Morgunblaðið - 31.03.1988, Side 60

Morgunblaðið - 31.03.1988, Side 60
- 60 C MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1988 Bandaríkin: Nýjar reglur um réttindi al- næmissj úklinga Waahington, Reuter. STJÓRNVÖLD í Bandaríkjunum hafa sett reglur um réttindi opinberra starfsmanna sem sýkst hafa af alnæmi og segja þeir er gerst þekkja að með þeim hafi orðið grundvallarbreyting á stefnu stjórnar Ronalds Reagans Bandaríkjaforseta í þessu efni. í reglunum er kveðið á um að alnæmissjúklingar sem starfa á vegum hins opinbera megi vinna svo lengi sem þeir treysta sér til. Þá er einnig heimilt að ávíta þá starfsmenn sem neita að starfa með þeim sem tekið hafa sjúk- dóminn. Bandarískir embættis- menn kveðast vonast til að meiri- hluti bandarískra fyrirtækja setji sams konar reglur um rétt starfs- manna sinna. Opinberir starfsmenn í Banda- ríkjunum munu vera um þrjár milljónir og segja þeir sem barist hafa fyrir réttindum alnæmis- sjúklinga í Bandaríkjunum að reglurnar sem nú hafa verið sett- ar marki grundvallarbreytingu á stefnu Bandaríkjastjórnar í þessu efni. „Reglurnar virðast geta komið að miklum notum," sagði Urvashi Vadi formaður samtaka bandarískra homma. „Við fögnum sérstaklega þeirri áherslu sem lögð er á að samstarfsmenn alnæ- missjúklingar verði fræddir um eðli sjúkdómsins," bætti hann við. Fyrir um tveimur árum úr- skurðaði bandaríska dómsmála- ráðuneytið að leyfilegt væri að reka starfsmenn sem talið væri að gætu smitað samverkamenn sína. í nýju reglunum segir hins vegar að opinberir starfsmenn geti ekki neitað að vinna með al- næmissjúklingum á þeim forsend- um að þeir óttist smit, engin lækn- isfræðileg rök hafi verið lögð fram sem réttlætt geti þá afstöðu. Rúmlega 54.000 alnæmistilfelli hafa verið greind í Bandaríkjun- um og hefur sjúkdómurinn dregið tæplega 32.000 manns til dauða samkvæmt upplýsingum heil- brigðisyfírvalda. Bladió sem þú vaknar vió! frá PROGRESS gerir húsverkin að léttri sveiflu. Besta verðið á V-þýskri ryksugu á markaðnum. Mo?«tss Með kröftugum 1100 Watta mótor. p»6e>fss Með stillanlegum sogkrafti frá 400 - 1100 Wött. að með kaupum á Chevrolet Monza er peningum þínum varið í rúmgóðan og ríkulega búinn fjölskyldubíl sem hannaður hefur verið eins og fyrir íslenskar aðstæður? Þú getur valið um fjórar mismunandi útgáfur af Monza, allt frá Monza SL/E með 1,8 lítra vél, beinskiptingu og vökvastýri til lúxusbílsins Monza Classic S/E með 2 lítra vél og sjálfskiptingu, auk alls lúxusbúnaðar og meira að segja fullkomnu þjófavarnarkerfi. Láttu ekki hjá lida ad reynsluaka ^■■■■I Chevrolet Monza áður en þú /w' Verð írá kr. 549.000. - ÆBRmBsSf ~

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.