Morgunblaðið - 02.03.1988, Side 32

Morgunblaðið - 02.03.1988, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1988 Finnland: Koivisto tekur við embætti á ný Helsinki. Frá Lars Lundsten fréttaritara Morgunbladsins. MAUNO Koivisto tók við emb- ætti Finnlandsforseta til næstu fjögurra ára í gær. Koivisto er níundi maðurinn sem gegnir forsetaembætti í Finnlandi og er þetta annað kjörtímabil hans. Hann er fyrsti forseti úr röðum vinstri manna. Koivisto hefur gegnt embætti forseta frá árinu 1982 er hann var kjörinn í fyrsta sinn. Hefur vald- atíð hans einkennst af efnahags- legri grósku og stöðugleika. Er talið að hann hafí reynt að auka þingræði. Stjómarsamstarf ár- anna 1983-1987 er hið lengsta í fínnskri stjómmálasögu. Koivisto er einnig talinn hafa brotið blað í fínnskri stjómmálasögu er honum tókst að koma á samsteypustjóm miðflokks og jafnaðarmanna. Koivisto sat í tveimur ríkis- stjómum í forsetatíð Kekkonens. Hann tók við forsetaembætti í veikindum Kekkonens árið 1981 en hlaut kosningu í febrúar 1982. Hann nýtur mikilla vinsælda með- al þjóðarinnar og sem merki um það er að þrátt fyrir minnkandi fylgi vinstri flokkanna hefur fylgi við hann ekki minnkað. Lúxemborg: Neyðar- ástand íSenegal í kosningum í Senegal á sunnu- dagvann Abdou Diouf forseti mik- inn sigur. Leið- togar stjórnarand- stöðunnar sem staddir eru í Frakklandi en Senegal var áður frönsk nýlenda segja að ekki sé mark á niðurstöð- unni takandi vegna kosningas- vindls. Forsetinn hefur lýst yf ir neyðarástandi í kjölfar kosning- anna vegna mót- mæla borgaranna. Hér sést ungur maður í höfuð- borginni Dakar forða sér er bryn- varinn bOl nálgast. RöUter Greenpeace hótar Flug- leiðum vegua hvalveiða ZUrich, frá Önnu Bjaraadóttur, fréttaritara Morgunblaðains. Mauno Koivisto HERFERÐ Greenpeace í Lúx- emborg gegn hvalveiðum ís- Kína: Fangelsaður fyrir að fleka 16 konur Peking. Reuter. KÍNVERSKUR verkamaður var í fyrradag dæmdur í íifstíðar- fangelsi fyrir að fleka 16 konur til samræðis við sig, að sögn kfnverskra blaða. Delu, en svo er hinn fertugi verkamaður sagður heita, flaggaði fölsuðum skjölum og þóttist vera sonur háttsetts embættismanns er hann tældi konumar til kynmaka. Delu hóf iðju þessa í maí 1984 og fékk hann vilja sínum fram- gengt ýmist í einum garði borgar- innar, á sjúkrahúsi, í Menningar- höll verkalýðsin8 eða öðrum opin- berum byggingum. Hann var hand- tekinn í júní í fyrra. Að sögn lögreglu hafði Delu auk þessa í frammi ósiðsamlegt athæfi gagnvart fjölda kvenna. Aður en hann var tekinn fastur starfaði Delu í verksmiðju, sem framleiðir tæki til námavinnslu. lendinga hófst um helgina. Sam- tökin hengdu upp fimmtíu aug- lýsingaspjöld með myndum af hval og textanum „The last whale“ eða „Síðasti hvalurinn" á við og dreif um höfuðborgina og héldu blaðamannafund til að vekja athygli á baráttumáli sínu. „Lúxemborgarar borða ekki mikið af íslenskum fiski svo að við munum ekki leggja til að þeir sniðgangi hann,“ sagði Roger Spautz, talsmaður Greenpeace í Lúxemborg, í samtali við Morgunblaðið. „En við munum leggja til að þeir eigi ekki viðskipti við Flugleiðir í mótmælaskyni við hvalveiðar íslendinga nema stjórnvöldum þjóðarinnar snúist hugur og þau banni veiðarnar." Einar Aakrann, framkvæmda- stjóri Flugleiða í Lúxemborg og Viðræður Afgana og Pakistana hefjast í Genf í dag: Látum af völdum ef það stuðlar að friði — segir utanrfldsráðherra Afganistans Genf, Reuter. LEIÐTOGAR stjórnvalda í Afganistan eru reiðubúnir að láta af völdum til að stuðla að friði, að bví er Abdul Wakil utanríkisráðherra Afganistans sagði í gær. Sendiherra Afgan- istans i Moskvu sagði vel koma til greina að leiðtogar stjómar- andstöðunnar fengju Forsætis- ráðherraembættið i nýrri ríkis- stjóra. Óbeinar friðarviðræður milli Kabúl-stjómarinnar og Pakistana hefjast í Genf í dag. Deilur um samsetningu nýrrar ríkisstjómar í Afganistan hafa hindrað að hægt hafi verið að undirrita friðarsamkomulag á veg- um Sameinuðu þjóðanna í stríðinu í Afganistan. Slíkt samkomulag er að sögn Sovétmanna skilyrði fyrir því að þeir fari á brott með 115.000 manna herlið sitt. Skæruliðar sem barist hafa gegn leppstjóm Sovétmanna í Kabúl hafa neitað að taka þátt í stjóm með núverandi leiðtogum. Pakistanar sem styðja ckæruliða segjast ekki reiðubúnir að semja fyrr en búið sé að mynda bráða- birgðastjóm í Kabúl. Sovétmenn og Kabúl-stjómin vilja hins vegar ekki blanda hugsanlegri nýrri stjóm inn í viðræðumar við Pakist- ani og segja slíkt einkamál Afg- ana. Reuter Abdul Wakil, utanríkisráðherra Afganistans aðalræðismaður íslands, sagði að Greenpeace hefði haft samband við sig og sent sér mótmælabréf gegn hvalveiðum. „Ég sendi þessi gögn áfram til sendiherra íslands í Briissel og greindi yfirmönnum mínum hjá Flugleiðum frá mál- inu,“ sagði hann. „Meira get ég ekki gert að svo komnu máli.“ Hann sagðist ekki álíta að mót- mælaaðgerðir Greenpeace myndu hafa áhrif á viðskipti Flugleiða á næstunni en sagðist óttast að þær gætu komið óorði á fyrirtækið og Island þegar til lengdar lætur ef hvalveiðum yrði haldið áfram. Greenpeace hyggst skipta um auglýsingaspjöld eftir nokkra daga og hengja þá upp spjöld með myndum af dauðum hval og text- anum: „Who killed the last whale?“ eða „Hver drap síðasta hvalinn?" ísland verður væntanlega nefnt á nafn á þriðja spjaldinu og Flugleið- um blandað í málið á hinu fjórða. „Við vitum ekki enn hvenær þriðju og fjórðu spjöldin verða sett upp,“ sagði Spautz. „Það fer eftir við- brögðum íslendinga við baráttu okkar og viðræðum okkar við Flugleiðir." Greenpeace vill að Flugleiðir snúist á sveif með sér og hvetji ríkisstjómina til að banna hvalveiðar. Þá yrði fyrirtækið nefnt í jákvæðum skilningi á aug- lýsingaspjöldum samtakanna. Spautz sagði að Greenpeace hygð- ist senda upplýsingar inn á heim- ili fólks ef auglýsingaherferðin bæri engan árangur og hafa sam- band við ferðaskrifstofur til að þrýsta á Flugleiðir. „Við munum benda fólki á að Flugleiðir eru ekki lengur eina fyrirtækið sem býður upp á ódýrar ferðir yfír Norður-Atlantshafíð," sagði hann. Greenpeace í Lúxemborg hefur safíiað rúmlega 5.000 undirskrift- um á móti hvalveiðum síðan í des- ember. „Lúxemborgarar telja að íslendingar eigi að fara eftir al- þjóðasamþykktum eins og aðrar þjóðir," sagði Spautz. „Hvalimir tilheyra hvorki íslendingum né Japönum heldur vistkerfi heimsins alls og þessar tvær þjóðir mega ekki útrýma þeim. ísland hefur notið virðingar og vináttu í Lúx- emborg hingað til en nafn þjóðar- innar getur beðið hnekki ef hún sér ekki að sér í hvalveiðimáium.“ Noregur: Arsenik- leki veldur spjöllum á lífríki Óftló. Reuter. 200.000 lítrar af eitraðri arsen- ikblöndu láku nýlega í Trana- fjörð, sem er á vesturströnd Noregs, og hefur þetta um- hverfisslys þegar valdið mikl- um spjöllum á íiífríki fjarðar- ins, að því ar ialsmaður nor- skra stjómvalda sagði í gær. Gunnar Jordfald, talsmaður mengunarvama norska ríkisins, sagði, að arsenikbiandan, sem lak úr leiðslum koksframleiðslufyrir- tækis, hefði þegar drepið mestallt lífríki Tranafjarðar og vera kynni, að fyrirtækið yrði sótt til saka fyrir vanrækslu. „Þetta er mesti eiturefnaleki, sem ég hef nokkru sinni heyrt um,“ sagði Jordfald. „Við höfum miklar áhyggjur af menguninni þama, enda þótt mönnum stafí engin hætta af henni.“ Talsmenn framleiðslufyrirtæk- isins, Norsk koksverk, viðurkenna, að lekinn hafí komið úr leiðslum á þess vegum. Þeir segja, að óhappið hafí orðið síðastliðinn mánudag, þegar leiðsla gaf sig, en vísa á bug, að um vanrækslu hafí verið að ræða.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.