Morgunblaðið - 25.03.1988, Blaðsíða 15
B 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. MARZ 1988
NIYIMDDOND
Sæbjörn Valdimarsson
WXRNER HOME VIDEO
OHUGNANLEGT
ALDARFAR
Vísindaskáld-
sögumynd
BLADE RUNNER ★ ★ ★
Leikstjóri: Ridley Spott.
Handrit! Hampton Fancher og
David Peoples.
Sérstakar brellur: Douglas
Trumbull.
Tónlist: Vangelis.
Aðalleikendur: Harrison Ford,
Rutger Hauer, Sean Young, Ed-
ward James Olmos, M. Emmet
Walsh, Daryl Hannah.
Bandarisk. Warner Bros 1982.
WHV 1983. Steinar 1988. 114
min.
Það er vel til fundið að gefa þessa
ágætu framtíðarfantasíu út núna á
nýjan leik, því þrátt fyrir augljósa
galla er hún jaftian nokkuð spenn-
andi valkostur í framandleika sínum
og frumlegheitum.
Sögusviðið er Los Angeles árið
2020, allt venjulegt fólk hefur flúið
Móðir Jörð, sem hýsir nú einungis
trantaralýð og furðufugla. Ford
leikur harðsnúinn lögreglumann
sem hefur fengið það verkefni að
hafa uppá og tortíma fjórum vél-
mennum sem eru illgreinanleg frá
mannverunum, en voru forrituð til
drápa útí geimnum og er forboðið
að stíga fæti á jörðu . . .
Aðall Blade Runner eru einkar
minnisstæð leiktjöld og svið. Sú
framtíðarsýn sem hér birtist af stór-
borgum Jarðar er heldur ókræsileg.
Saggi, skítur og hálfmyrkur. Allt í
meiri og minni niðurlægingu,
mannlíf og umhverfi. Heildarsvip-
urinn er grípandi í framandleik
sínum og hugmyndaauðgin geysi-
leg. Hinsvegar er efni og efnismeð-
ferð upp og ofan. Blade Runner er
fyrst og fremst kræsileg fyrir augað
enda undir stjóm stílistans Ridley
Scott, (Aliens, The Duellist, Leg-
.end, Someone To Watch Over Me).
Og leikhópurinn forvitnilegur, hér
má sjá þær Sean Young, (No Way
Out, Wall Street) og Daryl Hannah,
(Splash, Clan of the Cave Bear,
Legal Eagles), stíga ein sín fyrstu
spor framan við kvikmyndatökuvél-
amar.
STALMENNI
Vísindaskáldsöqu-
mynd
ROBOCOPA’ ★ ★ >/2
Leikstjóri: Paul Verhoeven.
Handrit: Edward Neumeier og
Michale Miner.
Tóniist: Basil Poledouris.
Kvikmyndalökustjóri: Jost Vacano.
Hönnuður: Robocops Rob Bottin.
Klipping: Fyank J. Urioste.
Aðalleikendur: Peter Weiller,
Nancy Allen, Daniel O’Herelihy,
Ronny Cox, Kurtwood Smith,
Miguel Ferrer. Bandarísk. Orion
Pictures 1987. Orion Home
Video/Háskólabíó 1988.103 mín.
Söguhetja framtíðarvestra/
frankensteinmyndar Verhoevens er
stálmennið Robocop — hálfur mað-
ur hálfur stálbrynjað vélmenni.
Settur saman úr líkamsleifum deyj-
andi lögreglumanns í Detroit 21.
aldarinnar og hátækni tölvuþróunar
framtíðarinnar. Forritaður til að
halda uppi lögum og reglum í hinni
syndum spilltu Detroit, og eyða
glæpasoranum af götum borgarinn-
ar.
En undir niðri, bak við stálgrím-
una, brynjuna, tölvuvæddar hreyf-
ingar og útlimi drápsvélarinnar. býr
mannleg vera sem leitar uppmna
síns. Og allir telja að það sem eftir
lifði af lögreglumanninum sé út-
máð, nema lögreglukonan Nancy
Allen . . .
Það er fimakraftur í þessari
fyrstu mynd Hollendingsins Paul
Verhoevens (Soldier of Orange, The
4th Man, Flesh + Blood) í Vestur-
heimi. Mörgum ógnar líklega of-
beldið sem þó hefur verið skorið
niður í marggang. Sjálfur segir
Verhoeven að grimm aftaka lög-
reglumannsins sé nauðsynleg fram-
vindu myndarinnar, þar sem hann
hverfi svo snemma af sögusviðinu.
En myndin gerist á miskunnarlaus-
um tímum þegar lögreglumönnum
er stútað líkt og tómum bjórdósum.
Þungamiðjan, stálmennið Robocop,
gnæfír yfír myndinni, hrollvekjandi
afurð framtíðartækninnar — útlitið
fengið að láni úr hinni rösklega
sextíu ára gömlu Metropolis, eftir
Lang. Og endurskoðun hans á sínu
nýja, hálfmennska sjálfí, kjami sög-
unnar. Hún forðar Robocop frá því
að vera einhliða, innantóm aftöku-
mynd, þar sem unnið er eftir upp-
skriftinni gömlu, að reyna að drepa
tíma áhorfenda með stanslausum
átökum. Svo sannarlega er ekki
dauður punktur í myndinni, en það
sem gefur henni meira gildi en
prýðilegum, vinsælum afþreying-
ar-átakamyndum nútímans, er
samúð okkar með örlögum mann-
eskjunnar bak við grímuna.
Verhoeven var fjári nærri því að
skapa minni háttar klassík með
Robocop. Söguþráðurinn er magn-
aður, spennan sífelld, sviðin valin
og gerð af smekkvísi og drungaleg-
um skoðunum á framtíðinni. Atriðin
þegar stálmennið er að ranka við
sér á sjúkrahúsinu/tölvusmiðjunni,
eru í senn afbragðsvel gerð, rökrétt
og úthugsuð. Og þó að leikurinn
og leikaravalið sé óvenjugott, eink-
um á skúrkunum, þá er það hið
mennska, þó ekki mennska af-
kvæmi framtíðarvísindanna,
Robocop, sem á hug mann allan
eftir sýningu. Afbragðsmynd.
OGNIR EYÐNI-
PLÁGUNNAR
Drama
AN EARLY FROST^ ★ ★
Leikstjóri: John Erman.
Handrit: Ron Cowan og Daniel
Lipman.
Tónlist: John Kander.
Aðalleikendur: Aidan Quinn,
Gena Rowlands, Ben Gazzara,
Syivia Sidney. Bandarísk. NBC
1985. Víedeóhöllin 1988.98 mín.
Ungur, vel metinn lögfræðingur
(Quinn), sem ekki hefur enn getað
tjáð foreldrum sínum að hann sé
hommi, fær að vita að hann hafi
smitast af alnæmi. Sambýlismaður
hans verður skelfingu lostinn en það
eru foreldramir, sem Quinn kvíðir
mest fyrir að tjá hryllileg örlög sín.
Móðir hans (Rowlands) tekur
váfréttunum með skelfingu, skiln-
ingi og samúð, en faðirinn (Gaz-
zara) þarf sinn tíma til að kyngja
sannleikanum.
Þessi hljóðláta mynd segir í
skynsamlegum texta sínum meira
um eðli hinnar ógnvekjandi
nútímaplágu, en margir bæklingar
og dregur upp raunsæja mynd,
óýkta í alla staði, af andlegum þján-
ingum allra aðstandenda. Rauði
þráðurinn er einfaldur en styrkur
hans er að hér koma við sögu sjón-
armið allra persóna harmleiksins;
elskhugi sjúklingsins, fjölskylda,
aðrir sjúklingar og læknar. Höfund-
ar varast alla fordóma og kveif-
arskap í texta, hér er að öllum
líkindum dregin upp eins sönn mynd
af þessari ólæknandi plágu og skelf-
ingum hennar og unnt er.
Þetta er að sjálfsögðu raunaleg
saga, eins og eftiið býður, og sögð
af mikilli tilfinningu. Leikaramir
eiga allir lof skilið, ekki síst Quinn,
sem hér sýnir á sér nýja hlið (og
um þessar mundir fer piltur með
hlutverk Kowalskis í Streetcar
Named Desire á Broadway) og
gömlu vinirnir og stórleikaramir,
Rowlands og Gazzara, bregðast
ekki frekar venju og glæða myndina
sterkum, mannlegum tilfinningum.
An Early Frost er vel gert og nauð-
synlegt innlegg í umræðuna um
þennan skelfilegasta vágest samt-
ímans.
CASSANDRA
KLIKKAR
Hrollvekja
CASSANDRA^ ★
Leikstjóri: Colin Eggleston.
Tónlist: Robert Clayton.
Kvikmyndatökustjóri: Gary
Wapshott.
Aðalleikendur: Shane Briant,
Briony Behets, Kit Taylor, Lee
James, Tim Burns, Jeff Trueman
og Tessa Humphries sem Cass-
andra. Aströlsk. Cassandra
Production Pty. Ltd. 1987. Virg-
in Video 1987, Steinar 1988.
Efnisþráðurinn byggist á kunnu
viðfangsefni úr mörgum hrollvekj-
um á liðnum árum: Martröðum sem
snúast í veruleika. Það er rakið af
kunnáttusemi framan af, áhorfend-
ur vita ekki hvaðan á þá stendur
veðrið, en því miður, leikstjóri og
handritshöfundur halda ekki
slemmuna út og Cassandra koðnar
niður í máttlausa endaleysu. Það
sem hefði getað orðið virkilega.
magnaður, sálfræðilegur þriller
dagar uppi á ráðaleysi handrítsins
fyrst og fremst, söguþráðurinn fer
í flækju og sumar persónumar
verða alltof ógreinilegar.
Leikurinn og ytra borð myndar-
innar er í engu samræmi við klént
innihaldið því Cassandra er prýði-
lega leikin og tekin og í bestu atrið-
unum bólar á mikið betri mynd,
mynd sem hefði verið fengur í.
Sumir vakna
„> DuSoP‘W° —°v
sén^Él
•Sveigjanleikl gúmmtsins
trygglr rétta fjöðrun.
Latex dýna
Latex dýnan er eina dýnan á markaðnum
sem gerð er úr ekta náttúrugúmmíi.
Latex dýnan fjaðrar vel og veitir líkamanum
góðan stuðning. Þyngri líkamshlutar sökkva hœfi-
lega djúpt í dýnuna en hún veitir jafnframt stuðning
undir hina léttari.
Stabiflex rúmbotn
Stabiflex er einstaklega traustur og vandaður
rúmbotn sem hentar sérstaklega vel undir Latex
dýnuna. Samspil dýnu og rúmbotns er þar í full-
komnu samrœmi við hreyfingar og þyngd Ifkamans.
•Hryggsúlan helst bein *Stablflex rúmbotninn er sniðinn undir Latex
og það slaknar á vððvum. dýnuna - samvirkandi og hljóðlaust kerfi.
* Latex gúmmíið baegir
♦Lottrœstikerfi heldur frb iy|<j og sýklum.
loftinu hreinu og raka-
• Fallegt áklœði stiginu réttu.
að eigin vali.
Of hörð dýna.
Of mjúk dýna
Latex dýnan: Dýnan lagar sig að
Ifkamanum - hryggsúlan er beln.
LYrSJADUn
•Botnrammlnn er gerður
úr nfðsterku Ifmtré.
SMIÐdUVEGI 4 KÓPAVOGI SÍMI 79788
♦ Þverrimlamir eru gerðlr úr llmtré *Þverrimlamir hvfla á veltiörmum
og bogna upp á við um miðjuna úr gúmmíi sem hreyfast eftir
- eru sveigjanlegir. þrýstingi.
• Hcegt er að hœkka rúmPotninn
undir höfði og fótum.