Morgunblaðið - 08.04.1988, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 1988
25
Útvegsbanki íslands hf.:
Hagnaður fyrsta
rekstrarárið var
114 milljónir kr.
Steintak hf.:
109 íbúðir verða byggð
ar á Völundarlóðinni
Heildarkostnaður um 500 milljónir
í LOKAÐRI samkeppni milli
þriggja aðila um hönnun fjölbýl-
ishúsa við Klapparstíg 1 í
Reylgavík , Vöiundarlóð, varð
tillaga arkitektanna Guðna
Pálssonar og Dagnýar Helga-
dóttur fyrir valinu. Það er bygg-
ingafyrirtækið Steintak hfsem
á lóðina og efndi til samkeppn-
innar en samkvæmt verðlauna-
tillögunni er gert ráð fyrir að
þarna rísi 109 fbúðir í 14 mis-
háum einingum. Gert er ráð
fyrir að framkvæmdir hefjist i
mai og að fyrstu íbúðimar verði
tilbúnar til afhendingar að ári.
Heildarkostnaður er áætlaður
um 500 miHjónir króna.
„Tiilögumar voru allar mjög
góðar og erfítt fyrir dómnefndina
að velja og hafna," sagði Vignir
H. Benediktsson framkvæmda-
stjóri Steintaks hf., en aðrir þátt-
takendur voru Ingimundur Sveins-
son arkitekt og arkitektamir Hilm-
ar Þór Björnsson og Finnur Björg-
vinsson. „Ég leitaði til nokkuð
margra arkitekta og valdi síðan
þá sem ég taldi geta unnið verkið
á skömmum tíma. Arkitektamir
fengu mánuð til að leggja fram
hugmyndir sínar og er rétt að taka
fram að tillagan sem varð fyrir
valinu verður unnin betur í sam-
vinnu við okkur. Okkur liggur á í
öllum þessum hraða sem er á hlut-
unum og dýrtíð. Lóðin kostaði okk-
ur 77,7 milljónir króna og þá veit-
ir ekki af að vera snöggur. Ef um
opna samkeppni ,er að ræða þá
getur hún tekið allt frá 6 mánuðum
upp í eitt ár.“
Vignir sagði að með sölu lóðar-
ínnar til hæstbjóðanda hefði
Reykjavíkurborg farið nýja leið,
sem gæfi byggingaraðila tækifæri
til að beita aukinni hagkvæmni við
framkvæmdir. „Ég tel rétt að gefa
byggingafyrirtækjum kost á stærri
lóðum fyrir sín hús,“ sagði Vignir.
„Þá er hægt að leita eftir hag-
kvæmum framkvæmdaleiðum þeg-
ar í upphafí og í samráði við arki-
tekta í stað þess að úthluta einni
og einni lóð á stangli. Á stærri
lóðum er einnig möguleiki á að
skapa betri heildarsvip yfír hverfíð.
Uppbygging verður auk þess allt
önnur þegar unnið er úr einu homi
lóðarinnar yfír í það næsta og
gengið frá öllu um leið. Þetta er
í fyrsta skipti á sextán ára starfs-
ferli mínum, sem ég sé eitthvað
fram í tímann því búast má við
að verkið taki rúm tvö ár.“
í niðurstöðum dómnefndar kem-
ur fram að nefndin sé sammála
um að tillögumar séu í háum
gæðaflokki, langt fyrir ofan miðl-
ungstillögur í venjulegri opinni
samkeppni. „Engin ein tillagnanna
hefur þó slíka afgerandi kosti, að
ENDURSKOÐAÐUR ársreikn-
ingur Útvegsbanka íslands hf.
fyrir fyrsta rekstrarárið liggur
fyrir, en aðalfundur bankans
verður haldinn 12. apríl n.k.
Hagnaður af rekstrinum eru
röskar 114 mil\jónir króna.
ífréttatilkynningu frá bankanum
segir: „Rekstur bankans gekk vel
á árinu og tókst að ná flestum rekst-
ursmarkmiðum, enda aðstæður til
bankareksturs hagstæðar.
Innlánsaukning var mikil,
lausafjárstaðan viðunandi og vaxta-
munur inn og útlána með besta
móti.
Hagnaður af reglulegri starfsemi
var 221.259 þús.kr. Bankinn greið-
ir ekki tekjuskatt, en í staðinn kem-
ur gjaldfærsla á móti eignfærðu
skattahagræði að upphæð 105.161
þús. kr. Aðrir skattar nema 1.812
þús. kr. og varð niðurstaða rekstr-
arreiknings þvf 114.286 þús.kr.
hagnaður.
Aukning innlána á árinu nam
36,9% en meðaltalsaukning í
bankakerfínu í heild varð 35,8%.
Heildarinnlán í Útvegsbanka ís-
lands hf. námu 6.219.675 þús.kr. í
árslok 1987.
Eigið fé var 1.229.648 þús.kr.
og hafði aukist um 229.648 þús.kr.
frá því hlutafélagsbankinn tók til
starfa.
Eiginfjárhlutfall reiknað eftir
reglum laga um viðskiptabanka nr.
86/1985 er 10,74%, en má minnst
vera 5%.
Bókfært virði fasteigna og bún-
aðar nam 51,26% af eigin fé bank-
ans í árslok. Þetta hlutfall má hæst
vera 65% samkvæmt lögum um við-
skiptabanka.
I júnímánuði var komið á fót
veðdeild í bankanum og gekk rekst-
ur hennar vel. Nam hagnaður af
rekstrinum 2.174 þús.kr. og höfðu
verið seld skuldabréf fyrir 277.551
þús.kr.
. í árslok störfuðu 337 manns í
bankanum og hafði þeim fækkað
nokkuð á árinu.
Skákmótið í Dortmund:
Helgi Olafsson varð
að lokum í 4-7. sæti
Morgunblaðið/Þorkell
Frá vinstri Guðni Pálsson arkitekt og Dagný Helgadóttir arkitekt
höfundar tiUögunnar að íbúðabyggð á Völundarlóðinni, ásamt Vigni
H. Benediktssyni framkvæmdastjóra Steintaks hf.
HELGI Ólafsson endaði í 4-7.
sæti á skákmótinu í Dortmund i
Þýskalandi. Helgi hlaut 6V2 vinn-
ing en sigurvegarinn, Smbat
Lputjan frá Sovétríkjunum, fékk
8 vinninga.
Helgi tefldi við Mainka frá
Þýskalandi í síðustu umferðinni 'og
vann, enda með svart. Helgi vann
fjórar af þeim fimm skákum sem
hann hafði svart í, en „var alger-
lega vatnslaus" með hvítu eins og
hann orðaði það og í 6 skákum
gerði hann 4 jafntefli og tapaði 2.
Lokastaðan varð sú að Lputjan
fékk 8 vinninga, Pinter frá Ung-
veijalandi og King frá Bretlandi
fengu 7 vinninga og Helgi, Kinder-
mann frá Þýskalandi og Hort, sem
nú er orðinn vestur-þýskur ríkis-
borgari, fengu 6V2 vinning. Mótið
var í 12. styrkleikaflokki FIDE.
dómnefnd geti mælt með að hún
verði lögð til grundvallar fram-
kvæmdum lítið eða ekkert breytt.
Veldur þar mestu, að stærðardreif-
ing íbúða er verulega frábrugðin
því, sem útbjóðandi álítur að falli
best að markaðsaðstæðum á þess-
um stað." Dómnefndina skipuðu
Bárður Daníelsson arkitekt, form-
aður, Halldór Guðmundsson arki-
tekt, Vignir H. Benediktsson fram-
kvæmdastjóri, Hjörtur Hansson
, verkfræðingur og Atli Vagnsson
lögfræðingur og fasteignasali.
í rökstuðningi, sem fylgir tillögu
arkitektanna, þeirra Guðna Páls-
sonar og Dagnýar Helgadóttur,
segir: „Höfundar telja einhalla
þakhalla háhýsanna skv. skipulagi
stinga mjög í stúf við umhverfí
sitt og virka yfirþyrmandi vegna
stærðar sinnar. Slíkur þakhalli yrði
35m á lengd. Því var valið mænis-
þak á öll húsin, sem er ríkjandi
þakform í byggðinni í kring og
gefur húsunum rólegt yfirbragð.
Eins telja höfundar hliðina er veit
að sjónum vera rólegri ef háhýsin
er þangað snúa eru jöfn að hæð.“
Ibúðirnar eru söluíbúðir og
verða afhentar fullfrágengnar að
utan og innan nema kaupendur
óski eftir að sjá sjálfír um innrétt-
ingar. íbúðimar 109 skiptast í tutt-
ugu 2ja herb. íbúðir, sem kosta
um 3,2-3,5 millj., sextíu og ein,
3ja herb. íbúðir, sem kosta um
4,5-5,0, fjórtán 4ra herb, sem
kosta um 5,5- 6 og fjórtán íbúðir
á tveimur hæðum, sem kosta um
7-8 millj.
Veríð vel klædd í sumar
Nýjar Iðunnar-
peysurádömur
ogherra.
Nýjar blússur frá
OSCAR OF
SWEDEN. '
Sumarbuxur fyrirdömur
ognýpilsfrá
GARDEUR í Vestur-
Þýskalandi.
Verzlunin eropin
daglegafrá9-6.
laugardagafrá 10-12
Kredltkortaþjónusta
f yx PRJÖNAST0FAN
Uduntv
SKERJABRAUT 1 V/NESVEG, SELTJARNARNESI