Morgunblaðið - 08.04.1988, Side 11

Morgunblaðið - 08.04.1988, Side 11
8861 JIHIA .8 ÍIUOAaUTSÖJ .aitíAjaUUOHOM MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 1988 Melódía og myndlist „Martin Berkofsky spilar ung- verska rapsódíu nr. 10 eftir Franz Lizt“ er undirtitill við sýningu Guð- mundar Björgvinssonar í Vestursal Kjarvalsstaða. Þar sýnir Guðmundur 49 málverk, gerð með akrýl-litum á striga í beinum tengslum við spila- mennsku Berkofskys á nefndu tón- verki. Myndverkum Guðmundar er skipt í myndraðir eftir kaflaheitum tón- verksins og verður hver og einn að finna út þau tengsl, sem listamaður- inn setur þar saman. Guðmundur hefur haldið þó nokkrar sýningar á verkum sínum allt frá 1976, og oftar en einu sinni hefur hann unnið frá þemum, sem hafa verið honum hug- ljúf í það og það skiptið. Hann er nokkuð ágengur f litameðferð sinni og á það til að vera hryssingslegur í lit, ef svo mætti að orði kveða. Það þótti nokkuð góð latína í eina tíð, en er nú löngu fyrir bí. Akrýl-litir eru líka dálítið varasamir hvað þetta snertir og ég fæ ekki séð að Guð- mundur hafi náð sterkari tökum á þeim en áður var, t.d. er lítill munur á litameðferð í þessum nýju verkum og þeim sem hann sýndi f Hlaðvarp- anum árið 1986. Guðmundur er nokkuð tvískiptur í list sinni. Hann hefur skrifað tvær skáldsögur og stundað nám f sálar- fræðum. Ég get ekki að því gert, en - mér fínnst hann eins og nokkuð tví- stígandi í því, hvar hann eigi að beita sér af öllu afli. Ég er ekki nægilega ánægður með þetta framlag Guð- mundar til sýningarvertíðarinnar á þessu vori. Það er engin spuming, að Guðmundur gerði miklu betur ef einbeitingin væri í samræmi við vilj- ann. Ég skal ekki þusa meir að sinni, enda hef ég ekki mikið meir um þessa sýningu að segja. Hver veit nema komi betri tíð og blóm í haga. Sýning Jens Kristleifssonar Á Vesturgangi Kjarvalsstaða sýnir grafíklistamaðurinn Jens Kristleifs- son málverk, gerð á pappír með akrýl—litum, og er það í fyrsta sinn, sem þessi grafíker sýnir slíka mynd- gerð, en Jens hefur allan sinn feril unnið á grafíska sviðinu og ekki hvað síst er hann þekktur fyrir tréristur sínar. Sem sagt, nú hefur Jens undið sfnu kvæði í kross og gert landslag að aðalviðfangsefni sínu í því málverki, en hann stundar um þessar mundir. Hann segir sjálfur, að landslagið hafí aldrei verið langt undan f myndgerð sinni og nú hafí hann freistast til að reyna enn einu sinni að gera málverk úr fyrirmyndum sínum. Þetta hefur tekist hjá Jens, hann málar í þessum sýningarmyndum á afar einfaldan og hávaðalausan hátt fyrirmyndir, sem oft á tíðum eru fjallshlíð og óbrotinn forgrunnur, þar sem litum er stillt mikið í hóf, og það er viss yndis- þokki, sem verður til í flestum þeim litlu verkum, sem hanga þama á veggjum. Það er auðsætt á þessum akrýl—myndum, að Jens hefur beitt grafískum tilbrigðum á einkar sér- stæðan hátt við gerð þessara verka. Jens hefur greinilega mikið lært af fyrri myndgerð sinni og notfærir sér þá reynslu við núverandi viðfangs- efni. Jens notar mikið gráu tónana í þessum verkum og einna best tekst honum í mynd eins og NO. 31, en þar fer hann á kostum, og raunar mætti sama segja um nokkrar aðrar myndir á þessari sýningu. Aðeins tvær myndir eru þama málaðar með olíulitum, en þar nær Jens ekki sama árangri eins og þegar best lætur með akrýl—litunum. Hann er sýnilega miklu meira á heimavelli þegar akrý- Jens Kristleifsson lið á í hlut en olfan. Þetta er sýning sem lætur ekki mikið yfír sér, en hefur sitt af hveiju að bjóða. Það mætti ljúka þessum línum með því að segja við Jens, að tilraun hans hafí heppnast og til hafi orðið myndverk í einlitum gráum tón- um, eins og hann sjálfur kemst að orði. Næstum enginn er fullkominn John Malkovitch í hlutverki Ódysseiis. Kvikmyndir Arnaldur Indriðason Gerð hins fullkomna („Making Mr. Right“). Sýnd i Laugarásbfói. Bandarísk. Leikstjóri: Susan Seidelman. Handrit: Floyd Byars og Laurie Frank. Framleiðendur: Joel Turber og Mike Wise. Kvik- myndataka: Ed Lachman. Helstu hlutverk: John Malkovitch og Ann Magnuson. Líklega er hinn fullkomni karlmað- ur ekki til og alls ekki f myndinni Gerð hins fullkomna („Making Mr. Right“) eftir Susan Seidelman. í heimi Seidelmans eru konur sífellt í vandræðum útaf körlum. Munið að það var um þá sem máltækið Enginn er fuilkominn var búið til. Þeir vilja halda og sleppa og taka framhjá, eru annaðhvort ofstopafullir eða slægir, slepjulegir og undirforlir, leika gríska guði í sápuóperum eða bjóða sig fram i þingkosningum og halda þeir geti platað konuna eins og kjósendur. Þeir eru ófærir um að elska en snillingar f að senda menn f geiminn. Hr. Fuilkominn er í mesta lagi róbót, vísindaundur geimferðastofn- unar sem ætlar að senda hann upp til stjamanna í sjö ár af því mannleg- ir eiga ekki að þola einveruna löngu. Hann heitir Ódysseifur með mann- legri tilfínningar en nokkumtfmann skapari sinn og fyrirmynd. Hann er auðvitað hinn mesti óviti en ómengað- ur af hugsunarhætti karlrembusam- félagsins sem ennþá er að orga sjálf- birgingslega Ég Tarzan, þú Jane. En í höndunum á réttu konunni, með réttu forriti, gæti hann orðið Draumaprinsinn. Hættan er sú strákar, svo maður tali nú tæpitungulaust, að Ödysseifur geri okkur óþarfa. Konur eiga eftir að kaupa sér einn miklu betri í stór- markaðnum áður en þú getur sagt svo mikið sem E.T. Það stefnir a.m.k. í það í hinni fymaskemmtilegu gamanmynd Seid- elmans, sem sýnd er í litlum sal f Laugarásbfói og vekur því minni eft- irtekt en hún á skilið. Þeir sem setja bókmenntir í bása og flokka í t.d. kvennabókmenntir eiga auðvelt með að flokka Gerð hins fullkomna í kvennabíómynd. Hún er satíra um aumlegt ástand karlpen- ingsins vestra með kreisting af Fran- kenstein útí. En myndin nær aldrei að vera eins góð og John Malkovitch í hlutverki bæði Ódysseifs og vísinda- mannsins sem skapar hann f sinni mynd. Það er hreinasta unun að fylgj- ast með honum í hlutverki hins geril- sneydda vísindamanns, sem hver maður getur séð á einni mínútu að er hinn raunverulegi róbót, og síðan f hlutverki Ódysseifs sem býr yfír sakleysi (og matarsiðum) ungbarns. Susan Seidelman („Smithereens", Örvæntingarfull leit að Susan) er örugglega fremsti kvenleikstjóri f Hollywood og einn af athyglisverð- ustu kvikmyndaleikstjórum vestan- hafs yfírleitt. Hvað gerir hún næst? Mikið úrval eigna á skrá. Margar nýjar eignir hafa bæst við. Höfum einnig fjölda kaupenda og ýmis eignaskipti. "'ÖRI S: 685009-685988 ÁRMÚLA21 DAN V. S. WIIUM, LÖGFRÆÐINGUR, ÓLAFUR GUÐMUNDSSON, SÖLUSTJÓRI. •REEZEMASTER Taylor ísvélar fyrirliggjandi ^ Hagstætt verð. Góð kjör. Eiríkur Ketilsson Heildverslun, Vatnsstíg 3. Símar: 23472, 25234, 19155. Lotus opnar aftureftir gagngerar breytingar með nýjum vor- og sumarvörum TÍSKUVERSLUN ÁLFTAMÝRI 7. SÍMI. 31462.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.