Morgunblaðið - 21.01.1988, Qupperneq 64
SYKURLAUST FRÁ WRIGLEY’S
Þar vex sem vel er sáð!
FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1988
VERÐ í LAUSASÖLU 55 KR.
Flugleiðir:
Um 400 milljóna tap
á Atlantshafsfhiginu
ÚTLIT er fyrir að tap Flugleiða
á flugrekstri á flugleiðinni yfir
N-Atlantshaf hafi numið um 400
milljónum króna á síðasta ári.
Endurskoðaðar tölur um rekstur
Flugleiða fyrstu niu mánuði
síðasta árs sýna að afkoma félags-
ins hefur versnað um 295 milljón-
ir miðað við sama tímabil árið
undan, og er þessa þróun fyrst
og fremst að rekja til tapsins á
N-Atlantshafsfluginu.
Að sögn Sigurðar Helgasonar,
forstjóra Flugleiða, er of snemmt
Samningur til
skamms tíma?
SAMNINGARÁÐ VSÍ kemur
saman til fundar í dag og þar
verða rædd viðhorfin í samn-
ingamálunum. Forystumenn
V erkamannasambands Islands
hafa varpað fram þeirri hug-
mynd að kjarasamningar verði
gerðir til skamms tíma.
í vikunni hófust viðræður milli
Verkalýðs- og sjómannafélags
Keflavíkur, verkakvennafélagsins
og vinnuveitendafélags Suðumesja
og hefur annar fundur verið boðað-
ur á morgun, föstudag. Að sögn
Karls Steinars Guðnasonar, form-
anns Verkalýðs- og sjómannafé-
lagsins, kom á fundinum fram
greinilegur vilji hjá báðum aðilum
að ná samningum hið fyrsta og
meðal annars rætt um hvort rétt
væri að gera kjarasamninga til
skamms tíma.
„Þetta var mjög jákvæður fund-
ur. Það var rætt um það launamis-
rétti sem hefur skapast og þá vá
sem væri fyrir dyrum ef ekki næð-
ust samningar hið fyrsta," sagði
Karl Steinar í samtali við Morgun-
blaðið.
„Ég heyri í íjölmiðlum að verka-
lýðshreyfíngin er farin að ræða um
samninga til skemmri tíma, en það
hafa engin tilmæli komið til okkar
um viðræður á þeim grunni," sagði
Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri VSÍ í gærkvöldi. „Á
vettvangi samningamála er aldrei
hægt að útiloka neitt. Hversu
óheppilegt sem það kann að vera
er alltaf svo að menn verða að vera
þolanlega opnir fyrir möguleikum,"
sagði Þórarinn aðspurður um hvort
VSÍ útilokaði möguleika á
skammtímasamningum.
„Skammtímasamningar eru ekki
það sem við erum að leita eftir, því
við lítum svo á að það sem þessi
þjóð þurfi sé einhver festa fram á
veginn," sagði Þórarinn.
að segja til um útkomuna í rekstri
félagsins í heild á síðasta ári og
reyndar kemur níu mánaða upp-
gjörið út með nokkrum hagnaði. Á
hinn bóginn eru þrír síðustu mánuð-
ir ársins jafnan erfiðir og tap á
flugrekstrinum yfír vetrarmánuðina.
Sigurður segir því of snemmt að
segja til um fjárhagslega útkomu
félagsins fyrir árið í heild en endan-
legar tölur liggja væntanlega fyrir
í mars, skömmu fyrir aðalfund Flug-
leiða.
Meginskýring^una á versnandi af-
komu Flugleiða og þá einkanlega á
N-Atlantshafsfluginu segir Sigurður
vera verðhækkanir á eldsneyti, mikl-
ar kostnaðarhækkanir innanlands á
síðasta ári ásamt 11% lækkun doll-
ars gagnvart krónu en félagið hafi
ekki getað mætt þessari verðþróun
með hækkun fargjalda á stærsta
markaðssvæðinu.
Bandaríska ráðgjafafyrirtækið
Boston Consulting Group vinnur nú
að úttekt á N-Atlantshafsflugi Flug-
leiða og væntanlega skila loka-
skýrslu til stjómar félagsins með
vorinu.
Sjá nánar í viðskiptablaði B1
L'
jy
Morgunblaðið/Björn Blöndal.
Skátamir brugðu á leik í sqjónum á Keflavikurflugvelli í gær.
Ur sólinni í snjóinn
SKÁTARNIR 113 sem héldu
utan á heimsmót skáta i Ástr-
alíu 23. desember sl. komu
aftur til landsins síðdegis i gær
eftir langt og strangt ferðalag.
Viðbrigðin voru mikil fyrir
skátana og sagði einn þeirra,
Logi Jónsson, sem er 14 ára
og næstyngstur í hópnum, við
heimkomuna í gær að hitinn
hefði á stundum farið langt
yfir 30 stig. Logi sagði
skemmtilegast við svona ferðir
að eignast vini um allan heim.
Hátt fiskverð dregur úr neyzlu í Bandaríkjunum:
Líkur á verðlækkun á
þorskí aukizt framboð
SALA sjávarafurða í desember
siðastliðnum í Bandaríkjunum
var minni en venjulega. Fyrri
hluta siðasta árs var salan mikil,
næstu þrjá mánuði var hún talin
eðlileg og síðustu þrjá mánuðina
afar slök. Miklar birgðir eru nú
í Bandaríkj unum af frystri blokk
og flökum. Blokkarbirgðir voru
i nóvember 89% meiri en á sama
F.imskip eykur hlut
sinn í Flugleiðum
-Ekki heppileg þróun að Eimskip verði svo sterkur
aðili, segir Kristjana Milla Thorsteinsson. - Flugleiða-
bréfin fjárfesting og eðlilegt að Eimskip vilji hafa
áhrif á framvinduna, segir Hörður Sigurgestsson
EIMSKIPAFÉLAG íslands hef-
ur aukið hlutabréfaeign sína í
Flugleiðum i 27% en það festi
nýverið kaup á hlutabréfum
Einars Árnasonar og baraa
hans sem svöruðu til um 4% af
heildarhlutafé Flugleiða.
Eimskip var fyrir stærsti ein-
staki hluthafinn í Flugleiðum og
með tvo fulltrúa í níu manna
stjóm félagsins. Hörður Sigur-
gestsson, forstjóri Eimskips, segir
að ekki hafi verið rætt um að leita
eftir §ölgun fulltrúa Eimskips í
stjóm Flugleiða í krafti þessara
síðustu hlutabréfakaupa.
Kristjana Milla Thorsteinsson,
einn stjómarmanna í Flugleiðum,
sagði þegar leitað var álits hennar
á auknum hlut Eimskipafélagsins
í Flugleiðum, að það lægi í hlutar-
ins eðli að henni þætti það ekki
heppileg þróun að Eimskipafélag-
ið væri orðið svo sterkur aðili
innan Flugleiða. Hún minnti á að
bæði Loftleiðir og Flugfélag ís-
lands hefðu verið byggð upp af
mörgum smáum hluthöfum og
þetta væri því óneitanlega frá-
hvarf frá þeirri hefð.
Hörður Sigurgestsson segir
hins vegar að ekkí sé áhugi hjá
Eimskip að eignast öllu stærri
hlut í Flugleiðum en Eimskip líti
á hlut sinn í félaginu sem fjárfest-
ingu og eðlilegt að það vilji geta
haft áhrif á framvinduna hjá
Flugleiðum, sem standi að mörgu
leyti á tímamótum um þessar
mundir.
Sigurður Helgason, stjómar-
formaður Flugleiða og aðaleig-
andi Klaks sem kemur næst
Eimskipafélaginu hvað hluta-
bréfaeign í Flugleiðum varðar, er
erlendis og fengust því ekki við-
brögð hans við þessum hluta-
bréfakaupum Eimskipafélagsins.
Sjá einnig viðskipablað B1
tima í fyrra og birgðir flaka og
flakastykkja tvöfalt meiri. Álitið
er að eftirspura fari minnkandi
og verð lækkandi, samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins.
Búizt er við nokkrum breytingum
á markaðnum á næstunni og eru
helztu ástæður þess taldar vera
hátt verð á sjávarafurðum með hlið-
sjón af lágu verði á fuglakjöti;
auglýsingaherferð fyrir kjötvörur,
sem rúmlega 200 milljónum króna
verður varið til, en takmörkuð aug-
lýsingaherferð fyrir sjávarafurðir;
bakslag í ímynd fisks sem sérstak-
lega heilsusamlegrar fæðu og
minnkandi áhugi ýmissa veitinga-
húsa og matvælamarkaða á því að
kynna og selja sjávarafurðir.
Verð á fiskblokk var stöðugt um
jól og áramót, en birgðir í frysti-
geymslum i nóvember voru taldar
75,9 milljónir punda, 34.428 tonn.
Það var 2% meira en í október og
89% meira en í nóvember árið áð-
ur. Verð á þorskblokk hefur verið
stöðugt í um 2 dollurum á pundið,
en talið er að mikil veiði af þorski
í norðurhöfum á næstunni valdi
verðlækkun. Mest aukning af fisk-
blokk hefur verið í Alaska-ufsa,
lýsingi, Atlantshafs-ufsa og þorski.
Birgðir af flökum og flakastykkj-
um voru meiri en nokkru sinni áður
síðustu 6 árin síðari hluta síðasta
árs, voru þá 105,8 milljónir punda,
48.000 tonn. Þær höfðu þá aukizt
um 14% frá því í október og tvö-
faldazt frá árinu áður. Megnið af
þessum birgðum eru í þorski, ufsa
og karfa og virðist verð á þeim teg-
undum vera að lækka. Nokkrar af
stærstu fískveitingahúsakeðjunum
hafa dregið úr þorsksölu og fært
sig í auknum mæli yfir í sölu á
ufsa og lýsingi til að lækka verð á
fiskréttunum til að tapa ekki við-
skiptum vegna samkeppni við
matsölustaði, sem selja ftiglakjöt
og nautakjöt.
Pétur Másson, upplýsingafulltrúi
Coldwater í Bandaríkjunum, sagði
í samtali við Morgunblaðið, að upp-
lýsingar þessar væru í meginatrið-
um réttar. Birgðir af flökum og
blokkum væru miklar og veitinga-
húsakeðjumar hefðu minnkað
hlutfall þorskflaka í sölu sinni.
Hátt verð á þessum afurðum hefði
greinilega dregið úr neyzlu á þorsk-
inum. Kanadamenn ættu nú mikið
af þorskflökum í birgðum og væru
famir að lækka verð á þeim. Cold-
water hefði haldið verðinu í 2,60
dollurum á pundið og getað selt
allt sem fengizt hefði að heiman.
Ykist framboðið hins vegar yrði
hugsanlega erfitt að halda þessu
verði. Verð á blokk hefði lækkað
úr 2,05 dollurum í 2 og veruleg
hætta væri á verðlækkun á henni.
4 á slysadeild
HARÐUR árekstur varð í Sætúni
um klukkan 23.00 i gærkvöldi.
Tveir fólksbílar skullu þá saman
og voru fjórir fluttir á slysadeild,
en á miðnætti var ekki vitað
hversu alvarleg meiðsli þeirra
voru. Báðir bílarair skemmdust
mikið og voru fjarlægðir með
kranabifreið.