Morgunblaðið - 22.03.1988, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1988
Kölnarferðir verkalýðsfélaganna:
Nokkur hundruð
miðar enn óseldir
KÖLNARFERÐIRNAR, sem BSRB, VR og 7 smærri stéttarfélög
buðu félagsmönnum sínum til sölu um helgina, seldust ekki upp.
Aðeins hjá BSRB, seldust öll sæti og talsverður fjöldi skráði sig á
biðlista. Alls höfðu félögin 9 um það bil 2000 sæti til ráðstöfunar
og var óselt í meira en 500 þeirra á mánudagsmorgun.
Auk BSRB og VR voru það Sam-
band íslenskra bankamanna,
Verkakvennarfélagið _ Framsókn,
Starfsmannafélagið Sokn, Verslun-
armannafélag Hafnarfjarðar,
Verslunarmannafélag Ámessýslu,
Félag jámiðnaðarmanna og félag
bifvélavirkja, sem áttu aðild að
samningum við Lionair um þriggja
vikna orlofsferðir til Kölnar. BSRB
INNLENT
og VR höfðu 600 sæti til ráðstöfun-
ar hvort, SÍB 240 sæti, Framsókn
og Sókn 120 sæti hvort félag, bif-
vélavirkjar 160 sæti, jámiðnaðar-
menn 80 sæti og verslunarmanna-
félögin tvo 40 sæti.
Að sögn Péturs Maack hjá Versl-
unarmannafélagi Reykjavíkur hef-
ur mikið verið spurt um ferðirnar
hjá félaginu og voru þær enn að
seljast. Hann sagði að félögin ætli
að bjóða félagsmönnum sínum ferð-
imar til sölu frameftir þessari viku
en þá verði afgangi, ef einhver verð-
ur, ráðstafað til þeirra sem em á
biðlistum hjá BSRB. Pétur sagði
að ekki kæmi á óvart að enn væm
til miðar í ferðimar þrátt fyrir lágt
verð. Bæði veigri fólk sér við að
standa í löngum biðröðum, eins og
Talsverður hópur safnaðist saman við skrifstofur VR áður en
sala farseðlanna hófst og höfðu fáeinir beðið frá því um miðja nótt.
Morgunblaðið/Jóhannes Long
Eins og sjá má var örtröð á skrif-
stofu Verslunarmannafélagsins
þegar sala Kölnarferðanna stóð
sem hæst.
þeim sem hefðu myndast við húsa-
kynni félagsins á sunnudagsmorg-
un, og staðfestingar yfirvalda á
lendingarleyfum vegna ferðanna
ekki hefðu borist fyrr en í lok
síðustu viku. Því kvaðst hann eiga
von á að það sem eftir væri af
miðum seldist nú næstu daga.
Norræna húsið:
Háskólatónleikar
Flutt verk eftir Chopin, Jónas
Tómasson og Szymanowski
NÍUNDU Háskólatónleikar á
vormisseri verða haldnir í Nor-
ræna húsinu, miðvikudaginn
23. mars kl. 12.30. Á tónleikun-
um flytja þær Anna Júlíana
Sveinsdóttir og Lára Rafns-
dóttir verk eftir F. Chopin, Jón-
as Tómasson og K. Szymanow-
ski.
Fyrst á efnisskránni em tvö lög
eftir Chopin við ljóðin Hringurinn
eftir Witwickiego og Yndið mitt
eftir Mickiewicza. Chopin er fyrst
og fremst þekktur fyrir píanó-
tónsmíðar sínar, en þó liggja eftir
hann nokkur sönglög, samin á
ýmsum tímum ævi hans. Þessi
sönglög voru flest samin í nokkr-
um flýti, en samt einkennast þau
af hans persónulega stíl og bera
snilligáfu hans fagurt vitni. At-
hygli vekur, að Chopin, hinn mikli
píanóvirtúós, leggur áherslu á ein-
faldleik í píanóundirleiknum, sem
er fyrst og fremst til stuðnings
söngvaranum, og millispil eru
hógvær og melódísk.
Næst á efnisskránni er nýtt lag
Jónasar Tómassonar við ljóð Nínu
Bjarkar Ámadóttur, Hvíti trúður-
inn. Jónas samdi lagið sérstaklega
fyrir Önnu Júlíönu í tilefni af tón-
listarhátíð í Björgvin í vor. Þetta
er frumflutningur í Reykjavík.
Síðast á efnisskránni eru
Söngvar óða bænahaldarans eftir
Karol Szymanowski við ljóð Iwas-
zkiewicz. Szymanowski var af
vellauðugri, pólskri aðalsætt, sem
tapaði eigum sínum í rússnesku
byltingunni, en Rússar réðu Póll-
andi í þá daga. Eftir fyrri heims-
styijöldina settist Szymanowski
að í Varsjá, og árið 1926 varð
hann skólastjóri Tónlistarháskól-
ans þar í borg. Þangað til hafði
hann verið á eilífu flakki, heimilis-
laus heimsborgari, bæði sem mað-
Lára S. Rafnsdóttir
ur og tónskáld, en nú var hann í
frjálsu Póllandi, og varð pólskur
„allt í gegn“, enda ber tónlist
hans þess mjög merki. Szym-
anowski var „lýrískt" tónskáld,
en jafnframt er tónlist hans full
ástríðu. Hann strengdi tilfinninga-
Anna Júliana Sveinsdóttir
sviðið til hins ýtrasta — nálgast
stundum jafnvel algleymið. Szym-
anowski samdi Söngva óða bæna-
haldarans árið 1918, en á þeim
tíma hreifst hann mjög af menn-
ingu Austurlanda. I söngvunum
gætir áhrifa arabískra tónstiga
(einkum í fyrsta laginu), og hafa
þessi lög eflaust þótt framandi
fyrir 70 árum. Söngvar óða bæna-
haldarans, Hringurinn og Yndið
mitt eru til í íslenskri þýðingu
Jóns R. Gunnarssonar.
(Fréttatilkynning)
Skák:
M A vann
framhalds-
skólamótið
A-SVEIT Menntaskólans á Ak-
ureyri vann skákmót fram-
haldsskólanna um helgina og
er það í fyrsta skipti sem skák-
sveit utan Reykjavíkur vinnur
þetta mót.
Allt kepptu 24 sveitir á mótinu
og voru tefldar 7 umferðir eftir
monradkerfí. Sigursveitin fékk
21V2 vinning af 28 mögulegum
og skipuðu hana Amar Þorsteins-
son, Tómas Hermannsson, Magn-
ús Pálmi Ömólfsson og Bogi Páls-
son.
í öðru sæti var A-sveit Verzlun-
arskólans með 20 vinninga og í
3. sæti var A-sveit Fjölbrautar-
skólans í Ármúla með 19V2 vinn-
ing.
Skákmennimir frá MA munu
væntanlega verða fulltrúar íslands
á Norðurlandamóti framhalds-
skóla í skák, sem fer fram hér á
landi næsta haust.
Harmóníku- og flautu-
leikarar á ferð um landið
Tónleikar í Reykjavík, Akureyri, Bolungarvík og ísafirði
HRÓLFUR Vagnsson harmóníkuleikari heldur, ásamt Elsbeth
Moser harmonikuleikara og Christa Eschmann þverflautuleikara,
nokkra tónleika víðs vegar um landið næstu daga. Fyrstu tónleik-
amir verða í kvöld í Fríkirkjunni í Reykjavik og hefjast klukkan
20.30. Á fimmtudagskvöldið verða tónleikar í Tónlistarskólanum
á Akureyri, á sunnudaginn í Bolungarvík, heimabæ Hrólfs og á
miðvikudag eftir viku verða síðustu tónleikarnir haldnir á ísafirði.
Morgunblaðið/Bjami
Christa Eschmann, Hrólfur Vagnsson og Elsbeth Moser.
Á efnisskrá tónleikanna eru
meðal annars umskrifuð verk eft-
ir Mozart, J.S. Bach, Solér og
fleiri og tónlist samin fyrir hljóð-
færin eftir Jacoby og Finnann
Tiensuu. Hrólfur og Elsbeth leika
bæði á hnappharmónkíu, hljóð-
færi sem Hrólfur segir að síaukn-
um vinsældum að fagna og gefi
mun meiri möguleika, tæknilega,
en „venjulegar" harmóníkur.
Hrólfur Vagnsson er fæddur í
Bolungarvík og lærði þar á hljóð-
færi sitt um skeið áður en hann
hélt til Reykjavíkur þar sem hann
nam hjá Emil Adolphssyni. Frá
1981 hefur hann verið við nám í
Hannover Þaðan lauk Hrólfur
kennaraprófi 1986, prófi úr fram-
haldsdeild í nóvember síðastliðinn
og er nú að hefja nám við einleik-
aradeild skólans.
Kennari Hrólfs við einleikara-
deildina í Hannover er Elsbeth
Moser, annar meðleikara hans á
ferðinni um landið. Elsbeth Moser
er svissnesk en hefur gegnt próf-
essorsstöðu við tónlistarskólann í
Hannopver síðastliðin 5 ár. Hún
hefur haldið fjölda tónleika víðs
vegar um Evrópu og komið fram
í útvarpi og sjónvarpi víðs vegar
um álfuna. Elsbeth Moser hefur
tekið þátt í mörgum alþjóðlegum
samkeppnum og tónlistarhátíðum
og heáir hlotið fyrstu verðlaun í
samkeppnum harmóníkkuleikara í
Evian og Annemasse í Frakklandi
og í Klingenthal í Þýskalandi. Árið
1979 fékk hún Sprengel-verðlaun
Hannoverborgar. Meðal tónlistar-
manna sem Elsbeth Moser hefur
komið fram með má nefna Gidon
Kremer fiðluleikara og David Ger-
ingas sellóleikara.
Christa Eschmann þverflautu-
leikari hefur, eftir að hún lauk
námi frá tónlistarháskólunum í
Bremen og Hannover, sótt tíma
hjá Chang-Kook Kim, Peter Luk-
as Graf og Silliam Bennet auk
þess sem hún hefur komið fram
á tónleikum og leikið í sjónvarpi
víðs vegar í Þýskalandi og Japan.
Hrólfur Vagnsson sagðist í
samtali við Morgunblaðið vilja
hvetja alla áhugamenn um harm-
oníkuleik til að koma og hlýða á
tónleikana. Tónlistin væri að vísu
ekki sú sem hérlendir harmóníku-
unnendur heyrðu vanalega leikna
á hljóðfærin, en hún væri frábær
og sýndi vel þá möguleika sem
harmóníkan byggi yfir. Hrólfur
sagði að hann og meðleikarar
hans vildu gjaman hitta tónleika-
gesti að máli að loknum tónleik-
um, heyra þeirra álit og segja frá
tónlistinni og hljóðfæranum.