Morgunblaðið - 30.01.1988, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 30.01.1988, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B OG LESBÓK 24. tbl. 76. árg. LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 1988 Prentsmiðja Morgnnblaðsins ETA vill ræða við ríkisstjórn Spánar: Stjómvöld vilja fyrst vopnahlé Madríd. Reuter. Aðskilnaðarsamtök Baska (ETA) buðu í gær fyrir milli- göngu ríkisstjóraar Alsírs 60 daga vopnahlé að þvi tilskildu að spænska ríkisstjórnin gengi til viðræðna að nýju. Viðræður hafa legið niðri siðan 11 manns fórust í sprengjuárás ETA i Saragossa i siðasta mánuði. Stjóravöld sögðu að vopnahlé þyrfti fyrst að komast á áður en rætt yrði við ETA. Javier Solana talsmaður Reuter Nýr prímati Nýr primati, prósami, hefur fundizt á eynni Madagaskar undan vesturströnd Afríku. Til prímata teljast ýms æðri spendýr, meðal annars mað- urinn og apadýr hvers konar. spænsku ríkisstjómarinnar sagði að loknum ríkisstjómarfundi að stjómvöld þyrftu að fullvissa sig um að ETA hefði hætt ofbeldisverk- um áður en viðræður hæfust. Hann sagði að lögregla hefði gert sprengju undir lögreglubifreið óvirka í gær einungis tveimur stundum eftir að tveir flutninga- bílar fundust fullir af sprengjuefni ætluðu til hryðjuverka. Solana sagði að ekki kæmi til mála að stjómin efndi til pólitískra viðræðna við ETA. Felipe Gonzales forsætisráðherra hefur áður sagt að einungis yrði rætt um uppgjöf ETA og sakamppgjöf einstakra hryðjuverkamanna. En í yfirlýsingu ETA sem birt var í gær og er bæði löng og flókin er gert ráð fyrir að viðræður leiði til þess að samtökin fái pólitískum kröfum sínum fram- gengt. Baskneskir stjómmálamenn vom ekki sammála um gildi tilboðs ETA en flestir vom á einu máli um að þótt stjómvöld myndu hafna því opinberlega þá yrðu teknar upp leynilegar viðræður. Aðrir veltu vöngum yfír því að samtökin væm nú í erfíðri aðstöðu vegna herferðar franskrar og spánskrar lögreglu gegn samtökunum á síðasta ári og þess vegna freistuðu þeir þess nú að ná samningum við stjómina. Heimildarmenn innan innanríkis- ráðuneytisins segja að einungis séu eftir 70 liðsmenn í ETA. Stríðið milli Aðskilnaðarsamtaka Baska og ríkisstjómarinnar hefur kostað sex hundmð manns lífíð og væri hvert skref í átt til vopnahlés mikill sigur fyrir ríkisstjóm Gonz- ales. Francois Mitterrand, forseti Frakklands, og Margaret Thatcher á blaðamannafundi eftir fund þeirra í London í gær. Fundur Thatchers ogf Mitterrands: Hernaðartengsl Breta og Frakka verði efld London, Reuter. MARGARET Thatcher, forsætis- ráðherra Bretlands, og Francois Mitterrand, forseti Frakklands, komust á fundi sinum i gær að samkomulagi um að auka sam- starf ríkjann á sviði varnarmála. í þvi felst að sameiginlegum her- æfingum rikjanna fjölgar og að komið verður á kafbátaheim- sóknum milli þeirra. Leiðtogarn- ir komust hins vegar ekki að samkomulagi um viðkvæm deilu- mál varðandi útgjöld Evrópu- bandalagsins til landbúnaðarins. George Younger, vamarmálaráð- herra Bretlands, sagði fréttamönn- um í gær að Thatcher og Mitterrand hefðu ákveðið að kafbátar hvors landsins um sig gætu farið í hafnir hins Iandsins, og væri það liður í því að koma á frekari sáttum milli heija ríkjanna. Hann sagði enn- fremur að haldnar yrðu heræfingar til að athuga hvort mögulegt væri að breskar hersveitir gætu farið um Frakkland ef til ófriðar kæmi til að styrkja breskar hersveitir í Evr- ópu. Thatcher reifaði þessa hugmynd fyrst í viðtali við franska blaðið L’Express, þegar hún hvatti Frakka til að leyfa breskum her- sveitum að nota franskar hafnir á hættutímum. Mitterrand sagði fréttamönnum að viðhorf Breta og Frakka varð- andi landbúnaðarmálin væm enn mjög ólík, og að fundur leiðtoga Evrópubandalagsins, sem haldinn verður í Bmssel 11. til 12. febrúar, yrði mjög erfiður. Á fundinum ætla Þjóðveijar að leggja fram málamiðl- unartillögu um útgjöld til land- búnaðarins, en Thatcher telur að tillagan gangi ekki nógu langt. Tillaga um efnahagsþvinganir gegn íslendingum og Japönum: Ekki gert ráð fyrir refsiaðgerð- um af hálfu Bandaríkjamanna Tillagan borin upp vegna hvalveiða Japana í vísindaskyni SAMKVÆMT tillögu, sem Donald Bonker, þingpnaður Demó- krataflokksins i fulltrúadeild Bandaríkjaþings, hefur lagt fram, er skorað á Bandaríkjastjórn að hvetja aðildarriki Alþjóðahval- veiðiráðsins til að gripa til efnahagsþvingana gegn íslendingum, Japönum og öðram þeim þjóðum sem stunda hvalveiðar. í tillög- unni er hins vegar ekki gert ráð fyrir að Bandarikjamenn gripi til efnahagslegra refsiaðgerða gegn þessum rikjum. Halldór Ásgrimsson sjávarútvegsráðherra segir tillögu Bonkers óvenju skýrt dæmi um að friðunarsamtök og talsmenn þeirra á Banda- rikjaþingi stefni að því að stöðva pllar hvalveiðar um ókomna tíð. Talsmaður Donalds Bonkers, upp vegna hvalveiða Japana í Marie Pampush að nafni, stað- festi í samtali við M.orgunblaðið í gær að ekki væri gert ráð fyrir því að Bandaríkjamenn gripu til efnahagsþvingana gegn íslend- ingum og Japönum af þessum sökum. Sagði hún að tillagan hefði fyrst og fremst verið borin suðurhöfum, sem eru nýhafnar. I samtalinu við hana kom fram að mikil andstaða væri við vísinda- veiðar Japana á Bandaríkjaþingi og kvaðst hún eiga von á því að afgreiðsla málsins gengi fljótt fyr- ir sig. Verða atkvæði um tillöguna að líkindum greidd á svipuðum tíma bæði í fulltrúadeildinni og öldungadeildinni. Tillagan er nú til meðferðar í undimefnd sem heyrir undir utanríkismálanefnd fulltrúadeildarinnar. Donald Bonker hefur setið fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins og hefur hann á undanfomum árum verið ötull talsmaður þess að hval: ir verði friðaðir með öllu. í samtölum Morgunblaðisins við aðstoðarmenn Bonkers kom fram að hann hefur gefíð kost á sér til setu í öldungadeild Bandaríkja- þings og hefur hann þegar hafíð kosningabaráttuna. Halldór Ásgrímsson sjávarút- vegsráðherra sagði að tillagan sýndi greinilega að friðunarsam- tök og talsmenn þeirra stefndu að því að stöðva allar hvalveiðar um ókomna framtíð. Benti Halldór á að kveðið væri á um þetta í fyrsta lið þingsályktunartillögu Bonkers. Halldór heldur til fundar við William Verity, viðskiptaráð- herra Bandaríkjanna, í næstu viku og kvaðst hann ekki eiga von á því að tillaga þingmannsins myndi hafa nokkur áhrif á þær viðræð- * ur. Á hinn bóginn kynni að vera gagnlegt að kynna sér hvort þessi sjónarmið ættu fylgi að fagna á Bandaríkjaþingi. Halldór kvaðst vera tilbúinn að hitta bæði Donald Bonker og alla þá að máli sem væm reiðubúnir til að ræða þessi mál og hlusta á sjónarmið íslendinga. Sjá nánar á bls.29 Nicaragua: Viðræðum frestaðum tværvikur San Jose, Costa Rica, Reuter. FULLTRÚAR skæruliða og stjórnar sandinista í Nicaragua náðu ekki samkomulagi um vopnahlé í átökum stjóraar- hersms og skæruliða á fundum sínum í höfuðborg Costa Rica, en samþykktu að hefja viðræð- ur á ný 10. febrúar næstkom- andi. „Viðræðumar voru mjög jákvæðar og báðum aðilum er annt um að fínna leiðir til vopnahlés í Nic- aragua," sagði Bosco Vivas, biskup, sem reynir að miðla málum í viðræðum samninganefndanna. Var þetta í fyrsta sinn, sem fulltrú- ar stríðandi fylkinga í Nicaragua mætast augliti til auglitis frá því bardagar hófust fyrir sex árum. Vivas sagði að samkomulag hefði náðst um að nýjar viðræður færu fram í Guatemala 10.-12. febrúar næstkomandi. Þá mun Bandaríkjaþing að öllum líkindum hafa tekið afstöðu til beiðni Ron- alds Reagans, forseta, um 36,25 milljóna dollara aðstoð við skæm- liða. Sjá „Friðaráætlunina verður að framkvæma . . .“ á bls. 28.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.