Morgunblaðið - 22.03.1988, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1988
Tveir góðir kæliskáparfrá
SIEMENS
Frystir, kælir og
svali í einum skáp
• 165x60x60 sm (hxbxd).
• 671 fjögurra stjörnu
frystihólf.
• 1541 kælirými.
• 80lsvalarýmitilað
geyma einkum ávexti
og grænmeti.
Sannkallað
forða-
búr heimilisins
182x60x57 sm (hxbxd).
67 I fjögurra stjörnu
frystihólf.
180lkælirými.
761 útdreginn svala-
vagn til að geyma m.a.
flöskur, grænmeti og
ávexti.
KV3146 KV3546
Hjá SIEMENS eru gæði, ending og
fallegt útlit ávallt sett á oddinn.
SMITH&
NORLAND
Nóatúni 4 - Sími 28300
Fróóleikur og
skemmtun
fyrir háa sem lága!
Bandarískir þingmenn heimsækja átakasvæði í Hondúras:
Ovefengjanlegar sannanir
fyrir innrás sandinista
Washington. Reuter
Bandarískir þingmenn, sem
fylgdust með æfingum banda-
rískra hermanna í Hondúras,
sögðust hafa fengið óvéfengjan-
legar sannanir þess að hersveitir
sandinista í Nicaragua hefðu ráð-
ist inn í Hondúras.
Ronald Reagan, Bandaríkjafor-
seti, sendi 3.200 fallhlífarhermenn
til Hondúras í síðustu viku, eftir
að hersveitir sandinista réðust inn
í landið í sókn gegn contraskærulið-
um, sem berjast gegn stjóm sandin-
ista í Nicaragua.
Reuter
ísraelskur hermaður ræðst hér á liggjandi palestínska konu á með-
an aðrir Palestínumenn hlaupa í burtu. Palestínskar konur efndu
til mótmæla á Vesturbakkanum í gær.
ísrael:
Hvatt til harðari árása
á ísraelska hermenn
Jerúsalem, Reuter.
LEIÐTOGAR UNLU, neðanjarð-
arhreyfingar á hernumdu svæð-
unum í ísrael, hvöttu til þess í
gær að Palestínumenn hertu ár-
ásir sínar á ísraelska hermenn
og á gyðinga. Daginn áður hafði
ísraelskur hermaður verið drep-
inn, og í gær var Palestínumaður
skotinn til bana.
Leiðtogamir hvöttu Palestínu-
menn til að herða „mótmælaaðgerð-
imar gegn ísraelska hemum og
huglausu landnemunum með því að
kasta steinum, Molotov-kokkteilum
og jámkylfum." Ekki var minnst á
skotvopn, en þau hafði frelsisher
Palestínumanna, PLO, bannað.
Liðsmaður í heimaliði ísraels var
skotinn til bana daginn áður þegar
hann var á eftirlitsferð í Betlihem.
ísraelski herinn tilkynnti á sunnu-
dag að hermönnum hefði verið fyr-
irskipað að skjóta án viðvörunar á
alla þá mótmælendur sem staðnir
væru að því að kasta bensínsprengj-
um. í gær var Palestínumaður skot-
inn til bana á Gaza-svæðinu, þegar
þess var minnst að 20 ár em liðin
síðan ísraelar réðust inn í Jórdaníu.
í gær höfðu 103 fallið í óeirðun-
um á hemumdu svæðunum. Á ráð-
stefnu ICO, samtaka 46 íslamskra
þjóða, sem hófst í Amman í Jórd-
aníu í gær verður fjallað um ástand-
ið á hemumdu svæðunum.
Sjö fulltrúadeildarþingmenn, sem
sæti eiga í nefnd, sem fjallar um
málefni Bandaríkjahers, kynntu sér
ástandið á landamæmm Hondúras
og Nicaragúa um helgina. Fylgdust
þeir meðal annars með því er 650
bandarískir fallhlífarhermenn svifu
niður á flugvöll, sem er aðeins 30
kílómetra frá landamærum Nic-
aragua.
Bob McEwen, fulltrúadeildar-
maður repúblikana frá Ohio, sagði
að þingmönnunum, sem vom bæði
úr röðum demókrata og repúblik-
ana, hefðu verið sýnd gögn er sönn-
uðu að sveitir sandinista hefðu ráð-
ist inn yfir landamæri Hondúras.
Fullvíst væri að hluti sveitanna
hefðu verið þar enn á laugardag.
Þingmennimir styðja allir tilraunir
Reagans til þess að fá þingið til að
samþykkja nýjar fjárveitingar til
kontra-skæmliða. Þeir sögðu að
birgðir kontra-skæmliða yrðu senn
á þrotum og því væri bráðnauðsyn-
legt að koma þeim til hjálpar.
Yfirvöld í Hondúras sögðu að
varpað hefði verið sprengjum á
sveitir sandinista innan Hondúras á
laugardag. Var það önnur loftárás-
in á sveitir sandinista á þremur
dögum. Sögðu yfirmenn í her lands-
ins á laugardag að sandinistar
hefðu ekki enn dregið heri sína til
baka frá Hondúras. Yfirvöld í
Managua vísuðu þessu á bug og
sögðu að sprengjum hefði verið
varpað á landssvæði innan Nic-
aragua. Var því harðlega mótmælt
í Managua að sveitir sandinista
hefðu ráðist inn í Hondúras.
George Shultz, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði að ekki væri
ráð fyrir því gert að bandarísku
hermennimir, sem sendir hefðu ver-
ið til Hondúras, tækju þátt í hern-
aðaraðgerðum Hondúrashers vegna
innrásar sveita sandinista. Hins
vegar væri ekki hægt að útiloka
beina þátttöku þeirra í bardögum,
ef ósk þar að lútandi bærist frá
ríkisstjóm Hondúras.
■ ■I ^
\f/
ERLENT,
Bankabréf Landsbankans eru traust og arðvænleg fját:
festing. Þau eru gefin út af Landsbankanum og aðeins seld
þar. Bankabréfin eru með endursölutryggingu sem
skuldbindur Landsbankann til að sjá um endursölu
innan ákveðins tíma.
Sé greiðsla fyrir gjaldfallm Bankábréf ekki sótt strax, bera þau
almenna sparisjóðsvexti þar til greiðslu er vitjað.
Bankabréf Landsbankans eru eingreiðslubréf með gjalddaga eftir eitt til
fimm ár. Þau fást í 50.000,-, 100.000,- og 500.000,- króna einingum.
Nánari upplýsingar fást hjá Verðbréfavið-
skiptum, Laugavegi 7 og hjá verðbréfa-
deildum í útibúum bankans um land allt.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna