Morgunblaðið - 31.01.1988, Qupperneq 1
96 SIÐUR B
25. tbl. 76. árg.
SUNNUDAGUR 31. JANÚAR 1988
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Frá Hornströndum
Frakkland;
Veður-
blíðan til
vandræða
París. Reuter.
Loðfeldina má finna á kjara-
pollum og fyrir skíðaframleið-
endur er ðll vikan einn svartur
mánudagur. Það er veðrið, sem
veldur þessu, stöðug hlýindi, en
í París hefur meðalhitinn í jan-
úarmánuði verið um 12 gráður á
Celsius. Að réttu lagi ætti hann
að vera fjórar gráður.
í venjulegu árferði snjóar í P@rís
í fjóra daga í janúar en nú hefur
aldrei gránað í rót en rigningin
hefur verið helmingi meiri en til
jafnaðar sl. 30 ár. Þessi mildi vetur
er ekki öllum mikið fagnaðarefni.
Bændur horfa með skelfingu á jörð-
ina grænka og brumin bólgna á
ávaxtatijánum og sjá fyrir sér kuld-
akast og alvarlegan uppskerubrest
á sumri komanda.
Vaxandi ágreiningnr
innan Israelsstj órnar
Tel Aviv, New York, Reuter.
Ágreiningurinn innan ísraelsstjórnar um hugsanlega ráðstefnu
um frið í Miðausturlöndum og viðbrögð við mótmælunum á Vestur-
bakkanum og Gaza-svæðinu fer dagvaxandi. Síðustu daga hafa
frammámenn úr stjórnarflokkunum verið tíðir gestir í Washington
og hefur hver og einn reynt að vinna Bandaríkjastjórn til fylgis við
hugmyndir sínar og síns flokks.
Hugsanleg ráðstefna um frið í
Miðausturlöndum er farin að valda
verulegum klofningi meðal stjóm-
arflokkanna í ísrael, Likud-banda-
lagsins og Verkamannaflokksins,
og hafa þeir sent sína fulltrúa hvem
á fætur öðmm til viðræðna við
stjómina í Washington. Heimkomn-
ir túlka þeir niðurstöðu viðræðn-
anna hver með sínum hætti. Ehud
Olmert, þingmaður Likud-banda-
lagsins, sagði í sjónvarpsviðtaii á
Koivisto fær kjör-
menn frá Holkeri
Helsinki. Frá Lars Lundsten, fréttaritara MorKtmblaðsins f Finnlandi.
FINNAR kjósa nýjan forseta í dag og á morgun, en ef enginn fram-
bjóðenda fær meirihluta velja sérstakir kjörmenn forseta 15. febrúar.
Samkvæmt skoðanakönnun, sem gerð var á föstudag og birt í gær,
nýtur Mauno Koivisto, forseti, 52% fylgis.
Á föstudag lýsti Harri Holkeri,
forsætisráðherra, yfir því að hann
myndi biðja sína kjörmenn að kjósa
þann sem fengi flest atkvæði í kosn-
ingunum ef efna þyrfti til kjör-
mannafundar. Holkeri nýtur 17%
fylgis, samkvæmt könnuninni, og
Paavo Várynen, formaður Mið-
flokksins, 16%.
í gær töldu stjómmálaskýrendur
að yfirlýsing Holkeri gæti haft það
í för með sér að margir gangi til
liðs við Váyrynen og kjósi hann.
Úrslit munu liggja fyrir annaðkvöld.
föstudag, að það væri fullljóst, að j
Bandaríkjastjóm styddi ekki hug-
myndina um friðarráðstefnu en Uri I
Savir, talsmaður Shimons Peres,
utanríkisráðherra úr Verkamanna-
flokknum, sagði sama dag: „Banda-
ríkjastjóm styður friðarráðstefnu,
sem leitt getur til beinna samn-
inga.“
Mubarak Egyptalandsforseti hef-
ur verið á ferð um Vesturlönd og
í fyrradag kynnti hann banda-
rískum stjómvöldum hugmyndir
sínar um fríðarráðstefnu. Leggur
hann einnig til, að Palestínumenn
láti af mótmælum gegn því, að
ákveðið verði hvenær Israelar hverfi
að fullu frá herteknu svæðunum.
George Shultz, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, lýsti því yfir í veislu
til heiðurs Mubarak, að Bandaríkja-
stjóm styddi ráðstefnu, sem leitt
gæti til beinna samningaviðræðna
milli ísraela, Jórdana og Egypta.
Fáum kemur til hugar, að þessar
tillögur verði til að ijúfa vítahring-
inn, sem deilumar í Miðausturlönd-
um eru í, og hugmynd Shamirs um
takmarkaða sjálfstjóm Palestínu-
manna hefur ekki fengið neinar
undirtektir í ísraelska Verkamanna-
flokknum og leiðtogar Palestínu-
manna krefjast óskoraðs sjálfstæð-
is.
Mettilraun
í hnattflugi
Seattle, Reuter
BÚIST var við að í morgun lyki
sérstæðu hnattflugi júmbóþotu
með 100 fyrirmönnum innan-
borðs. Tilgangur ferðarinnar var
að setja nýtt hraðamet í flugi
umhverfis jörðina og safna pen-
ingum til liknarmála.
Þotan er af gerðinni Boeing-747.
Hún lagði af stað frá Seattle í
Bandaríkjunum á föstudagsmorgni
að íslenzkum tíma og var takmark-
ið að ljúka fluginu á innan við 40
klukkustundum. Metið er 45 stund-
ir, 25 mínútur og 22 sekúndur, sett
á smáþotu árið 1985.
Aðeins átti að millilenda tvisvar
til eldsneytistöku, í Aþenu og Tai-
pei. Meðal gestanna em geimfarinn
Neil Armstrong, sem varð fyrstur
til að stíga fæti á tunglið.
Olli eldgos á ísiandi
himgursneyð í Kína?
HUNGURSNEYÐIN mikla í Kina á árunum 207-203 fyrir Krists
burð dró helming kínversku þjóðarinnar til dauða. í frétt vestur-
þýska dagblaðsins Frankfurter Allgemeine segir, að vísindamenn
við Bandarisku geimferðastofnunina, NASA, telji, að eldgos á
íslandi hafi valdið miklum veðrabrigðum í fjarlægum löndum,
uppskerubresti og hungursneyðinni i Kína.
Samkvæmt skoðun vísinda-
mannanna barst gosský frá
íslandi með vestanstrengnum í
háloftúnum og alla leið austur til
Kína. Þar dró mökkurihn svo úr
sólskini að uppskeran brást.
í gömlum kínverskum ritum frá
tímum Han-keisaraættarinnar er
minnst á uppskerubrest, kalt og
rakt veðurfar og hungur meðal
milljóna manna. Hungursneyðin
hófst um það bil 207 árum fyrir
Krist ög náði hámarki tveimur
árum síðar. Þáverandi keisari
leyfði að sögn fjölskyldum að selja
böm sín. Meira að segja bendir
sumt til þess að menn hafi verið
etnir. í þijá mánuði sást ekki
stjömubjartur himinn.
Rannsókn á borkjömum úr
Grænlandsjökli sýnir að mikið eld-
gqs varð í nágrenninu, sennilega
á íslandi, einhvem tíma á ámnum
240-180 fyrir Krist. Ekki er þó
hægt að benda á ákveðna eldstöð
í því sambandi.