Morgunblaðið - 22.03.1988, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1988
KATZENBERG
DÁÐADRENGURINN
HJÁ DISNEY
Katzenberg við upptöku Big Business, með Lily Tomlin, í miðið, og Bette Midler.
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Það eru breyttir tímar hjá Di-
sney-fyrirtækinu. Fyrir örfáum
árum var kvikmyndaarmur þess
ákaflega rislár, hálfgerður
brandari ef undan eru skyldar
vandaðar teiknimyndir, sem af
og til stungu upp kollinum, svo
og einstaka fjölskyldumynd sem
dró að sér athygli. Við svo búið
sáu forráðamenn þess að mátti
ekki standa og stofnað var nýtt
kvikmyndaf ramleiðsluf yrirtæki,
Touchstone, innan Buena Vista,
dreifiarms Disney-veldisins.
Markmið þess var að hefja fram-
leiðslu þess efnis sem vinsælast
var — og er — á markaðnum —
fullorðinsmynda. Undir gamla
merkinu er haldið áfram sem
fyrr að gera gott barna- og fjöl-
skylduefni.
En Touchstone-nafninu fylgdu
engir töfrar. Fyrstu myndirnar
gengu illa enda toppfólkið í kvik-
myndaborginni ekki auðfúst að
ganga til samvinnu við hið nýja
„spurningarmerki" hins þung-
lamalega Disney-risa. Það var
þá sem ungur stjórnandi hjá
Paramount var ráðinn til að veita
Touchstone forystu og sú ráðn-
ing hefur reynst heldur betur
happadrjúg. Katzenberg hefur
gert kraftaverk, á örfáum árum
rifið kvikmyndaarm Disney úr
stöðnun og fábreytni í næst-
stærsta kvikmyndaveldið í Holly-
wood. Hér á eftir verður þessi
galdramaður, umtalaðasti stjórn-
andi í Hollywood þessa dagana,
kynntur nánar.
lukkan er sjö að
morgni þegar
svartur Mustang
sveigir inná
Ventura-hrað-
brautina. Meðan
Los Angeles sef-
ur úr sér dreggj-
ar laugardagsnæturinnar og a.m.k.
tvær milljónir láta sig dreyma auð-
fengna frægð og frama, heldur Jef-
frey Katzenberg til vinnu sinnar
með símann við hendina og 500
númer í kollinum. Katzenberg selur
drauma. Walt Disney-kvikmynda-
verinu, sem hann veitir forstöðu,
vegnar betur en nokkurn óraði fyr-
ir. 1984, er hann kom til skjalanna,
maraði Disney í hálfu kafi, í níunda
sæti af níu dreifingarrisum. í árslok
1987, knúið áfram af jólasmellinum
Three Men and a Baby, skaust
Disney framhjá Wamer Bros uppí
annað sæti fyrir árið í heild. Hinn
37 ára Katzenberg á sér ekki
drauma, heldur markmið. Og Para-
mount, hvar hann eyddi fyrstu tíu
árum sínum ! Hollywood og reis
uppí starf forstjóra framleiðslu-
deildar, er enn, ólíðanlega, í fyrsta
sæti.
Er Mustanginn rennur í hlaðið á
kvikmyndaverinu — Katzenberg
seldi Porsche-bifreið sína eftir að
hann hafði næstum kálað sér við
að hringja í símann og skipta um
gír samtímis — hefur hann lokið
fimmta símtali dagsins. Þar sem
dagur er að rísa byrjaði hann á
austurströndinni, og á Robert Cort,
sem er þar önnum kafinn að fram-
leiða mynd með Tom Cruise fyrir
Disney.
„Þú þarft ekki að semja sögur
um Jeffrey," segir Cort. „Ég get
gengið að honum klukkan sex á
laugardagsmorgni á skrifstofunni
og hvar sem hann fer tekur hann
starfið með sér. Hann er ótrúlega
afkastamikill." Hann er meistari
tveggjamínútna símtala. „Hæ,
hvemig gengur?“ byijar hann.
Hann á 600 slík símtöl á viku sem
gefa honum nauðsynlegar upplýs-
ingar til að hafa betur í þeim iðn-
aði sem hann hefur valið sér að
lífsstarfi.
„Til að byija með langar þig að
gera grín að þessum kvikmynda-
versstjóra sem þeytist fram úr sjálf-
um sér,“ segir Ted Danson, sem
neitaði Three Men and a Baby í
þrígang áður en Katzenberg hrein-
lega þjarmaði að honum uns hann
tók að sér að leika með þeim Tom
Selleck og Steve Guttenberg. „At-
orka hans er svo ógnvekjandi til
að byija með að þú óskar að finna
á honum snöggan blett.“
Að venju er Mustanginn fyrstur
á stæðið. Á meðan Katzenberg var
hjá Paramount — áður en hann kom
til Disney að reka kvikmyndaverið
fyrir Michael D. Eisner, hinn nýja
stjómarformann Disney-veldisins -
gerðu menn sér það til gamans að
reyna að vinna lengur eða mæta
fyrr en Katzenberg. Hann var aldr-
ei sigraður. „Og það sem verra
var,“ segir leikarinn og leikstjórinn
Leonard Nimoy, „þú snertir vélar-
hlífina á bílnum hans og hún var
þegar orðin köld.“
Sem ungur stjómandi hjá Para-
mount, tókst honum að ná síma-
sambandi við Sam Cohn, hinn vel
þekkta umboðsmann í New York,
þrátt fyrir þá staðreynd að Cohn
er alræmdur fyrir að svara ekki í
síma. Katzenberg skipaði einkarit-
ara sínum að hringja í Cohn á 10
mínútna fresti, dagana út og inn.
„Ég er með leðurhúð", segir hann.
„Synjun er hluti framvindunnar.
Ef ég tæki það persónulega vissi
ég ekki hvemig ég ætti að komast
framúr á morgnana. Ég er svo van-
ur neitunum að mér bregður illa
ef einhver segir ,já“. Barry Levin-
son var fyrsti leikstjórinn sem við
sendum „Good Morning, Vietnam“.
Hann sagði já. Það gerist í fimm
skipti af 10.000. Ef ég þarf að
hringja í einhvern á tíu mínútna
fresti, daginn út og inn, geri ég
það. Sam Cohen lærði það eftir
fyrstu mánuðina að auðveldara var
að svara fyrsta símtali mínu en að
hafa mig rígbundinn við skrifstof-
una allan daginn.“
Katzenberg situr á berangurs-
legri skrifstofu sinn í Disney-kvik-
myndaverinu. Hvítir veggir, hvít
teppi, hvítt skrifborð, hvítir glugga-
hlerar frá lofti til gólfs. Ekkert til
að trufla hárnákvæman þankagang
hans annað en tvær litlar myndir
af fjögurra ára gömlum tvíbumnum
hans og blá minnisblöð, þakin tillög-
um til starfsfólksins. Áð venju er
glas af Diet Coke við hendina. Hef-
ur „aldrei tekið inn ólöglegt efni“,
rétt rekið tunguna í áfengi ef skyld-
an kallar. Dós af Diet Coke bíður
hans á skrifborðinu að morgni;
hann svolgrar í sig 12 til 18 slíkar
á dag. Þar til fyrir ári hataði hann
bragðið af Diet Coke og drakk Diet
Pepsi. Þegar svo Disney-skemmti-
garðamir gerðu samkomulag við
Coca-Cola, skipti Katzenberg sam-
dægurs yfir — liðsandinn til fyrir-
myndar. Og hann ákvað að hætta
reykingum er bytjað var á Star
Trek, fyrstu kvikmyndinni sem
hann fékk að hafa yfímmsjón með
hjá Paramount. „Þetta var stressað-
asta augnablik æfinnar, ég vissi að
ef ég gæti hætt þá væri ég hættur
að eilífu," segir hann.
Katzenberg stjómar „sjóinu" hjá
Disney en snilli Eisners er unhverf-
is og allt í kring. „Vegna óheyrilegs
vinnutíma fóm gæði vinnunnar
framhjá fólki,“ segir James L.
Brooks, leikstjóri og handritshöf-
undur Broadcast News. „Allir álitu
fáránlegar vinnustundimar sem
uppbætur á því sem hann hafði
ekki af að státa. Enginn gerði sér
grein fyrir að hann hefur afburða
greind, ekkert minna.“
Til þessa hafa 15 af 17 myndum
Katzenberg — sem flestar em gam-
anmyndir — slegið í gegn. The
Color of Money, með Paul Newman
og Tom Cmise, hefur ein haft af
þeim dým stjörnum að státa sem
em í svo miklu uppáhaldi hjá hinum
kvikmyndavemnum. í staðinn hefur
Disney dustað rykið af kvikmynda-
stjömum, hverra nýjustu myndir
hafa bmgðist, eða notað sjónvarps-
stjörnur sem hafa ekki átt vel-
gengni að sækja á hvíta tjaldinu -
Bette Midler, Richard Dreyfuss,
Danny DeVito, Robin Williams,
Tom Selleek, Ted Danson og Shell-
ey Long.
Líkt og þeir menn sem ráku kvik-
myndaverksmiðjurnar á fjórða ára-
tugnum, er Katzenberg stuttur og
kotroskinn og ástfanginn af kvik-
myndum. Sem þeir, hefur hann litla
tilfínningu fyrir sögunni, rétt kann-
ast við nöfn einsog Carl Laemmle
og Harry Warner, en hann er að
brydda upp á nýjungum. „Vel-
heppnuð störf fylgja í kjölfarið,"
segir Barry Diller, stjómarformaður
20th Century Fox og fyrmm hús-
bóndi þeirra beggja, Eisners og
Katzenbergs, hjá Paramount.
„Katzenberg er að gera eina stór-
virkið í kvikmyndabransanum í dag
því hann hefur afmarkað hann fyr-
ir sjálfan sig.“
Það sem Katzenberg hefur skap-
að er samansaumað kvikmyndaver
— „það er ekki hægt að umbera
nirfilshátt þeirra,“ segir Sam Cohn
— með því að leggja áherslu á að
semja handritin, ástríðufullri
umönpun fyrir smáatriðum, hafa
lag á að ginna unga höfunda að
skrifa uppá langtíma samninga með
loforðum um tækifæri að fá að leik-
stýra eða framleiða og hæfni að
skjalla eða hóta leikumm og leik-
stjómm til að þiggja minni laun þar
en annarsstaðar. „Starfsferill minn
var í rúst,“ segir Bette Midler, er
hún útskýrir hversvegna hún var
tilbúin að skrifa undir einkasamn-
ing við Disney eftir myndirnar
Down and Out in Beverly Hills og
Ruthless People, 10. og 8. vinsæl-
ustu mynd 1986. „Afhveiju ætti ég
ekki að treysta þeim?"
Undirbúningsferill mynda Disney
er harðneskjulegur og samningarnir
stífir. Framleiðendum á samningi
em tryggðir 225 þús. dalir, en ann-
arsstaðar hljóðar sú upphæð að
meðallagi uppá 350 þús. dali. í of-
análag er þeim ætlað að gera tvær
myndir á ári, gagnstætt einni á
tveggja ára fresti hjá öðmm kvik-
myndaverum. „Jeffrey er ósmeykur
við að segja: „Þú átt að fá minna
vegna þeirra forréttinda að vinna
fyrir Disney,“ er haft eftir Katzen-
berg. Og hann æpir líkt og smánað-
ur biðill, ef leikari kýs að gera
samning við annað kvikmyndaver.
Hvað sem því líður, njóta topp-
leikstjórar sama ftjálsræðis hjá
Disney og annarsstaðar, þá kvik-
myndataka er hafin.
Katzenberg var heppinn að taka
við Touchstone, merki til að fram-
leiða myndir fyrir fullvaxta, stofnað
1984 af tengdasyni Walt Disney,
Ronald L. Miller. Touchstone-
myndir Katzenbergs fylgja einföld-
um uppskriftum, frekar notast við
fleiri leikara en eina stjörnu. Stöku
sinnum, sbr. Three Men and a Baby,
er hugmyndin fengin að láni úr
öðmm myndum, í þessu tilfelli ný-
legri, franskri. „Allar okkar myndir
byggjast á mjög sterkri og fmm-
legri gmndvallarhugmynd," segir
Katzenberg. „Við beijumst við að
finna viðfangsefni sem grípur
áhuga áhorfenda á skipulagslaus-
um markaði. Og við gemm þetta
um of. „Three Men . . .“ er hin end-
anlega hefndarmynd konunnar;
með því að skora á þijá pipar-
sveina, sem lifa karlrembulífi, að
annast ungbarn, knýr það um-
heiminn að opna augun fyrir því
að ungbarnagæsla er ekkert smá-
mál. Og myndir okkar marka stefn-
ur. Við hófum gerð gamanmynda
fyrir fullorðna því enginn annar var
að því.“
Klukkan níu að morgni sunnu-
dags eftir þakkargjörðardag, geng-
ur Katzenberg niður Mickey
Avenue, aðalgötu Disney-kvik-
myndaversins. Hann heldur á fjór-
um lítmm af appelsínusafa, stórri
kampavínsflösku og sætabrauði.
Ekkert annað kvikmyndaver tíma-
setur markaðsfundi á sunnudags-
morgnum. Að fundi loknum mun
hann gera grín að þvingunarhvöt
sinni með því að segja: „Gleðilega
þakkargjörðarhelgi og takið ykkur
frí sem eftir er dagsins." Hann
hefur lofað að dansa á fundarborð-
inu — versta niðurlæging sem hann
getur hugsað sér — morguninn eft-
ir ef miðasala laugardagsins á
Three Men . . . hefur farið yfir 4
millj. dala. (Sem hún og fer, og
fimm vikum síðar Vérður Three
Men... önnur myndin í kvik-
myndasögunni sem leiðir hópinn á
þakkargjörðardag, jólum og nýári;
Rocky IV var sú fyrsta. Og 18. jan-
úar gekk Katzenberg skrefí lengra,
er hann lagðist á fundarborðið eftir
að Good Moming, Vietnam, með
Robin Williams, tók inn 11,7 millj.
dala í vikunni sem myndinni var
dreift um þver og endilöng Banda-
ríkin.
Þegar Katzenberg útlistar mis-
muninn á Disney og öðmm kvik-
myndaverum, segir hann: „Það eru
25 hlutir sem við gemm, engin rót-
tæk áform." Eftirtekt smáatriða er
undirstaða þessara 25 hluta. Katz-
enberg skrifaði eitt sinn viðkomandi
umsjármönnum bréf þar sem hann
tilkynnti að salemi væri bilað á
ákveðnum stað í einum skemmti-
garðinum. Fyrir skömmu mælti
hann sjálfur með teikningum af
böngsum og köttum sem Sears og
McDonald munu selja til að auglýsa
Oliver and Company, nýja teikni-
mynd. „Við notum ekki rófur —
slæm sölumennska að veifa róf-
unni,“ segir hann.
„Við tökum aldrei óþarfa