Morgunblaðið - 08.04.1988, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 1988
9
Stórglæsilegt kaffihlaðborð
verður í félagsheimili Fáks, Víðivöllum,
9. apríl kl. 15.00.
Kvennadeildin.
DAGVIST BARIVA.
BREIÐHOLT
Fálkaborg — Fálkabakka 9
Starfsmaður óskast eftir hádegi nú þegar.
Ennfremur óskast starfsmenn í afleysingar
og ræstingar.
Upplýsingar gefa forstöðumenn
í síma 78230.
Iðuborg — Iðufelli 16
Vantar fóstru í stuðning allan daginn á dag-
heimilisdeild.
Einnig vantar yfírfóstru á leikskóladeild frá
15. maí, svo og starfsmenn í sal eftir hádegi.
Upplýsingar gejur forstöðumaður
í símum 76989 og 46409.
KLEPPSHOLT
Laugaborg v/Leirulæk
Eftirtalið starfsfólk vantar á Laugaborg:
Deildarfóstru á vöggudeild frá 1. maí.
Þroskaþjálfa í stuðning frá 1. maí.
Annað starfsfólk í hálfar og heilar stöður nú
þegar.
Upplýsingar gefur forstöðumaður
í síma 31325.
VESTURBÆR
Grandaborg v/Boðagranda
Vantar fóstru eða annað starfsfólk nú þegar.
Upplýsingar gefur forstöðumaður
í síma 621855.
Skáklistin og greiðslukortin
Fyrir skömmu var lagt fram frumvarp á Alþingi um nýja tekjuöfl-
unarleið fyrir Skáksamband íslands. Flutningsmenn frumvarps-
ins vilja leggja sérstakan skatt á greiðslukortahafa sem renni
óskiptur til Skáksambandsins. Málið kom til fyrstu umræðu í
neðri deild skömmu fyrir páska og lýsti þá þingmaðurinn Geir
H. Haarde því yfir að þetta væri ótæk tekjuöflunarleið. Hann
sagðist vilja stuðla að því að fjárhagur Skáksambandsins yrði
bættur en sérstakur skattur á greiðslukort stæðist ekki frekar
en skattur á ávísanir, tékka, víxla eða aðra slíka pappíra. í Stak-
steinum í dag er gluggað í ræður Geirs og Guðmundar G. Þórar-
inssonar sem mælti fyrir frumvarpinu.
Skattur á
korthafa
Þrír þingmenn, þeir
Guðmundur G. Þðrarins-
son, Albert Guðmunds-
son og Steingrímur J.
Sigfússon lögðu fyrir
skömmu fram frumvarp
þar sem kveðið er á um
að greiðslukortafyrir-
tœki skuli greiða sérstakt
gjald sem renni óskipt til
Skáksambands íslands.
Gjaldið yrði 20 krónur
af hveiju greiðslukorti
og skilað mánaðarlega til
rikisféhirðis sem siðan
myndi skila þvi til Skák-
sambandsins. Undan-
þegnir gjaldinu yrðu þeir
sem ekki hefðu greitt
útskriftargjald en það
eru þeir sem nota
greiðslukort sitt litið eða
ekld.
Guðmundur G. Þórar-
insson mælti fyrir frum-
varpinu i neðri deild Al-
þingis skömmu fyrir
páska. í ræðu sinni sagði
Guðmundur G. meðal
annars: „Svo sem menn
geta leitt getum að er
þetta frumvarp flutt til
að afla fjár og hlúa að
skáklífi í landinu, en það
hefur verið mikil gróska
að undanfömu i skáklífi
íslendinga. Skáksam-
band íslands er hins veg-
ar mjög vanbúið fjár-
hagslega til að rækta
þann gróður sem er í
landinu. Verkefni em
mörg framundan þjá
skákhreyfingunni, en fé
er afar litið.“
Kærkominn
skattur
Síðar i ræðu sinni
sagði Guðmundur G.:
„Þetta gjald á greiðslu-
kortin ætti að vera þeim
kærkomið sem greiðslu-
kort hafa. Þá munar ekk-
ert um þessa fjárhæð en
hún er öfhigur stuðning-
ur við skákhreyfinguna
og skiptir sköpum. Ég
segi einnig: Þetta gjald á
greiðslukort er ekki mis-
munum við aðra skatt-
heimtu i landinu nema
síður sé. Ég blæs á þau
rök sem fram koma varð-
andi það. Ég segi einnig:
Þetta er ekkert fordæmi.
íþróttahreyfingin og
Ungmennafélag íslands
hafa sérstakar tekjur af
lottói. Þar er um við-
kvæmt mál að ræða. Ef
til vill hefði skákhreyf-
ingin átt að vera með þar
í upphafi. Ég hygg að
það sé ekki ráðlegt að
reyna að hreyfa við
þeirri tekjuöflun og
reyna að þrýsta þar fleir-
um inn. Skákin er ná-
tengd menningu íslands.
Skáldn á sér langa hefð
hér. í skákinni er sérstök
gróska i dag. Það væri
mikil blinda að reyna
ekki fyrir íslendinga að
gera þjóðinni eins mikið
úr því ævintýri og irnnt
er. Þess vegna treysti ég
þvi að Alþingi íslendinga
muni taka þessu frum-
varpi vel og okkur taldst
að gera það að lögum
fyrir þingiok."
Otæktekju-
öflunarleið
Geir H. Haarde tók
einnig til máls í umræðu
um málið. f ræðu sinni
sagði Geir: „Ég get tekið
undir hvert einasta orð
síðasta ræðumanns um
það merka starf sem
unnið er á vegum Skák-
sambands fslands og um
hin glæstu afrek
íslenskra skákmanna
viða um heim. Ég get líka
tekið undir það að fjár-
framlög til Skáksam-
bands Islands hafa verið
skammarlega lág og þar
þarf úr að bæta. Ég get
hins vegar ekld fallist á
þá aðferð til tekjuöflunar
sem lögð er til i þessu
frumvarpi. Ég tel að það
standist ekki að leggja
sérstakan skatt á hina
nýju greiðsluaðferð sem
felst í þvi að menn greiði
fyrir vöru og þjónustu
með svokölluðum
greiðslukortum. Ég tel
að það standist ekki frek-
ar en að leggja til dæmis
sérstakan skatt á ávisan-
ir eða tékka, víxla eða
aðra slika pappira. Ég tel
þess vegna að sú Ieið sem
valin er i frumvarpinu
sé ótæk og get þess
vegna ekki stutt frum-
varpið eins og það er.
En ég vil hins vegar
gjarnan stuðla að þvi
með flutningsmönnum
að úr fjárhagserfiðleik-
um Skáksambandsins
verði bætt með einhveij-
um hætti sem samkomu-
lag gæti orðið um. Þar
er nærtækast að líta til
fjárveitinganefndar og
fjárveitingavalds Alþing-
is.“
Ferminga-
studio-linie 8JaJir