Morgunblaðið - 06.02.1988, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 1988
Verð orlofsferða hef-
ur farið lækkandi
- segir Helgi Magnússon forstjóri Ferðaskrifstofunnar Útsýnar
FERÐASKRIFSTOFAN Útsýn
kynnir sumaráætlun sína á skrif-
stofunni í Austurstræti og á
söluskrifstofum og umboðs-
mönnum um allt land á sunnu-
daginn. Útsýn kynnir meðal
annars nokkra nýja áfangastaði
svo sem Kýpur og Suður-Eng-
land og nú verður hægt að fara
til Florida alit árið.
Að sögn Helga Magnússonar for-
stjóra Ferðaskrifstofunnar Útsýnar
eru nú í boði fjölbreyttari ferðir en
áður. Útsýn heldur tryggð við
gamla áfangastaði, en tekur einnig
upp ýmsar nýjungar. Fastir brott-
farardagar ferðaskrifstofunnar
verða samtals 90 á tímabilinu frá
maí til október og iætur nærri að
brottfarir Útsýnarfarþega verði
annan hvem dag.
Helgi sagði að leitast væri við
að koma til móts við þarfir sem
flestra, en þær væru mjög breyti-
legar. Liður i þessu eru hinir
svokölluðu Útsýnarvegir, en þá
ferðast fólk með bílaleigubílum, en
Útsýn skipuleggur leiðina og bendir
á gististaði og áhugaverða áninga-
staði.
„Útsýn kynnti þessa nýjung í
fyrra og vakti hún mikla athygli,"
sagði Helgi. „Þess vegna ákváðum
við að feta okkur áfram með þenn-
an ferðamáta. Útsýnarvegir eru nú
á milli Portúgals og Spánar og
milli Luxemborgar og Salzborgar.
Sérferðir eru famar tii Mexikó,
Dalias í Texas, ísrael, New York
og Chieago svo eitthvað sé neftit
og að sögn Helga hafa margir sýnt
áhuga á hópferðinni á Ólympíleik-
ana í Seoul í september.
Heimsreisuklúbbur Útsýnar fer
til Suður-Aftíku 4.-26. nóvember
og meðal annars skoðaður Kmger
villidýraþjóðgarðurinn. Ingólfur
Guðbrandsson var á ferð Suður-
Afríku nýlega þar sem hann lagði
gmnnin að þessari ferð. Þá verða
endurteknar heimsreisur til Kína,
Suðurrílga Bandaríkjanna og Mexi-
kó.
Félagar í Frí-klúbbi Útsýnar fá
afslátt á ferðum og gildir hann fyr-
ir þá sem staðfesta pantanir fyrir
1. maí. Þeir fá einnig afslátt á þjón-
ustu og í verslunum gegn framvísun
Frí-klúbbsskírteinis.
Sem dæmi um verð á Útsýnar-
ferðum er hagstæðasta sólarlanda-
ferðin 25 daga ferð til Spánar 10.
apríl. Fyrir fjögurra manna fjöl-
skyldu kostar ferðin 25.900 krónur
á mann.
Þriggja vikna ferð til Portúgal
fyrir íjögurra manna fjölskyldu í
maí kostar frá 33.600 krónum.
Ferð í jafn langan tíma fyrir fjög-
urra manna fjölskyldu til Svarta-
skógar í júní kostar 30.200 krónur
á mann og til Lignano á Ítalíu
38.500 krónur á mann.
„Ferðir hafa hækkað um nálægt
25% á milli ára, eða mun minna en
verðbólgan," sagði Helgi. „Það tek-
ur fólk skemmri tíma að vinna fyrir
þeim nú. Á undanfömum árum
hefur verð orlofsferða farið lækk-
andi og sú þróun heldur áfram.
UTSYN
ffróainfeeke lh*rr. M.
Með miklum viðskiptum geta stórar
ferðaskrifstofur náð niður verði á
flugi og gistingu, en á síðasta ári
flölgaði farþegum í hópferðum Út-
sýnar um 75% frá árinu áður.
Einnig hefur mikil samkeppni í
ferðamannaþjónustu komið við-
skiptavinum til góða.“
I tilefni af útkomu sumaráætlun-
arinnar er eftit til getraunar sem
felst í því að fínna hve margar
myndir eru af Önnu Margréti Jóns-
dóttur fegurðardrottningu í bækl-
ingi Útsýnar. í verðlaun er
sólarlandaferð að verðmæti
150.000 krónur.
Samvinnuferðir-Landsýn 10 ára:
Fjölskylduferðir í sum-
arhús verða sífellt vinsælli
- segirHelgi Jóhannsson forstjóri
SUMARÁÆTLUN ferðaskrifstofunnar Samvinnuferða-Landsýnar
kemur út á sunnudaginn og verður þá opið á skrifstofunni í Austur-
stræti. Annar bæklingur kemur út á vegum Samvinnuferða-Landsýn-
ar en það er Ferðahandbókin Vel á minnst sem viðskiptavinir
ferðaskrifstofunnar fá í hendur er þeir staðfesta ferðapöntun. Hand-
bókin hefur að geyma nákvæmar upplýsingar og ábendingar
varðandi allt sem gera þarf áður en lagt er af stað i ferðalagið.
Helstu sumarieyfísstaðir Sam-
vinnuferða-Landsýnar eru Mallorka
og Ítalía og sumarhúsin S Holiandi,
Engiandi og Danmörku. Helgi Jó-
hannson forstjóri sagði í samtaii við
Morgunblaðiö að vinsældir flöl-
skylduferða í sumarhús væru sífelit
að aukast.
Helstu nýjungamar sem Sam-
vinnuferðir-Landsýn bjóða upp á
eru ferðir tii Cala d’Or á austur-
strönd Mallorka, Benidorm á Spáni
og Torquay á Suður-Englandi. í
feröunum til Englands verður gist
á herragarðinum The Manor House
Hotel sem Magnús Steinþórsson
hefur nýlega keypt.
Áfram verður farið til Rhodos
en ekki í beinu leiguflugi eins og
áður. Þess f stað verður flogið til
Amsterdam. Þar fara farþegar í
breiðþotu frá Air Holland og fljúga
með henni til Rhodos. Á heimleið-
inni er innifalin gisting í eina nótt
á góðu hóteii í Amsterdam. Einnig
gefst farþegum kostur á að dvelja
þar í iengrí tíma.
Mallorka hefur alltaf verið lang
vinsælasti staðurinn hjá viðskipta-
vinum Samvinnuferða-Landsýn. í
fyrra var gert ráð fyrir að þangað
færu um 2800 manns, en vegna
ijölda bókana var bætt við öðrum
eins sætafjölda þangað.
Samvinnuferðir-Landsýn eiga 10
ára afmæli á þessu ári og af því
tilefni verða alls kyns uppákomur.
Helgi nefndi sérstaklega að dregið
verður úr nöfnum þeirra sem bóka
far með ferðaskrifstofunni. Dregið
verður um tíu íjölskylduferðir á 10
krónur. Þann 10. mars verða dreg-
in út 5 bókunamúmer úr ölium
staðfestum bókunum og um önnur
5 þann 10. maí. Þeir heppnu fá
sfðan tilkynningu um verulega
lækkaðan ferðakostnað.
Samvinnuferðir-Landsýn hafa
ákveðið að hrinda af stað þjón-
ustuátaki á árinu og liður í því er
útkoma handbókarinnar Vel á
minnst.
Sem dæmi um verð á algengum
ferðum neftidi Helgi að fímm
manna fjölskylda greiddi 28.000
krónur á mann fyrir þriggja vikna
dvöl á Benidorm á Spáni á dýrasta
tímanum. Þriggja vikna dvöl í sum-
arhúsum f Hollandi kostar frá
27.500 krónum og á Mallorka frá
32.000 krónum.
Taldi Helgi að ferðir hefðu hækk-
að um 19—25% frá því á síðasta
ári, en ef tekið væri mið af verð-
bólgu og launahækkunum væri
hagstæðara að fara í orlofsferðir
nú.
Aldrei áður boðið upp
á svo fjölbreytt úrval
- segir Knútur Óskarsson framkvæmdastjóri Ferðaskrifstofunnar Úrvals
ÚRVALSFERÐIR í allar áttir
heitir ferðabæklingur Úrvals
sem kemur út í dag og af því
tilefni verður skrifstofan opin í
dag og á morgun frá kl. 13—17.
í bæklingnum kynnir Úrval með-
al annars ýmsar nýjungar svo
sem vikulegar hópferðir tíl Kyp- >
ur og dvöl I sumarhúsum -í,-
Danmörku.
Knútur Óskareson framkvæmda-
stjóri Úrvals sagði í samtali við
blaðamann Morgunblaðsins að mik-
il áhersia væri lögð á ferðir til
Mallorka, en í sumar heflast aftur
ferðir þangað eftir tveggja ára hlé.
Úrval býður nú upp á gistingu á
nýjum stöðum á austuretrönd eyjar-
innar, 8a Coma, Cala millor og
Cala Bona.
Einníg verður í fyreta sinn boðið
upp á beint flug til Billund á Jót-
landi og í tengsium við það dvöl f
húsum á sumarleyfísstaðnum Sol
og Strand við Ebeltoft á austur-
strönd Jótlands. Knútur sagði að
þetta væri alveg nýr staður byggð-
ur upp fyrir ferðamenn og þar
væri meðal annare golfvöliur, báta-
bryggja og margt fleira.
Skipulagðar ferðir verða í hverri
viku til Kýpur, en þaðan er stutt
til annarra staða svo sem Grikk-
lands ísraels og Egyptalands.
Meðal vinsælla ferða sem Úrval
hefur boðið upp á eru ferðir til
Daun Eifel og Svartaskógar auk
ferða um Luxemborg. Áfram verður
boðið upp á ferðir til Suður-Eng-
lands og sagði Knútur að þær væru
vinsæiar fjölskylduferðir.
„Úrval hefur aldrei boðið upp á
jafn^ölbreytt úrval af ferðum sem
nú,“ sagði Knútur.„Auk fyrr-
greindra ferða gefst mönnum
kostur á að fara í ýmsar sérferðir
til dæmis til Perú og Barbados og
Indlands og Himalaya. Þá er boðið
upp á skemmtilegar þriggja vikna
ferðir til ítalfu. Flogið er til Rómar
og dvalið þar í flórar nætur. Þaðan
er ekið til Sorrento og dvalið þar,
en þaðan er hægt að fara í ýmsar
ferðir, svo sem til Napólí, Kaprí,
Pompei og að Vesuvíusi."
Úrval er með tvenns konar verð,
en þeir sem greiða ferðir fyrir 18. ■
aprfl fá ferðimar á hagstæðari kjör-
um.
Sem dæmi um algengt verð
nefridi Knútur þriggja vikna ferð
fyrir fjögurra manna fjölskyldu til
Mallorka. Ef farið er f júnf eða júlf
kostar ferðinn 39.750 krónur á
mann á dýrasta staðnum, en 27.100
krónur á ódýrasta staðnum. Ferð
til Kýpur í tvær vikur í júlí eða
ágúst kostar 37.900 krónur ámanr.
ef dvalið er í íbúð með 2 svefn-
herbergjum. Hver meðlimur flög-
urra manna fjölskyldu greiðir
28.350 krónur fyrir þriggja vikna
dvöl í sumarhúsi f Danmörku í byij-
un ágúst.
Knútur sagði að lögð væri
áherela á fólk gæti valið um margs-
konar verð. Aðeins væri boðið upp
á góða gistingu en miklu skipti
hvort húsið væri alveg niðri við
strönd eða einni götu ofar. Taldi
hann að ferðir hefðu hækkað um
25-30% frá því í fyrra.
Morgunblaðiö/BAR
Valdimar Harðarson arkitekt,
formaður dómnefndar, f ræðu-
stól á Kjarvalsstöðum í gær.
Húsgagna- og innrétt-
ingaframleiðendur:
Verðlaun
fyrir hönn-
unhúsgagna
FÉLAG húsgagna- og innrétt-
ingaframleiðenda afhenti f gær
á Kjarvalsstöðum verðlaun í sam-
keppni um hönnun húsgagna.
Þorsteinn Geirharðsson, arki-
tekt, fékk 1. verðlaun, 250
þúsund krónur, fyrír póstkassa.
Tillögur í samkeppninni verða til
sýnis á Kjarvalsstöðum til 14.
febrúar nk. á sýningunni Hús-
gögn og hönnun '88 sem Fríðrík
Sophusson, iðnaðarráðherra,
opnaði formlega við verðlauna-
afhendinguna í gær. Þar eru
sýndar nýjungar í hönnun og
framleiðslu íslenskra húsgagna.
Páimar Kristmundsson, sem að-
stoðaði Þoretein við hönnun póst-
kassans, tók við verðlaununum fyrir
hönd Þoreteins sem stundar fram-
haldsnám í iðnhönnun í Mflanó á
ítalfu. Frumgerð póstkassans, sem
hlaut 1. verðlaun, smfðuðu Hús-
gagnaiðjan á Hvolsvelli og Háborg
hf. önnur til íjórðu verðlaun, 50
þúsund krónur, hlutu Pétur B. Lút-
hereson fyrir stól í húsgagnasam-
stæðu, Gunnlaugur H. Friðbjama-
son fyrir borð og stól og Ingimar
Þór Gunnarsson fyrir stól.
Bakarar vilja
flytja inn egg:
Telja sig geta
sparað milljón
LANDSSAMBAND bakara-
meistara hefur sótt um innflutn-
ingsleyfi til landbúnaðarráðu-
neytisins fyrir innflutningi á allt
að 25 tonnum af eggjum á mán-
uði, í þijá mánuði til reynslu.
í frétt frá bökurum segir að inn-
lend kökuframleiðsla standi í harðri
samkeppni við innfluttar kökur,
sem m.a. innihalda landbúnaðarvör-
ur sem erlendu erlendu framleið-
endumir fá á heimsmarkaðsverði.
Ef innlendu bakaríin eiga að stand-
ast þessa samkeppni, verður að
tryggja þeim hráefni á samkeppnis-
færu verði. Mikiil verðmunur er nú
á eggjaverði hér á landi og á heims-
markaðsverði á eggjum og bendir
margt til þess, að sá mismunur
geti orðið til frambúðar. Má ætla
að greinin geti sparað sem nemur
einni milijón króna á mánuði-með
því að kaupa egg erlendis frá, segir
í fréttinni frá bökurum.
Morgunblaðið reyndi að ná í Jón
Helgason, landbúnaðarráðherra, til
að spyija hann um þetta mál, en
tókst ekki.