Morgunblaðið - 08.04.1988, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIEV FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 1988
47
Minning:
Valgeir Gunnarsson
Kveðja frá Skíðadeild KR
Fæddur 12. nóvember 1958
Dáinn 4. aprfl 1988
„Svo örstutt er bil milli blíöu og éls,
og brugðist getur lánið frá moigni til kvelds".
(Matth. Jochumsson)
í dag er til moldar borinn félagi
okkar og vinur, Valgeir Gunnars-
son. Hann varð bráðkvaddur að-
faranótt annars páskadags, á
þrítugasta aldursári.
Undanfama vetur hefur Valgeir
verið starfsmaður á skíðasvæðinu í
Skálafelli, jafnframt því sem hann
stundaði nám í trésmíði. Valgeir
sinnti störfum sínum í Skálafelli af
miklum áhuga og dugnaði. Hjálp-
semi hans og umhyggja við yngra
skíðafólkið var við brugðið, hvort
sem það var í skíðabrekkunum á
daginn eða í skíðaskálanum á kvöld-
in. Var hann ávallt hress og kátur
og naut sín best þegar veður var
verst. Kom það eins og reiðarslag
yfir okkur þegar hann var svo
skyndilega á burt kallaður.
Við vottum eiginkonu hans, Ástu
Gylfadóttur, og Elsu Sænýju, dóttur
þeirra, innilega samúð okkar.
Minning:
Pétur Þórisson
Baldursheimi I
Fæddur 18. mars 1933
Dáinn 27. mars 1988
Allir sem þekktu Pétur vita að
fáir menn eru eins og hann var,
hann var alltaf 'til staðar ef maður
þurfti á honum að halda. Ég var
níu ára gömul þegar ég fór fyrst í
sveit. Þá fór ég til Snjólaugar dótt-
ur Péturs og Kristjáns, manns
hennar, að Heiði sem er næsti bær
við Baldursheim. Ég var í þijú sum-
ur í Heiði hjá Snjóku og Kidda, en
þá þurftu þau ekki lengur á mér
að halda því stelpumar þeirra voru
orðnar það stórar að ekki þurfti að
passa þær lengur. En þá hringdi
Þórunn kona Péturs til mín og bað
mig að koma til þeirra næsta sum-
ar til að hjálpa til við að gæta dótt-
ursona þeirra sem hún bjóst við að
yrðu hjá þeim um sumarið. Þannig
vildi það tiil að ég fór í Baldursheim
I, til hjónanna Þórunnar Einars-
dóttur og Péturs Þórissonar. Þótt
þau hjón, Þórunn og Pétur, ættu
mörg böm var alltaf eins og þau
hefðu pláss fyrir fleiri að minnsta
kosti hafa þau alla tíð frá því ég
kom fyrst í Heiði verið mér sem
aðrir foreldrar. Fimmta sumarið
mitt í Mývatnssveit var ég hjá
Agnesi frænku minni og Eyþóri
Péturssyni í Baldursheimi III.
Núna í vetur er ég í Laugaskóla.
Þegar helgarfrí em fer ég í Baldurs-
heim III, en hef verið jafn velkomin
alls staðar. En veturinn í vetur hef-
ur verið mjög erfíður þessari fjöl-
skyldu vegna þess hvað Pétur hefur
verið mikið veikur. Hann hefur ver-
ið mikið í Reykjavík í vetur og hef-
ur hann og kona hans, Þómnn,
verið gestir á heimili föðursystur
minnar Ásu Jörgensdóttur og
manns hennar Einars Guðmunds-
sonar (foreldrar Agnesar) og eiga
þau þakkir skyldar fyrir elskuleg-
heit sín og umhyggju, en það er
þeim líkt.
Mér var það mikið gleðiefni þeg-
ar Pétur var nógu hress til þess að
geta komið ásamt Þómnni, Ásu og
Einari, til okkar á gamlárskvöld og
fagr.að nýju ári með mér og fjöl-
skyldu minni. Þá var hann glaður
og kátur eins og við sem þekktum
hann munum best eftir honum.
Núna er elsku Pétur látinn og
sársauki hans og erfíðleikar veik-
indanna að baki, en það mun alltaf
verða stórt skarð þar sem hann var.
Elsku mamma Tóta, Sólveig,
BÖðvar og öll hin bömin, tengda-
bömin, bamabömin og bræður. Ég
RÍTVÉLAR
REIKNIVÉLAR
PRENTARAR
TÖLVUHÚSGÖGN
veit að nú em erfíðir tímar hjá
ykkur og ykkur líður illa. En minn-
ingin um góða eiginmann, föður,
afa, bróður og félaga lifír að eilífu,
en vonandi mun tíminn lækna sárin.
Sofðu vært hinn síðsta blund,
uns hinn dýri dagur ljómar,
Drottins lúður þegar hljómar
hina miklu morgunstund.
Heim frá gröf við göngum enn.
Guð veit hvort vér framar fáum
farið héðan; að oss gáum,
máske kallið komi senn.
Verði, Drottinn, vilji þinn,
vér oss fyrir honum hneigjum;
• hvort vér lifum eða deyjum,
veri hann oss velkominn.
(Vald. Briem)
Ég þakka Pétri af öllu hjarta
fyrir hvað hann var alltaf góður
við mig.
Guð blessi minningu hans.
Sigþrúður Sigurðardóttir
(Sísf)
t
Móðir okkar,
EMELÍAJ. BERGMANN
frá Flatey á Breiðafiröi,
andaðist í Borgarspítalanum fimmtudaginn 7. apríl.
Jónma Bergmannn,
Hallbjörn Bergmann.
t
HELGA FRÍMANNSDÓTTIR,
lést 24. mars sl.
Útförin hefur fariö fram i kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Fyrir hönd aöstandenda.
Guðmundur S. M. Jónsson.
t
Móöir okkar,
ÁSGERÐUR ÍSAKSDÓTTIR,
Hvanneyrarbraut 64,
Siglufirði,
andaðist 7. mars.
Gunnar Guðbrandsson,
Jófríöur Guðbrandsdóttir,
Vigfús Guðbrandsson,
Guðbrandur Guðbrandsson.
t
Ástkær móðir min, amma og langamma,
JÓNÍNA GEIRLAUG JÓNSDÓTTIR,
Melabraut 49,
Seltjarnarnesi,
verður jarðsungin frá Fossvogskapellu í dag, föstudaginn 8. apríl,
kl. 10.30.
Halla Hjálmarsdórtir,
Erla Arnardóttir,
Helga Guðjónsdóttir, *
Jóna H. Guðjónsdóttir,
Halla Karen Jónsdóttir.
t
Fósturmóðir mín,
ANTONÍAK. EIRÍKSDÓTTIR
frá Hafnarnesi, Fáskrúðsfirði,
verður jarðsett frá Kolfreyjustaðarkirkju, Fáskrúðsfirði, laugardag-
inn 9. apríl kl. 14.00.
Fyrir hönd ættingja.
Bára Jónsdóttir.
t
Maðurinn minn og faðir,
VALGEIR GUNNARSSON,
Sólvallagötu 32,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Víðistaöakirkju, Hafnarfirði, í dag, föstudag-
inn 8. apríl kl. 15.00.
Ásta Sigrún Gylfadóttir,
Elsa Sæný Valgeirsdóttir.
t
Þakka innilega samúð og hlýhug við andlát og útför mannsins míns,
HALLDÓRS ÞORMARS,
Hofi,
Fellum.
Fyrir hönd aðstandenda,
Unnur Þormars.
t
Ég þakka inniiega alla hjálp og samúð mér veitta í veikindum og
við andlát og jarðarför míns ástkæra sambýlismanns,
EGGERTS JÓHANNSSONAR,
Hátúni 10 a,
Reykjavík,
sem andaðist 17. mars sl. í Landakotsspítala. Jarðarförin fór fram
í kyrrþey að ósk hins látna.
Guð blessi ykkur öll.
Unnur Eliasardóttir.
t
Þökkum innilega veittan stuðning vegna fráfalls og jarðarfarar
JÓNS UNNSTEINS GUÐMUNDSSONAR
Breiðási 6,
Garðabæ.
Fyrir hönd aðstandenda,
Elfnbjörg Kristjánsdóttir.
t
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúð og hluttekningu við andlát
og jaröarför systur okkar,
JÓHÖNNU Þ. EINARSDÓTTUR,
Hverfisgötu 16,
Reykjavík.
Guð blessi ykkur öll.
■ Kristín G. Einarsdóttir,
Sigurður G. Einarsson.
t
Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát sambýlismanns
míns, föður, sonar og bróður okkar,
GUÐLAUGS BJARNASONAR,
Vancouver, Kanada,
áður til heimilis f Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir færum við hjónunum Kathy og Óla Leifssyni
fyrir alla þeirra hjálp.
Marilyn Miller og fjölskylda,
Heiðrún Hlfn Guðlaugsdóttir,Hannes Siggason,
Þórdfs Matthfasdóttir,
Steinunn Bjarnadóttir,
Matthfas Bjarnason,
Áslaug Bjarnadóttir,
Ólafur Sveinn Bjarnason,
Rut Sigurðárdóttir,
Bjarni Sveinsson,
Gunnlaugur Fjólar Gunnlaugsson,
Sonja Einarsdóttir,
Brandur Sigurðsson,
Lára Öfjörð Guðmundsdóttir,
Ólafur Sigurjónsson.
Lokað
Nudd- og gufubaðstofan Hótel Sögu verður lokuð
föstudaginn 8. apríl frá kl. 13.00 vegna jarðarfarar
VALGEIRS GUNNARSSONAR.
Ásta Sigrún Gylfadóttir.