Morgunblaðið - 22.03.1988, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1988
Stýrímannaskólinn í Reykjavík:
Fjórir luku
prófi skipherra
VIÐ Stýrimannaskólann í
Reykjavík luku nýlega 12 nem-
endur 200 rúmlesta réttinda-
námi og 4 nemendur luku skip-
stjórnarprófi 4. stigs-prófí skip-
herra á varðskipum Landhelgis-
gæslunnar.
200 rúmlesta réttindanámið er
haldið skv. ákvæðum til bráða-
birgða í lögum nr. 112/1984, sem
sett voru í tíð Matthíasar Bjama-
sonar samgönguráðherra, þar sem
ákveðið var að skipstjómarmönn-
um, sem hefðu starfað í a.m.k. 24
mánuði á undanþágu hinn 1. jan-
úar 1985 skyldi boðið upp á nám-
skeið til öflunar „takmarkaðra
skipstjómarréttinda" eins og segir
í lögunum.
Námskeiðin gáfu annars vegar
80 rúmlesta skipstjómarréttindi og
hins vegar að því loknu 200 rúm-
lesta réttindi í innanlandssigling-
um eftir 10 vikna framhaldsnám-
skeið.
Krafíst var ákveðinnar lág-
markseinkunnar í sjómannafræð-
um (siglingareglum, siglingafræði,
stöðugleika) svo og í stærðfræði
og íslensku til að geta setið fram-
haldsnámskeiðið. Alir nemendur
luku vikunámskeiði í slysavömum
og eldvömum í Slysavamaskóla
sjómanna, Sæbjörgu.
Nemendur hófu nám 1. septem-
ber sl. og stóð 80 rúmlesta nám-
skeiðið í 14 vikur með prófum. Auk
kennslu í almennum greinum og
sjómannafræðum fengu nemendur
stutt námskeið í fískmeðferð, með-
ferð loftskeytatækja og í skyndi-
hjálp; 16 nemendur luku 80 rúm-
lesta réttindaprófí stuttu fyrir jól
og héldu 12 þeirra áfram námi á
10 vikna framhaldsnámskeiði fyrir
200 tonna réttindin.
Þeir luku allir prófí nú í janúar
mðe ágætum árangri; fímm nem-
endur fengu ágætiseinkunn, þrír
1. einkunn og ijórir luku með 2.
einkunn. Hæstu einkunnir hlutu
Ármann Ámi Stefánsson, Akra-
nesi og Magnús Sigmar Aðal-
steinsson frá Hvammstanga, báðir
með ágætiseinkunn 9,38. Aðra
hæstu einkunn fengu Baldur Ara-
son, Hvammstanga, Meyvant Ein-
arsson, Grindavík og Omar Val-
geir Karlsson, Hvammstanga, sem
voru allir með 9,15, sem er ágætis-
einkunn.
Námskeið þetta er síðasta rétt-
indanámskeiðið sem haldið er skv.
fyrrgreindum lögum, en námskeið-
unum skyldi lokið á skólaárinu
1986—1987. Með sérstakri heimild
var leyft að ljúka 200 rúmlesta
námskeiðum fyrir þá, sem höfðu á
árinu 1986 lokið 80 rúmlesta námi.
Frá þvf námskeið þessi hófust
haustið 1985 hafa 178 sjómenn
lokið námi og öðlast skipstjómar-
réttindi. Námskeiðin hafa verið
haldin vítt og breitt um landið
undir faglegri umsjón Stýrimanna-
skólans í Reykjavík í samvinnu við
framhaldsskóla á viðkomandi stað.
Námskeið voru haldin í Keflavík,
Grundarfírði, Stykkishólmi,
Dalvík, Húsavík, ísafírði,
Hólmavík, Sauðárkróki og Ól-
afsvík. Auk þess vora haldin sér-
stök námskeið við Stýrimannaskól-
ann í Vestmannaeyjum og í umsjá
hans. 143 sjómenn hafa lokið 200
rúmlesta réttindanámi en 35 hafa
eingöngu lokið 80 rúmlesta námi,
sem með fullnægjandi framhalds-
einkunn er forsenda þess að kom-
ast í framhaldsnámið.
Skipstjórnarstig 4. stigs —
varðskipadeild
Vegna ónógrar þátttöku undan-
farin ár hefur skipstjómardeild 4.
stigs, þaðan sem nemendur ljúka
prófí skipherra á varðskipum ríkis-
ins og réttindum til kennslu í stýri-
mannaskólanum, ekki verið haldin
sfðan árið 1982, en auk þessara
réttinda veitir deildin rétt til inn-
göngu á 2. önn útgerðardeildar við
Tækniskóla íslands samhliða stúd-
entum.
Nú í vetur sátu 5 nemendur í
deildinni. Inntökuskilyrði er að
hafa lokið 3. stigi með 1. einkunn
í meðaleinkunn, þ.e. 7,5 eða hærra
og náð 1. einkunn í siglingafræði,
ensku og stærðfræði. Fjórir nem-
endur luku nú prófí frá deildinni
með eftirfarandi árangri: Einar
Heiðar Valsson, Reykjavík, 8,21,
1. einkunn, Halldór Benóný Nellet,
Reykjavík, 8,50, 1. einkunn, Krist-
ján Marinó Önundarson, Vest-
mannaeyjum, 8,79, 1. einkunn,
Ómar Orn Karlsson, Reykjavík,
8,86, 1. einkunn.
Einn nemandi mun væntanlega
ljúka prófínu í vor við venjuleg
vorpróf skólans.
Hæstu samanlögðu einkunn í
siglingafræði við öll prófstig skip-
stjómamámsins hlaut Halldór
Benóný Nellet, 39 stig, en aðra
hæstu samtölu hafði Ómar Öm
Karlsson, 37 stig. Þeir fengu báðir
verðlaun frá verðlaunasjóði Guð-
mundar B. Kristjánssonar skip-
stjóra og siglingafræðikennara við
Stýrimannaskólann í nær 40 ár.
Halldór Benóný Nellet fékk áletrað
armbandsúr, gullslegið, en Ómar
Öm áletraða skipsklukku. Frá
skólanum vora veitt bókaverðlaun
fyrir góða frammistöðu í námi og
ástundun.
Við þessa útskrift tveggja
bekkja höfðu 14 nemendur af 16
einkunnina 10 f skólasókn, sem er
97—100% mæting. Þar af höfðu 5
nemendur 100% mætingu.
Fyrir hæstu einkunn í íslensku
á 200 rúmlesta réttindanámi fékk
Magnús Sigmar Aðalsteinsson
Njáls sögu áritaða.
Refabændur aðvaraðir
Dómsmálaráðuneytið hefur
sent lögreglu og sýslumönnum
um land allt tilmæli um að refa-
bændur verði aðvaraðir vegna
möguleika á skemmdarverkum,
en nokkuð hefur verið um þau f
refabúum f nágrannalöndunum.
Ekkert bendir þó til þess að
skemmdarvargar hafi í hyggju
að heimsækja ísland.
Hjalti Zóphónfasson, deildarstjóri
í dómsmálaráðuneytínu, sagði að
þessi tilmæli væra almenn eðlis og
ekkert óvenjulegt við þau. „Það var
útlendingaeftirlitið sem vakti at-
hygli okkar á skemmdarverkum
dýravemdunareamtaka í refabúum
í nágrannalöndunum og þá var tal-
in ástæða til að benda lögreglu á
þennan möguleika," sagði Hjalti.
„Mér skilst að þessi skemdarverk
erlendis hafí oftast nær verið unnin
með þeim hætti að úða málningu
yfír refína og eyðileggja með því
feldina. Því þykir rétt að lögreglan
geri refabændum grein fyrir þessu,
en við eram alls ekki að lýsa yfír
einhveiju neyðarástandi, langt f frá.
Dómsmálaráðuneytið sendir oft út
slíkar upplýsingar."
IHgrigimbtabib
MelsöhMið á hveijum degi!
Nemendur og kennarar varðskipadeildar við Stýrimannaskólann í Reykjavík skólaárið 1987—1988.
Fremsta röð frá vinstri, nemendur varðskipadeildar: Sævar Berg Gíslason, Akranesi, Halldór Benóný
Nellet, Reykjavík, Einar Heiðar Valsson, Reykjavík, ómar Örn Karlsson, Reykjavík, og Kristján Marinó
Önundarson, Vestmannaeyjum.^ Önnur röð frá vinstri, kennarar: Kristján Jónsson, Jón Finnbjömsson,
Hrafnkell Guðjónsson, Guðjón Ármann Eyjólfsson skólastjóri, Benedikt H. Alfonsson, Tryggvi Gunnars-
son, Þorvaldur Ingibergsson og Sigurður Steinar Ketilsson. Þriðja röð frá vinstri: Grírnur Ólafsson,
Pálmi Hlöðversson og Jón Þór Bjaraason.
Nemendur og kennarar Stýrimannaskólans f Reykjavfk við 200 rúmlesta námskeið. Fremsta röð frá
vinstri: Pálmi Hlöðversson kennari, Vilmundur Vfðir Sigurðsson kennari, Helga Nikulásdóttir kennari,
Guðjón Ármann Eyjólfsson skólastjóri, Ásmundur Hallgrfmsson kennari og Þorvaldur Ingibergsson
kennari. önnur röð frá vinstri: Gunnar Jakobsson, Akureyri, Baldur Arason, Hvammstanga, Karl
Vfdalfn Grétarsson, Sandgerði, Jón Þór Bjaraason kennari, Ármann Árni Stefánsson, Akranesi, Mey-
vant Einarsson, Grindavik, og Halldór Pétur Andrésson, Hellissandi. Þriðja röð frá vinstri: Ómar Val-
geir Karlsson, Hvammstanga, Eðvald Daníelsson, Hvammstanga, Magnús Sigmar Aðalsteinsson,
Hvammstanga, Kristinn Bjaraason, Blönduósi, Haraldur Valgeir Schou Hinriksson, Keflavfk og Hrólfur
Þórhallsson, Bakkafirði.
Ekki á morgun,
ekkihiim, ekkihinn,
heldnr hinn
26.mars...