Búist er við að talsvert af heimsmet- um muni fjúka, en Kanadamenn gera sér vonir um að vinna til gull- verðlauna í skautahlaupinu. ísknattlelkur er nánast trúaratrifti í Kanda Listdansinn á skautum fer fram í skautahöll sem heitir Father David Bower Arena og er ein af mörgum skautahöllum í borginni. Það er rétt að geta þess að þar sem ísknatt- leikur er nánast trúaratriði í Kanada þá er ekki skortur á innan- hússskautasvellum. Ein er sú bygging sem mest ber á í borginni, en það er Olympic Saddledone sem er stærsta skautahöllin og ber mest á sérkennilegri lögun þaksins, sem minnir á söðul, og þaðan er nafnið komið. Þakið eitt og sér þykir mik- ið undur en innandyra er öllu þannig fyrir komið að enginn þeirra 18 þúsunda sem sæti eru fyrir, er lengra en 60 metra frá svellinu og hvergi eru súlur eða bitar til að byrgja sýn. Olympic Saddledone er heimavöllur Calgary Flames-ísknattleiksliðsins héma og hefur liðið verið sigursælt þetta árið og verið í 1. sæti í 1. deild langan tíma. Við hliðina á Olympic Saddledone er Internation- al Broadcast Céríter (IBC) sem er miðstöð þeirra fjarskipta sem tengj- ast leikunum. Þar eru ógrynni af sjónvarps- og útvarps-stúdíóum og gafst undirrituðum tækifæri til að beija staðinn augum og hef ég aldr- ei á ævinni séð jafnmikið af tækjabúnaði og alls kyns rafmagns- HÉR í Calgary-borg líftur senn að því aft mesti viðburður í sögu borg&rinnar hefjist, en þaft eru XV. vetrarólympíuleik- arnir sem hefjast 13. febrúar nk. Þetta er ífyrsta skipti sem vetrarólympíuleikarnir eru haldnir f Kanada. Kanada- mönnum er því umhugað að framkvœmdin gangi snurftu- laust og verði landi og þjóð til sóma. Calgary-borg sótti fyrst um að fá að halda vetrar- ólympíuleika 1959, en það var ekki fyrr en 1981 að sá draum- ur varð að veruleika og er það Ralp Klein borgarstjóra aðal- lega að þakka.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.