Morgunblaðið - 10.03.1988, Side 1

Morgunblaðið - 10.03.1988, Side 1
STOFNAÐ 1913 58. tbl. 76. árg. FIMMTUDAGUR 10. MARZ 1988 Prentsmiðja Morgunblaðsins Þjóðernisróstur í Sovétríkjunum: Avinningi bylting- arstarfsins ógnað - segirMíkhaíl Gorbatsjov Moskvu, Reuter. MIKHAÍL S. Gorbatsjov Sovétleið- togi sagði á fundi með forystu- mönnum sovéska kommúnista- flokksins í gærkvöldi að þjóðernis- ólga kynni að gera ávinning af 70 ára byltingarstarfi að engu. Hafði breska útvarpið BBC þetta eftir sovéska sjónvarpinu. Gorbatsjov sagði á fundinum að ítarlegri rannsókn á tildrögum átak- anna í Azerbajdzhan um síðustu mánaðamót hefði verið hrundið af stað. Átökin blossuðu upp í borginni Súmgajt vegna deilu Armena og Azerbajdzhana um yfirráð yfir land- búnaðarhéraðinu Nagorno-Karabakh í Azerbajdzhan, sem á árum áður heyrði til Armeníu. Áður höfðu hundruð þúsunda manna tekið þátt í mótmælum í Jerevan, höfuðborg Armeníu. í ávarpi sínu i gær hvatti Gor- batsjov til þess að gripið yrði til að- gerða til að treysta alþjóðahyggju verkamanna í sovétlýðveldunum tveimur. Túlka fréttaskýrendur orð hans á þann veg að með þeim hafi hann verið að vara Armena við frek- Ovissa um TELE-X Osló, frá Steingrimi Sigurgeirssyni, blaða- manni Morgunblaðsins. MIKIL óvissa ríkir nú um framtíð norræna sjónvarpssamstarfsins TELE-X. í gær kom upp ágrein- ingur milli Svia og Finna um kostnaðarhliðina en sænska ríkis- stjórnin er mótfallin því að auglýs- ingar verði notaðar til að fjár- magna útsendingar um gervi- hnöttinn. Sænskur embættismaður beindi því í gær til Finna að þeir tækju skýra afstöðu til þess hvort þeir ættu að taka þátt í þessu samstarfi ella myndu Svíar ekki halda starfinu áfram. Finnar neituðu hins vegar að ganga lengra í þessu máli áður en upplýsingar lægju fyrir um kostnað- arhliðina. Sjá einnig fréttir af þingi Norður- landaráðs á miðopnu blaðsins. ara andófi. Þá sagði Gorbatsjov að nauðsyn bæri til að leysa „félagslega örðugleika" í samskiptum íbúa Az- erbajdzhan og Armeníu á grundvelli „kenninga lenínismans um alþjóða- hyggju" verkalýðsins. Þóttu þessi orð gefa til kynna að ekki yrði gengið að kröfum Armena um yfirráð yfir héraðinu umdeilda þó svo réttlætan- legt væri að virða og verja menningu þeirra. Sovétríkin: Misheppn- að flugrán Moskvu, Reuter. VOPNAÐIR menn reyndu að ræna sovéskri farþegaþotu, sem var á leið til Leníngrad á þriðjudag. Ránið mistókst en mennimir hugð- ust neyða flugstjórann til að fljúga flugvélinni frá Sovétríkjunum. So- véska fréttastofan Tass skýrði frá þessu í gær og sagði flugfreyju og þrjá farþega hafa beðið bana auk þess sem „flestir" ræningjanna hefðu verið drepnir. Eftir þvi sem næst verður komist var farþegaþotan, sem er af gerðinni Tupolev-154, á leið til Leníngrad frá borginni írkútsk í Síberíu með mijli- lendingu í Kúrgan-borg, austan Úr- al-fjalla. Andstæðingar Noriega boða frekari mótmæli Reuter Andstæðingar Manuels Antonio Noriega, yfírmanns herafla Panama og sjálfskipaðs stjómanda landsins, hétu í gær frekari baráttu fyrir því að koma honum frá völdum. Á þriðjudagskvöld bmtust út götubar- dagar í fjármálahverfi Panamaborgar er andstæð- ingum Noriega lenti saman við sveitir öryggislög- reglu og sýnir myndin hvar einn hatursmanna her- stjórans giýtir sorptunnu að þeim. 22 stjómarand- stæðingar vora handteknir. Bandaríkjamenn hafa gripið til efnahagslegra refsiaðgerða í því skyni að bola Noriega frá völdum en hann hefur verið ákærð- ur fyrir skipulega dreifingu á eiturlyfjum í Banda- ríkjunum. Utanríkisráðherra Panama hefur fullyrt að Bandaríkjamenn hyggist gera innrás í landið en talsmenn Bandaríkjastjómar sögðu í gær að ásakan- ir þessar væra fráleitar. Viðræður um brottflutning sovéska innrásarliðsins frá Afganistan Sovétmenn munu ekki hætta hemaðaraðstoð Myndun nýrrar stjórnar ekki til umræðu, segir fulltrúi afgönsku leppstj órnarinnar Genf, Reuter. ABDUL Wakil, utanríkisráð- herra Afganistans, skýrði frá því í gær að stjórn sín gæti ekki fallist á þá kröfu stjórnvalda í Bandarikjunum að Sovétmenn hættu hernaðarlegum stuðningi við Afgana eftir að sovéska inn- rásarliðið hefði verið kallað burt Bush fagn- arsigri Á meðfylgjandi mynd má sjá hvar George Bush, vara- forseti Bandarikjanna, fagnar sigri í heimaborg sinni, Houston í Texas, en hann vann yfirburðasigur í forkosningum repúblikana, sem haldnar voru i 17 ríkjum á þriðjudag. Hefur hann nú tryggt sér 2/s þeirra landsfundarfulltrúa sem hann þarf til útnefn- ingar, en sjálfur segir Bush hana jafngilda þvi að fá forsetaembættið í hendur. Sjá nánari umfjöllun á síðu 30. Reuter úr landinu. Þá gerði Wakil einn- ig heyrinkunnugt að krafa Pak- istana og afganskra frelsis- sveita þess efnis, að ný sijórn taki við völdum af sovésku lepp- stjórninni i Afganistan samhliða brottflutningi sovéska herliðs- ins, væri með öllu óaðgengileg. Viðræður fulltrúa afgönsku leppstjórnarinnar og pakistan- skra stjórnvalda um brottflutn- ing sovéska herliðsins frá Afg- anistan fara nú fram á vegum Sameinuðu þjóðanna í Genf og virðist svo sem þau sjónarmið sem fram hafa komið í þessari lotu viðræðnanna séu ósættan- leg. Míkhaíl S. Gorbatsjov Sovétleið- togi hefur sagt að brottflutningur herliðsins frá Afganistan geti haf- ist 15. maí nái fulltrúar stjómvalda í Afganistan og Pakistan sam- komulagi um fyrirkomulag hans fyrir þann 15. þessa mánaðar. Pakistanar og skæruliðar krefjast þess að gengið hafí verið frá mynd- un bráðabirgðastjómar áður en brottflutningurinn hefst. Afganski utanríkisráðherrann sagði myndun nýrrar stjómar ekki vera til um- ræðu í Genf heldur þyrftu Afganir sjálfir að ná samkomulagi um hvort og hvemig ný stjóm yrði mynduð. Bandaríkjamenn hafa krafist þess á fundum með sovéskum full- trúum í Genf að þeir skuldbindi sig til að hætta hemaðaraðstoð við stjómvöld í Afganistan. Gegn þessu eru Bandaríkjamenn reiðu- búnir til að hætta stuðningi við afganskar frelsissveitir, sem beij- ast gegn sovéska innrásarliðinu og afganska stjómarhemum. Afg- anski utanríkisráðherrann vísaði þessari tillögu Bandaríkjastjómar á bug í gær. „Afganir hafa ævin- lega þegið aðstoð frá Sovétríkjun- um og svo verður áfram þó svo að sovésku liðssveitirnar hverfi úr landinu," sagði hann. Wakil bætti. við að hann væri reiðubúinn til að halda viðræðunum áfram, jafnvel fram yfir 15. mars, en ummæli hans era túlkuð á þann veg að tils- lakanir komi ekki til greina.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.