Morgunblaðið - 08.04.1988, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 1988
Kallað eftir svari
eftir Guðbjörn
Jónsson
Hr. fjármálaráðherra.
Ég vil þakka mjög svo fátæklegt
svar þitt í Morgunblaðinu 31. mars
sl. Það kom mér ekki á óvart að
svar þitt skyldi vera á þennan veg.
Það er mjög drengilegt af þér að
reyna að snúa út úr svo mjög aug-
ljósum staðreyndum, sem fram
komu í bréfi mínu til þín í Morgun-
blaðinu 29. mars sl.
Það var ekki fyrst og fremst til
þess að afla mér þessara upplýs-
inga, sem ég tók það ráð að leita
eftir þeim með þessum hætti. Það
var fýrst og fremst vegna þeirra
fjölmörgu í þjóðfélaginu, sem dag-
lega spyija sig þessara, og álíka
spuminga.
Til þess að forðast að taka efnis-
lega á spumingum mínum kýst þú
að reyna að sannfæra lesendur um,
að ég sé ruglaður og grunnhygg-
inn. Ég ætla að láta lesendur sjálfa
dæma um hvor mgli meira.
í svari þínu lætur þú að því liggja,
að ég skilji ekki samspilið milli þjóð-
artekna og þjóðarframleiðslu. Það
er mikill misskilningur hjá þér. Þér
að segja hiýs mér hugur við ef
satt reynist að ekki sé meiri skiln-
ingur á mismun þessara tveggja
hugtaka, hjá þér og þjóðhagsstofn-
un, en fram kemur í svari þínu.
Ég hef stundum, þegar ég hef ver-
ið að gera góðlátlegt grín að þess-
ari viðmiðun ykkar við þjóðárfram-
leiðslu, lagt upp dæmi um heimilis-
framleiðslu hjá mér. í svari þínu
getur þú þess, að rekstur hins opin-
bera sé í eðli sínu svipaður rekstri
heimilanna. Þar erum við sammála.
Ef ég nota sama hugtak og þið,
þ.e. gefnar forsendur, verður heim-
ilisframleiðslan á þessu ári
3.840.000,-. Það er hins vegar ljóst
miðað við sömu forsendur að tekjur
heimilisins verða ekki meiri en
960.000,-. Áætluð útgjöld eru einn-
ig 960.000,- (að meðtöldum af-
borgunum lána og rekstrarhalla
fyrra árs).
Enginn ágreiningur er innan
heimilisins um skiptingu teknanna,
til fjárfestinga, framfærslu, og ann-
arrar eyðslu. Helst bar á milli um
þáttinn önnur eyðsla. Endanleg nið-
urstaða varð hins vegar sú, að þess-
um þætti var skipt upp á milli þeirra
sem tekna öfluðu, í hlutfalli við
þátt þeirra í tekjuöfluninni. Aðrir
aðilar innan heimilisins, fá sínar
tekur með því að selja þjónustu sína,
til þeirra sem teknanna öfluðu.
Þar sem þú sérð að áætluð út-
gjöld heimilis míns eru ekki nema
25% af heimilisframleiðslu, væri
mjög æskilegt fyrir alla í þjóðfélag-
inu, að fá útskýringar þínar á því,
hvemig við getum notað þessi 75%
til þess að bæta lífsafkomu okkar?
I svari þmu bendir þú mér á, að
leita upplýsinga í gögnum Þjóð-
hagsstofnunar. Mér þykir afskap-
lega leitt hvað þú virðist vera
gleyminn. Ég gat þess nefnilega á
Laftleiðafundinum að ég væri með
gögn frá öllum þessum stofnunum
ykkar. Þjóðhagsstofnun, Byggða:
stofnun, Hagstofu, Seðlabanka og
Fiskifélagi. Eins og ég gat um
þama á fundinum er aðalvandi
þeirra sem reyna að fínna réttar
upplýsingar sá að þessum gögnum
stofnana ykkar ber engum saman
um sama efnið. Af þeim sökum hef
ég réttilega dregið í efa gagn stjóm-
valda af þessum reiknikúnstum.
Þú getur þess að rétt sé að vekja
athygli mína á því að útflutnings-
framleiðsla sé aðeins hluti af fram-
leiðslu landsmanna. Mér er þetta
fyllilega ljóst, en mér er jafn vel
ljóst að tekjur þjóðfélagsins kom
ekki frá öðrum þáttum en útflutn-
ingi.
Heimilin nýta tekjur sínar sem
best, með því að kaupa aðeins hrá-
efni í mat, efni í föt, gera sjálf (eins
mikið og hægt er) við það sem bil-
ar, ferðast eins ódýrt og hægt er
o.fl. Á sama hátt þarf vart að út-
skýra fyrir þjóðinni að nýting þjóð-
artekna felst fyrst og fremst í því
að framleiða sem mest af þörfum
okkar hér innanlands.
Lífskjörin í landinu fara ekki ein-
göngu eftir því hvað miklar tekjur
við höfum. Þau fara fyrst og fremst
eftir því hvernig við nýtum þær.
Á Loftleiðafundinum benti ég
ykkur á nokkrar aðalástæður
vandamála okkar hér innanlands.
Af eðlilegum ástæðum urðu þið
hljóðir við. Af hræðsluglampa þeim
sem í augu þér kom þóttist ég
skynja, að þú gerðir þér grein fyrir
Guðbjörn Jónsson
„ Við hjá Þjóðarflokkn-
um höfum engan áhuga
á fleiri byltingum á
þjóðfélagi okkar. Það
er kominn tími til að
átta sig á því að fram-
farir eiga sér stað með
hægri þróun, í takt við
efiiahag.“
hyldýpinu sem er á milli ævintýra-
ljómans og raunveruleikans.
Nafni þinn Sigurðsson reyndi til
dæmis að villa um fyrir fundar-
mönnum þegar hann reyndi að
hrekja þá staðreynd að höfuðstóll
lána, tryggðum með lánskjaravísi-
tölu, gæti verið 46% of hár, eins
og ég sýndi ykkur dæmi um (og
gaf ykkur eintak). Hann færði þau
rök fyrir máli sínu að það vantaði
inn í útreikning minn verðbólgu í
viðskiptalöndum. Það er vægast
sagt bamaskapur af jafn menntuð-
um manni og nafna þínum að bera
svona rök fyrir sig. Fjármagn það
sem við erum að lána hver öðmm
þarf að halda verðgildi sínu gagn-
vart mynt viðskiptalanda okkar, en
ekki vömverði þar.
í lok svars þíns beinir þú þeim
tilmæluip til mín, að ég staldri við
með útreikning á uppmna þjóðar-
tekna. Ég sagði þér, elsku drengur-
inn minn, á Loftleiðafundinum, að
ég væri búinn að setja upp reiknilík-
an fyrir þetta. Og það tæki mig
ekki nema stutta stund að láta ykk-
ur í té niðurstöður nýliðins árs, ef
þð senduð mér viðkomandi upplýs-
ingar.
Það er hinsvegar sjálfsagt að
vera ekki að flagga þessu of mikið
í fjölmiðlum, rétt á meðan samning-
ar standa yfir. Við hjá Þjóðar-
flokknum höfum engan áhuga á
fleiri byltingum á þjóðfélagi okkar.
Það er kominn tími til að átta sig
á því að framfarir eiga sér stað
með hægri þróun, í takt við efna-
hag. Við höfum fengið of mikið af
fljótfæmislegum reddingum og
vanhugsuðum lagasetningum mörg
undanfarin ár.
Að þessu mæltu ítreka ég allar
spumingar mínar úr bréfinu 29.
mars og vonast eftir efnislegu svari
sem fýrst.
Með bestu kveðju.
Höfundur er í málefnancfnd Þjóð-
arOokkains.
Um 800 hundruð þríþjólarafbílar aka nú um götur Danmerkur og velqa þar mikla athygli.
Nýr danskur rafbíll
eftirAxel
Pihl-Andersen
NÝI straumlínulagaði rafbítl-
inn frá Danmörku líkist ef til
vill flugmannsklefa í F-16-
orrustuþotu í útliti — en lengra
gengur samanburðurinn ekki.
Rafbíllinn kemst ekki hraðar
en 40 kílómetra á klukkustund,
og hann er miklu hljóðlátari
og látlausari en önnur vélknúin
farartæki í umferðinni.
Nýlega var hafin framleiðsla á
litlum rafbíl, sem á dönsku nefn-
ist „ellerten", í glænýrri verk-
smiðju í Randers, fyrir norðan
Árósa, og mikill áhugi er fyrir
þessu rafknúna farartæki í Dan-
mörku og víðar.
Þetta þríhjóla farartæki er mitt
á milli þess að vera bifreið og létt
bifhjól, og rafbíllinn er fyrst og
fremst ætlaður fólki sem ferðast
daglega stuttar vegalengdir, ann-
aðhvort til vinnu eða með börn
til og frá dagheimilum eða skól-
um.
„Rafbíllinn gæti til að mynda
leyst af hólmi minni fjölskyldubíl
útivinnandi foreldra, sem hingað
til hafa þurft að hafa tvo bíla,“
segir Louis Drewes, sölustjóri hjá
El-Trans, fyrirtækinu sem fram-
leiðir rafbílinn.
Rafbíllinn skapar ekki mengun,
er ódýr í rekstri og hentar best í
stuttum akstri. Hægt er að hlaða
rafgeyma bflsins með venjulegri
innstungu, og rafbfllinn getur
ekið 50 til 70 kílómetra á einni
hleðslu. Einn fullorðinn kemst
fyrir í bílnum, auk eins bams eða
tveggja bama.
í rauninni enginn bíll
Framleiðendur rafbflsins leggja
mikla áherslu á að hér sé í raun-
inni ekki um bifreið að ræða.
Danir höfðu áður reynt metnaðar-
fyllri framleiðslu eins og til að
mynda Hope Whisper — en án
árangurs - og þess vegna hefur
El-Trans farið sér hægt í markað-
skapphlaupinu. Sölukerfið er enn-
þá langt frá því að vera fullkomn-
að — og til að mynda er ekki enn
hægt að kaupa rafbílinn á Sjál-
andi og í Kaupmannahöfn.
„Við viljum vera vissir um að
geta boðið viðskiptavinunum við-
unandi þjónustu, og þess vegna
fömm við -okkur hægt,“ segir
Louis Drewes. „Við höfum þegar
fengið margar fyrirspumir frá
Noregi, Svíþjóð, Vestur-Þýska-
landi, Hollandi og Sviss um hugs-
anlegan útflutning, en það verður
ekki fyrr en í fyrsta lagi á næsta
ári að hægt verður að ræða slíkt,“
segir sölustjórinn.
Stjómendur El-Trans hyggjast
framleiða um 8.000 rafbíla á ári
og um 800 aka þegar um götur
Danmerkur. Rafbfllinn kostar um
30.000 danskar krónur (183.000
íslenskar) og er mjög ódýr í
rekstri. Með kaupum á nýjum
rafgeymum annaðhvert ár og öðr-
um föstum útgjöldum er kostnað-
urinn við hvem ekinn kílómetra
undir 50 dönskum aurum (3 ísl.
kr.), og þar sem rafbíllinn er fram-
leiddur úr trefjagleri ryðgar hann
ekki.
Viðhaldið er einfalt og ódýrt.
Ekki þarf að skipta um olíu,
kveikjur eða platínur, og ekki
þarf að setja á hann kælivatn.
Ekkert púströr er í bílnum, og á
Morten Jac, Reportage Gruppen
Rafbíllinn veldur ekki mengun og er ódýr í viðhaldi. Kostnaður-
inn við hvern ekinn kílómetra ér aðeins 50 danskir aurar, eða
3 krónur íslenskar.
heildina litið em miklu færri hlut-
ar sem hreyfast í vél og skiptingu
rafbíla en annarra bíla.
Góðar viðtökur
Rafbfllinn hefur yfirleitt hlotið
góðar viðtökur í dönskum fjöl-
miðlum, og framleiðendumir
leyna því ekki að kveikjan að
framleiðslunni hafi fyrst og
fremst verið vaxandi meðvitund
almennings um umhverfismál og
mikil umferðarvandamál.
Umferðarkönnun hefur leitt í
Ijós að 80 prósent Dana vinna í
innan við 20 kflómetra fjarlægð
frá heimilum sínum, og að meðal-
tali búi Danir 11 kílómetra frá
vinnustöðum sínum. 93 prósent
allra þeirra sem fara á bíl í vinn-
una, aka einir, samkvæmt sömu
könnun.
„Bflafjöldinn skapar æ meiri
umferðarvandamál í stærri borg- »
unum — og hingað til hafa al-
menningsvagnar og lestir ekki
getað leyst þau. En við erúm þess
fullvissir að rafbíllinn geti stuðlað
að lausn vandans,“ segir sölu-
stjóri El-Trans.
Áður en fyrsti rafbíllinn var
seldur hafði hann verið þróaður í
tvö ár. 2.800 Danir hafa saman-
lagt fjárfest 90 milljónum danskra
króna (549 milljónum íslenskra)
í rafbílunum, og tryggt þannig
Qárhagslegan grundvöll fram-
leiðslunnar.
Höfundur er blaðamaður /yá
Reportage Gruppen í Áróaum.