Morgunblaðið - 06.03.1988, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MARZ 1988
Leikstjórinn, Louis Malle. Louis Malle, annar frá vinstri í næstefstu röð, á bekkjarmynd sem tekin var í aprU árið 1944.
Bless krakkar
yfirmanns Gestapó í héraðinu.
Einhver sagði yfirmanninum frá
Bonnet og hann kom borgaralega
klæddur í skólann en með einkennis-
klædda hermenn sér við hlið. Þeir
strunsuðu inn í skólastofu Malles að
framfylgja „skyldum" sínum sem
voru að hafa uppi á gyðingum, sér-
staklega útlendum gyðingum, og fé-
lögum í frönsku andspyrnuhreyfing-
unni. í Petit College d’Avon fundu
þeir þijá gyðingadrengi, Bonnet og
tvo aðra, sem þeir handtóku. Og
þeir handtóku líka föður Jean (Jac-
ques í raunveruleikanum) en loka-
kveðja hans til nemendanna sem
safnað hafði verið saman í skólaport-
inu, er notuð sem heiti á myndina.
„Au Revoir les Enfants" er per-
sónuleg mynd Malles, byggir á
reynslu hans og er bundin einvörð-
ungu við það sem Julien vissi sjálfur
þessa fáu mánuði sem Bonnet var
skólabróðir hans. Hún er augnablik-
slýsing, skyndimyndir ríkulega búnar
. smáatriðum af Julien, Bonnet, föður
Jean og öðrum. En myndin segir
ekkert frá því hvað á undan gekk
og það sem á eftir kom er aðeins
rakið í örstuttum eftirmála. Þeir sem
eiga eftir að sjá myndina eiga líka
eftir að vilja fá að vita nákvæmlega
hver Hans Helmut Michel var. Hvað-
an kom hann og hvemig lenti hann
í skóla Malles? Og hver urðu afdrif
hans og þjáningabræðra hans úr
skólanum eftir að þeir voru teknir
þaðan?
Sjálfur hefur Malle getað aflað sér
upplýsinga um þá, sumra frá öðrum
nemendum Petit College sem reyndu
að fínna út eins mikið og þeir gátu
um hina látnu skólabræður sina.
Hans Helmut Michel var þýskur
gyðingur. Faðir hans var læknir í
Frankfurt sem framdi sjálfsmorð
árið 1933 þegar gyðingaofsóknirnar
voru að hefjast. Móðir Hans flúði til
Louis Malle gerir meistaraverk sitt
byggt á atburðum sem hann upplifði í skóla
þar sem gyðingadrengur var falinn
fyrir nasistum
Rétt nafn drengsins var Hans Helmut Michel. Hann var fæddur í Frankfurt í
Þýskalandi 6. júní árið 1930. Hans litli spilaði á píanó og var greindasti nemandinn
í Petit College d’Avon sem er um 75 kílómetra suður af París. í skólanum
gekk hann undir nafninu Bohnet og þar var hann í felum fyrir nasistum í
gyðingaleit.
Einn góðan veðurdag í janúarmánuði árið 1944 ruddist Gestapo inní skólastofuna
hans og hafði hann á brott með sér og innan nokkurra vikna, eftir eina af
þessum hryllilegu lestarferðum sem áttu sér stað í Evrópu á þessum tíma, var
hann kominn til Auschwitz þar sem hann dó.
Úr myndinni Bless krakkar; Malle hefur í mörg ár reynt að endur-
skapa hina sorglegu atburði í kvikmynd en ekki tekist fyrr en nú.
Raphael Fejtö leikur Bonnet og Gaspard Manesse leikur Julien.
Alveg frá því þetta gerðist
hefur Bonnet lifað sterkt í
minningu skólabræðra sinna
og kannski sérstaklega eins þeirra
sem seinna átti eftir að verða þekkt-
ur franskur kvikmyndaleikstjóri.
Hann heitir Louis Malle og nýjasta
mynd hans, „Au Revoir les Enfants"
(Bless krakkar), er byggð á minning-
unni um gyðingadrenginn. Malle
skrifar sjálfur handrítið að henni,
leikstýrir og framleiðir og þótt hann
hafi áður fengist við hemám nasista
í Frakklandi í myndum sínum
(„Lacombe, Lucien") er Bless krakk-
ar hans persónulegasta mynd til
þessa og sú sem franskir gagnrýn-
endur og aðrir hafa viljað kalla meist-
araverk hans.
Malle hafði velt þessum grimmi-
lega atburði fyrir sér og reynt að
skapa eitthvað úr honum í áratugi
án árangurs. í myndinni, sem hann
loksins gerði og fmmsýnd var í
Frakklandi í fyrra en í Bandaríkjun-
um í febrúar (Regnboginn hefur
tryggt sér sýningarréttinn hér), á
skólastrákurinn Julien Quentin að
vera Malle á unga aldri. Quentin
kemst að uppruna Bonnets og ving-
ast við hann, ekki áreynslulaust, og
verður vitrn að því hinn eftirminni-
lega janúardag þegar Gestapó safnar
skólakrökkunum saman í skólaport-
inu og leiðir Bonnet og nokkra aðra
í burtu.
„Au Revoir les Enfants" er ein af
þessum sjaldgæfu bíómyndum sem
segir dramatískari og kynngimagn-
aðri sögu en nokkur skáldskapur
getur mögulega orðið einmitt vegna
þess, eins og Malle segir í lok mynd-
arinnar, að hún rekur atburði sem
gerðust í raun og veru — atburði
raunar sem varla er á færi ímyndun-
araflsins að upphugsa. Það eru auð-
vitað smáatriði í frásögninni sem eru
skálduð. í einu atriði fara Juliempg
Bonnet á veitingastað með moðúr
Juliens þar sem þau verða vitni að
því þegar franskur hermaður og sam-
verkamaður nasista ræðst á aldraðan
gyðing. Bonnet fór aldrei á veitinga-
stað þennan dag og Malle varð ekki
vitni að árásinni, þótt vinur hans
hafi sagt honum frá sliku atviki sem
gerðist annarstaðar.
Malle tók sér einnig skáldaleyfi
þegar hann bjó til hið „raunverulega"
nafh drengsins sem hann lét vera
Kippelstein. En hann skýrði það
þannig að rétta nafn drengsins,
Michel, hafi verið of franskt til að
nokkum færi að gruna að hann
væri gyðingur vegna þess. í mynd-
inni finnur Julien nafnið Kippelstein
í bók í fataskáp drengsins og þeir
siást út af því þegar hann nefnir það
við hann. I raunveruleikanum kom-
ust eldri nemendur skólans einhvem-
veginn að hinu rétta nafni Bonnets
og þannig barst það til eyma yngri
strákanna. Það var aldrei nein bók
í fataskáp. Og Julien og Bonnet
töluðu heldur aldrei um foreldra
Bonnets — faðirinn er sagður
stríðsfangi en móðirin í felum. Þrátt
fyrir vaxandi vinskap drengjanna
tveggja, sem byggður er á sameigin-
Iegum áhuga á bókum og þeirri stað-
reynd að þeir vom bestir í bekknum,
trúði Bonnet aldrei hinum unga
Malle fyrir því hver hann í rauninni
var.
„Hann var mjög þroskaður dreng-
ur,“ sagði Malle, „sem þegar hafði
séð meira af lífinu en hinn vemdaði
Julien gat vitað um.“ Hinn raun-
verulegi Bonnet talaði sumsé ennþá
minna um sjálfan sig en hinn þögli
og leyndardómsfulli Bonnet I mynd-
inni.
Hin harmsögulega mynd Malles
er þó eins og heimspekingamir
mundu segja, sönn í aðalatriðum.
„Ég endurskapaði fortíðina í leit að
nagandi, ótimabundnum sannleika,"
sagði hann. Hún er fyrst og fremst
saga Malles sjálfs og segir til að
mynda hvers vegna hann af öllum
leikstjórum Frakklands — kannski
að Marcel Ophuls undanskildum —
hefúr fjallað svo mikið um líf Frakka
á hernámsárunum, efni sem Frakkar
hafa rejmt að forðast að fialla um.
Mikilvægustu atburðir myndarinnar
áttu sér stað. Hin alltof stutta, vand-
ræðalega, þögla og erfíða en vax-
andi vinátta drengjanna tveggja;
uppgötvun Juliens á illsku mannanna
(sem Malle sagði að hefði verið enda-
lok sinnar eigin bemsku); og at-
burðir dagsins 15. janúar þegar
Bonnet var leiddur f burtu í fylgd
Parísar með bömin sín tvö en Hans
átti systur sem heitir Laure og er
sú eina í Qölskyldunni sem lifði af
stríðið. Hún býr nú í Frakklandi.
Einn af svörtustu dögunum í sögu
Frakklands á 20. öldinni er 16. júlí
1942 þegar um 16.000 gyðingum,
þ.m.t. 4.000 foreldralausum bömum,
var smalað saman af frönsku lögregl-
unni í París. Aðgerðin var upphaf
fjöldaflutninga gyðinga frá FVakk-
landi til útrýmingarbúða í Póllandi
og franska lögreglan, sem vildi sýna
hinum nýju herrnrn sínum að hún
gæti axlað meiri ábyrgð í Frakk-
landi, framkvæmdi hana. Michel-
flölskyldan var í hópi þessara gyð-
inga og móðir Hans var flutt í dauða-
búðimar en einhver vörðurinn vor-
kenndi Hans, opnaði fyrir hann dym-
ar og henti honum út á götu, eftir
því sem Guy de Vogué, fyrrum nem-
andi við Petit College sem kannað
hefur afdrif allra drengjanna þriggja
er teknir voru úr skólanum, segir.
Strákurinn, sem talaði lýtalausa
frönsku, komst til kirkju heilags
Sulpice á vinstri bakkanum í París.
Þar sagði hann föður Devaux hver
hann var og faðirinn kom honum
fyrir í klaustri sem hét Notre-Dame
de Zion, miðstöð flóttahjálpar fyrir
gyðingaböm. Þaðan var hann sendur
í skóla Malles ásamt tveimur öðrum
gyðingastrákum og var í honum þar
til Gestapó sótti þá alla.
Vogué, sem lét Malle í té allar þær
upplýsingar sem hann hafði aflað,
auðnaðist einnig að komast að því
hver afdrif drengjanna urðu eftir að
þeir vom teknir úr skólanum. Eins