Morgunblaðið - 11.03.1988, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. MARZ 1988
Lj óðatónleikar
Tónlist
JónÁsgeirsson
Dóra Reyndal, sópransöngkona
og Vilhelmína Ólafsdóttir, píanó-
leikari, héldu ljóðatónleika í Nor-
ræna húsinu sl. þriðjudag. Á efn-
isskránni voru söngverk nokkurra
höfunda sem allir eiga það sam-
eiginlegt að mynda eins konar
skil milli síðrómantíkur og nútíma
tónlistar, höfunda eins og Berg,
Trunk, Ravel, Duparc og Walton.
Sjö æskusöngvar eftir Alban Berg
eru samdir á árunum 1905-8 og
hvað stíl snertir hreinræktuð þýsk
síðrómantík, þó lögin væru ekki
gefín út í endanlegri gerð sinni,
fyrr en 1928. Æskusöngvar Bergs
eru mjög falleg og einkar við-
kvæm tónlist og að því leyti til
erfíð til að heíja tónleika með,
enda tókst Dóru mjög miður að
halda tónrænu jafnvægi, bæði
hvað snertir tónstöðu og tón-
myndun raddarinnar.
Fjórir skemmtisöngvarar eftir
Richard Trunk voru næst á efnis-
skránni. Trunk var kunnur kór-
stjóri og tónskáld og átti sinn
starfsdag að mestu í Köln og
Munchen. Fyrsta lagið (Sleðaferð)
og það síðasta (Biðilsför) voru
best sungnu lögin og gamansöm
í túlkun. Grísku alþýðulögin eftir
Ravel eru hugguleg tónlist og
þeirra elskulegast Tout gai, sem
vel mætti útleggja „ Allt í gamni“.
Henri Duparc átti þijá undur-
fagra söngva Chanson triste, So-
upir og Phidylé en bestu'sungnu
lög kvöldsins voru Þrír söngvar
eftir William Walton við texta
eftir Edith Sitwell, sérstaklega
Old Sir Faulk. Efnisskrá þessara
tónleika er einkar metnaðarfull,
þar sem ekki er leitað á náðir vin-
sældalista, auk þess sem hvert lag
fyrir sig er í raun sértækt við-
fangsefni fyrir sérþjálfaða söngv-
ara og nægir þar að nefna lögin
eftir Berg, Ravel og Walton. Þá
er rétt að geta þess að í sérlega
vandaðri efnisskrá voru afbragðs-
góðar textaþýðingar eftir Reyni
Axelsson.
Undirleikari var Vilhelmína
Ólafsdóttir og átti hún víða ágæt-
an leik og til að nefna dæmi, í
lögum Bergs, Duparcs og söngv-
um Walton.
Verksamningur undirritaður milli Reykjavíkurborgar og Armannsfells hf. um byggingu þjónustumið-
stöðvar fyrir aldraða við Aflagranda. Frá vinstri: Guðmundur Pálmi Kristinsson forstöðumaður bygg-
ingadeildar, Ármann Örn Ármannsson framkvæmdastjóri Ármannsfells hf., Davíð Oddsson borgar-
stjóri, Stefán Hermannsson aðstoðarborgarverkfræðingur og Ólafur Jónsson upplýsingafulltrúi.
Reykjavík:
Ný þjónustumiðstöð fyrir aldraða
Áætlaður kostnaður 72,4 millj.
UNDIRRITAÐUR
samningur milli
hefur verið
___ _ Reykjavíkur-
borgar og Ármannsfells hf. um
byggingu á 1000 fermetra þjón-
ustumiðstöð við Aflagranda, fyr-
ir aldraða íbúa í vesturbænum.
(gaukriErtit kæliskápar Frigor frystikistur (SauknErtit frystiskápar
FALLEG»STERK»SPARNEYTIN
kælitæki í úrvali
KVC2811
2561. geymslur.
mál í sm. (hxbxd):
160x55x58,5
T1504
1251. geymslur.
mál í sm. (hxbxd):
85 x46x 60
KRC1611
1631. geymslur.
mál I sm. (hxbxd):
85x55x60
TV 1706
1731. geymslur.
mál í sm. (hxbxd):
85x60x60
TV 1424 CA
1221. geymslur.
mál í sm. (hxbxd):
85 x 50 x 60
SR2606
2491. geymslur.
mál í sm. (hxb'xd).
133x55x60
KVC2411
2161. geymslur.
mál ísm. (hxbxd):
140 x 55 x 58,5
KGC2511
2131. geymslur.
mál í sm. (hxbxd):
139x55x60
Litla eldhúsið
Vaskur, eldavél og
ísskápur.
mál í sm. (hxbxd):
90 x 100 x 60
i* i
PC2924GA
■ 2551. geymslur.
mál í sm. (hxbxd):
167x55x60
PCT3526
3051. geymslur.
GKC3311
2831. netíógeymsl.
mál í sm. (hxbxd): mál I sm. (hxbxd):
180x60x60 180x60x60
8460
4301. nettó
geýmslur.
mál í sm.:
89 x 150x65
mál í sm. (hxbxd):
160x59,5x60
GKC2411
mál í sm. (hxbxd):
140x60x60
GKC1311
1071. nettógeymsL
mál í sm. (hxbxd):
85 x 55 x 60
GKC2011
1631. nettó geymsh
mál í sm. (hxbxd):
120x60x60
Gott verö!
Engin útborgun!
Greiðslukjör;
2 ár!
WHf
^ SAMBANDSINS
ÁRMÚLA3 SÍMAR 681910-68 (266
B 380
3501. nettó
geymslur.
mál í sm. (hxbxd):
89 x 128x65
8 275
2501. nettó geymslur.
mál í sm. (hxbxd):
89x98x65
B200 170-
1701. nettó geymslur.
mál I sm. (hxbxd)':
89x73 x 65
Áætlaður kostnaður er rúmlega
72,4 milljónir króna en gert er
ráð fyrir að um 15 milljónum
króna verði varið til verksins á
þessu ári.
Ármannsfell og Samtök aldraða
fengu sameiginlega úthlutað lóð við
Aflagranda og verða þar byggðar
60 söluíbúðir fyrir aldraða. Þjón-
ustumiðstöðin verður á jarðhæð og
í útbyggingu hússins og mun Fé-
lagsmálastofnun Reykjavíkurborg-
ar sjá um reksturinn.
Samningurinn gerir ráð fyrir að
þjónustumiðstöðin verði afhent full-
búin til reksturs ásamt tækjum og
búnaði, þann 15. desember 1989.
(Úr fréttatilkynningu)
Kópavogur:
Bæjarstjóm
mótmælir
skerðingu
jöfnunar-
sjóðs
Tekjur bæjarsjóðs
minnka um 16 millj.
í ÁLYKTUN, sem bæjarstjórn
Kópavogs hefur sent forsætis-
og fjármálaráðherra, er mót-
mælt harðlega þeirri skerðingu
á jöfnunarsjóði sveitarfélaga,
sem ríkisstjórnin hefur ákveðið.
Telur bæjarstjórn að tekjur bæj-
arsjóðs minnki um allt að 16
milljónum króna vegna þessarar
ákvörðunar.
Þá segir enn fremur: „Fjárhags-
áætlun bæjarins var afgreidd fyrir
5 vikum og nú er augljóst, að hana
verður að endurskoða og skera nið-
ur framkvæmdir. Þau vinnubrögð
sem ríkisstjómin beitir í þessu máli
eru með öllu óþolandi ekki síst
vegna þess, að þetta er þvert á
yfirlýsta stefnu stjómarinnar.
Sveitarfélögin í landinu verða að
geta treyst því að samþykkt fjárlög
standi lengur en tvo mánuði.
Bæjarstjórn Kópavogs harmar
þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að
fresta því um eitt ár, að gleggri
skil komist á verkaskiptingu ríkis
og sveitarfélaga. Þetta hefur verið
allra mesta baráttumál sveitar-
stjómarmanna í áratugi og loksins
þegar allt virðist komið í höfn, þá
tekur ríkisstjómin einhliða ákvörð-
un um að svíkja áður gert sam-
komulag við sveitarfélögin í
landinu. Þessi ákvörðun veldur
trúnaðarbresti í samskiptum við
sveitarfélögin, sem erfítt verður að
bæta.“