Morgunblaðið - 06.03.1988, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MARZ 1988
55
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Notendaráðgjafi
Laust er til umsóknar starf notendaráðgjafa
á notendaráðgjafasviði SKÝRR.
Notendaráðgjöfin beinist fyrst og fremst að
vinnslu upplýsinga í gagnasöfnum og tölvu-
neti SKÝRR. Þar með er talin notkun boð-
og skjalaveitu, úrvinnsla úr gagnasöfnum,
flutningur gagna milli tölva SKÝRR og ein-
menningstölva og aðlögun gagna að vinnslu
þar.
Veigamikill þáttur í starfi notendaráðgjafa
er að kynna og kenna notendum að beita
fyrirspurnarmálum á gagnasöfn, sem þeir
eiga eða hafa heimild til að nota. Þeir stuðla
að því, að notandinn vinni á eigin spýtur úr
og með upplýsingar sínar án milligöngu sér-
fræðinga þegar það er hagkvæmt.
Starfið felst meðal annars í:
★ Að aðstoða viðskiptavini við að nota þann
hugbúnað sem SKÝRR bjóða.
★ Hafa frumkvæði í því að bjóða hugbúnað-
inn fram til nýrra notenda.
★ Aðstoða viðskiptavini við úrvinnslu úr
gagnasöfnum.
★ Að kenna og kynna undirstöðuatriði
tölvuvinnslu og þess hugbúnaðar. sem
boðinn er.
SKÝRR leita að starfsmanni sem:
★ Kemur vel fyrir og á gott með mannleg
samskipti.
★ Sýnir frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
★ Hefur háskólamenntun eða menntun og
starfsreynslu, sem meta má til jafns við
háskólamenntun í þessu starfi.
★ Hefur reynslu og þekkingu á tölvum.
Nánari upplýsingar veita Lilja Ólafsdóttir,
framkvæmdastjóri notendaráðgjafarsviðs og
Jón Sigurgeirsson, yfirmaður notendaráð-
gjafar.
Umsóknareyðublöð eru afhent í afgreiðslu
og hjá starfsmannastjóra.
Umsóknir ásamt afriti prófskírteina skulu
hafa borist SKÝRR fyrir 14. mars 1988.
Skýrsluvélar ríkisins
og Reykjavíkurborgar,
Háaleitisbraut 9.
Framkvæmdastjóri
óskast
Framkvæmdastjóri óskast fyrir nýtt fram-
leiðslufyrirtæki í Stór-Reykjavíkursvæðinu.
Starfið: Framkvæmdastjórinn mun frá byrjun
vera ábyrgur fyrir rekstri og uppbyggingu
fyrirtækisins. Hann verður að hafa frum-
kvæði í vöruþróun og markaðsmálum. Þar
sem fyrirtækið er nýtt mun framkvæmda-
stjórinn móta stefnu þess, skipulagningu og
gera áætlanir um framtíðarfyrirkomulag.
Umsækjandinn: Þess er vænst, að umsækj-
endur hafi reynnslu í rekstri fyrirtækja og
menntun á sviði viðskipta- eða tæknimála,
eða aðra sambærilega reynslu og menntun.
Leitað er að manni með góða stjórnunarhæfi-
leika og áhuga á vöruþróun og markaðsmálum.
Fyrirtækið: Fyrirtækið er nýstofnað og mun
sérhæfa sig íframleiðslu fullbúinna matvæla.
Reiknað er með að leitað verði eftir aðstoð
erlendis frá í vöruþróun. Áætluð velta á fyrsta
starfsári er um kr. 90 milljónir.
Skriflegar umsóknir, sem tilgreini aldur,
menntun og starfsreynslu, leggist inn á aug-
lýsingadeild Mbl. merktar: „F - 6636“ fyrir
15. mars nk.
Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál.
Umboðsmenn
óskast
Við erum að byggja upp umboðsmannakerfi
í kringum landið og viljum því gjarnan kom-
ast í samband við einstaklinga eða fyrirtæki
staðsett á eftirtölum landsvæðum:
1. Akranes - Borgarnes - Snæfellsnes.
2. Vestfirðir.
3. Norð-Austurland.
4. Austfirðir til og með Höfn.
5. Suðurnes.
Hér er um að ræða sölu og dreifingu á eftirt-
öldum umboðum, sem flokkast undir ræst-
ingar og/eða rekstarvörur fyrirtækja:
1. ARROW: Ýmis sérhæfð hreinsiefni og
efnablöndur.
2. DARENAS: Efni, tæki og áhöld til hrein-
gerninga og þrifa.
3. HOLMEN: Katrin vc-pappír og pappírs-
handþurrkur í misrriunandi
stærðum og gerðum, ásamt
statífum fyrir þær.
4. VERIPLAST: Allar gerðir af einnota
plast-, pappírsmálum og
bökkum, t.d. kaffimál.
5. PAPER MATE: Allar gerðir af pennum.
Nánari upplýsingar veitir Sveinbjörn Péturs-
son í síma 681555.
Globusp
Lágmúla 5 128 Reykjavík
R^ÐGJÖF OG RftÐNINGAR
Viðskiptafræðingur
Framleiðslufyrirtæki á Akureyri óskar að ráða
viðskiptafræðing eða starfsmann með hlið-
stæða menntun.
Starfssvið: Lánamál, markaðsmál, verðút-
reikningar, hráefniskaup, kjarasamningar og
áætlanagerð. Æskilegt er að umsækjandi
•hafi reynslu af ofangreindum þáttum og
nauðsynlegt er að hann hafi vald á ensku
og einu Norðurlandamáli. Hann þarf að geta
hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til 15. mars nk.
Nánari upplýsingar á skrifstofunni á Brekku-
götu 1, Ákureyri, sími 96-27577 milli kl.
13.00 og 17.00.
Stefanía Arnórsdóttir,
Valgerður Magnúsdóttir.
Starfskraftur óskast
nú þegar á skrifstofu í Reykjavík hálfan dag-
inn eftir hádegi.
Upplýsingar um aldur, menntun og fyrri störf
sendist auglýsingadeild Mbl. merktar:
„K - 6637“.
Trésmiðir
Viljum ráða trésmiði til starfa á Reykjavíkur-
svæðinu.
Upplýsingar í síma 622700.
ístak hf.,
Skúlatúni 4.
J_______________________________
Fasteignasala
Sölumaður óskast.
Upplýsingar hjá fasteignasölunni Hús og
eignir, Bankastræti 6.
Ritari
Útflutningsfyrirtæki í miðborginni óskar að
ráða sem fyrst ritara til almennra skrifstofu-
starfa. Framtíðarstarf. Góð laun í boði fyrir
hæfan starfskraft. Umsækjandi þarf að hafa
lokið prófi frá Verzlunarskóla, Samvinnu-
skóla, viðskiptasviði í Fjölbrautaskóla eða
hafa sambærilega menntun.
Handskrifaðar umsóknir með upplýsingum
um aldur, menntun og fyrri störf sendist
auglýsingadeild Mbl. merktar: „Framtíð -
4493“.
Höfn Hornafirði
Forstöðumaður leikskóla - fóstrur
Hafnarhreppur auglýsir eftir forstöðumanni
leikskóla og fóstrum til starfa. Æskilegt er
að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst.
Upplýsingar um launakjör, yfirvinnu og hlunn-
indi er störfunum fylgja gefur skrifstofa Hafn-
arhrepps, Hafnarbraut 27, Höfn Hornafirði,
sími 97-81222.
Höfn 4. mars 1988,
Sveitastjórinn Höfn Hornafirði.
Sunnuhlíð
Kópavogsbraut 1 Sími 45550
Afleysingar
Starfsmaður óskast til að leysa af dag og
dag á barnaheimili.
Upplýsingar hjá Sigurlínu í síma 45550 virka
daga.
Tæknifræðingur
- mælingamaður
Eftirfarandi stöður á tæknideild Kópavogs-
kaupstaðar eru lausar til umsóknar.
A. Tæknifræðingur.
B. Mælingamaður.
Umsóknarfrestur er til 20. mars nk.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
fást á skrifstofu bæjarverkfræðings Kópa-
vogs, Fannborg 2.
Bæjarverkfræðingur.
Starfsfólk óskast
Óskum eftir fólki nú þegar til flökunar og
roðflettingar á síld í Kópavogi, Vesturbæ.
Góð aðstaða í nýju húsnæði.
Upplýsingar í síma 41455.
BORGARSPÍTALINN
Meinatæknar
Meinatækna vantar í sumarafleysingar á
Rannsóknadeild.
Upplýsingar gefur yfirmeinatæknir í síma
696405.