Morgunblaðið - 07.04.1988, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 1988
48
STRÍÐS
VETUR
Kvikmyndir
Sæbjöm Valdimarsson
REGNBOGINN:
BLESS KRAKKAR - „AU REVO-
IR LES ENFANTS"
Leikstjóri og handrit: Louis
Malle. Kvikmyndatökustjóri:
Renato Berta. Tónlist: Jean-
Claude Aðalleikendur: Gaspard
Manesse, Raphael Fejtö, Fran-
cine Racette, Stanislas Carre,
Philippe Morier, Francois Berle-
and, Francois Negret.
Líkt og í Lacombe Lucien (1973)
greinir Malle hér frá nöturlegum
bemskuminningum sínum frá
stríðsárunum. Sögusviðið er ka-
þólski skólinn í Fontainebleau, hvar
leikstjórinn stundaði nám á kalárum
hersetu Þriðja ríkisins. Janúar
1944, stríðið stendur sem hæst.
Þýski herinn er tekinn að hörfa á
austurvígstöðvunum og á Ítalíu,
Gestapo herðir þrælstök sín á hinni
undirokuðu, frönsku þjóð. Matar-
skömmtun og skortur, svartamark-
aðsbrask og gyðingaofsóknir
myrkva sjóndeildarhring skólapil-
tanna, sem í ofanálag þurfa að
þreyja óvenjulega kaldan vetur.
Manesse leikur 12 ára dreng, gáfað-
an og forvitinn, leiðtoga sem fær
mikinn áhuga á nemandanum Fejtö,
sem hefur nám um miðjan vetur,
umvafinn dularhjúpi. Þessir efnis-
drengir verða góðir vinir þó bak-
grunnurinn sé ólíkur, Manesse kom-
inn af efnuðu millistéttarfólki en
dulúðin sem umleikur hinn dökka
Fejtö er vamarveggur lífshættulegs
Ungir aðalleikarar í Bless
Krakkar, Gaspard Manesse og
Raphael Fejtö, sýna eftirminni-
legan og aðdáunarverðan leik.
leyndarmáls - gyðinglegs uppruna
hans.
Frásögn Malle af þessum ógnar-
legu æskuminningum er hljóðlát en
grípandi og segir mikið meira en
háværar, velkunnar tugmilljóndoll-
aramyndir og sjónvarpsþættir um
hryllinginn sem fylgdi þýsku her-
námi einsog dauðinn sjálfur upp-
málaður. Þar sem gyðingaofsókn-
imar og taumlaust ofbeldi „herra-
þjóðarinnar" voru skelfilegustu
þættimir. Með því að lýsa ástandinu
í hnotskum skólalífsins tekst Malle
að draga upp ljóslifandi mynd af
hryllingnum. Hvemig slíkir voða-
tímar gera suma að hetjum en aðra
að armingjum. Hvemig þeir sem
minna mega sín brotna undan farg-
inu en þeir sterku styrkjast við
hveija raun. Allir eru fómarlömb
stríðsins sem engu eirir og kæfir
bemsku nokkurra skólapilta á ein-
um, köldum vetrarmorgni árið
1944.
Geysilegur styrkur myndarinnar
felst í raunsæi skýrra minninga
Malles, meitluðu handriti og ekki
síst óvenjulega næmum leik hinna
ungu og óreyndu aðalleikara, Gasp-
ard Manesse og Rapahael Fejtö.
Maður hefur sjaldan, eða aldrei,
upplifað jafn sannan dóm yfír
stormsveitarböðlunum né fundið
jafn afdráttarlaust fyrir sekt þeirra.
Förðunar
námskeið
Öll undirstöðuatriði dag- og kvöldförðunareru
kennd á eins kvölds námskeiðum.
Aðeins 10 eru saman f hóp og fær hver þátttakandi
persónulegatilsögn.
Innritun og nánari upplýsingar
í síma 19660 eftir kl. 10:00.
Kristín Stefánsdóttir
Snyrti- og förðunarfræðingur Laugavegi 27 • Sími 19660
Kennari:
MYRKRAMAGT Á MANHATTAN
Þessir feðgar eiga svo sannarlega við djöful að etja í myndinni
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
TRÚFÉLAGIÐ -
„THE BELIEVERS“
Leikstjóri: John Schlesinger.
Handrit: Mark Frost, byggt' á
skáldsögunni The Religion, e.
Nicholas Conde. Kvikmynda-
tökustjóri: Robby MuIIer. Tónlist:
J. Peter Robinson. Aðalleikend-
ur: Martin Sheen, Helen Shaver,
Robert Loggia, Richard Masur,
Harley Cross, Jimmy Smiths.
Bandarísk. Orion Pictures 1987.
Sögusviðið er Manhattan sam-
tímans. Sálfræðingurinn Martin
Sheen, sem býr ásamt ungum syni
sínum í hinni heldur óyndislegu
spönsku Harlem, er fenginn til að
hjálpa lögreglunni við að upplýsa
morð ungra drengja sem virðast
hafa orðið fómarlömb kuklara. Viss
trúarsöfnuður dregst inní málið og
virðast sumir meðlimimir hafa sitt-
hvað gmggugt í pokahominu. Og
skyndilega lendir sonur Sheen í
höndum þeirra . . .
Schlesinger er skolli mistækur.
Maður hélt að karl væri kominn á
strik eftir hina ágætu Fálkinn og
snjómaðurinn, en hér tekur hinn
slyngi leikstjóri Midnight Cowboy
og Maraþon-mannsins enn eina
Trúfélagið.
dýfuna á litríkum, mishæðóttum
ferli. Ekki jafn slæma og Honky
Tonk Freeway en maður væntir svo
sannarlega meira af manni sem á
jafn miklar úrvalsmyndir að baki
og raun ber vitni. Polanski hefði
örugglega ekki misst hér allan
kraftinn útí soðið. Schlesinger virð-
ist ekki lagið að meðhöndla þetta
ósennilega efni, sem minnir örlítið
á Rosemary’s Baby.
Ekki svo að skilja að Trúfélagið
sé alvond mynd, öðru nær. Keyrslan
er hröð frá upphafí til enda og
margir kaflar hennar bráðspenn-
andi. Gallinn er sá að heildin er
einum um of subbuleg og sum atrið-
in næsta ósmekkleg vegna þess
neyðarúrræðis leikstjórans að sýna
áhorfendum ofaní sárin. Þá er á
mörkunum að Sheen hafi til að
bera þann nauðsynlega stjömukraft
sem með þarf til að bera uppi mynd-
ina.
VORNÁMSKEIÐ HEFST
11.APRÍL
KERFI
—ft
m fr
mWÆ
Afti
LIKAMSRÆKT OG MEGRUN
fyrir konur á öllum aldri. Flokkar sem hæfa öllum.
FRAMHALDSFLOKKAR
Þyngri tímar, aðeins fyrir vanar.
ROLEGIR TIMAR
fyrir. eldri konur eða þær sem þurfa að fara varlega.
KERFI
MEGRUNARFLOKKAR
4x í viku fyrir þær sem þurfa og vilja missa aukakilóin núna.
FYRIR UNGAR OG HRESSAR
Teygja- þrek - jazz. Eldfjörugir timar með léttri jazz-sveiflu.
Morgun- dag- og kvöldtímar,
sturta — sauna — Ijós.
Innritun hafin.
Suðurver,
sfmi 83730.
Hraunberg
sími 79988.
Allir finna
flokk við
sitt hæfi
hjá JSB
Suðurveri, sími 83750 Hraunbergi, sími 79988