Morgunblaðið - 06.02.1988, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 1988
Kaþólsk biskupaJkirkja:
Sérstakur sögulegur viðburður
eftir Sigurð H.
Þorsteinsson
Kaþólskur biskupsstóll á íslandi
á upptök sín er Rúðólfur frændi
Játvarðar Englandskonungs og
prestur í Noregi vígist að skipan
Brimarstóls sem trúboðsbiskup til
íslands.
Næstur er ísleifur sonur Gizurar
hvíta svo vígður til landsins á hvíta-
sunnudag, árið 1056. Um'það segir
Bjöm Þorsteinsson, sagnfræðingur,
í hinni nýju íslandssögu sinni: „Með
vígsluför ísleifs var stofnað íslenskt
biskupsdæmi og ísland tekið í hóp
siðmenntaðra þjóða."
En ísleifur var trúboðsbiskup, og
þótt hann sæti á arfleifð sinni í
Skálholti, varð Skálholt ekki bisk-
upssetur í fullum skilningi þess orðs,
fyrr en eftir að Gizur ísleifsson
hafði verið vígður til biskups í
Magdeburg 1082 og gengið frá
samningi við Ólaf digra um að tek-
ið væri í lög að biskupsstóll á íslandi
skuli vera staðsettur í Skálholti.
Aður hafði henn ekki verið bundinn
neinum einum stað. Hann gaf einn-
ig biskupsstólnum Skálholt og þær
jarðir og góss er þar undir heyrði,
það er lönd og lausa aura, eftir því
sem Ari segir frá.
Af þessu sjáum við að þrír fyrstu
kaþólsku biskupamir á íslandi voru
allir vígðir í Mið-Evrópu og ísleifur
vígður til þjónustu á landinu eða
nánar til tekið sem íslandsbiskup.
Biskupar taka því ekki vígslur sem
Skálholtsbiskupar fyrr en eftir stað-
festinguna í sáttmálanum við Ólaf
Noregskonung og gjöf Gizurar.
En jafnframt höfðu biskupar frá
hinum engilsaxneska hluta látið fs-
NY HAGSTÆÐ KJOR...
á nokkrum notuðum úrvals bflum!!!
Við getum nú boðið nokkra notaða úrvals bíla á betra
verði og greiðslukjörum en áður hefur þekkst.
Dæmi: MAZDA 626,4ra dyra, 2 OL GLX, árg. ’85
Verð.......................................kr. 490.000
Útborgun 25%......... ...............kr. 122.500
Eftirstöðvar...............................kr. 367.500
Afsláttur...........................kr. 49.000
Eftirstöðvar sem greiðast með skuldabréfi á allt að
30 mánuðum með jöfnum afborgunum...kr. 318.500
Eftirfarandi bílar fást á sambærilegum kjörum:
•">8ag:'ji m. v-ummev JwjB " ’ ' ~ jSÍSlfe 5 "
! MAZDA 626 GLX árg. ’85 MAZDA 626 GLX árg. ’85
MAZDA 323 station árg. '87
MAZDA 323 árg. ’87 MAZDA 323 árg. '87
|j^g|g
Nissan Cabstar árg. ’83 KIAMASTER9mannaárg.’86 MAZDA 323 árg.’88
| LANCER árg. ’85 Subaru 1800 árg. ’85 MAZDA 323 árg. '82
MHaiÍKÍ^É
MAZDA 929 Station árg. ’82 MAZDA 626 1.6L árg. ’85 Toyota GT Twincam árg. ’84
Fjöldi annarra bíla á staðnum.
Opið laugardaga frá kl. 1—5
BÍLABORG HF.
FOSSHÁLSI 1,S. 68-1299.
land sig máli skipta. Rúðólfur biskup
á Bæ í Borgarfirði þó þeirra merk-
astur. Auk þess að vera frændi
Játvarðar hins góða, var hann Bene-
diktsmunkur og sendur af erkibisk-
upsdæminu í Bremen til að gegna
starfi trúboðsbiskups á íslandi.
Samkvæmt því er hann fyrsti kaþ-
ólskur biskup er situr hér, en ekki
ísleifur, sonur Gizurar hvíta.
Rúðólfur sat í Bæ í Borgarfirði,
1030—1049, eða 19 ár. Var gerður
að ábóta í Abingdon, er heim kom
til Englands á ný. A Bæ stofnaði
hann klaustur og skóla. Ennfremur
hafði írskur biskup verið hér um
miðja öldina. Segir Bjöm Þorsteins-
son í sögu sinni að „á þeim tíma
voru fyrstu íslendingamir nægjan-
lega menntaðir til að móttaka
kirkjulegar vigslur."
Enn þann dag í dag ber íslensk
tunga merki þessa, það er að bókar-
mennt okkar kom fyrst frá Engil-
söxum. Þaðan eru komnir bókstaf-
imir Þ og Ð, sem ennþá skreyta
mál okkar og eru sérkenni í því.
En mikið vatn er til sjávar mnnið
frá því að ísland var fyrst trúboðs-
land og þar sátu trúboðsbiskupar.
Áfram fóm allar biskupsvígslur
fram erlendis og svo urðu siðaskipti
á landinu. Eftir það vom þeir er á
biskupsstólum sátu útnefndir „su-
perintendentar" Danakonungs:
Trúbóð kaþólskra á íslandi hefst
svo að nýju um miðjan 19. öld.
Heyrir það þá undir hinn norræna
biskupsstól í Alta. Varð meðal ann-
ars einn þeirra presta er hér þjónuðu
síðar biskup á þeim stóli, séra Bem-
hard; franskur prestur. Biskup á
þessum stóli var þá Djunkovsky,
rússneskur að ætt. Meðal starfs-
manna hans var íslendingur, Ólafur
Gunnlaugsson að nafni, en bróðir
hans var líklega fyrsti Islendingur-
inn er stundaði prestsnám við skóla
Propaganda Fide í Róm. Getið er
nokkurra íslendinga á erlendri
gmnd er kaþólskir urðu á þessum
tímum, meðal þeirra Gröndal.
Það er svo ekki fyrr en 25. júlí
1929, að biskupsvígsla fer loks fram
í kaþólskri kirkju á íslandi. Er þá
Marteinn Meulenberg vígður til
biskups, en tekur þó ekki við slíku
embætti, heldur embætti „Vicarius
Apostolicus“, eða umboðsmaður yfir
hinu kaþólska kirkjustarfi í landinu.
Fékk hann sem biskupsvígður mað-
ur titilinn sem biskup af Hólum.
Þann titil fékk líka Jóhannes Gunn-
arsson, er gegndi starfi þessu eftir
hann. Er Jóhannes lét af störfum
fyrir aldurssakir og tók upp prests-
þjónustu í Bandaríkjunum, sat hér
framkvæmdastjóri kirkjunnar um
nokkum tíma, en þá tók við emb-
ætti Henrik biskup Frehen. Varð
nú ísland biskupsdæmi á ný, með
biskupsstóli í Landakoti í Reylqavik-
ur.
Það er því ekki fyrr en nú, að
Kristskirkja
Sigurður H. Þorsteinsson.
„Það er því ekkifyrr
en nú, að annar Islands-
biskup eftir siðaskipti
sest á stól, að hann er
vigður á Islandi. Er
þetta önnur biskups-
víg'sla móðurkirkjunn-
ar sem fram fer hér á
landi. Vert er að geta
þess að þarna fer í raun
fram fyrsta kaþólska
biskupsvígslan þar sem
biskup er vígður í full-
stofnuðu biskupsdæmi
yfir Islandi. Því er hér
um sérstakan, söguleg-
an viðburð að ræða.“
annar íslandsbiskup eftir siðaskipti
sest á stól, að hann er vígður á Is-
landi. Er þetta önnur biskupsvígsla
móðurkirkjunnar sem fram fer hér
á landi. Vert er að geta þess að
þama fer í raun fram fyrsta ka-
þólska biskupsvígslan þar sem
biskup er vígður í fullstofnuðu bisk-
upsdæmi yfir íslandi. Því er hér um
sérstakan, sögulegan viðburð að
ræða.
Það er jesúítapresturinn Alfeð
Jolson (dregið af Hjaltason), sem
nú vígist til embættis sem kaþólskur
biskup yfír íslandi, með sæti í
Reykjavík. Hann á hér stóran
frændgarð og hefir rækt frændsem-
ina vel. Hann hefir í mörg undanfar-
in ár komið til íslands og heimsótt
þá meðal annars, nokkur hundmð
frænda sinna vítt og breitt um
landið. Afi hans, Guðmundur Hjalta-
son, fæddur 1872, flutti frá íslandi
til Noregs á sínum tíma. Alfreð er
því íslendingur að uppruna, nánar
tiltekið ættaður úr ísafjarðardjúpi.
Fyrir um það bil 21 ári mun fyrét
hafa verið nefndur sá möguleiki að
hann yrði biskup yfir íslandi.
Þetta biskupsval var tilkynnt í
málgagni Vatikansins, L’osserva
Tore Romano, þann 4. janúar, svo-
hljóðandi: „The Holy Father has
appointed Bishop of Reykjavík (Ice-
land)! Rev. Alfred Jolson, S.J.,
Professor and Dean at Nhelling
College" (U.S.A.).“
Að öðru leyti um ættir og upp-
runa hans vísa ég til greinar hér í
Morgunblaðinu eftir Torfa Ólafsson,
20. janúar og í Dagblaðinu Vísi
þann 17. janúar nú í ár.
Þann 6. febrúar á þessu herrans
ári verður í fyrsta sinn í íslenskri
sögu vígður hér á landi biskup til
starfa sem kaþólskur biskup yfír
íslandi. Vil ég nota þetta tækifæri
til að bjóða hann velkominn til
starfa. Maðurinn er af íslensku —
norsku — írsku bergi brotinn. Hann
er því samætta öllum íslendingum,
sem af landnámsmönnum eru komn-
ir. Hann er auk þessa reglubróðir
Jóns Sveinssonar, meðlimur einnar
best menntuðu reglu kirkjunnar.
Verðugur fulltrúi hinnar alþjóðlegu
og um leið þjóðlegu móðurkirkju í
landi voru, sem á svo ríkan þátt í
menntalífi og bókmenntum lands-
manna að fomu og nýju, að án
hennar er ekki hægt að gera 3ér
grein fyrir þeim að fullu.
A messudegi Jóhannesar Bosco,
Laugarhóli, Strandasýslu, 1988.
Höfundur erfréttaritari Morgun-
blaðsins í Bjamarfirði.