Morgunblaðið - 06.02.1988, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 1988
Sínfómutónleikar
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Efnisskrá: Jón Leifs: Landsýn,
forleikur op. 41. Sergej Rakh-
manínov: Rapsódía (Paganini)
op. 43. Johannes Brahms: Sin-
fónía nr. 1 op. 68. Einleikari:
Randall Hodgldnson. Stjórnandi:
George Cleve.
Forleikurinn Landsýn eftir Jón
Leifs ber í sér eigindir. er minna á
harðhenta víkinga, þolna í harðræð-
um hvers konar, manna er lögðu
æru sína að jöfnu við dauðann,
orktu stórbrotin Ijóð og voru sögu-
fróðir menn með afbrigðum. Þessir
ósveigjanlegu menn námu’land þar
sem fegurðin var í einni og sömu
mynd, hijóstrug, hrikaleg, smágerð
og blíðleg, eins og ástin og dauð-
inn, ofín saman í harðrímað,
viðkvæmt ljóð. Þannig yrkir Jón
Leifs.
Það var eins og að vera hrifinn
úr samspili við ógnþrungna náttúr-
una þegar Paganíni-rapsódían eftir
S. Rakhmaninov var leikin og hásk-
inn varð leikur, snjall og glæsilegur
en án þess lífsháska sem horft er
í þegar brimskaflana ber við himin-
inn.
Randall Hodgkinson er snjall
píanóleikari og hljómsveitin undir
stjóm George Cleve lék oft á tíðum
mjög vel. Það verður fróðlegt að
heyra þennan unga píanóleikara
leika einan í Listasafni íslands, þó
það hafí ekki farið leynt í konsertin-
um að hann kann sig hið besta.
Randall Hodgkinson
George Cleve hefur áður starfað
með hljómsveitinni og hann fær
spilarana, nú sem áður, til að taka
á honum stóra sínum, svo sem vel
mátti heyra í píanókonsertinum og
þá ekki síður í þeirri fyrstu eftir
Brahms. Hraðinn var stundum ef
til vill einum of mikill en samleikur
sveitarinnar var víða mjög góður
og þær einleiksstófur, sem sumar
hveijar eru með viðkvæmustu tón-
hendingu verksins, voru fallega
mótaðar. Vonandi að George Cleve
verði ráðinn til frekari starfa við
hljómsveitina, því þar fer sannar-
lega góður fagmaður.
Félag járniðnaðarmanna:
Listí stjórnar sjálfkjörinn
RUNNINN er út framboðsfrestur
varðandi skipan stjómar og trún-
aðarmannaráðs Félags jámiðnað-
armanna næsta starfsár. Aðeins
einn listi barst, listi stjómar og
trúnaðarmannaráðs, og er hann
því sjálfkjörinn. Aðalfundur fé-
lagsins verður haldinn síðar i
þessum mánuði eins og lög félags-
ins mæla fyrir um.
Stjóm Félags jámiðnaðarmanna
er þannig skipuð. Guðjón Jónsson,
formaður, Öm Friðriksson, vara-
formaður, Kristinn Karlsson, ritari,
Óli Stefáns Runólfsson, vararitari,
Guðmundur S. M. Jónasson, gjald-
keri, Magnús Jónasson og Vignir
Eyþórsson, meðstjómendur.
Trúnaðarmannaráð er skipað eft-
irtöldum fjórtán mönnum: Jóhannes
Halldórsson, Guðmundur Magnús-
son, Jóhannes Birgisson, Birgir
Hjaltason, Lárus Jónatansson, Gylfí
Ingvarsson, Gunnar Ólafsson, Har-
aldur G. Samúelsson, Helgi Am-
laugsson, Rögnvaldur J. Axelsson,
Tage Olesen, Valgarður Friðjónsson,
Hallbjöm Ágústsson og Óskar Ár-
mannsson.
Eftirfarandi sjö menn em til vara
í trúnaðarmannaráði: Jón Sigurðs-
son, Halldór Lúðvíksson, Olgeir
Kristjánsson, Bragi Guðnason,
Gunnar Þorleifsson, Einar Brynj-
ólfsson og Tryggvi Benediktsson.
SIMAR 21150-21370
Til sýnis og sölu eru að koma m.a.:
SOLUSTJ LARUS Þ VAIDIMARS
LOGM JOH ÞOROARSON HOl
Ágæt íbúð við Furugerði
5 herb. á 1. hæð um 100 fm. 4 svefnherb. m. innb. skápum. Gott baö
með þvaðstöðu. Sólsvalir. Í kj. m.a. geymsla og þvhús ágæt sameign.
Úrvalsstaður með útsýni. Ákv. sala.
Úrvalsíb. við Boðagranda
3ja herb. á 1. hæð, 76,5 fm nettó. Sólsvalir. Vönduð innr. Ágæt sam-
eign. Geymsla og vélaþvhús í kj. Ákv. sala.
Sérhæð við Hólmgarð
3ja herb. neðri hæð, 80,5 fm nettó i tvíbhúsi. Sér inng. Sér hiti. Nýtt
eldhús. Nýtt bað. Langtímalán um kr. 750 þús. fylgja. Ákv. sala.
Með frábæru útsýni við Æsufell
2ja herb. íb., 55,3 fm nettó á 7. hæð í lyftuh. Mikil og góð sameign.
Laus 1. júní nk. Frábært útsýni yfir borgina og nágr.
í gamla, góða Vesturbænum
3ja herb. íb. 79,9 fm á 3. hæð i þribhúsi viö Öldugötu. Nýtt eldhús.
Nýtt bað. Nýir gluggar. Nýtt þak. Rúmg. risherb. m. kvisti fylgir. Skuld-
laus. Eignin er öll sem ný. Laus strax. Einkasala.
Hagkæm skipti
Til kaups óskast 4ra herb. hæð með bílsk., helst i Hliöum eða nágr.
Skipti mögul. á góðu steinh. á úrvalsstað i Garðabæ með 4ra-5 herb.
ib. auk kj. og bílsk. sem nú er lítil sérib.
Stórt og glæsil. endaraðhús
i smíðum á útsýnisst. rótt við Gullinbrú. Teikn. með nánari uppl. fyrir-
liggjandi á skrifstofunni.
Opið í dag,
laugardag,
frákl. 11-16
ALMENNA
FASTEIGNASALAM
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
Umsjónarmaður Gísli Jónsson 423. þáttur
Eins og sagt var í næstsíðasta
þætti, hefur umsjónarmaður
ekki fíindið mjög að málfari fjöl-
miðla undanfarið. Hann er
þeirrar trúar að betra sé að gera
slíkt með nokkrum hvfldum. Hól
fyrir það, sem vel er gert, má
þá líka oft fylgja, því að sífelld-
ar aðfínnslur verða mönnum
ekki til uppörvunar.
Vegna þess, sem síðar kemur
fram í þættinum, þykir umsjón-
armanni rétt að nefna:
1) Hann sér öll dagblöðin nær
daglega, en les ekki nema lítið
brot af þeim, eins og nærri má
geta.
2) Hann hlustar oft á fréttir
á Rás eitt, sjaldan á Rás tvö.
3) Hann hlustar sárasjaldan
á aðrar útvarpsstöðvar.
4) Hann horfír og hlustar að
staðaldri á fréttir bæði í Sjón-
varpinu og á Stöð tvö.
5) Hann notar ógjama orðið
ljósvakamiðíU um útvarp og
sjónvarp. Honum fínnst það
heldur tilgerðarlegt og há-
stemmt. Hversdagslega nefnir
hann þessi fyrirbæri vörpin,
rétt eins og hann segir blöðin.
6) Þegar hann vitnar í mál-
villur í blöðum og vörpum,
skirrist hann við að nefna nöfn
og fer þar að gamalli ráðspeki.
★
Margir fréttamenn í útvarpi
og sjónvarpi tala gott mál, að
mati umsjónarmanns. Á það
bæði við um framburð og orða-
val. Vera má að vísu að þeir
ráði ekki alltaf orðavali frétt-
anna sem þeir segja. Hinir bestu
þeirra hafa ekki farið með nein-
ar málvillur, svo að hann hafí
heyrt. Aftur er skirrst við að
nefna nöfn, svo að hinir góð-
mæltu mega gjalda fyrir glap-
yrðingana, þegar talað er um
alla í hóp.
Ríkisútvarpið hefur sett sér
hátt takmark um íslenskt mál,
og er það allt skilmerkilega tí-
undað fyrr í þessum þáttum.
Mikið hefur undanfarið verið
rætt um nauðsyn þess að vemda
mál okkar og þjóðemi, og vafa-
laust vilja það flestir. Þá hefur
einn málhagasti íslendingur,
sem nú er uppi, Helgi Hálf-
danarson, haldið uppi sleitulaus-
um áróðri vegna sóma
móðurmáls síns. Má ég nota hér
tækifærið og biðja kunningja
hans og fermingarbróður, Hrólf
Sveinsson, að leggja honum
meira lið. Hann er ekki síður
málsnjall, og ég þykist vita að
skammt sé á milli þeirra að öðm
leyti. Það munar um mannsliðið,
drengir!
En þótt svo sé, sem nú er
lýst, hef ég ekki í annan tíma
staðið oftar upp úr stólnum
mínum til að skrifa hjá mér
málvillur úr vörpunum en verið
hefur núna í janúar, á því herr-
ans ári 1988. Fara hér á eftir
fáein dæmi af mörgum úr ann-
arri hvorri sjónvarpsstöðinni eða
ríkisútvarpinu:
1) Menn fengu styrk ... „til
gerð kvikmyndahandrits". Vit-
leysan er hér auðkennd í letri,
og fyrr má nú vera. Oft hefur
ranglega verið með eignarfallið
farið, en að endingu þess sé
sleppt í svona einföldu sambandi
er meira en mig. hefði órað fyr-
ir, og er þetta því miður ekki
einsdæmi á síðustu og verstu
tímum. Þó sjá þeir, sem horfa á
Stöð tvö, daglega fyrir sér hið
fagra og svipmikla eignarfall
stöðvar.
2) „Hann núði honum því um
nasir." Þetta er eins og bam-
ungi sé að tala. Hvenær skyldum
við fá: Hann róði á sjó og snúði
á hina, meðan grasið gróði í
landi?
3) Verið er að lýsa málverki
eða einhveiju þvflíku, og frétta-
maðurinn endar málsgreinina
með þessari reisn: „... allavega
ekki útlitslega séð.“ Ég veit að
menn sjá vel eða illa, en hvemig
sjá þeir „útlitslega"?
4) „Þeir munu þá væntanlega
hellast úr lestinni." Reynið að
sjá þessa mynd fyrir ykkur, þeg-
ar fréttamaðurinn fer að „hella“
úr lestinni. Fyrir kom áður fyrr,
og gerist kannski enn, að hestar
urðu svo haltir, að þeir gátu
ekki fylgt lestinni. Þá heltust
þeir úr henni, og enginn „hellti"
þeim eitt eða neitt. En hvemig
væri að málhaltir fréttamenn
heltust úr lestinni, eða á
kannski að „hella“ þeim á ein-
hvem afvikinn stað?
5) „Ástralir skammast sín
ekki fyrir forfeðra sína.“ Nei,
nei, auðvitað ekki. En hver var
sá ^forfeðri" sem fyrstur kom
til Ástralíu? Eða eiga Ástralir
e.t.v. feður eins og aðrir menn
og þar með forfeður sem þeir
skammast sín ekki fyrir?
★
Kannski halda ungir og mál-
haltir fréttamenn að fara megi
eftir því sem sjálfír ráðherramir
segja, ég veit það ekki. Einn
ráðherra ræddi fyrir skemmstu
við fréttamann Sjónvarpsins og
vildi lækka vexti og gera eitt-
hvað til að bæta svokallað
efnahagsástand með aðgerðum
í svokölluðum peningamálum.
En þetta varð að mati hans og
málfari að gera „bæði skatta-
lega og aðgerðalega". Hvemíg
skyldi skattalegur maður líta út
eða skattalegt athæfí vera?
Hvemig ætli menn geri verkin
sín skattalega? Og hvemig gera
menn eitthvað „aðgerðalega",
eða öllu heldur, hvemig komast
menn hjá því?
★
Skal nú venda kvæði í kross
og gefa Tómasi Sæmundssyni
(1807—1841) orðið í inngangi
Fjölnis 1835:
„Eigi nokkurt rit að vera fag-
urt, verður fyrst og fremst málið
að vera svo hreint og óblandað
eins og orðið getur, bæði að
orðum og orðaskipun, og þar
sem nýjar hugmyndir koma
fram og þörf er á nýjum orðum,
ríður á að þau séu auðskilin og
málinu sem eðlilegust. Það er
ljósara en um þurfi að tala, hvað
það er áríðandi að hafðar séu
gætur á málunum, hvort sem
þau em skrifuð eða töluð. Með
þeim hefur mannlegt fijálsræði
afrekað meira en nokkrum öðr-
um hlut... Engin þjóð verður
fyrri til en hún talar mál út af
fyrir sig, og deyi málin, deyja
líka þjóðimar eða verða að ann-
arri þjóð ...“
Morgunblaðið/Þorkell
Látbragðsleikur Perlunnar
Þessi mynd var tekin í
kennslustund hjá leiklistar-
hópnum Perlunni í Bjarkarási
fyrir skömmu. Að sögn Péturs
Johnsonar blaðafulltrúa Perl-
unnar eru 11 manns í hópnum
á aldrinum 18 ára til 40. Kenn-
ari þeirra er Sigríður Eyþórs-
dóttir og hefur verið
undanfarin sex ár. Hópurinn
hefur leikið víða á ráðstefnum
og farið út á land með sýning-
ar. Á myndinni eru, í efri röð
f.v.: Pétur Johnson, Hildur
Davíðsdóttir, Sigfús Svan-
bergsson, Hildur Oskarsdóttir,
Sigriður Eyþórsdóttir, kennari,
Ingijörg Ámadóttir og Ingveld-
ur Olöf Ragnarsdóttir. í neðri
röð eru Gunnar Gunnbjörnsson,
Guðný Ólafsdóttir, Birgitta
Harðardóttir og Jóhanna Guð-
mundsdóttir.