Morgunblaðið - 07.04.1988, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 07.04.1988, Qupperneq 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, FTMMTUDAGUR 7. APRÍL 1988 KAPÖSALAN BORGARTÚNI22 AKGREYRI SÍMI 23509 Næg bilastæði HAFNARSTRÆTI 88 Póstsendum um land allt )msm SÍMI 96-25250 Kveðjuorð: Hilmar Norðfjörð loftskeytamaður Fæddur 2.8eptember 1906 Dáinn 24. marz 1988 í gær var kvaddur einn af eldri borgurum Reykjavíkur, Hilmar Norðfjörð, loftskeytamaður, en hann lést 24. mars sl. á 82. aldurs- ári. Höfundur þessarar minningar- greinar átti því láni að fagna að kynnast Hilmari á miðjum áratugn- um 1950—60, þegar ég hóf virkt félagsstarf í Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur. Þekkti ég þá tiltölu- lega lítið til félagsmála í Reykjavík, enda aðfluttur og reynslulaus á þessu sviði. Þörfin fyrir aðstoð góðra manna, sem báru gott skyn- bragð á ríkjandi viðhorf í Reykjavík á þeim tíma, samfara heilbrigðu mati á hvað leiða mætti til heilla í félagsstarfi, var því mikil. Einn af þeim mönnum, sem ótil- kvaddur veitti undirrituðum ómet- anlegt liðsinni í félags- og stjóm- málum þá og síðar var Hilmar Norð- §örð. Hann var kominn yfir miðjan aldur, þegar leiðir okkar lágu sam- an, ríkur af lífsreynslu og þekk- ingu. Ætíð var hann reiðubúinn til að miðla öðrum og leggja góðum málum lið. Með hógværð og lítil- læti lét Hilmar skoðanir sínar í ljósi og heyrði ég hann aldrei hallmæla nokkrum manni. Vildi hann gjaman færa allt til betri vegar og stuðla að heill manna og málleysingja. Hilmar var góður félagi. Minnist ég sameiginlegra ánægjustunda okkar og góðvinar hans, Ottós J. Ólafssonar. Þeir félagar og vinir vom léttir í lund og höfðu frá mörgu að segja af reynsluríkri ævi á sjó og í landi, en báðir vom þeir loft- skeytamenn að mennt, Reykvíking- ar og Vesturbæingar. Ómetanlegt er að hafa fengið að kynnast þessum góðu mönnum og eiga með þeim samleið. Hilmar er kvaddur í dag við það, sem áður fyrr hefði verið kallaður hár aldur. Síðustu árin átti hann við vanheilsu að stríða, en kvartaði eigi, og bar sig vel, sem var hans von og vísa. Þegar Hilmar Norðfjörð tók loft- skeytamannspróf árið 1923 og réðst í framhaldi af því sem loftskeyta- maður á togara, var öðmvísi um að litast í íslensku þjóðfélagi en í dag. Víðsvegar í sveitum landsins bjó fólk þá enn í torfbæjum. Sam- göngur á landi vom lélegar. Útgerð- in á bemskuskeiði tækniframfara og togaramir ófullkomnir á nútímavísu, þótt þeir væm bylting í fiskveiðum þeirra tíma. Sum hinna bestu fiskimiða við ísland þekktust varla, sem og þær hættur, sem gátu steðjað að á djúpmiðum í hörð- um vetrarveðmm. Hurð skall oft nærri hælum við veiðamar. Í árs- byijun 1925 er Hilmar loftskeyta- maður á togaranum Agli Skalla- grímssyni frá Reykjavík. Egill Skallagrímsson var ásamt nokkmm öðmm togumm við veiðar á svo- nefndum Halamiðum út af Vest- §örðum, þegar aftakaveður brestur á fyrirvaralaust 7. febrúar. í veður- hamnum leggst skipið á hliðina, en fyrir harðfylgi skipstjórans, Snæ- bjöms Stefánssonar, og áhafnar tekst að koma Agli aftur á réttan kjöl eftir 36 klukkustunda samfellt björgunarstarf. Var það mikið þrek- virki, því þegar þetta gerðist fómst tveir aðrir togarar á sömu miðum með 68 manns. Önnur skip komust að landi við illan leik. Halaveðrið var mikil lífsreynsla fyrir þá togara- sjómenn, sem lentu í því, og hafði einnig mikil áhrif á sjómannastétt- ina og landsmenn í heild. Þama var enn á ný undirstríkað hversu miklar hættur fylgdu fískvejðum við ís- land, jafnvel þótt þær væm stund- aðar á rammbyggðum togumm. Hilmar flíkaði ekki með þennan atburð er að framan greinir, en engum gat dulist, að hann haft mikil áhrif á lífsviðhorf Hilmars. En menn létu ekki deigan síga. Haldið var til veiða á ný og björg sótt í bú. A næstu áratugum færðu togaramir ómældan afla á land. Ekki er orðum aukið þótt sagt sé, að áhafnir íslenska togaraflotans, yfirmenn sem undirmenn, hafi á fyrri hluta aldarinnar lagt gmnninn sið þjóðarauði íslendinga með störf- um sínum. Þeir mddu nýrri tækni braut í fiskveiðum, sem skilaði margföldum árangri borið saman við fyrri vinnubrögð. Þeir hófu nýt- ingu nýrra áður óþekktra auðugra djúpmiða við landið. Islenskir sjó- menn vom sannir vormenn íslands í nútíma atvinnuháttum. Þeir skópu þann auð, sem var forsenda fram- fara og velmegunar. Veigamikill hlekkur í þessari starfsemi var starf loftskeytamannsins. Góðir skip- stjórar kappkostuðu að hafa góðar áhafnir. Góðir loftskeytamenn vom gullsígildi. Samskipti við önnur skip, upplýsingar um veiðar, veður- far og fleira skipti sköpum hvað árangur við veiðar snerti. Þá má ekki gleyma hinum veiga- mikla öryggisþætti. Það var á þess- um vettvangi, sem Hilmar starfaði í tvo áratugi á togumm hjá Kveld- úlfsfélaginu. Hélt hann mikið upp á þá Thorsbræður, sem góða hús- bændur og höfðingja mikla. Lét hann oft góð orð falla um sam- skipti sín við þá. Kynslóðir koma og kynslóðir fara. Hver kynslóð hefur sín sér- kenni og gegnir veigamiklu hlut- verki í framþróun mannkynsins. Hilmar Norðfjörð lagði gmndvöll Vmt/Á Borgarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins verða til viðtals í Val- höll, Háaleitisbraut 1, á laugar- dögum frá kl. 10-12. Er þar tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum og ábendingum og er öllum borg- arbúum boðið að notfæra sér viðtalstíma þessa. Laugardaginn 9. apríl verða til viðtals Júlíus Hafstein, formaður íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur, umhverfismálaráðs og ferðamálanefndar og í stjórn Dagvistar barna, Helga Jóhanns- dóttir, í stjórn umferðanefndar og SVR og Ingólfur Sveinsson, í stjórn heilbrigðisráðs og Sjúkrasam- lags Reykjavíkur. Gamla Vorboðinn Ijufi... ný kápa á skemmtílegu verðí! að íslensku nútímalegu þjóðfélagi. Einkenni þessarar kynslóðar var óbilandi trú á Island og því að vera íslendingur. Þessi afstaða byggðist ekki á þjóðemishroka eða stæri- læti, heldur væntumþykju á því landi, sem fóstraði landsins böm í friði og farsæld. Metnaður Hilmars Norðfjörðs og þeirrar kynslóðar er hann tilheyrði var að byggja upp þjóðfélag umburðarlyndis og vel- vilja. Arfur þessa fólks er mikill og vandmeðfarinn. Fyrir þetta er þakkað á kveðjustund. Hilmar Norðíjörð var mikill sjálf- stæðismaður og tók virkan þátt í starfsemi flokksins meðan kraftar og heilsa leyfði. Hugsjónir Sjálf- stæðisflokksins voru honum hjart- fólgnar og lagði Hilmar mikla áherslu á, að Sjálfstæðisflokkurinn starfaði á grundvelli kristilegrar siðfræði og berðist fyrir stöðu þeirra er minna mega sín í lífinu. Umtals- góður var hann með afbrigðum og lagði jafnan öðrum gott til. Með söknuði er því kvaddur góð- ur maður og þökkuð áratuga sam- fylgd. Dóttur Hilmars, Steinunni Margréti, og öðrum vandamönnum em sendar innilegar samúðarkveðj- ur. Guðmundur H. Garðarsson í gær var til moldar borinn Hilm- ar Norðfjörð, loftskeytamaður. Jón Hilmar, en svo hét hann fullu nafni, var fæddur á Sauðárkróki 2. sept- ember 1906. Foreldrar hans vom hjónin Asa Jónsdóttir og Jóhannes Norðflörð, úrsmiður og kaupmaður. Hilmar var elstur 6 bama þeirra hjóna Þegar hann var 7. ári flutti flölskyldan til Reykjavíkur og sett- ist þar að. Hilmar dváldi þá um nokkurt árabil hjá móðurforeldmm á Ásmundarstöðum í Presthóla- hreppi og minntist hann þessara æskudaga ætíð með mikilli ánægju. Þegar Hilmar hafði aldur til hóf hann nám í Verslunarskóla íslands og síðan í Loftskeytaskólanum og lauk þaðan prófi árið 1924. Næstu 20 árín starfaði hann sem loft- skeytamaður á togumm Kveldúlfs og síðan á Qarskiptadeild Veður- stofu íslands til ársins 1977, síðustu 3 árin sem deildarstjóri. Hilmar var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Ása Kjartansdóttir. Þau slitu samyistum. Dóttur áttu þau saman. Árið 1941 kvæntist Hilmar í síðara skiptið Vilborgu Oktaviu Grönvold, dóttur hjónanna Margrétar Magnúsdóttur og Gústafs Grönvold, mikilli sóma- konu. Þau hjónin eignuðust eina dóttur, Steinunni Margréti. Heimili þeirra var lengst af við Brávalla- götu. Ég minnist ótal ánægjulegra heimsókna til þessarar elskulegu Qölskyldu. Heimili þeirra var friðar- reitur, áhrifum frá ys og óróa um- heimsins var haldið utan veggja. Hilmar var mikill fjölskyldumaður og undi sér best með sínum, en gladdist jrfir heimsóknum góðra vina. Hann var hógvær og orðvar, en undir niðri bjó heitt skap. Hann leitaði ávallt hins góða í fari ann- arra og ég hygg að hann hafí kall- að fram það besta í fari samferða- mannanna. Hann var mannvinur í þess orðs bestu merkingu. Hilmar starfaði nokkuð að fé- lagsmálum, en störf hans í þágu dýravemdunar stóðu hjarta hans næst. Var hann gerður að heiðurs- félaga Sambands dýravemdunar íslands árið 1976. Konu sína missti Hilmar árið 1977. Það var honum mikill missir, enda var þá heilsu hans tekið að hraka. í nokkur ár bjó hann áfram á Brávallagötunni í skjóli Steinunn- ar dóttur sinnar, sem sýndi honum mikla ástúð og umhyggju. Dótturbömin, Stella María og Hilmar Þór aðstoðuðu og afa sinn eftir föngum og styttu honum stundimar. Síðustu æviárin dvaldi Hilmar á Hrafnistu, sáttur við Guð og menn og þakklátur fyrir alla umhyggju sem honum var sýnd. Hann andað- ist á Landakotsspítala 24. mars sl. Ég og fjölskylda mín kveðjum góðan dreng, þökkum samfylgdina og biðjum honum Guðs blessunar á nýjum vegum. Þ.S.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.