Morgunblaðið - 07.04.1988, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 1988
9
VISUM TILVEGAR
ÁVERÐBRÉFA
Kaup, sala og endurfjárfesting.
Kaupþing.
Miðstöð verðbréfaviðskiptanna.
WBSs
I
hf., Reykjavík,
SÖLUGENGI VERÐBRÉFA ÞANN 7.APRÍL
EININGABRÉF 1
EININGABRÉF 2
EININGABRÉF 3
LÍFEYRISBRÉF
KAUPÞING HF
Húsi verslunarinnar • sími 68 69 88
Óskhyggja Þjóðviljans
Úrklippurnar hér að ofan eru forsíðufyrirsagnir á Þjóðviljanum.
Hin efri er frá 9. mars og hin síðari frá 16. mars. í efri fréttinni
er sagt frá verkfalli Snótar í Vestmannaeyjum en því var hætt
hinn 18. mars án þess að samningar hefðu náðst, en í þeirri
neðri eru Þjóðviljamenn að spá fram í tímann í verkfallsanda
Alþýðubandalagsins. Segja þessar fyrirsagnir meira en mörg
orð. í Staksteinum í dag er staldrað við þessar forsíður Þjóðvilj-
ans en einnig við heitingar Tímans og framsóknarmanna í garð
ungra sjálfstæðismanna og Þjóðviljann og kjarnorkubombuna.
Dæmið gekk
ekkiupp
Hemaðaráætlun nýrr-
ar forystu Alþýðubanda-
lagsins vegna kjarannmn-
inganna, sem nú eru
viðast um garð gengnir,
var sú að nota þá sér til
framdráttar með einum
eða öðrum hætti og var
ófriður á vinnumarkað-
inum með verkföllum
ekki útilokaður i þvi sam-
hengi. Enginn gat farið
í grafgötur um að Ólafur
Ragnar Grimsson og fé-
lagar vildu að í kjara-
samningunum yrðu
menn varir við að nýir
menn hefðu verið kjömir
til forystu i Alþýðu-
bandalaginu. Af verka-
lýðsmönnum valdi Ólafur
Ragnar formann verka-
lýðsfélagsins Jökuls á
Höfn i Homafirði, Bjöm
Grétar Sveinsson, til
samstarfs við sig i æðstu
stjóm Alþýðubandalags-
ins. Kom Bjöm Grétar
talsvert við sögu, þegar
samningamálin vom á
sérstöku stigi, svo sem
þegar deilt var um, hvort
menn skyldu hittast til
viðræðna i Reykjavík eða
ekki; á hinn bóginn
heyrðist minna frá hon-
um þegar samningurinn
sjálfur var gerður við
félag hans og annarra á
Akureyri.
í stuttu máli er unnt
að fullyrða að sú spenna
skapaðist aldrei, sem
Ólafur Ragnar og félag-
ar vildu að myndaðist í
kjaraviðræðunum, og
forsíðufyrirsagnir Þjóð-
viljans um verkföll vom
þvi litíð annað en ósk-
hyggja. Þegar rætt er
um 'hlut Alþýðubanda-
lagsins og forystusveitar
þess í nýafstöðnum
samningum er athyglis-
vert að veha þvi eftírtekt
að sjálfur forsetí Al-
þýðusambandsins, As-
mundur Stefánsson, kom
aldrei við sögu samning-
anna, að minnsta kostí
ekki opinberlega. Ef til
vill telur Ólafur Ragnar
sig geta hrósað sigri inn-
an flokksins með visan
til þess, að sér hafi tekist
að einangra forseta ASÍ
í kjarasamningum?
Sérkennileg-
ur ofstopi
Tíminn hefur gripið til
sérkennilegs málflutn-
ings i sambandi við PLO
og Steingrím Hermanns-
son, utanríkisráðherra. í
forystugrein blaðsins á
skírdag var farið áratugi
aftur í tímann i stjóm-
málaskrifum, þegar blað-
ið hélt þvi annars vegar
fram að ungir sjálfstæð-
ismenn hafi lýst stuðn-
ingi við kynþáttastefnu
Suður-Afríku og sagði
síðan: „Ungir sjálfstæðis-
menn hafa nú sldpað sér
í hðp með ýmsum öfga-
öflum kenndum við ný-
fasisma."
Ami Sigfússon, for-
maður Sambands ungra
sjálfstæðismanna, hefur
i Morgunblaðsgrein mið-
vikudaginn 30. mars
svarað þeim sérkenni-
lega útúrsnúningi fram-
sóknarmanna á stefnu
ungra sjálfstæðismanna,
að þeir styðji aðskilnað-
arstefnuna í Suður-
Afríku. Sýnir það mál-
efnafátækt og slæma
málefnastöðu, að fram-
sóknarmenn tejji sig
þurfa slík vopn. Hitt er
þó tíl marks um ótrúleg-
an ofstopa, að kenna
unga sjálfstæðismenn við
nýfasisma. Staksteinar
hafa litíð þannig á, að
orðbragð af þessu tagi
væri horfið úr íslenskri
stjómmálabaráttu. Yrði
það teldð upp fyrir til-
stilli Tímans kæmu þeir
vafalítíð fljótt fram á
völlinn, sem héldu þvi
blákalt fram, að þar sem
nasistar vom á sínum
tíma á mótí gyðingum
hlytu þeir að vera nýnas-
istar, sem tala gegn gyð-
ingum nú á tímum.
Þjóðviljinn
ogbomban
í forystugrein Þjóðvilj-
ans í gær er enn einu
sinni gælt við þá skoðun,
að líklega séu nú kjam-
orkuvopn hér á landi
þrátt fyrir allt og allt.
Eftír allt sem á nndan
er gengið í umræðum um
kjamorkuvopn og fsland
er furðulegt að þær virð-
ast hafa farið fram hjá
leiðarahöfundi Þjóðvilj-
ans. Hvemig væri að
hann kynntí sér málið og
meðal annars þá stað-
reynd að órökstutt tal
Þjóðviljamanna er ein-
ungis tíl þess fallið að
koma kjamorkustimpli á
landið og gætí þess vegna
orðið átylla fyrir hugsan-
legan árásaraðila til að
hóta okkur með kjara-
orkuvopnum, svo að ekki
sé meira sagt.
iWBaíma
Fyrirliggjandi
loftþjöppur
í stærðum frá
210-650 l/mín
með eða án loftkúts
Mjög hagstætt verð
Útsölustaöir:
LANDSSMIÐJAN HF. — Verslun
Ármúla 23 - Slmi (91 )20680
STRAUMRÁS SF. — AKureyri
Slmi (96)26988 / Qy
LOFTÞJÖPPUR
Dönsku
fötin
komin
Verð aðeins
kr. 9.450.-
H
GEtSÍB
LANDSSMIÐJAN HF.
W/////////////////////^