Morgunblaðið - 08.04.1988, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 1988
43
Stjómunarsanikeppni
HP á íslandi og Oddi í
úrslitakeppni í Bergen
Tveir úr íslandsmeistaraliði Hewlett Pachard á íslandi, þeir Guð-
mundur Hólmsteinsson og Birgir Sigurðsson sem keppa í Bergen í
dag ásamt liðsmönnunum Odda en tveir þeirra sjást hér á hinni
myndinni, þeir Páil Björnsson og Knútur Signarsson.
eftir Svein Agnarsson
Hewlett-Packard á íslandi hf.
varð íslandsmeistari í samnorræna
stjómunarleiknum, SBT, sem keppt
var í fyrsta sinni á íslandi í vetur.
Úrslitakeppnin fór fram laugardag-
inn 19. mars og tóku sex lið þátt
í henni, en áður hafði verið leikin
undankeppni í tveimur riðlum. í
öðru sæti varð lið prentsmiðjunnar
Odda hf. og Landsbanki Islands
lenti í þriðja. Hewlett-Packard og
Oddi verða því fulltrúar íslands á
Norðurlandameistaramótinu sem
fram fer í Bergen nú um helgina
9.—10. þessa mánaðar.
Stjómunarleikurinn felst í því að
líkt er eftir raunvemlegum mark-
aðsaðstæðum fyrir framleiðslufyrir-
tæki, sem framleiðir og selur mis-
munandi afurðir, bæði í heildsölu
og smásölu. Keppendur þurfa að
taka ákvarðanir um markaðssetn-
ingu og sölumagn, starfsmanna-
fjölda, hráefnakaup, fjármögnun og
fjárfestingar, svo dæmi séu tekin,
en markmiðið er líkt og í lífinu
sjálfu að ná sem mestum uppsöfn-
uðum hagnaði. Yfírleitt em leiknar
fimm umfe'rðir og samsvarar ein
umferð einu ári í raunvemleikanum.
Stúdentafélög viðskiptafræði-
nema í hveiju Norðurlanda fyrir sig
skipuleggja keppnina, en hér á landi
var íslandsdeild aíþjóðasamtaka
viðskipta- og hagfræðinema, AI-
ESEC, falin umsjón með keppn-
inni. Sérstök nefnd, skipuð þeim
Birgi E. Gíslasyni, Pétri I. Péturs-
syni og Ágústi Hrafnkelssyni, hóf
undirbúning að keppninni í haust-
byrjun og snemma vetrar hófst svo
undankeppnin. Lið frá 16 fyrirtækj-
um tóku þátt í henni og var þeim
skipt í tvo riðla. Undankeppnin fór
þannig fram að liðin höfðu tvær
vikur til að ráða ráðum sínum, en
urðu þá að senda ákvarðanir sinar
til SBT-nefndarinnar. Nefndin sá
svo um að mata tölvu í stjómstöð
á ákvörðunum keppenda og þeir
fengu svo aftur niðurstöðumar sem
þeir notfærðu sér við næstu ákvarð-
anatökur. Alls vom leiknar fímm
umferðir í undankeppninni og henni
lauk ekki fyrr en í janúar.
Þijú efstu liðin í hvomm riðli
komust svo í úrslit, utan hvað hvað
lið íslenskra aðalverktaka varð að
draga sig út úr keppninni og tók
Útsýn þeirra sess í úrslitakeppn-
inni, sem fram fór 19. mars. Þá
vom leiknar fimm umferðir á einum
degi og fengu liðin einungis eina
klukkustund í senn til ákvarðana-
töku. Tímapressan var því töluverð,
auk þess sem forsendum leiksins
var breytt frá undankeppninni.
Eftir fyrstu umferð var lið Hew-
lett-Packard strax komið í efsta
sæti, en varð að láta það af hendi
í næstu umferð og lið ÍSAL tyllti
sér á toppinn í þess stað. HP menn
náðu svo aftur fomstu í 3. umferð
og héldu henni allt til loka. Lið
Utsýnar og ísal byijuðu einnig vel
og vora í 2. og 3. sæti í upphafí
keppninnar, en misstu svo flugið.
Lið Odda byijaði hins vegar frekar
illa en náði að komast upp í 2.
sætið um miðbik keppninnar. Því
sæti hélt liðið eftir mikla og harða
keppni við Landsbanka íslands.
Þótt íslendingar hafi ekki fyrr
tekið þátt í þessari keppni hefur
hún verið haldin á öðmm Norður-
löndum í mörg ár. Hugmyndin að
samnorræna stjómunarleiknum er
mnnin undan rifjum Finnans Jorma
Huhtala, en hann tók árið 1980
þátt í evrópska stjómunarleiknum
EMC, sem breska tölvufyrirtækið
ICL hannaði. Huhtala varð mjög
hrifínn af þeim kennslu- og þjálfun-
armöguleikum sem EMC bauð upp
á og reyndi að fá ICL til að selja
sér notkunarrétt á leiknum. Eftir
að hafa fengið afsvar ákvað Huh-
tala að hanna sinn eigin stjómunar-
leik og því verki lauk hann tveimur
ámm síðar. Alls fóm um 1.500
klukkustundir í gerð forritsins, en
Huhtala telur að SBT hafí þá verið
besti stjómunarleikur sem hannað-
ur hafði verið og til marks um það
má nefna að leikurinn var strax
notaður við kennslu á framhalds-
stigi í viðskiptaháskóla Helsinki.
Árið 1983 ákváðu svo nemendur
skólans að halda landsmót í stjóm-
unarleiknum til að fjármagna náms-
ferð til Japans. Áhugi á keppninni
reyndist mjög mikill og tóku 55
fyrirtæki þátt í keppninni. f fram-
haldi af því vom skipulögð mót á
öðmm Norðurlöndum.
Það er við hæfí að það skuli
hafa verið fínnskir háskólanemend-
ur, sem fyrstir skipulögðu landsmót
í stjómunarleiknum. Þeir hafa áður
sýnt mikið markaðsvit, enda er svo
komið nú að nemendafélag við-
skiptaháskólans í Helsinki, KY, á
eignir að verðmæti um 18 milljarða
íslenskra króna. Upphaf þessa auðs
má relqa til mikilla spekúlanta sem
réðu ríkjum hjá KY í byijun 6. ára-
tugarins. Þeir hófu innflutning á
bandarísku tóbaki, þar á meðal
Marlboro-vindlingum, sem á næstu
áram seldust mjög vel í Finnlandi.
Ágóði vindlingasölunnar var svo
notaður til kaupa á hlutabréfum og
fasteignum og í dag á KY meðal
annars útvarpsstöð, nokkur veit-
ingahús og átta hæða hús í mið-
borg Helsinki, sem að mestu leyti
er leigt út. Nú síðast keypti KY
fasteign, sem breyta á í stúdenta-
garð og var kaupverðið um hálfur
milljarður íslenskra króna.
Tímapressan leiddi til
óvandaðra ákvarðana
— sagði Jakob R. Möller, ÍS AL.
„Við lentum í tímapressu og tók-
um dálftið af óvönduðum ákvörðun-
um. Tímapressan er að vísu ekkert
nýtt fyrir okkur, rekstur fyrirtækis
er oft kapphlaup við tímann. í for-
keppninni var þetta dálítið öðmvísi,
þar höfðum við þann tíma sem við
nenntum að nota og gátum lagt í
keppnina," sagði Jakob R. Möller,
ÍSÁL. Auk hans skipuðu sveitina
þeir Bjamar Ingimarsson, Helgi V.
Karlsson, og Sigurður Briem.
„Þessar markaðsaðstæður, sem
leikurinn lýsti, em einnig töluvert
öðmvísi en hjá okkur. ÍSAL er stór-
iðjufyrirtæki, sem litlar áhyggjur
þarf að hafa af markaðssetningu
sinnar vöm. Leikurinn nú fólst hins
vegar í framleiðslu og sölu á há-
tæknivöm og þar er markaðssetn-
ingin mjög stórt atriði.
Við höfum kannski ekki lært
neitt nýtt af keppninni sem við för-
um með suður í Straumsvík og
nýtum okkur þar, en við emm þó
allir sammála um að keppnin hafi
sýnt okkur hversu gagnlegt getur
verið að vinna í hópvinnu. Stundum
skortir fólk yfírsýn þegar það vinn-
ur eitt sér að verkefnum.
Keppnin hefur verið skemmtileg,
og þótt svo mikill tími hafí farið í
hana, held ég að enginn sjái eftir
honum," sagði Jakob R. Möller.
Óveojulegt firelsi I peninga-
málum
— sögðu Birgir Sigurðsson og
Guðmundur Hólmsteinsson hjá
Hewlett-Packard
Ifyrir síðustu umferðina var lið
Hewlett-Packard í efsta sæti og
þeir Birgir Sigurðsson og Guð-
mundur Hólmsteinsson vom því
afar spenntir meðan þeir biðu eftir
úrslitum úr síðustu keyrslunni. „Við
vitum að við eigum möguleika á
að vinna keppnina, en það eiga nú
reyndar fleiri lið,“ sögðu þeir.
Möguleikarnir urðu síðar að raun-
vemleika og lið HP varð í efsta
sætinu.
„Þetta er líkt okkar markaði,
líkanið gæti t.d. auðveldlega átt við
markað fyrir einmenningstölvur,
sem er ákaflega næmur fyrir öllum
breytingum á verði og þar emm
við á heimavellC því að við seljum
tölvur og tölvubúnað og emm vanir
að hugsa um þessa hluti.
Líkanið er nokkuð líkt raun-
vemleikanum, en það em þó nokkur
atriði sem okkur fínnast skrítin. Til
dæmis er óraunvemlegt að fyrir-
tæki geti haldið áfram rekstri þrátt
fyrir tap ár eftir ár og auk þess
haft áhrif á önnur fyrirtæki í sömu
grein. Upplýsingastreymi milli fyr-
irtækjanna er auk þess óeðlilega
mikið á sumum sviðum, en svo vant-
ar á móti upplýsingar, sem alla
jafna liggja fyrir. Ffyrirtækin hafa
einnig óvenjulegt frelsi í peninga-
málum, frelsi sem við íslendingar
þekkjum ekki en gæti kannski ver-
ið til staðar á hinum Norðurlöndun-
um. Tapþolið er einnig mikið. Svo
vantar náttúmlega allan persónu-
leika í leikinn, en hér á íslandi sem
annars staðar getur skipt miklu
máli að þekkja rétta fólkið, hafa
góð sambönd og koma vel fyrir.
Loks er óraunhæft að gera ráð fyr-
að eftirspum sé alitaf fullnægt
og að einu takmarkanirnar á sölu
komi til vegna skorts á hráefnum,"
sögðu Birgir Sigurðsson og Guð-
mundur Hólmsteinsson.
„ Afleitt að enginn fari
á hausinn"
— sögðu liðsmenn Útsýnar.
„Það má segja að við séum þver-
skurður af fyrirtækinu, því að hér
er fólk af öllum sviðum þess, og
að auki er endurskoðandi í hópnum,
sem endurskoðar allar ákvarðanir
okkar fyrir hveija umferð," sögðu
þau í sveit Útsýnar, hress í bragði
eftir að tveimur umferðum af fímm
var lokið.
Sveitina skipuðu þau Diljá Gunn-
arsdóttir, Haukur Hannesson,
Kristinn Sv. Helgason, Ómar Björg-
vinsson og Ragnar Bogason og þau
kvörtuðu sáran yfir að þekkja
markaðinn i leiknum ekki nægjan-
lega vel. „Það vantar raunvemlegar
upplýsingar um stærð hans og við
vitum heldur ekkert um áhrif ein-
stakra markaðsráða, svo sem aug-
lýsinga. Við sjáum aðeins afleiðing-
ar ákvarðana okkar í heild, en ekki
hvað einstakir þættir hafa að segja.
Núna em aðeins búnar tvær um-
ferðir og við höfum ekki séð til
fulls hversu fullkominn leikurinn
er. En það er þó afleitt að enginn
skuli fara á hausinn.
Við lítum frekar á leikinn sem
skemmtun en þó er margt sem get-
ur hagnýst okkur. Leikurinn kennir
okkur að vinna í hópvinnu og sýnir
hversu gagnlegt getur verið að
miðla þekkingu milli fólks í mis-
munandi deildum. En fólk tjáir sig
öðmvísi en í raunvemleikanum og
er mun fúsara til að taka áhættu.
Svona leikir em ágætir fyrir rök-
rétta hugsun, en við lögðum upp í
þessa keppni með hyggjuvitið og
sólarorkuknúna vasatölvu eitt að
vopni. Já, blessaður, sólin kemur
alltaf inn í dæmið.“
Of hátt verð i fyrstu umferð
— sögðu liðsmenn Odda.
„Við vomm með of hátt verð á
framleiðslu okkar og seldum of lítið
í fyrstu umferð. Það er galli hversu
stóra mllu verðið spilar í leiknum,"
sögðu þremenningamir í liði Prent-
smiðjunnar Odda, Hilmar Baldurs-
son, Knútur Signarsson og Páll
Bjömsson.
í undankeppninni gekk Odda
mjög vel og þá urðu þeir í fyrsta
sæti í sínum riðli og einnig efstir
ef á heildina er litið. „Þá vomm við
á toppnum allt frá upphafí, en núna
byijuðum við illa. Nei, nei, við vor-
um ekkert of sigurvissir í byijun
nú.“
„Ég kynntist svona leikjum í við-
skiptafræðinámi mínu, en þeir vom
miklu barnalegri en leikimir í dag.
Þessi leikur er miklu erfíðari en
leikurinn í undankeppninni og í of-
anáiag þurfum við nú að taka allar
ákvarðanir á innan við klukkutíma,
en höfðum þá tvær vikur. Við lærð-
um þvi meira inn á þann leik en
þennan," sagði Knútur.
Meiri sveiflur en
gengur og gerist
— sögðu keppendur SKÝRR.
„Leikurinn er ekkert ólíkur raun-
vemleikanum að mörgu leyti en þó
era í honum stór göt. Það myndi
til dæmis enginn framleiða lengi
tapvömr, sem skila engri framlegð
og auk þess er galli að ekki skuli
vera hægt að fara út í fjárfestingar
á nýjum sviðum," sögðu keppendur
SKYRR. Sú sveit var skipuð Ásrúnu
Rúdolfsdóttur, Stefáni Kjæmested,
Þorsteini Garðarssyni og Emi
Gylfasyni.
„Annars er þessi leikur mun betri
en sá í undankeppninni og kemur
keppendum meira á óvart. Þeir
upplifa t.d. tap, rétt eins og oft
kemur fyrir í rekstri fyrirtækja.
Ffyrir bragðið er leikurinn erfíðari,
en jafnframt skemmtilegri.
Við teljum okkur hafa lært mikið
af leiknum, því að hann sýnir ágæt-
lega fram á afleiðingar ýmissa
ákvarðana, jafnvel þótt þessi mark-
aður sé dálítið ýktur. Þannig era
mun meiri sveiflur á markaðnum
en gerist og gengur í raunvemleik-
anum.
Vissulega kæmi vel til greina að
nota svona leiki við endurmenntun
starfsfólks, því að þeir skerpa á
þekkingu fólks. Vandamálin sem
við emm að fást við úti í lífínu era
kannski dálítið ólík, en við fáum
mun betri yfírsýn í staðinn. í raun
má segja að það eina sem fólk fómi
sé tíminn, allt annað er ávinningur.
Vitum hvað lán eru dýr
— sögðu liðsmenn Landsbank-
ans.
„Segja má að þessi leikur tengist
okkar starfi, því að við fáum annað
slagið vandamál, eins og koma fram
í þessum leik, upp á borð hjá okk-
ur,“ sögðu félagamir I liði Lands-
banka Islands, þeir Haukur Þór
Haraldsson, Magnús Bjarnason,
Ólafur Ásgeirsson, Ólafur Öm Ing-
ólfsson, Sigurbjöm Gunnarsson,
Valdimar Karl Guðlaugsson og Þór
Þorláksson.
„Við höfum kannski það fram
yfír önnur lið að við geram okkur
fyllilega grein fyrir því hvað lánin
em dýr og reynum því að losa okk-
ur við þau hið allra fyrsta," bættu
þeir svo við.
„ Aðstæður á þessum markaði em
dálítið öðmvísi en við eigum að
venjast, þetta er framleiðslufyrir-
tæki og við höldum reyndar að þetta
sé Mobira-símafyrirtækið í Finn-
landi, en við komum úr þjónustufyr-
irtæki. Reynsla okkar sem banka-
manna nýtist því ekki að fullu.
Þetta er mun raunhæfari og erf-
iðari leikur en í undankeppninni,
en þar höfnuðum við í 2. sæti í
okkar riðli," sögðu bankamennirnir.
Höfundur er viðskiptafræðinemi
við Háskóla íslands.