Morgunblaðið - 17.03.1988, Side 37

Morgunblaðið - 17.03.1988, Side 37
MORGUNBLABIÐ, FIMMTUDAGUR 17. MARZ 1988 37 Morgunblaðið/Ingvar Guðmundsson Tíu ára drengur varð fyrir bifreið í Reykjavík á þriðjudag. Barn fyrir bifreið TÍU ára drengur varð fyrir bif- reið í Engjaseli í Reykjavík á þriðjudag. Drengurinn var flutt- ur á slysadeild með nokkra áverka. Slysið varð um kl. 18 á þriðju- dag. Drengurinn mun hafa hlaupið út á götuna og í veg fyrir bifreið, sem var ekið suður Engjasel. Hann hlaut nokkra áverka og var meðal annars talinn viðbeinsbrotinn. Sjávarútvegsráðherra: Reynt að ná samstöðu um leiðir til að stýra ferskfiskútflutningi HALLDÓR Ásgrímsson sjávarút- vegsráðherra hefur undanfarið unnið að því að finna leið til að stýra útflutningi á ferskum fiski sem hagsmunaaðilar í sjávarút- vegi gætu náð samstöðu um. „Það liggur fyrir að of mikið framboð, einkum á Þýskalands- markaði, hefur orðið til þess að þar hefur orðið verðfall og okkur ber skylda til að sjá um að verð fari ekki niður fyrir lágsmarksverð inn- an Efnahagsbandalagsins og því verður að grípa til aðgerða nú þeg- ar til að takmarka útflutning á þann markað," sagði Halldór Ás- grímsson. „Það hefur verið stjóm á skipun- um með 15% kvótaálagi, sem ég að vísu hafði lagt til að yrði 25%. Gámaútflutningurinn hefur hins vegar stjómlaus og því hefur verð- fallið orðið. Hugmyndin er að grípa inn í það núna. Síðan verður þessu starfi haldið áfram og við munum vinna að endanlegri niðurstöðu en hún er enn ekki fengin," sagði sjáv- arúvegsráðherra. Stefán Prið- f innsson að- stoðarmaður fjármála- ráðherra STEFÁN Friðfinnsson viðskipta- fræðingur hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Jóns Baldvins Hannibalssonar fjármálaráð- herra og tók hann til starfa í ráðuneytinu i gær. Stefán hefur undanfarin ár starfað sem fram- kvæmdasljóri Vörumarkaðarins hf. Stefán er 39 ára gamall, fæddur í Reykjavík 21. apríl 1948, sonur hjónanna Friðfinns Ólafssonar for- stjóra Háskólabíós og Halldóru Önnu Sigurbjömsdóttur. Bróðir hans er Bjöm Friðfinnsson aðstoð- armaður viðskiptaráðherra. Stefán Friðfinnsson Stefán lauk viðskiptafræðiprófi frá Háskóla íslands árið 1973 og stundaði framhaldsnám í rekstrar- hagfræði við University of War- wick. Hann var fjármálastjóri bygg- ingarfélagsins Ármannsfells 1975-78 og framkvæmdastjóri Vörumarkaðarins hf. frá 1978. Kona Stefáns er Ragnheiður Ebenezetdóttir, verslunarstjóri og eiga þau einn son. Borgarráð: Tvær nýjar stöður vi< listasöfn borgarinnai BORGARRÁÐ hefur samþykkt, að stofna stöðu listráðunauts Reykjavíkurborgar fyrir Kjarv- alsstaði og Ásmundarsafn og stöðu safnvarðar á listasöfnum borgarinnar. Að sögn Gunnars Eydal skrif- stofustjóra borgarstjómar, er hér um breytingu á innra skipula borgarinnar að ræða og mun Gun: ar Kvaran listráðunautur Kjarval staða, gegna stöðu listráðflnau Reykjavíkurborgar. Staða saf varðar verður síðar auglýst laus umsóknar. Fjármálaráðherra: Aætluð heildarlaun fram- haldsskólakennara um 100 þúsund á mánuði Kröfugerð HKÍ metin sem 65% launahækkun AÆTLUÐ heildarlaun fram- haldsskólakennara innan Hins íslenska kennarafélags eru 98.703, samkvæmt úttekt fjár- málaráðuneytisins á launum kennara, sem kynnt var á-fundi með fréttamönnum í gær. Heildarlaun grunnskólakenn- ara innan sama félags eru sam- kvæmt þessari úttekt 77.807 krónur, heildarlaun framhalds- skólakennara innan Kennara- sambands íslands 91.815 krón- ur og heildaríaun grunnskóla- kennara innan KÍ 74.820 krón- ur. Tillögur fjármálaráðuneyt- isins um breytingar á kjara- samningi kennara við fram- haldsskóla eru í aðalatriðum þær, að almennar launabreyt- ingar milli áranna 1987 og 1988 verði sömu og samið var um milli VMSÍ og VSÍ. Kröfugerð HÍK fyrir sama skólastig felur hins vegar í sér um 65% launa- hækkun, samkvæmt túlkun fjármálaráðuneytisins. Útreikningar fjármálaráðu- neytisins á launum kennara eru byggðir á launaverðlagi í desemb- er 1987, en hafa síðan hækkað um 2% til 5%. Heildarlaun eru miðuð við hlutfall yfírvinnu og annarra greiðslna af föstum laun- um eins og þau voru árið 1986. Föst dagvinnulaun framhalds- skólakennara miðað við 27 tíma kennsluskyldu á viku (hver kennslustund er 40 mínútur) er 63.069 krónur á mánuði hjá kenn- urum innan HÍK, en 60.966 krón- ur hjá kennurum í KÍ. Dagvinnu- Morgunblaðið/Þorkell Jón Baldvin Hannibalsson fjár- málaráðherra gerir grein fyrir úttekt ráðuneytisins á launum kennara á fundi með frétta- mönnum í gær. laun grunnskólakennara miðað við 29 tíma kennsluskyldu á viku eru 57.892 krónur á mánuði hjá kennurum í HÍK en 58.000 krónur hjá kennurum í KÍ, samkvæmt úttekt fjármálaráðuneytisins. Hér er um að ræða föst mánaðrlaun alla 12 mánuði ársins og áður- nefndar tölur um heildarlaun er meðaltal mánaðarlauna alla mán- uði ársins. Jón Baldvin Hannibalsson fjár- málaráðherra sagði að yfirstand- andi samningaviðræður fjármála- ráðuneytisins við samtök kennara væru í framhaldi af samkomulagi sem gert var í kjarasasaningum í upphafi síðasta árs um að taka launakerfi og vinnutilhögun kenn- ara til endurskoðunar. í þeim samningum hefði að öðru leyti verið gengið frá samningum við kennara með kjarabreytingum á síðasta ári og upphafi þessa árs sem hefðu verið fyllilega sam- bærilegar eða meiri en fólst í samningum annarra ríkisstarfs- manna og samningum á almenn- um vinnumarkaði, að sögn fjár- málaráðherra. Hann sagði að þessar launabreytingar hefðu leitt til aukins kaupmáttar hjá kennur- um, ekki síður en öðrum launþeg- um. Eins og nú horfði í þjóðarbú- skap hér á landi væri hins vegar ljóst að ekki væri neitt svigrúm til frekari hækkunar á almennum kaupmætti og reyndar vafasamt að haldið verði fengnum hlut án óforsvaranlegrar skuldasöfnunar erlendis. Við þessar aðstæður hefði fjármálaráðuneytið ekki ta- lið gerlegt að gera kjarasamninga við starfsmenn ríkisins sem ganga lengra hvað launabreytingar snertir, en ætla má að verði á almennum vinnumarkaði. Tilboð fjármálaráðuneytisins gerir ráð fyrir um 13,5% launa- hækkun til kennara, en að sögn fjármálaráðherra er krafa HIK upp á 65% launahækkun eins og áður segir eða 51,5% hærra en tilboð ríkisins. Hann tók það enn- fremur fram að kröfur Kennara- sambands íslands um breytingar á samningi grunnskólakennara væru mun hóflegri en kröfur HÍK. Tillögur fjármálaráðuneytisins gagnvart þeim væru áþekkar til- boðinu til HÍK. Kennarasamband íslands: Vinnubrögð ráðuneyt- isins síst til að liðka fyrir samningagerð Heildarlaun grunnskólakennara 8% lægri en upplýs- ingar ráðuneytisins gefa til kynna Kennarasamband íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem „harmað er, að fjármálaráðu- neytið skuli hafa birt upplýs- ingar um kennaralaun með þeim hætti sem gert var, þar sem ekki var gerð fyllilega grein fyrir þeim forsendum sem lagðar voru til grundvall- ar. Með slíkum vinnubrögðum sé gefið tilefni til rangtúlkana og misskilnings sem síst verði til þess að bæta samstarf þess- ara aðila í yfirstandandi samn- ingagerð," eins og segir i yfir- lýsingunni. Þar kemur enn- fremur fram að þær tölur sem birtar hafi verið sem meðaltals- laun grunnskólakennara og framhaldsskólakennara séu afar villandi og gefi ranga mynd af launum þeirra. í yfirlýsingu KÍ er þess getið að byijunarlaun grunnskólakenn- ara eftir þriggja ára háskólanám séu 48.205 krónur á mánuði og eftir 18 ára starf 62.771 króna. Framhaldsskólakennari með meistararéttindi fái 51.140 krón- ur á mánuði í byijunarlaun og nái 66.593 krónum á mánuði eftir 18 ára starf. Varðandi tölur fjármálaráðu- neytisins um meðaltalslaun grunnskólakennara bendir KÍ á að þar sé ekki einungis um að ræða laun grunnskólakennara og leiðbeinenda heldur einnig laun skólastjómenda, sem séu hærra launaðir en almennir kennarar. Þá séu einnig taldir með ýmsir hópar sem raðast ofar í launa- flokka en almennir kennarar. Þegar reiknuð séu meðaltals dag- vinnulaun almennra grunnskóla- kennara og leiðbeinenda komi í ljós að í desember 1987 hafi þau verið um 55 þúsund krónur eða tæplega 6% lægri en fram kemur í upplýsingum fjármálaráðuneyt- isins. Laun þeirra með yfirvinnu, miðað við sambærilegar forsendur og gefnar eru í upplýsingum fjár- málaráðuneytisins hefðu verið um 69 þúsund krónur að meðaitali í desember 1987, eða um 8% lægra en upplýsingar fjármálaráðuneyt- isins gefi til kjmna. í þessu sam- bandi væri rétt að benda á, að fjöldi kennara hefði litla sem enga yfirvinnu á sama tíma og aðrir hefðu neyðst til að taka að sér meiri yfirvinnu en þeir kærðu sig um til þess að bjarga þeim vanda sem skólar landsins stæðu frammi fyrir vegna kennaraskorts. í yfírlýoingu KÍ segir ennfrem- ur að í tilboði ríkisins, sem lagt var fram á fundi kjararáðs KÍ og samninganefndar ríkisins 5. mars sl. væri ekki gert ráð fyrir neinni upphafshækkun, aðeins tæplega 6% hækkun á launalið samnings- ins síðar á árinu og óverulegum breytingum á tilfærslum milli launaflokka vegna starfsaldurs, framhalds og endurmenntunar. I tilboðinu væri gert ráð fyrir að verðbólga gæti orðið allt að 15% án þess að launaliður samningsins verði endurskoðaður. Fulltrúaráði KÍ hefði ekki talið fært að ganga til samninga um kjararýmun fyrir kennarastéttina og því samþykkt samhljóða að leita heimildar fé- lagsmanna til verkfallsboðunar. *

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.