Morgunblaðið - 17.03.1988, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 17.03.1988, Blaðsíða 64
64 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. MARZ 1988 Kársnesbraut 1Q6. Simi 46044 - 65l. .2. Viljirðu eitthvað vandlega fest vertu & föstu meöt ‘uKHHSuEC!© Thorsmans þan-múrboltinn: Festing fyrir þunga hluti í steypu. Örugg festing. Thorsmans naglatappinn: Plast- tappi meö skrúfunagla. (Þaö nýjasta í dag...) Örugg festing í vikurplötur og steinsteypu. Thorsmans sjökrækjan. Upp- hengja fyrir lampa, rör o.fl. í stein og plötur. Þægilegt — hentugt. Thorsmans múrtappinn með þanvængjum. Betra toggildi. Til festingar fyrir þunga hluti. Örugg festing. Thorsmans-monomax: Festing fyrir plötur 3-26 mm. Ath. aðrar geröir fyrir þykkri plötur. Jtf RÖNNING SUNDABORG 15/104 REYKJAVÍK/ SÍMI (91)84000 HANDKNATTLEIKUR / BIKARKEPPNIN Fyrsta tap FH-inga í vetur: „Þegar svona stemmn- ing er fyrir hendi getur ekkert lið stöðvað okkur - sagði Guðmundur Hrafnkelsson, markvörður UBK, eftir sigurinn á FH BREIÐABLIK sigraði FH örugg- lega, 28:21, í bikarkeppninni í gærkvöldi í Digranesi — og var þetta fyrsta tap FH-inga á keppnistímabilinu. Liðin mætt- ust á sama stað í deildinni á sunnudaginn og þá sigraði FH 30:24. Það var fyrst og fremst gífurleg barátta Blika, og stórgóð liðs- heild, sem færði þeim sigurinn í gærkvöldi. Þeir ætluðu greinilega _■■■■■ ekki að láta það ger- Skapti ast að tapa tvívegis Hallgrímsson fyrir FH með fárra skrífar daga millibili frammi fyrir sínum eigin áhorfendum, því strax frá fyrstu mínútu léku þeir af mikilli festu. „Við bjuggum okkur mjög vel, sál- fræðilega, undir þennan leik. Þegar svona stemmning er fyrir hendi í liðinu getur ekkert lið stöðvað okk- ur. Nú setjum við stefnuna beinustu leið á bikarinn," sagði Guðmundur Hrafnkelsson, landsliðsmarkvörð- urinn snjalli hjá Blikunum, i sam- tali við Morgunblaðið á eftir. Guð- mundur lék sérlega vel í markinu, varði hátt í 20 skot og kórónaði góðan leik með því að skora 27. markið með skoti yfír endilangan völlinn í lokin. Breiðablik komst í 4:0 í upphafi, en FH-ingamir náðu að jafna 8:8. A þeim kafla skoraði Breiðablik ekki mark í 10 mínútur. Staðan í hálfleik var svo 10:8 fyrir UBK. Framan af síðari hálfleik var leikur- inn í jafnvægi, Blikamir þó yfirleitt á undan að skora. FH komst yfír 15:14, en þá kúventist leikurinn. Blikar gerðu fímm mörk í röð — staðan þá 19:15, síðan 24:17 og lokatölumar 28:21. Omggur sigur og sanngjam. FH-ingarnir vom hreinlega hættir tíu mín. fyrir leiks- lok, ofurliði bomir af frískum Blik- um. Liðsheild Breiðabliks var góð sem fyrr segir. Guðmundur varði mjög vel, Jón Þórir var geysilega spræk- ur í sókninni og vöm Breiðabliks var mjög góð. Blikar náðu að halda Héðni alveg niðri, klipptu nokkuð vel á homamennina, Þorgils Óttar var tekinn óvenju vel úr umferð, en Blikum gekk reyndar illa að ráða við Guðjón Amason. Hann var lang atkvæðamestur FH-inga. Héðinn var langt frá sínu besta. Hann á við bakmeiðsli að stríða og náði ekki að beita sér sem skildi. Þurfti reyndar að fara af velli í talsverðan tíma í seinni hálfleik. Homamenn FH, Gunnar og Einar, vom heillum horfnir og það var ekki fyrr en Pétur Petersen kom í vinstra hornið að eitthvað fór að gerast þar. Mörk UBK: J6n Þórir Jónsson 9, Bjöm Jónsson 4, Hans Guðmundsson 4, Andrés Magnússon 3, Svafar Magnússon 2, Aðal- stcinn Jónsson 2, Kristján Halldórsson 1, Þórður Davíðsson 1, Ólafur Bjömsson 1 og Guðmundur Hrafnkelsson 1. Mörk FH: Guðjón Ámason 9, Óskar Ár- mannsson 4, Pétur Petersen 4, Þorgils Ótt- ar Mathiesen 3 og Héðinn Gilsson 1. Dómarar: Stefán Amaldsson og Ólafur Haraldsson og voru með bestu mönnum vallarins. Slógu varla feilnótu. Blikar horfðu 10 sinnum á snúningsmark Óttars! - til að ná upp réttum anda Leikmenn Breiðabliks skoð- uðu í fyrrakvöld mynd- band af leik sínum við FH í 1. deildinni á sunnudaginn, til að undirbúa sig fyrir leikinn í gærkvöldi. „Við horfðum 10 sinnum á snúningsmark Þorgils Óttars í lokin og það hleypti illu blóði í okkur," sagði Guðmundur Hrafnkelsson, markvörður Breiðabliks, í gærkvöldi. Umrætt mark gerði Þorgils Óttar í lok leiksins á sunnu- daginn, brunaði fram í hraða- upphlaup, stökk inn í teiginn og sneri sér í hring áður en hann skoraði! „Það þjappaði okkur líka mjög vel saman að áhangendur öskruðu mikið á Hans Guðmundsson í leiknum á okkur á sunnudaginn. Þetta tvennt gerði okkur enn ákveðnari en áður að sigra í kvöld," sagði Guðmundur. Komu okkur á óvart „Okkur hefur gengið vel gegn Blikunum í síðustu leikjum. Við höfum sennilega verið of mikið með hugann við 1. deild- ina, spennuna þar. En þeir komu okkur vissulega á óvart með mikilli baráttu, miðað við leiki þeirra undanfarið, þar sem þeir hafa verið slakir. Þetta kemur okkur hins vegar niður á jörðina og við komum tvíefldir í þá leiki sem eftir eru í deildinni," sagði Guðjón Arnason, leikmaður FH, í gærkvöldi. Morgunblaöiö/RAX Vel teygt á í Dlgranesll Þorgils Óttar Mathisen og Aðalsteinn Jónsson beijast um boltann í gærkvöldi. Aðalsteinn hefur betur — hefur langt hönd ofan á knöttinn, og hafði einnig betur þegar upp var staðið. Breiðablik vann öruggan sigur. Aöalíundur KNATTSPYRNUFÉLAGSINS VALS Knattspymufélagið Valur heldur framhaldsaðalfund fimmtudaginn 17. mars kl. 20.00 (í kvöld) í félagsheimil- inu að Hlíðarenda. Á dagskrá er stjórnarkjör. Knattspyrnufélagið Valur 1.DEILD KVENNA Eva skoraði átla Eva Baldursdóttir skoraði átta mörk fyrir FH er liðið sigraði Hauka, 17:13, í 1. deiid kvenna í handknattleik í gær. Staðan í leik- hléi var 11:7 fyrir Katrín FH. Friðriksen Haukar byrjuðu bet- skrífar ur en um mjðjan fyrri hálfleik náði FH yfirhöndinni og hélt henni. Mörk FH: Eva Baldursdóttir 8, Heiða Ein- arsdóttir 3, Rut Baldursdóttir og Helga Sigurðardóttir 2 hvor, Kristln Pétursdóttir og Berglind Hreinsdóttir eitt mark hvor. Mörk Hauka: Margrét Theódórsdóttir 5/3, Steinunn Þorsteinsdóttir 3, Björk Hauks- dóttir 2, Halldóra Matthiesen, Hrafnhildur Pálsdóttir og Ragnheiður Júlíusdóttir eitt mark hver.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.