Morgunblaðið - 08.04.1988, Page 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 1988
)) vrfrub Lika í vordu ska-pj, ef þi&
yrl>u& aé> -Fasl \j'\& svorux. þjalfy,
a. huerjum degi-"
Ást er ...
að standa saman í sigri
og ósigri.
TM Rog. U.S. Pat Off.—all rights reserved
01986 Los Angeles Times Syndícate
nægja og fara strax aftur
upp í bílinn. Þú lagðir
bílnum ofaná fótinn minn!
Er þér alvara?
HÖGNI HREKKVÍSI
wRANN ER A&SE/yiSA fÝIZIR H/ESTA &AKGAIZPS-
KONSERT. "
Þarf strangari reglur um hjólreiðar barna?
Til Velvakanda.
Nú vorar á ný en á þessu vori
eru fleiri bílar á götum borgarinnar
en nokkru sinni. Sumir komast svo
að orði að umferðin sé tryllt og það
er ekki fjarri sanni. En það eru
fleiri á götunum en bflamir. Nú
þegar veður fer að batna fara böm-
in að taka fram hjólin sín og njóta
þess fijáisræðis að hjóla um götum-
ar. Ég er hrædd um að þeim verði
mörgum hætt eins og örtröðin er
orðin.
Foreldrar ættu að sjá til þess að
bömin, og það þó þau séu orðin
stálpuð, fari sér ekki að voða með
því að hjóla í umferðinni. Ef til vill
þyrfti að setja strangari reglur um
hjólreiðar bama. Við verðum að
sameinast um að koma í veg fyrir
slys á bömum í umferðinni. Þung
ábyrgð hvflir á ökumönnum því það
em bflamir sem slysunum valda en
ekki bömin.
Móðir
Skrifið eða hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvað-
eina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 10 og
12, mánudaga til föstudaga, ef þeir koma þvi ekki við að skrifa.
Meðal efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orðaskiptingar,
fyrirspumir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa
ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisföng verða
að f ylgja öllu efni til þáttarins, þó að höfundur óski nafnleyndar.
Víkverji skrifar
Einhvem tíma heyrði Víkveiji á
tal eins ástsælasta listamanns
landsins og sjónvarpsfréttamanns
af norðlenskum uppruna. Listamað-
urinn var að lýsa því fyrir norðan-
manninum hversu þreyttur hann
væri orðinn á því að í hvert sinn
sem hann kæmi til Akureyrar svifu
heimamenn á hann og spyrðu hvort
honum þætti ekki Akureyri yndileg-
ur bær. - Nú er ég farinn að svara
því til í hvert sinn sem ég er spurð-
ur með þessum hætti, að Akureyri
væri áreiðanlega yndilegasti bær á
landinu, ef þar væri ekki allir þess-
ir Akureyringar, sagði listamaður-
inn.
Þetta rifjaðist upp fyrir Víkveija,
þegar hann las um Javier Mariscal,
spænskan myndlistarmann, sem
falið var það verkefni að hanna ein-
kennisbrúðu Olympíuleikanna sem
fram eiga að fara í Barcelona suma-
rið 1992, en eins og flestir þekkja
em einhvers konar dýrafígúmr
orðnar fastir liðir í tengslum við
þessa leika. Mariscal vildi hins veg-
ar vera fmmlegur en hefur þar með
komið heldur en ekki við kauninn
á mörgum Barcelona- búanum.
Fyrir það fyrsta valdi hann sér
hund að viðfangsefni en það sem
e.t.v. var verra að hundurinn varð
í meðfömm Mariscal mjög framúr-
stefnuleg útfærsla á þessari dýra-
tegund og þykir í flestu vera al-
gjört fráhvarf frá ríkjandi Walt
Disney-stfl þessara fígúra. Til að
kóróna allt saman kallar svo lista-
maðurinn sköpunarverk sitt Coby
sem er eins konar skammstöfun
fyrir Comite Organizador Olimpio
de Barcelona 92 eða COOB 92.
Það er skemmst frá því að segja
að nafngiftin þykir umdeild en sjálf-
ur hundurinn er þó enn umdeildari.
Talsmaður hinnar hægri sinnuðu
héraðsstjómar Katalóníu segir
hundinn „hræðilegan" óskapnað og
verslunarráð héraðsins hefíir látið
í ljós vonbrigði með útkomuna. Á
hinn bóginn hefur listaheimurinn í
þessum hluta Spánar fylkt sér um
sinn mann og almennt fagnað hund-
inum. Allt þetta brambolt út af ein-
um hundi varð þó til þess að Maris-
cal missti út úr sér í samkvæmi að
gallinn við Barcelona væri að þar
væru alltof margir Katalóníumenn.
Þessi ummæli komust síðan í fjöl-
miðla og Mariscal varð að bidjast
opinberlega afsökunar en hefur þó
naumast verið tekinn í sátt ennþá.
Fyrir utan það að sýna að það
er víðar hrepparígur en á íslandi,
eru ófarir Mariscal um leið ágæt
dæmisaga um tilitssemi íslenskra
Qölmiðlamanna, sem ekki hlaupa
með það sem þeir heyra í einkasam-
ræðum beint í fjölmiðlana. Reykví-
ski listamaðurinn hefur þess vegna
um árabil getað farið óáreittur allra
sinna ferða um Akureyri, og hefur
sennilega gleymt meinlegri athuga-
semd sinni um ágæta íbúa þessa
fallega bæjar. Og Víkveiji mun
áfram geyma nafn hans fyrir sig.
xxx
að er ekki alltaf auðvelt að
stunda skíðaíþróttina hér á
höfuðborgarsvæðinu, einkanlega ef
menn þykjast góðu vanir eftir skíða-
ferð í Ölpunum, eins og æ fleiri
Islendingar hafa nú fengið nasasjón
af. Hér má ekki viðra vel um helg-
ar án þess að langar biðraðir mynd-
ist við stólalyftumar í Bláfjöllum
eða Skálafelli og má teljast gott
að ná 5 til 6 ferðum yfír daginn,
þegar þannig stendur á. Hámarkið
var þó á föstudaginn langa, þegar
metaðsókn var í BláQöllinn og fæst-
ir komust í brekkumar heldur sátu
fastir meirihluta dagsins í umferða-
röngþveitinu sem þama varð.
Því miður verður víst litið við
þessu gert eins og hér háttar til.
Skíðatímabilið er stutt, veður öll
válynd og snjórinn oft sýnd veiði
en ekki gefin. Áköfustu skíðaunn-
endumir em heldur ekki stærri
hópur en svo að vandséð er hvemig
staðið verður undir öllu örari Qár-
festingu í skíðalyftum en þegar er
komin í þessum helstu skíðalöndum
höfuðborgarsvæðisins. Allur sam-
anburður við skíðasvæði Alpanna
er þannig hæpinn og hafa verður í
huga að uppbygging skíðaaðstöð-
unnar þar er meira og minna borin
uppi af erlendum ferðamönnum.
Og jafnvel í Ölpunum er veðurguð-
um ekki að treysta, eins og sýndi
sig í siðasta mánuði. Höfuðborg-
arbúar verða því að sætta sig við
biðraðimar um ókomin ár. Besta
úrræðið er að eiga tvöfaldan gang
— svigskíði og gönguskíði, taka
daginn snemma og renna sér í
brekkunum áður en flallshlíðamar.
fyllast af fólki en taka þá til við
gönguskíðin. Slík blanda íslenskrar
skíðaferðar gefur þá á góðum degi
Ölpunum lítið eftir.