Morgunblaðið - 22.03.1988, Qupperneq 58

Morgunblaðið - 22.03.1988, Qupperneq 58
58 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1988 Maren Eyvinds- dóttir - Kveðjuorð Fædd 9. maí 1915 Dáin 26. febrúar 1988 Hún var fædd í Útey í Laugardal og voru foreldarar hennar hjónin Katrín Bjamadóttir og Ejrvindur Eiríksson, sem þar bjuggu. Hún var elst sex systkina og hefur það ver- ið glaðvær og tápmikill hópur, sem þar ólst upp. Bar Maja þess vott hvar sem hún fór, að ekki hafði hún verið þústuð í uppvextinum. Árið 1937 giftist hún Sigurfínni Guð- mundssjmi frá Brekkum í Mýrdal. Fjrrstu árin var heimili þeirra í Reykjavík og á Stokkseyri. En árið 1942 fluttust þau á Hæðarenda í Grímsnesi og bjuggu þar til ævi- loka. Þau eignuðust fímm böm sem em talin í aldursröð: Svanhildur Helga, gift Grími Davíðssyni, þau eiga þijú böm og fímm bamaböm. Ejrvindur Karl, kvæntur Önnu Garðarsdóttur, þau eiga þijú böm. Guðmundur Rafn, ókvæntur. Lauf- ey, gift Haraldi Haraldssjmi, þau eiga tvö böm. Birgir, kvæntur Maríu Andrésdóttur, þau eiga þijú böm. Fljótlega eftir að þau fluttu á Hæðarenda hófust þau handa við búreksturinn af dugnaði og atorku. Það varð fljótt ljóst um alla sveit að þangað hafði flust dugmikið fólk, glaðvært og gestrisið. Var ekki síst rómaður dugnaður húsfreyjunnar og fijálslegt viðmót, sem gerði henni létt að umgangast alla, háa sem lága. Gestkvæmt var á Hæða- renda og öllum vel tekið. Gestrisni og greiðasemi virtust vera sameign fjölskyldunnar. En óhjákvæmilega mæðir mest á húsfreyju að sinna þörfum gesta. Og þrátt fyrir þrot- lausar annir við búrekstur og heim- ilishald, virtist Maja alltaf hafa nógan tíma til að blanda geði við þá sem þar bar að garði. Mun marg- ur minnast glaðra, genginna stunda í hópi góðra vina á Hæðarenda. En þótt oftast væri glatt og kátt á Hæðarenda fóru örðugleikar ekki þar hjá garði. Árið 1956 brann bærinn, án þess þó að slys yrði af. Lítið sem ekkert mun hafa bjargast af innbúi. Þetta var mikið áfall, og kom sér nú sem oftar vel dugnaður og bjartsýni húsfreyjunnar. Auk þess átti hún svo þjála lund að hún gat óbuguð tekið í þær hjálpar- hendur, sem þeim voru úr ýmsum áttum réttar af þessu tileftii. Og er mér enn í minni þakklæti þeirra hjóna til þeirra er studdu þau í þessum erfíðleikum. Aftur var haf- ist handa við uppbygginguna og nú voru elstu bömin komin til hjálp- ar. Þá er þess að geta að hús- bóndinn var um árabil sjúklingur. Dvaldi hann langdvölum á Vífíls- stöðum og stóðu honum þar jafnan opnar djrr. En allt eins oft kaus hann að vera heima, enda fékk hann þar þá bestu umönnun sem á varð kosið. Og heima lauk lífí hans vorið 1984. Maja bjó afram á Hæðarenda með Guðmundi sínum, sem frá unglingsárum hefur verið stoð og sfytta foreldra sinna, og jmgsta sjminum Birgi, sem nú er kominn með fjölskyldu. Urðu sonarbömin ömmu sinni miklir gleðigjafar, ekki síst litla stúlkan Maren. Fyrstu kjmni okkar Maju voru á Héraðs- skólanum á Laugarvatni veturinn 1931—32. Að prófum loknum fór- um við hvor í sína áttina og vissum ekki hvor um aðra. En svo rúmum áratug seinna skolaði okkur báðum upp í Grímsnes. Hófust þá kynni okkar að nýju, og varð af vinátta við nánarí kjmni. Seinna kom í ljós að við vomm dálítið skyldar og höfðum við oft gaman af að minna hvora aðra á frændsemina, sem að vísu var ekki náin. Ef ég ætti að lýsa henni Maju veit ég ekki á hveiju ég ætti að byija, svo margt var það í fari hennar sem frásagnar er vert. Dugnaður hennar við bú- rekstur og heimili brást aldrei. En það var henni ekki nóg. Hún átti Qölda hugðarefna sem hún lagði rækt við. Hún var bókhneigð og þrátt fyrir langan vinnudag mun oftast hafa verið litið í bók að hon- um loknum. Hún hafði gaman af margskonar handavinnu s.s. mynd- flosi og leðurvinnu sem hún stund- aði talsvert á tímabili. Hún safnaði steinum, blómum og ýmsum fáséð- um munum. Og hún hafði lifandi áhuga á því að taka mjmdir. Náði hún oft mjög góðum árangri, jafn- vel listrænum. Engan áhuga hafði ég á þessu síðast talda, og skopað- ist jafnvel að því. En hún mátaði mig þá með því að senda mér hvað eftir annað mjmdir úr ferðum okkar eða samkomum kunningja. Og um þær gat ég aðeins notað þetta gamla orðtæki: „Verkið lofar meist- arann". Ef mér fannst tilveran óþarflega grá var oft nærtækt að hringja til Maju. Hjá henni var allt- af eitthvað að gerast. Oft benti hún mér á nýjar bækur sem hún hafði komist yfír, sagði mér jafnvel meg- ininnihald í einu símtali. Eða þá að hún var nýkomin „að sunnan" og hafði heilsað uppá afkomendur í þijá ættliði. Alltaf bættist við og hveiju nýju lífí fagnað af alhug og með bjartsýni. Slík lífstrú hlýtur að hafa bætandi áhrif á allt um- hverfí. Kærar þakkir sendi ég Maju fyr- ir góðar samverustundir og vináttu alla. Bömum hennar, íjölskyldum þeirra og öðrum aðstandendum sendi ég einlægar samúðarkveðjur. Blessuð veri minning hennar. S.Á. Okkur langar til að kveðja frænku okkar, Maju á Hæðarenda, með nokkrum orðum því að í okkar huga skipar hún sérstakan sess. Það var alltaf svo einstaklega skemmtilegt að koma að Hæðar- enda því að Maja og Sigurfínnur tóku þannig á móti manni, að það var eins og væri verið að gera þeim greiða með því að koma austur. Leið okkar lá því æði oft þang- að, bæði meðan við vorum lítil og eins eftir að við stækkuðum. Það var með okkur eins og aðra sem kjmntust heimilinu að Hæðarenda, að þeir komu alltaf aftur og aftur í heimsókn. Á stóru heimili eins og þar var oft mikið að gera en alltaf var tími til að setjast niður við stóra eldhúsborðið og fá sér kaffísopa með gesti sem að garði bar, sem oft voru þó æði margir, sérstaklega á sumrin. Þá naut glaðværð hús- freyjunnar sín vel og ef einhver var eitthvað utangátta þá var ýtt við honum því enginn mátti verða út- undan í gleðskapnum. Maja 'var fædd í Útey í Laugar- dal 9. maí 1915, elst sex bama hjónanna Katrínar Bjamadóttur frá Höfða í Biskupstungum og Eyvind- ar Eiríkssonar bónda í Utey. Hún ólst upp hjá foreldrum sínum og eftir venjulega bamafræðslu á þeim tíma, var hún tvo vetur á héraðs- skólanum á Laugarvatni. Síðan fór hún til Reykjavíkur og vann þar þangað til hún giftist Sigurfínni Guðmundssyni frá Brekkum í Mýrdal, mætum manni og harðdug- legum. Eftir nokkur ár í Reykjavík fluttu þau austur fyrir fjall og byggðu nýbýlið Gmnd á Stokks- eyri. Þar var stundaður bæði land- búnaður og sjósókn en Sigurfinnur hafði áður stundað sjó í nokkur ár og verið mjög eftirsóttur sakir dugnaðar. Eftir fá ár keyptu þau jörðina að Hæðarenda í Grímsnesi. Þegar þau fluttu að Hæðarenda kom best í ljós afburða dugnaður þeirra hjón við að brejrta jörðinni úr koti í stór- býli, bæði í ræktun og byggingum. Þau Maja og Sigurfínnur eignuð- ust fímm mannvænleg böm sem öll lifa foreldra sína. Sigurfinnur andaðist árið 1984. Við systkinin viljum þakka fyrir allar ánægjustundimar sem við átt- um að Hæðarenda. Bömum þeirra hjóna og fjölskyldum þeirra sendum við okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Stefán Eyvíndur, Katrín, Jónína og Páll Svavar. t Móðir okkar og fósturmóðir, MARGRÉT GUÐMUNDSDÓTTIR frá Á, Skarðshreppi, Dalasýslu, lést í Landspítalanum 19. þessa mánaðar. Jón Bjarnason, Ástvaldur Bjarnason, Trausti Bjarnason, Svanhildur Valdlmarsdóttir og fjölskyldur. t HERMANN GUÐMUNDSSON, Sundstræti 13, ísafirði, andaöist á sjúkrahúsi ísafjaröar laugardaginn 19. mars. Fyrir hönd vandamanna, Lilja Guðmundsdóttir. t Maöurinn minn, JÓN HJÖRTUR JÓNSSON, andaöist í Sankti Jósepsspítala í Hafnarfirði að morgni 20. mars. Guðríður Einarsdóttir. t Móðir mín, amma okkar og langamma, SIGURLAUG JÓNSDÓTTIR, lést á Hrafnistu 18. mars sl. Jón Hilmar Jónsson, Hilmar Jónsson og fjölskylda, Gunnar R. Jónsson og fjölskylda, Jón Grétar Jónsson. t EYJÓLFUR BJARNASON, Langholtsvegi 79, lést í Borgarspítalanum aðfaranótt föstudagsins 18. mars. Fyrir hönd vandamanna, Anna Pálsdóttir. t Bróðir minn og móðurbróðir, BIRGIR SIGURÐSSON, andaðist á heimili sínu Eiríksgötu 35, 20. þ.m. Sonja Slgurðardóttir, Ólafur Valdimars. t Eiginmaður minn, sonur, faðir okkar, stjúpfaðir og afi, ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON fyrrverandi sóknarprestur, skólastjóri íSkúlagarði I Kelduhverfi, varð bráðkvaddur fimmtudaginn 17. mars. Útförin ferfram frá Garðskirkju laugardaginn 26. mars kl. 14.00. Rósa Jónsdóttir, Ingveldur Guðný Þórarinsdóttir, Guðný Þórarinsdóttir, Halldóra Þórarinsdóttir, Þórður Þórarinsson, Þórarinn Þórarinsson, Ragnhildur Þórarinsdóttir, Jón Arnar Hauksson, Guðrún Dalía Salómonsdóttir. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÁRSÆLL JÓNSSON húsasmíðameistari, Heiðarbraut 63, Akranesi, lést föstudaginn 18. mars í Sjúkrahúsi Akraness. Útförin fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 25. mars kl. 14.15. Blóm og kransar vinsamlega afþökkuö. Þeim sem vildu minnast hins látna er bent á Krabbameinsfélag íslands. Margrót Ágústsdóttir, Guðmundur H. Ársælsson, Hrafnhildur Ingólfsdóttir, Guðrún J. Ársælsdóttir, Peter Elbek, Edda H. Ársælsdóttir, Angantýr V. Jónasson, Gunnar H. Ársælsson, Maria I. Gunnbjörnsdóttir og barnabörn. Móðir mín t GUÐRÍÐUR JÓNSDÓTTIR, Grettisgötu 41, lést á heimili sínu 19. mars. F.h. aðstandenda Gunnar Pétursson. t Móðir okkar, ÓLAFÍA KRISTÍN KJARTANSDÓTTIR frá Kaldrananesi, Hringbraut 81, Keflavfk, lést í sjúkrahúsi Keflavíkur fimmtudaginn 17. mars. Jarðsett verður frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 24. mars kl. 14.00. Kristin Kristvinsdóttir, Ingibjörg Kristvinsdóttir og Guðbrandur Kristvinsson. t Eiginkona mín, SÓLRÚN VILHJÁLMSDÓTTIR, Hringbraut 89, Keflavík, lést i Sjúkrahúsi Keflavíkur sunnudaginn 20. mars. Pótur Benediktsson.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.