Morgunblaðið - 08.04.1988, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 1988
33
Þúsundir gesta á Menn-
ingarvöku Suðurnesja
Morgunblaðið/Jónas Sigurðsson
Frá fluglínuæfingu björgunarsveitarinnar Blakks á Patreksfirði á
föstudaginn langa.
Patreksfj örður:
Fluglínuæfing björg-
unarsveitarinnar
HIN ÁRLEGA fluglinuæfing
Björgunarsveitarinnar Blakks
hér á Patreksfirði var haldin á
föstudaginn langa. Æfingin byrj-
aði fyrir hádegi með þvi að með-
limir sveitarinnar skutu línu yfir
höfnina og æfðu sig svo i að
draga menn fram og til baka.
Eftir hádegi var farið inn fyrir
bæinn á svonefnda Þúfneyri, þar
sem saman voru komnir nokkrir
sjómenn okkar Patreksfírðinga, og
rifjuðu björgunarsveitarmenn upp
með þeim notkun á fluglínutæki og
• frágangi öllum varðandi notkun
björgunarstóls og þess útbúnaðar
sem til þarf. Þá voru skipstjómar-
menn æfðir í að skjóta af línubyssu
og heppnaðist sú æfing í alla staði
vel.
Að lokinni æfingu með línubyssu
buðu björgunarsveitarmenn sjó-
mönnum að fara fram á fjörð en
þar höfðu þeir komið fyrir gúm-
björgunarbát og fengu menn tæki-
færi til þess að fara í bátinn og var
honum siðan hvolft og áttu menn
að rétta bátinn við. Gekk það vel
og var ekki hætt fyrr en allir sjó-
mennimir, sem þátt tóku í æfing-
unni, um 20 menn, voru búnir að
fara í bátinn og rétta hann við.
Þeir sjómenn sem tóku þátt í
æfingu þessari báru mikið lof á
(Jr leik- og
„Gullin mín“.
björgunarsveitarmenn og kváðust
vona að áframhald yrði á æfingum
sem þessum.
- Fréttaritari
Vogum.
Menningarvöku Suðurnesja
lauk formlega í lok bókmennta-
kynningar í Stóru-Vogaskóla
mánudaginn 4. apríl. Menningar-
vakan hófst 18. mars með leik-
sýningu Litla leikfélagsins í
Garði á „Allra meina bót“.
Tveimur dögum síðar var form-
leg setning vökunnar að við-
stöddum forseta íslands, Vigdisi
Finnbogadóttur, en Birgir ísleif-
ur Gunnarsson menntamálaráð-
herra setti vökuna. Dagskráin
það kvöld var tileinkuð Nóbels-
skáldinu Halldóri Laxness og
hápunkturinn var ugglaust þeg-
ar dóttir skáldsins, í fjarveru
Halldórs, tók við styttu af hestin-
um Krapa, hesti Steinars i
Steinahlið, að gjöf frá Suður-
nesjabúum.
Síðan hefur hver atburðurinn
rekið annan, og má nefna tvö leik-
húsverk, 8 myndlistarsýningar,
fjölda tónlistaratburða, íþróttahá-
tíðir, starfrækslu útvarps Suður-
nesja og fleira.
Hjálmar Amason formaður und-
irbúningsnefndar sagði við slit
menningarvökunnar að þátttaka í
einstökum dagskrárliðum hefði ver-
ið með eindæmum góð og bæri
vott um mikinn menningaráhuga
Suðumesjamanna. Hann sagði
megintilgang menningarvökunnar
tvíþættan, annars vegar að efla
menningarlífið á Suðumesjum,
leyfa okkur að hverfa úr grámósku
hversdagslífsins og með hjálp lista-
fólksins að klifra til fja.Ha og jökla
og njóta andlegrar fegurðar.
í annan stað var vilji til að leyfa
öðrum landshlutum að fá einhveija
hlutdeild í menningarviðburðum á
Suðumesjum. Hvað það varðaði
þurfti að sjálfsögðu á fjallaloftinu
að halda til þess að aðrir landsmenn
gætu notið menningarinnar, en þar
megi finna þann eina dökka blett
á menningarvöku Suðumesja 1988.
„Menningarvakan hefur þjónað
sínu hlutverki að öðm leyti, öllum
þeim þúsundum gesta til óblandinn-
ar ánægju, þeim sem sótt hafa sýn-
ingaratriðin," sagði Hjálmar.
- EG
Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson
Hjálmar Amason formaður und-
irbúningsnefndar Menningar-
vöku Suðurnesja.
danssýningunni
Dans- og
leiksýningin
„Gullin mín“
TVÆR sýningar verða á „Gullin
mín“ í hátíðarsal Menntaskólans
í Hamrahlíð.
Sú fyrri verður í kvöld, föstudag,
8. aprfl en sú síðari sunnudaginn
10. apríl. Báðar sýningamar hefjast
kl. 21. Það er dansfélag MH (Lodd-
áramir) sem sýnir. Leikstjóri er
Shirleen Blake og tónlistin er samin
af Eyþóri Amalds.
(Fréttatilkynning)
TJöfðar til
X JL fólks í öllum
starfsgreinum!
Nú getur þú ferðast á ódýran
og þægilegan hátt með áætlunarflugi
SAS milli íslands og Kaupmannahafnar
Þann 8. apríl hefst beint áætlunarflug SAS
milli íslands og Kaupmannahafnar. Þetta eru
ánægjuleg tíðindi fyrir þá sem vilja ferðast
ódýrt. Að auki er SAS þekkt um heim allan
fyrir frábæra þjónustu við farþega sína.
Og frá Kaupmannahöfn kemstu örugglega til
endanlegs ákvörðunarstaðar því þaðan
liggur stöðugur straumur flugvéla heims-
horna á milli. Vegir SAS liggja til allra átta.
I tilefni þessara merku tímamóta býður SAS
fyrst um sinn sérstakt kynningarverð,
15.610 kr.* *, á flugi til og frá Kaupmannahöfn.
Á föstudagskvöldi í hverri viku lendir SAS
vél frá Kaupmannahöfn á íslandi og fer á laug-
ardagsmorgni aftur til Kaupmannahafnar.
* (Flugvallarskattur.kr. 750, ekki innifalinn)
Ef þú ert í viðskiptaerindum geturðu notað
vikuna til að sinna erindi þínu og verið
kominn heim fyrir helgi. Fyrir ferðamenn er
þetta einnig mjög hagstætt.
Fríið hefst snemma á laugardagsmorgni og
frá Kaupmannahöfn kemstu til hvaða áfanga-
staðar sem er.
Innifalið í lágum fargjöldum SAS er þjón-
usta, sem er rómuð um allan heim.
Markmiðið er að þér og þínum líði sem best
um borð hjá okkur.
Nánari upplýsingar veita SAS
og ferðaskrifstofurnar.
m/s/u
Laugavegi 3, símar 21199 / 22299