Morgunblaðið - 04.03.1988, Síða 50

Morgunblaðið - 04.03.1988, Síða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. MARZ 1988 Arósar: Stemmmng á tónleikum Bubba Aðalleikarar myndarinnar „Dragnet", Dan Aykroyd og Tom Hanks. Laugarásbíó sýnir „Dragnet“ „DRAGNET“ er kvikmynd, sem gerð hefur verið eftir samnefnd- um sjónvarpsþáttum og hafa fjöl- margir listamenn tekið þátt i gerð hennar. Handrit myndarinnar gerðu Alan Zweibel, Tom Mankiewicz og Dan Aykroyd. Framleiðendur eru Robert K. Weiss og David Permut. Fram- kvæmdastjóri er Bemie Brillstein og aðalleikendur Dan Aykroyd og Tom Hanks. Myndin fjallar um lögreglumann- inn Joe Friday og ævintýri hans. (Féttatilkynning) Kaupmannahöf n. BUBBI Morthens söng og lék fyrir íslendinga í Danmörku í Arósum fyrir stuttu við frábærar undirtektir mikils fjölmennis. Kom hann beint að heiman í þess- um tilgangi ásamt tæknimanni og umboðsmanni sínum og gerði frægðarför. Stórtónleikar Bubba voru haldnir á vegum Islendingafélagsins í Arós- um í Stakladen í Stúdentahúsinu, en þar rúmast um 300 manns í sæti og var salurinn þéttsetinn. Svona er hann bestur, sögðu marg- ir, einn með gítarinn sinn og gefur sig tónlistinni á vald og heillar áheyrendur. En þeir komu víða að úr Danmörku, flest íslendingar, og voru rútuferðir frá íslensku félög- unum í Horsens, Odense og Ala- borg, en námsmenn og aðrir komu líka frá Kaupmannahöfn og Lundi til að upplifa Bubba. Eins og fram kom í máli söngvar- ans bjó hann í Arósum á unglingsár- unum og var mjög ánægður að fá tækifæri til að skoða gamla skólann sinn og umhverfið sem hann dvaldi þá í og fannst margt hafa breyst. Lítur Bubbi á Árósa sem annan heimabæ sinn, þótt hann hafí ekki komið þangað í 16 ár. Söngskráin var löng og góð og var Bubbi óspart klappaður upp. Mest bar á blús-lögum, m.a. eftir Leadbelly, og svo lék hann eigin lög, líka af nýju plötunni. Eftir rúm- lega tveggja og hálfs tíma konsert endaði hann á laginu, sem Bob Marley gerði frægt á sínum tíma, No woman, no cry. íslendingafélagið í Árósum starf- ar nú af miklum krafti og lét for- maður þess, Jóhann Hlíðar Harðar- son, mjög vel af tónleikunum og komu Bubba, en mikil vinna var auðvitað við undirbúning hjá stjóm- armönnum. Stóðu tónleikamir nær undir sér, þar eð söngvarinn þáði ekki önnur laun en ferðakostnað og uppihald og kvað Jóhann öll samskipti við Bubba hafa verið mjög ánægjuleg. Daginn eftir gekkst félagið fyrir félagsvist og 5. mars nk. er þorra- blót og fjölskylduhátíð í maí. - G.L. Ásg. Bubbi Morthens á tónleikunum í Árósum. MortrunWaðið/Bcr,tur Ber^son Opið í kvöld fyrir 16 ára og eldri Þritugasti hver gestur fær óvæntan glaöning! Aögangseyrir 600 kr. Aldurstakmark 16 (fæddir ’72) - 21 Opiö 23.00-03.00 Muniö nafnskírteinin! LENNON Þú þarft ekki að bíða fram yfir miðnœtti til að komast í góða dansstemmningu, því Skálafell opnar kl. 7 öll kvöld og hljómsveitin KASKÓ byrjar kl. 9 í kvöld. Dansstemmningin er ótrú- leg á Skálafelli. . H0TEL B0RG DANSLAGA- KEPPNIN Fimmta keppnis- kvöld 6. mars. Lögin sem leikin verða: 1. Reykjavíkurvals. Höfundur: Frosti. 2. Afapolki. Höfundur: Venus. 3. Kvöld á Heimaey, vals. Höfundur: ? 4. Huldukonan, polki. Höfundur: Huldusveinn. 5. Ég gleymi þér aldrei. Höfundur: Ökuþór. Afmæliskveðja: Geirmundur Júlíus- son trésmiður Geirmundur Júlíusson trésmiður, Strandgötu 17, Hnífsdal, eráttræð- ur í dag, 4. mars. Geirmundur fædd- ist á Atlastöðum í Fljótavík. Hann var látinn í fóstur til afa síns og ömmu, Geirmundar Guðmundsson- ar og Sigurlínu Friðriksdóttur, eins árs gamall en þau bjuggu í Stakkadal I Aðalvík og síðar að Borg, Skötufirði, en fluttust þaðan til Atlastaða Fljótavík. Árið 1921 andaðist afí hans og fór hann þá ásamt ömmu sinni til foreldra sinna, Júlíusar og Guðrúnar. Geirmundur var aðeins 15 ára gamall þegar hann byijaði að róa með Friðriki Geirmundssyni föður- bróður sínum frá Látrum í Aðalvík, Félagsvist kl. 9.00 Gömlu dansamir kl. 10.30 ★ Hljómsveitin Tíglar ★ Miðasala opnai kl. 8.30 ★ Góð kvöldverðlaun ik Stuð og stemmning á Gúttógleði S.G.T. Templarahöllin Eiriksgötu 5 - Sími 20010 Frití mn fyrir kl. 9 - Adgangseyrir kr. 300 \V J VEITINGAHÚS x Vagnhöfða 11, Reykjavík. Sími 685090. <5 ■ ■ 0 MLU DANSARNIR™." DansstuðiðV \ Hljómsveitin DANSSPORIÐ ásamt eríÁrtúni ^ , söngvurunum Örnu Þorsteins og Grétari en það var ekki róið frá Fljótavík fyrr en á fjórða áratugnum. Árið 1929 fluttist hann til Látra og stundaði þaðan sjóróðra ásamt búskap en fluttist til Atlastaða í Fljótavík 1938, byggði sér þar ný- býli og var það kallað Skjaldabreið. Húsið byggði hann að mestu úr rekavið, sem hann sagaði með að- stoð Þórðar bróður síns. Keypti hann sér litla skektu áður en hann flutti frá Látrum, sem róið var með línu við annan mann á vorin og haustin þegar veður leyfði. Plægður var kúfiskur á vfkinni og notaður til beitu, róið með 20 lóðir út á víkina. Búið var ekki stórt, ein kýr, 20—30 kindur og einn hestur. Árið 1945 flutti Geirmundur aft- ur til Látra í Aðalvík og keypti sér 5 tonna dekkaðan vélbát sem hann reri þaðan. Vorið 1946 flutti hann til Hnífsdals og reri með línu á trill- unni út í Djúpið, en um sumarið varð hann fyrir því óláni að bátur- inn eyðilagðist í sunnanroki við bryggjuna í Hnífsdal. Eftir það stundaði hann sjómennsku á vélbát- um frá Hnífsdal og síðan vinnu í fiski í Hraðfrystihúsinu í Hnífsdal. Trésmiðjuna hf. Hnífsdal stofnaði hann ásamt fleirum 1958, stjómar- formaður frá stofnun og annaðist reksturinn frá 1963 til 1985 en þá tók við rekstri fyrirtækisins Magnús Geir Helgason sonarsonur hans. Geirmundur vinnur þar 5 tíma á dag þegar heilsa leyfir. Formaður Byggingarfélags verkamanna í Hnífsdal í mörg ár og hefur hann byggt þar marga verkamannabú- staði auk annarra bygginga. Hjálp- aði hann öllum bömum sínum að byggja sitt fyrsta íbúðarhús í auka- vinnu. Kona Geirmundar er Guðmunda Regína Sigurðardóttir, dóttir Sig- urðar Þorkelssonar útvegsbónda frá Látrum í Aðalvfk og Ólínu Sigurðar- dóttur. Geirmundur og Guðmunda Regína eiga 7 böm. Þau eru: Hall- dór Geirmundsson f. 29. janúar 1930, bifreiðastjóri á ísafirði, kvæntur Guðnýju Eygló Hermanns- dóttur frá Látrum í Aðalvík. Þau eiga 6 böm og 6 barnaböm. Gunn- ar Geirmundsson f. 15. apríl 1931, húsgagnasmiður í Kópavogi, kvæntur Gunnhildi Magnúsdóttur frá Reykjafirði í ísafjarðardjúpi. Þau eiga 5 böm og 8 barnaböm. Geir Sigurlíni Geirmundsson f. 25. maí 1932, sjómaður í Sandgerði, kvæntur Sigríði Sigfúsdóttur frá Þórshöfn. Þau eiga 4 börn og 8 bamaböm. Helgi Geirmundsson f. 17. nóvember 1934, sjómaður, kvæntur Emu Magnúsdóttur frá Isafírði. Þau eiga 6 böm og 3 barna- böm. Ásthildur Geirmundsdóttir f. 19. júní 1936, húsmóðir í Ólafsvík, gift Kristófer Edilonssyni bifreiða- stjóra í Ólafsvík. Þau eiga 4 börn og 3 bamaböm. Baldur Geirmunds- son f. 15. október 1937, skrifstofu- maður hjá Mjólkursamlagi ísfirð- inga ísafirði, kvæntur Karitas Páls- dóttur frá ísafirði. Þau eiga 4 börn og 3 bamaböm. Baldur átti eina dóttur fyrir hjónaband og á hann þar 2 barnböm. Karl Geirmundsson f. 13. mars 1939 framkvæmdastjóri á ísafirði, kvæntur Rannveigu Hjaltadóttur frá Dalvík, þau eiga 3 böm. Foreldrar Geirmundar eru Júlíus Geirmundsson f. 5. júní 1884, Látranesi, Látrum í Aðalvík, og kona hans Guðrún Jónsdóttir f. 18. júní 1884, Steinstúni í Árnes- hreppi. Þau áttu 12 böm og 2 þeirra eru dáin, Jón Ólafur og Júlíana Guðrún, en hin systkinin eru: Guð- finna Ingibjörg, Geirmundur, Sig- urlína Etísa, Jóhann Hermann, Guð- munda Sigurfljóð, Guðmundur Snorri, Þórður Ingólfur, Júdit Fríða, Betúela Anna og Guðmundur Þór- arinn. H.G.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.