Morgunblaðið - 11.03.1988, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 11.03.1988, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. MARZ 1988 43 Morgunblaðið/Valdimar Guðjónsson Hluti þátttakenda á héraðsþinginu en um 100 fulltrúar sátu það. Morgunblaðið/Valdimar Guðjónsson Veittar voru viðurkenningar fyrir fþróttamenn ársins í hinum ýmsu greinum. Fjölmennasta héraðsþing HSK Gaulveijabæ. Héraðssambandið Skarpheð- inn hélt 66. héraðsþing sitt í Félagslundi, Gaulverjabæ, fyrir nokkru. Kringum 100 manns sátu þingið, þingfulltrúar og gestir ungmennafélaga úr Ár- nes- cg Rangárvallasýslum. Þingið var eitt hið Qölmennasta sem haldið hefúr verið. Mestar umræður urðu á þing- inu umj skiptingu Lottófjár eins og búist var við. Tekjur HSK af Lottói námu á síðasta ári 3,6 milljónum. Fulltrúar umf. Selfoss sem er lang ijölmennasta félagið og með mjög víðtæka starfsemi, vildu hærra hlutfall Lottótekna beint til félaganna. Ekki hiutu til- lögur Selfyssinga þess efnis hljómgrunn hjá öðrum félögum. Samþykkt var skipting fjárins, þannig að 5% fara í sérstakan afreksmannasjóð er stofnaður var á síðasta ári. 30% til HSK og 65% til félaganna. Einnig var ákveðið að skipa nefnd er héldi fund í lok apríl og mundi þá ákveða skipt- inguna milli féiaganna. Aðal- ágreiningurinn er um það atriði. Þrátt fyrir misjafnar skoðanir um þetta atriði ríkti annars sam- hugur og samstaða á þinginu. Sést höfðu í fjölmiðlum eftir landsmót viðraðar þær hugmyndir að ástæður sigurs á Landsmóti væru stærð sambandsins. Þessu vísaði Þórir Haraldsson og fleiri þingfulltrúar á bug. Ástæður sig- ursins væru einungis öflugt starf sambandsins og félaganna. Engin þingfulltrúa virtist ljá máis á skipting milli sýslna. I máii Guðmundar Kr. Jónsson- ar formanns HSK kom fram að stærsta verkefnið var þátttakan í Landsmótinu á Húsavík. Sendir voru 200 keppendur og vannst þar stórsigur. Aðaltekjulind Skarphéðins undanfarin ár, Gauk- urinn í Þjórsárdal, brást. Tap af þeirri samkomu nam rúmlega 1,6 milljónum króna. Sérstæðasta samkomuhaldið var Kerhátíð. Gaf sú snjalla hugmynd Áma Johnsen frá síðasta héraðsþingi óvæntar tekjur og bætti að stóram hluta tapið af Gauknum. Auk þess sem samkoman sjálf og aðstæður allar líða gestum seint úr minni. HSK á sem fyrr marga frábæra íþrótta- menn og nú er útlit fyrir a.m.k. 4 keppendur á Ólympíuleikum. Þingið sátu margir gestir. M.a. var þingmönnum kjördæmisins boðið og héldu Jón Helgason, Eggert Haukdal og Unnur Stef- ánsdóttir varaþingmaður stuttar ræður. Einnig sóttu þingið forseti ÍSÍ, formaðúr UMFÍ og margir fleiri gestir sem ávörpuðu þingið. Á laugardagskvöldið vora af- hentar viðurkenningar fyrir íþróttamann ársins í hinum ýmsu greinum, alls þrettán talsins. íþróttamaður ársins hjá HSK var valinn Vésteinn Hafsteinsson frjálsíþróttamaður. Tók móðir hans, Hildur, við verðlaunagrip fyrir hans hönd en Vésteinn dvel- ur nú erlendis við æfingar. Valdim. G. Skarphéðinsþing: Karlamir lágu flatir SelfoMÍ. KARLAR þeir sem þátt tóku i árlegri sleifarkeppni Skarp- héðins máttu lúta í lægra haldi fyrir fyrstu konunni sem þátt tekur í þessari sérstæðu keppni. Þrátt fyrir að um átakagreinar væri að ræða stóð Unnur Stefánsdóttir, Jasonar- sonar frá Vorsabæ, uppi sem sigurvegari. Síðasta greinin, armréttur, var táknræn fyrir úrslitin. í lokin lágu karlamir flatir, stundu og blésu þungan á meðan Unnur tók 35. og 36. armlyftuna. Aðrar greinar sem keppt var í vora langstökk án atrennu og hopp á öðram fæti. Meginreglan við val keppenda er að þeir séu eldri en 36 ára. Sleifarhafi fyrra árs stýrir ávallt þessari keppni á kvöldvöku i tengslum við Skarphéðinsþing. Nú var það Markús ívarsson bóndi og hlauparí sem var keppnis- stjóri. Sleifin sú arna sem keppt er um fannst í húsarústum við Kaldalón vestur við ísafjarðardjúp á ferð stjórnarmanna HSK er þeir fóra á íþróttaþing ÍSÍ haustið 1966. Þá var slegið upp fyrsta sleifarmótinu og fyrsti sleifar- hafinn var Hafsteinn Þorvaldsson sem reyndar var einn þeirra sem mátti gefa eftir karlaveldi sleifar- hafa í keppninni 27. febrúar. Sig. Jóns. Morgunbladið/Sigurður Jónsson Karlaveldi sleifarhafa hnekkt. Unnur með sleifina í hópi kepp- enda. Landbunaðarráðherra: Fólk verður að skilja hvað gróðurmoldin gefiir Selfossi. Landbúnðarráðherra hefúr beint þvi til stofúana landbúnaðarins að allri starfsemi sem tengist upp- græðslu lands verði beint til Rang- árvallasýslu. Þetta kom fram á fúndi á Hvolsvelli um atvinnumál sem Jón Helgason landbúnaðar- ráðherra boðaði til. Á fúndinum varaði hann alvarlega við óheftum innflutningi á sumum landbúnað- arvörum. Fundinn sóttu rúmlega 70 manns. Á fundinum varaði Jón við því hugarfari sem hann sagði rikjandi .rneðal annars innan samstarfsflokka sinna í ríkisstjórn, að leyfa ætti óheftan innflutning á sumum land- búnaðarafurðum svo sem frönskum kartöflum og kjúklingum. Varðandi nýlega regluglerð um 190$ jöfnunargjald á franskar kart- öflur sagði Jón að með gjaldinu og tolli færi innflutningsverð að meðal- tali i 79,90 krón. Það væri þvl óút- skýrt hvemig heildsöluverð gæti orð- ið 120 - 180 krónur. Það væri greini- legt að það væra aðrir aðilar en rík- ið sem hækkuðu verðið. Jón sagði sína sannfæringu óbreytta að hann hefði gert rétt við setningu reglugerðarinnar og and- mælti þeirri skoðun sem Verslunar- ráðið hefði látið í ljós að vandi kart- öfluverksmiðjanna væfí ekki land- búnaðarvandi heldur iðnaðarvandi. Einn fdrmanna benti á að með sömu rökum mætti benda á smjörið og segja að hátt verð á því væri iðnaðar- vandi og krefjast innflutnings. Þetta álit Verslunarráðsins væri því mjög hættulegt iandbúáðinum. Á fundinum kom fram i máli mana að mikill samdráttur i landbúnaði hefur leitt til minni þjónustu við hann sem kæmi mjög illa við þéttbýlisstaði i Rangárvallasýslu og Vestur Skafta- fellssýslu. Ólafur Ólafsson kaupfélagsstjóri benti á að meira þyrfti til að bæta ástandið en vaxtalækkun og minni þenslu á höfuðborgarsvæðinu. Fram- leiðsluiðnaður í sýslunni ætti i erfíð- leikum og það væri ekki nema arð- bærasti rekstur sem kæmist af. Eig- ið fé fyrirtækja væri of litið og vext- ir of háir. Það væri á heinu að fólk legði ekki fé i fyrirtæki sem væru rekin á núlli þegar bankar byðu upp á góða ávön. Hjörtur Hjartarson bóndi benti á að það væri sanngjörn krafa að Rangæingar fengju meiri hlutdeild i Jón Helgason mjólkurframleiðslunni. Hún væri nú 3$ minni en var áður. Eggert Ólafs- son á Þovaldseyri benti á að Rsngár- vallasýsla og Vestur Skaftafellssýsla Fundurinn á Hvolsvelli var vel sóttur. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson hefðu ekki sjávarútveg að styðjast við þvi kæmi samdráttur i land- búnaði harðar niður þar. Hann sagði enga þörf á þvi að ívilna Vestfirðing- um i mjólkurframleiðslu þá vantaði njjólk ssem hægt væri að flytja til þeirra. Hann benti á að innleggsnúm- erum í Mjólkurbúi Flóamanna hefði fækkað um 30 sem væri það sama og að einn hreppur færi i eyði. Guðni Águstsson alþingismaður saðgi að fólk i þorpunum fyndi að tækifæri þess færu minnkandi. Hann sagði þörf á að taka up héraðsvald og færa verkefni heim í héraðin, frá höfuðborginni. Hann benti á að möguleikar i laxarækt með strönd- inni væru miklir og vel þess virði að gefa gaum. Unnur Stefánsdóttir varaþing- maður framsóknar sagði umrseðuna of neikvæða um landsbyggðina þegar erfiðleikar steðjuðu að og sagði þörf á að Byggðastofnun væri meira markandi um verkefni á landsbyggð- inni. Hún benti á að nýta mætti bet- ur möguleika hrossaræktar i sýsl- unni. Lokaorðin á fundinum átti Jón Helgason og lagði áherslu á að frum- kvæði til átaka þyrfti að koma heim- anað og nýta þyrfti vilja og þekkingu' fólksins. Hann sagði kaninuræktina ásjálega eftir að vinnsla kaninufiðu var byggð upp. Hann sagði að berj- ast þyrfti gegn einstrengingslegum fullyrðingum um að allt mætti sækja yil útlanda. „Það þarf að koma fólki I skilning um hvað við eigum í okkar landi, hvað gróðurmoldin gefur okk- ur,“ sagði Jón. Sig. Jóns.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.