Morgunblaðið - 17.03.1988, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 17.03.1988, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17, MARZ 1988 Ci'Ói' _U H ll l TOLVUR ) TILVALIN FERMINGARGJÖF! Skáktölvur í úrvali sem ***' henta jafnt byrjendum sem stórmeisturum hvað styrkleika snertir. Ótal möguleikar — þroskandi og spennandi leikur. Kynnið ykkur úrvalið — áskoranda við ykkar hæfi. ÚTSÖLUSTAÐIR UM ALLT LAND Hjá Magna, Laugavegi 15, Reykjavík, S. 23011 Penninn, Hallarmúla 2, Reykjavík, S. 38402 Penninn, Austurstræti, Reykjavík, S. 27211 Penninn, Kringlunni, Reykjavík, S. 689211 Bóka- og ritfangav. Veda, Hamraborg, Kópavogi, S. 40877 Bókabúó Böðvars, Reykjavíkurvegi 64, Hafnarfirði, S. 651630 Bókabúó Keflavíkur, Sólvallagötu 2, Keflavík, S. 11102 Bókabúð Andrésar Níelssonar, Skólabraut 2, Akranesi, S. 11985 Kaupf. Borgfirðinga, Egilsgötu 11, Borgarnesi, S. 71200 Bókabúð Jónasar Tómassonar, Hafnarstræti 2, ísafirði, S. 3123 Verslun Sigurðar Pálmasonar, Höfðabraut 6, Hvammstanga, S. 1350 Bókabúð Brynjars, Skagfirðingabraut 9a, Sauðurkróki, S. 5950 Verslunin A.B.H., Aðalgötu 26, Siglufirði, S. 71301 Bókabúð Jónasar, Hafnarstræti 108, Akureyri, S. 22685 Bókabúð Þórarins Stcfánssonar, Garðarsbraut 9, Húsavik, S. 41234 Bókabúð Sigurbjörns Brynjólfssonar, Hlöðum, Egilsstöðum, S. 11299 Kaupfél. A-Skaftfellinga, Höfn í Hornafirði, S. 81200 Bókabúðin Heiðarvegi 9, Vestmannaeyjum, S. 1434 Bókabúð Grindavikur, Grindavík, S. 68787 • Forróttur: Trjónukrabbasúpa Naustsins AAalróttur: Hreindýrahnetusteik mefí villibráfíarsósu og Waldorfsalati Eftlrróttur: G/óaldinis ogferskir ávextir RESTAURANT S ( M I 1 7 75 9 Morgunblaðið/Sverrir Sigrún Eðvaldsdóttir, fiðluleikari ásamt Zygmunt Rychert stjórnanda á æfingu með Sinfóníuhljóm- sveit íslands í gær. Sinfóní uhlj óms veit íslands: „KJARVAL HITTIMIG BFJNT f HJARTASTAÐ" segir pólski stjórnandinn Zygmunt Rychert Á tónleikum Sinfóníuhljóm- sveitar íslands í Háskólabíói í kvöld klukkan 20.30 verða flutt þtjú verk; Orpheus eftir Franz Liszt, Fiðlukonsert eftir Sibelius og Sinfónía nr. 3 eftir Lutoslaw- ski. Tvö síðamefndu verkin vekja sérstaka athygli, því Sigrún Eð- valdsdóttir leikur einleik í fiðlu- konsertinum og sinfónía Lut- oslawski er leikin honum til heið- urs, en hann er sjötugur á þessu ári. Stjómandi á tónleikunum er Pólveijinn Zigmunt Rychert. „Ég held áfram!“ Sigrún Eðvaldsdóttir er ung að árum og hefur hún nú þegar skap- að sér sess sem fíðluleikari og einleikari. Hún er nú á loka- spretti í háskólanámi í Philadelfíu í Bandaríkjunum, þaðan sem hún lýkur BM-prófi í vor. Hún hefur numið fiðluleik frá því hún var aðeins 5 ára og meðal kennara hennar voru Rut Ingólfsdóttir og Guðný Guðmundsdóttir. Sigrún hefur áður leikið með Sinfóníu- hljómsveitinni á tónleikum og í síðustu viku lauk hún við hljóm- plötuupptöku með hljómsveitinni undir stjóm Petri Sakaris, hins nýja aðalstjómanda hljómsveitar- innar. Sigrún tók í fyrrahaust þátt í Mozart-keppninni í Augs- borg í Vestur-Þýskalandi og var þar í öðm sæti af 39 keppendum. Hún mun í september halda þrenna tónleika við píanóundirleik í Þýskalandi og þegar hún var innt eftir því, hvað tæki svo við, yppti hún öxlum og hló og sagði: „Ég held áfram." Fjölhæfur listamaður Zigmunt Rychert er fæddur í Gdansk í Póllandi, borg Sam- stöðu, og af miklu tónlistarfólki kominn. Faðir hans var meðal fremstu orgelsmiða í Póllandi og einnig orgelleikari. Óhætt er að segja að Zygmunt hafí erft þessa hæfíleika. Hann er mjög fjölhæfur listamaður, málari, tónskáld, fíðluleikari, orgelleikari og síðast en ekki síst orgelsmiður. Símon Kuran, annar konsert- meistari Sinfóníuhljómsveitarinn- ar hefur heimsótt Zygmunt á heimili hans í Gdansk og segir, að þegar gengið sé inn í húsið, sé eins og gengið sé inn í orgel! íbúðin sé hálfgert nýlistaverk, eins og orgel að innan, allt unnið af Zygmunt Rychert, og sýni Ijós- lega listamannshæfíleika hans. Hann segir einnig, að Zygmunt sé einn stórkostlegasti stjómandi okkar tíma, elja hans og dugnaður og trúnaður við listina sé með ólíkindum. Símon túlkar tal okkar Zygmunts: Heillaðist af Kjarval „Ég hef um langt árabil haft mikla löngun til að heimsækja ísland," segir Zygmunt. „Óspillt og flölbreytt landið hefur höfðað til mín og þegar ég er nú kominn hingað er ég heillaður af landi og þjóð. Ég heimsótti Listasafn ís- lands og skoðaði þar Kjarvals- myndir. Þessi listamaður er frá- bær og hitti mig beint í hjarta- stað. Túlkun hans höfðar mjög til mfn og lýsir vel þeim tilfínningum sem ég ber til landsins, bæði sem málari og tónlistarmaður. Ég kom náttúmlega hingað' fyrst og fremst sem stjómandi, enda er það mitt aðalstarf, en ég er líka tónskáld og hyggst semja ballett- tónlist með skírskotun til íslands og íslenskrar arfleifðar. íslend- ingasögumar hafa verið þýddar á pólsku og gætu orðið bakgmnnur- inn.“ Stórmenni í pólsku listalíf i Zygmunt Rychert er rúmlega fertugur að aldri, en hefur lagt stóran skerf á vogarskálar list- alífsins í Póllandi. Hann nam tónsmíðar og hljómsveitarstjóm við tónlistarháskólann í Posnan og hlaut verðlaun í þeim greinum í pólskri samkeppni árið 1970. í þijú ár var hann aðstoðarmaður Witoids Rowicki við Þjóðarfíl- harmóníuhljómsveitina í Varsjá. Hann stjómaði þessari hljómsveit í Póllandi og einnig í tónleikaferð- um til New York og Tókýó. 1974 stofnaði Zygmunt Fílharmóníuhljómsveit Baltycka í Gdansk og var aðalstjómandi hennar í sjö ár. Hann er nú list- rænn leiðbeinandi hennar. Hann er einnig forstjóri Ópemnnar í Bydgoszcz eða Bromberg og kennari við tónlistarháskólann þar. Hann stjómar 90 manna hljómsveit skólans og kemst þar í kynni við hljóðfæraleikara sem skara fram úr. „Ég hef gert áætlun um eflingu ópemnnar í Bydgoszcz," segir Zygmunt. „Árið 1991 verður hún stærsta, nútímalegasta og best búna óperan í Evrópu." Símon segir, að yfírlýsing sem þessi lýsi Zygmunt vel og hann sé líklegur til að ná þessum árangri. Hann minnir á Bodan Vodisko í fram- sækni sinni og einurð gagnvart Iistinni. Zygmunt hefur þess vegna verið heiðraður fyrir fram- lag sitt til listarinnar í Póllandi. Auk þess sem að framan er sagt hefur hann stjómað hljómsveitum austan hafs og vestan, í fjölmörg- um ríkjum Austur- og Vestur- Evrópu, Sovétríkjunum, og Bandaríkjunum og Japan eins og áður er getið. En hvað hefur þessi fiðlusnill- ingur að segja um Sigrúnu Eð- valdsdóttur, sem hefur nýhafið feril sinn sem einleikari? „Hún er hreint frábær, ég dáist að henni sem persónu og fíðluleik- ara," segir Zygmunt. Hann hefur./ samanburðinn, hefur stjómað ein- leikumm á borð við Rostropovits og Igor Oistrach. Hann er næmur á vandamál fíðluleikarans, enda sjálfur staðið í hans sporum og það er tvímælalaust mikils virði fyrir Sigrúnu að hljóta stuðning frá honum. Lutoslawski sjötugur Á tónleikunum í kvöld verður flutt Sinfónía nr. 3 eftir pólska tónskáldið Lutoslawski. Til þess að það væri gjörlegt þurfti að fjölga um 20 manns í hljómsveit- inni og koma þessir hljóðfæraleik- arar úr ýmsum áttum, sumir eru enn í námi hérlendis eða erlendis en aðrir hafa nýlokið námi. Kannski eru þetta hljóðfæraleik- arar morgundagsins í Sinfóníu- hljómsveitinni. Zygmunt Rychert segir um Lutoslawski og tónlist hans: „Ég hef ráðfært mig við Lut- oslawski varðandi flutning á þess- ari sinfóníu. Verkið er 'byggt á tilviljunarkenndum hugrenning- um hans. Það er tileinkað Sin- fóníuhljómsveit Chicago-borgar í Bandaríkjunum og var þar frum- flutt undir stjóm Sir George Solti. Þetta verk var hljóðritað í flutn- ingi Fflharmóníuhljómsveitar Berlínar undir stjóm Lutoslawskis sjálfs og er til á geisladiski hér í Reykjavík. Þetta er 30 mínútna verk í einum þætti, sem þó skipt- ist innbyrðis í þijá kafla. Hluti þess er mjög hefðbundinn og formfastur og flutningurinn er undir agaðri stjóm. Svo koma kaflar, þar sem hljóðfæraleikar- amir leika sjálfstætt og stjómand- inn samhæfír leik þeirra. Það er því óhætt að segja, að á köflum séu 90 einleikarar að starfí í einu!" segir Zygmunt Rychert að lokum. Viðtalið við Zygmunt fór fram á fjórum tungumálum, pólsku, þýsku, ensku og íslensku með dyggri hjálp Símons Kurans. En þegar upp var staðið og Zygmunt var kominn með tónsprotann í höndina og fyrstu tónamir ómuðu hmndu allir múrar tungumála í einu vetfangi því tónlistina skilja allir. Texti: Rafn Jónsson blaðafull- trúi Sinfóníuhfjómsveitarinnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.